Já maður spyr sig hvert Ísland sé að fara svona þessa síðustu daga, vikur og mánuði, krónan gjörsamlega farin yfirum sem ég tek alveg "skemmtilega" vel eftir núna miðað við þá sænsku, en þegar ég flutti hingað út fyrir 4 árum síðan að þá var sú íslenska 7.8-8kr miðað við eina sænska krónu sem var bara ljómandi gott, en bara t.d. akkúrrat núna er hún 14.3 sem er næstum því 2x hærra heldur en fyrir 4árum.
Og það fyrsta sem birtist manni fyrir sjónir þegar ég sat í morgun með morgunkaffið að lesa fréttir á mbl.is:
- Ríkið að koma Glitni til bjargar og kaupir 75% hlut í honum
- Krónan í frjálsu falli
- Úrvalsvísistalan lækkar um 3.18%
Spurning hvort að maður ætti að flytja aftur til landsins og sjá hvort þetta leysist þá ekki bara af sjálfu sér :)
Ég hef sennilega aldrei verið eitthvað sérstaklega þekktur fyrir fjölda kílóa sem hanga hér og þar utanámér, hef basicly síðustu 4 árin verið í kringum þessi blessuðu 68kg +/- nokkur grömm, sama hvað gekk á, allar viktir sýndu alltaf þessa sömu tölu.
EN, eitthvað hefur þetta eitthvað alveg verið að fara fjandans til síðustu 2 mánuðina, því að í byrjun ágúst kom fyrsta 70kg talan í ljós og fyrir stuttu sýndi viktin 71.xkg og núna í gær eftir 8x250m að þá í fyrsta skiptið 72.4kg...
Held ég fari að snúa mér að kringlukasti fljótlega :)
En þannig að plan vetrarins að komast upp nokkur kg kom heldur fljótlega en bara eitt smá vandamál.... hvar eru þessi auka kg ? ég sé þau nákvæmlega ekki neinsstaðar fyrir utann að vera ekki með alveg jafn ræfilslegar kinnar.
Annars alveg ljómandi góð æfing í gær, mjög svo stutt og góð, 8x250m með 45s hvíld, þriðji fimmtudagurinn sem ég hleyp þetta og hefur bara farið batnandi og hljóp þetta alveg ótrúlega mun mikið betra í gær heldur en fyrri skiptin, hraðara og léttara. En núna verður 3ja daga hvíld dauðans yfir helgina og svo byrja æfingarnar officielt á mánudaginn, bara snilld það!
Jæja jæja langur dagur í skólanum í dag, eða já kanski ekki langur, byrjaði snemma og endaði seint en ekkert þar inn á milli, einn fyrirlestur í morgun frá 08-10 og svo verklegt (Laboration) frá kl. 17-21 ! já til fucking klukkan níu um kvöldið, náttúrlega ekki heilbrigt.
En var smá smeykur fyrir þennann verklega tíma, í flestum svona vinnur maður í pörum, 2-og-2 samann þannig að mjög mikilvægt að vinna með einhverjum almennilegum. Einn góður félagi minn hætti í áfanganum fyrir stuttu og höfðum við planað að vinna samann þannig að ég hafði sumsé engann partner fyrir kvöldið þannig að ég hafði bara skráð mig á heimasíðuna hjá áfanganum og lenti bara basicly með einhverjum sem ég hafði ekki hugmynd hver það var þegar ég mætti ídag, eyddi því fyrstu 5-10mínútunum í að líta út eins og týndur smákrakki, labbandi um og reyna að finna gaurinn, hafðist allt samann á endanum og djöfulli sem þetta gekk allt samann vel, virkuðum svona helvíti vel samanna að við rúlluðum labbinu upp á tæpum 2 tímum og gjörsamlega langt á undann öllum öðrum þannig að ég sit því bara sallarólegur heima núna og að éta kvöldmat á réttum tíma :)
En annars finnst mér skólinn ganga bara alveg rosalega vel núna, man heldur ekki eftir því að hafa verið svona jákvæður gagnvart skólanum í einhverja tugi ára (ok.. max 2 tugi), hefur sennilega eitthvað að gera með að maður er að sjá fyrir endann á þessu öllu núna.
En ekki bara skólinn sem rúllar svona fínt áfram heldur finnst mér bara allt vera svo jákvætt og skemmtilegt núna þessar vikurnar, æfingarnar eru alveg að koma til, hlaupin öll að skána, lyftingarnar að smella og líkaminn bara að vakna till lífs og engin meiðsli neinstaðar. Og svo er mér farið að finnast alveg virkilega gamann að þjálfa krakkana aftur, var orðinn pínu þreyttur á því í vor/sumar en það er gjörsamlega búið að snúast við núna.
Bara að Liverpool færu að spila betur (skora meira) núna næstu dagana og þá væri lífið frábært í augnablikinu.
Alveg magnað að mæta í verklegann tíma á mánudagsmorgni til að klára næstsíðasta laborationen sem við náðum ekki að klára í síðustu viku þar sem síðasti parturinn var bara ekki tilbúinn og svo gera síðasta labben og vera þannig bara klár með verkfræðilega partinn í þessum áfanga. Ok, planið hljómar amk vel.
Kláruðum þetta litla sem við áttum eftir af þessu fyrra á nokkrum mínútum og skiluðum inn því og ætluðum svo að byrja á þessu síðasta... en nei, það var ekki tilbúið, ok jú við erum viku á undan áætluninni en goddamn it, fengum amk loforð um að þetta yrði tilbúið í lok vikunnar þannig að við ættum að geta gert þetta á fimmtudag/föstudag.
Talandi um að fara á fætur á mánudagsmorgni til einskins, ákvað því að gera það besta úr stöðunni, fór og keypti í matinn, náði mér í eitt dagblað og kanelbulle og sit því eins og kóngur heima, eldhress um morguninn með kaffi í einni, snúð í annarri að lesa fréttir dagsins :)
Voðalega er næs að taka það svona helvíti rólega eina og eina helgi, æfingarnar byrja officielt ekki fyrr en mánudaginn eftir rúma viku þannig að þetta er næstsíðasta helgin sem maður getur tekið það rólega bæði á laugar- og sunnudegi án þess að æfa eða neitt svoleiðis.
Ætlaði reyndar út og hlaupa í klukkutíma í gær en vaknaði aftur upp með hálsbólgu og stíflað nef þannig að ég ákvað að taka því bara rólega í staðinn heima uppí sófa og lesa í þessum blessuðu námsbókum, alveg helvíti næs þar sem það eru allmörg ár síðann ég hef verið svona jákvæður gagnvart því að læra heima, næ að einbeita mér alveg óvenjulega vel, liggjandi uppí sófa með opna glugga, sólin skín, með kaffi í annarri hendinni og með flísteppi ofaná mér, verður varla mikið meira næs en það.
En af æfingunum já, lyftingaræfing á föstudeginum og hlupum alveg helvíti skemmtilega æfingu á fimmtudeginum, 8x250m með 45s hvíld, sama æfing og vikuna áður þar sem ég skeit gjörsamlega á mig þannig að maður var kanski heldur of varkár núna. En þetta gekk alveg gífurlega mikið mun betur heldur en í síðustu viku þó svo að maður hefði alveg mátt hlaupa þetta örlítið hraðar, síðasti varð alveg alltof hraður svona miðað við hina en maður bætir það bara núna næsta fimmtudag.
Samt það skemmtilegasta við æfinguna var að við vorum 8stk sem hlupum þetta sem gerði æfinguna alveg mjög mikið mun léttari, skiptumst á að taka leiða sprettina og svo allir all-out í síðasta.
En sumsé núna byrjar þá síðasta undirbúningsvikan fyrir undirbúningstímabilið og þá kemst allt samann í gamla góða gírinn, ná að vera heill og frískur og negla á einhverjar almennilegar bætingar innanhús !
Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki við sjálfan mig að þá eru það eyrun á mér!
Það er ekki það að þau standa svona pínu útí loftið stolt sitthvorum meginn á hausnum á mér til að fá sem mesta sól á sig þegar ég er úti að hlaupa í sumarblíðunni, heldur er það útaf því að það gjörsamlega ómöglegt að finna einhver almennileg in-ear heyrnatól sem passa inn í þau.
a) Þessi týpa af heyrnatólum eru alveg vonlaus, passa ágætlega inní annað eyrað á mér en dettur útúr hinu á cirka 5s fresti.
b) Þessi hérna geta verið alveg mjög mismunandi, mismunandi eftir merkjum hvort þau passa betur inn í hægra eða vinstra eyrað en dettur alltaf útúr öðru þeirra á cirka 1mín fresti... getið rétt ímyndað ykkur hve gamann það er þegar maður er úti að hlaupa.
Reyndar verð ég að viðurkenna það að ég kaupi aldrei nein dýr svona in-ear headphones, mesta sem ég hef borgað fyrir þau er cirka 3000kall en núna undanfarið kosta þau mesta lagi 1000-1500kall þar sem að þau eyðileggjast alltaf hvort sem er eftir 3-6mánuði þegar eitthvað í snúrunum fuckast upp í tenginu við ipodinn. Er ekki alveg tilbúinn að leggja einhvern meiri pening í þetta ef ég er bara svona mikill böðull við þau.
Djöfulli er maður eitthvað tussulegur í dag... búinn að vera með smá hálsbólgu á morgnanna núna í 2 daga og er bara held ég ekki alveg sá frískasti í dag, ætla rétt að vona að það hafi verið ástæðan fyrir að ég hljóp eins og aumingi á æfingunni í gær, átti að hlaupa 4x4x120m með 3mín hvíld og 8-10mín hvíld á milli settanna, fyrsta serían var ok, en síðan steindrapst ég í þeirri seinni og átti aldrei nokkurntímann séns í þriðju, var orðinn svo pirraður, reiður og leið bara hálfömulega sem ég á ekki að gera eftir nokkra 120m sprettir þannig að eftir hálfa þriðju seríuna fór ég heim!
Magnað bara að ég þarf að vera í skólanum til kl. 17:00 í dag í verklegum tíma en held ég sleppi lyftingaræfingunni og reyni að ná þessum skít úr mér í staðinn, óþarfi að ýta eitthvað undir þetta og verða almennilega veikur.
En annars bara ágætt að frétta, skólinn rúllar fínt áfram, ég er hættur að djamma í einhvern góðann tíma, Liverpool vann Man Utd (á eftir að vitna í það í hverri færslu núna í viku) og svo fyrsti leikurinn í riðlunum í meistaradeildinni í kvöld hjá Liverpool á móti Marseille, vona að þeir hafi fengið gott sjálfstraust eftir sigurinn á Man Utd og fari núna spila almennilega því að þrátt fyrir að vera í augnablikinu í fyrsta sæti í ensku deildinni að þá hafa þeir alls ekki verið að spila vel.
En skólinn kallar
Annað hvort er þetta himnaríki eða þá að það fór ekki allt til helvítis hjá vísindaköllunum í morgun, en þar sem það væri sennilega ekki kalt og rigning í himnaríki að þá býst ég við því að seinni ágiskunin mín sé eitthvað nærri lagi.
Ég vil byrja á því að hrósa sjálfum mér, og finnst einnig að þú, kæri lesandi góður, ættir að standa upp og klappa fyrir mér fyrir þessi einstöku afrek mín.
Einhverntímann í Maí mánuði ákvað ég eftir vel rúmlega ársvistun í þessari ágætu íbúð minni að leygja mér geymslu í kjallaranum í húsinu mínu, skrifaði undir einhvern fínann samning og sagt að sækja lyklana þann 1.ágúst. Málið er bara það að skrifstofan er bara opin á milli 8-9 á morgnanna og á milli 12-13 á kvöldin = kl. 8-9 á morgnanna var ég sofandi í ágústmánuði og kl. 12-13 var ég að éta morgun/hádegismat = gleymdi alltaf að ná í þessa blessuðu lykla.
Fékk svo e-mail á mánudaginn að ég ætti nú lykla liggjandi á skrifstofunni og spurt hvort ég hefði ekki alveg áhuga á að sækja þá þar sem ég væri löngu byrjaður að borga fyrir geymsluhólfið mitt (peningamaðurinn sjálfur, ég), þannig að loxins í dag mundi ég eftir því að ná í þá, og ekki nóg með það, heldur er ég búinn að strauja í gegnum íbúðina mína og fara basicly með allt það drasl sem ég ekki nota, föt, raftæki, gamlar skólabækur og ég veit ekki hvað. Komst reyndar einnig að því að ég er með einhverja fucking söfnunaráráttu, getur bara ekki verið neitt annað þar sem ég held að ég hendi aldrei neinu þó svo að ég noti það ekki og það virki ekki, held að ég geti t.d. klætt hálfa afríku með öllum fötunum sem ég fór með niður í geymslu áðann og mun sennilega aldrei klæða mig í aftur. (hvað segiru mamma, ertu búin að henda þessum 4 tölvukössum og öllu sem þeim fylgdi úr herberginu mínu heima ??)
Las þessa frétt áðann á mbl.is sem er um eina flóknustu vísindatilraun sem gerð hefur verið þar sem það er verið að rannsaka öreindir og fleira í þeim flokki sem er jú alveg mjög áhugavert og verður gamann að sjá hvaða niðurstaða kemur út úr þessu, en það sem vakti samt mestu athygli mína var síðasta málsgreinin:
"Miðvikudagurinn er merkisdagur í sögu eðlisfræðinnar. Aðstandendur verkefnisins hafa ráðið til sín almannatengla til að fullvissa almenning um að þeir muni ekki óvart búa til svarthol sem mun gleypa jörðina og alla íbúa hennar eða á annan hátt eyðileggja undirstöður þessa lífs á nokkurn hátt."
Ætli það sé ekki þá bara best að vona að þeim takist þetta og ekker "úps" komi fyrir ...
Núna um helgina fór ég í fyrsta skiptið með krökkunum sem ég er að þjálfa á Götalands meistaramótið, sem er meistaramót 13-14 ára fyrir Götalandssvæðið og niðureftir í Svíþjóð og lang stærsta mótið fyrir krakkana, frá Gautaborgarsvæðinu voru þetta rétt í kringum 80 krakkar + þjálfarar og verð að viðurkenna að djöfulli var gott að komast heim í ró og næði aftur í gærkvöldi :)
En þetta var nú samt alveg helvíti gamann og krakkarnir stóðu sig náttúrlega bara frábærlega, fóru 6 krakkar sem ég er að þjálfa, en til að meiga vera með verður þau að ná lágmarki núna í sumar, unnu samtals 2 gull og 2 silfur þrátt fyrir einhver meiðsli í hópnum (já ég smita frá mér) og veikindi.
Helgin hefði svo að sjálfsögðu ekki getað byrjað betur, en það var gjörsamlega mígandir rigning alla helgin og fyrsta sem gerðist að sjálfsögðu þegar maður kom útúr rútunni var að stíga ofaní poll og verða rennandi blautur á tánum, sem er alveg mjög hressandi þegar kl. er 11 um morguninn og vita þess að maður getur ekki skipt um föt fyrr en uppúr 10 um kvöldið. Hljóp því útí næstu sjoppu og keypti stærstu regnhlífina sem fannst þar og held ég að hún hafi gjörsamlega haldið mér á lífi yfir helgina.
Og fyrir alla sem eru alltaf að bögga mig á því að ég sé að verða gamall:
Sat í rólegheitunum á sunnudagsmorgninum inní búningsherberginu að klæða mig í öll þau föt sem ég hafði með mér þegar það kom einhver foreldri þangað inn, var búinn að spjalla eitthvað smá við hann þegar hann spurði mig "Kepptir þú líka í gær?" (ath að mótið er fyrir 13-14 ára) Ég bara horfði á hann og DUUUUDEEE.
En annars er bara skólinn kominn á fullt, alveg yfirdregið nóg að lesa og lesa í þessum tveimur feitu bókum sem ég er með í þessum áföngum, verklegir tímar og skilaverkefni... já allt bara farið að rúlla áfram að venju :)
Það leið frekar hratt að venju, óvenjulega tilgangslaust að þessu sinni enda get ég ekki státað mig af að hafa gert eitthvað merkilegt af mér í sumar.
En í dag er 1.september sem þýðir að ég sé að fara að byrja síðasta haustið mitt í skóla, 4 áfangar fram að jólum og svo eitthvað skemmtó lokaverkefni eftir áramót fram að vori.
Er sumsé skráður í 2 áfanga núna fram til loka októbermánaðar og les svo 2 aðra áfanga fram að jólum. Ákvað því svona í tilefni af því að skólinn byrjar í dag og kíkja á stundatöfluna mína og komst þá í rauninni að einu hálfskelfilegu, báðir áfangarnir sem ég er í núna eru með 3 fyrirlestra í viku og eru þeir báðir á sama tíma, ALLTAF !!
Veit ekki alveg hvernig ég á að leysa þetta, en sé til eftir fyrstu vikuna hvor þeirra er erfiðari og mun þá sennilega fara á tvo fyrirlestra í honum í viku og einn í hinum og lesa svo eins og motherfucker heima hjá mér restina af deginum til að reyna að halda þessu við, verður stórmerkilegt og skemmtilegt held ég bara.
Held ég hafi ekki bloggað frá því að ég vældi yfir bicepsæfingunni sem ég tók á mánudaginn síðasta, en ég hafði greinilega allann rétt á því að vera áhyggjufullur þar sem að hendurnar á mér voru basicly ónóthæfar fram á laugardag, er ekki að grínast með það en ég hef aldrei nokkurntímann fengið jafn mikla strengi eins og ég var með í höndunum, gat hvorki beygt og alls ekki rétt úr höndunum án mikils sársauka fyrr en í gær.
En alltaf gamann að því að læra hlutinu erfiðu leiðina: Ég mun aldrei taka þessa bicepsæfingu aftur !!
-
2008
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- December
- November
- October
- September
- August
- November
2007
2006
2005
1999