I'm free from TV
Aug 25, 2008, 17:49

Og þar með lauk Ólympíuleikunum og maður er orðinn frjáls frá sjónvarpsglápinu sem stóð í 2 vikur og fannst mér ég bara standa mig alveg eins og hetja í því, svona fyrir utan hvað maður sofnaði helvíti oft fyrir framann það svona síðustu dagana.

Silfur í gær í handboltanum, smá svekkjandi að Ísland átti bara ekki mikinn séns í úrlslitaleiknum í gær, frakkar spiluðu alveg hrikalega vel og vörninn var eins og óbrjótanlegur múr með sudda markverði þar fyrir aftann.
En alveg frábært árangur hjá handboltalandsliðinu í gegnum allt móti og þetta silfur basicly eitt það stærsta í íþróttasögu landsins, frábært bara.

Horfði líka á alveg suddalegann fótboltaleik á laugardaginn þar sem Liverpool rétt hafði Middlesborough 2-1 með 2 mörkum á síðustu 6 mínútunum, öskraði ekki næstum jafn mikið og yfir handboltaleikjunum á ÓL, en samt alveg vel sáttur.

En er annars alveg handónýtur í upphandleggsvöðvunum í augnablikinu, hlupum fyrst 2x8x100m með 1.5mín hvíld á milli til að halda hraðanum vel niðri og fengum svo alltíeinu frábæra hugmynd að taka 20x20kg, 25x25kg, 30x30kg og 35x35kg í bekkpressu og ákváðum svo eftir það að taka fínt all out með ólíkum þyngdum fyrir biceppinn, 5 ólíkar þyngdir, frá 40kg niður í 10kg , byrjað á þeim þyngstu og farið svo niðurávið og settum inn þá skemmtilegu reglu að ef maður kláraði 20 endurtekningum á þyngdina að þá þurfti maður aftur að taka þyngdina fyrir ofann.

Þetta var algjör viðbjóður og endaði ég í 300 endurtekningum og gjörsamlega búinn á því... verður gamann að taka clean-ið á morgun.......

Gamli kallinn
Aug 22, 2008, 10:50

Þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar í gær á síðunni, Facebook, SMS og fleira :)
og þá er maður officiellt orðinn nær 30 heldur en 20.

Svo er það náttúrlega ekkert verra að eiga afmæli á sama degi og hraðasti maður í heimi sem hefur gjörsamlega farið á kostum á Ólympíuleikunum, sjálfur Usain Bolt, held ég þurfi ekkert að tala neitt um þetta heimsmet hans í 200m, bara djöfulsins snilld.... í mótvindi...

En Ísland svo að spila í handboltanum í dag í undanúrslitunum í handboltanum, eins og sennilega allir landsmenn vita og verður maður að sjálfsögðu að horfa á það og djöfulli væri það mikil snilld ef þeir kæmust í úrslitaleikinn.

En annars er bara alveg mjög gott að frétta af mér, æfingarnar komnar bara á "fullt", undirbúningstímabil fyrir undirbúningstímabilið í haust þannig að maður er að hlaupa svona sæmilega mikið með stuttum hvíldum á frekar litlum hraða og er svo að lyfta frekar mikið. Virðist bara sem líkaminn sé bara í alveg ágætisstandi, frekar formlaus en mjög sterkur þannig að mér lýst bara ljómandi vel á þetta og gjörsamlega meiðslalaus þannig að bara málið að byggja þetta upp hægt og rólega núna þannig að maður haldist kanski heill á næsta tímabili :)

ÓL: handbolti
Aug 20, 2008, 12:05

Helvíti er þetta magnað hjá Íslandi í handboltanum á Ólympíuleikunum, gekk ekkert gífurlega vel á fjögurra liða mótinu rétt fyrir Ólympíuleikana þannig að maður var ekkert með alltof miklar væntingar fyrir mótið en djöfulli sem þeir eru magnaðir !

leikurinn var sýndur beint hérna klukkan átta í morgun, ég stillti vekjaraklukkuna rétt fyrir klukkan átta og svaf eins og steinn til klukkan 10 þannig að ég missti af leiknum í morgun :(

PS. Johan Wissman í úrslitum í 400m á morgun !!

Neeeiiii
Aug 18, 2008, 12:41

Þetta var bara svekkjandi að sjá, eftir öll meiðslin í sumar og baráttuna við að vera orðin heil á ÓL, hljóp vel í riðlunum í gær og svo þetta :(

ÓL
Aug 17, 2008, 21:14

Held ég þurfi ekkert að tala mikið um það sem gerðist í gær, en GODDAMN IT !!

9.69s, nýtt heimsmet, vinna úrslitahlaupið með 2/10s þar sem 6 menn hlupu undir 10s, í 0.0 vindi og eins og hann hljóp síðustu 20m fagnandi.... þetta er bara rugl !

Maðurinn á svo eftir að hlaupa 200m þar sem að ég held að hið "ósláanlega" heimsmet Michael Johnson, 19.32 sé í mikilli hættu og held að það sé bara ekkert ómögulegt að maðurinn hlaupi undir 19s og setjir þar með virkilega "ósláandi" heimsmet.

En maður er náttúrlega ekki bara búinn að vera að fylgjast með frjálsum núna síðan Ólympíuleikarnir byrjuðu enda virkilega gamann við þetta er að það eru náttúrlega alltaf fullt af ólíkum íþróttum í gangi sem maður horfir í rauninni ekki á venjulegum degi en verða hinsvegar mjög áhugaverð í kringum ÓL.

Hef fylgst með körfuboltanum núna, reyndar þá bara þegar USA eru að spila þar sem þeir eru náttúrlega bara að spila virkilega skemmtilegann bolta þar sem ég er bara ekki að sjá að neitt annað lið eigi nokkurn möguleika á móti þeim enda greinilega eina markmiðið hjá þeim er að vinna þetta og komast aftur á toppinn í körfuboltaheiminum eftir klúðrið á síðustu stórmótum.

Ég er meira að segja farinn að skilja smá í Tennisreglunum núna eftir að hafa horft svoldið á það þar sem Svíjar hafa átt allnokkra keppendur þar og náðu meira að segja silfri í gær í tvíliðaleik.

Michael Phelps er nú þegar orðinn maður mótsins eftir að hafa slegið öll met og unnið 8 gull á einu og sama mótinu, en sund reyndar sennilega eina íþróttin þar sem íþróttamaður á möguleika að vinna þetta mörg gull.

Reyndar hef ég mjög skrítnar tilfinningar til sundsins þar sem það virðast allir vera að slá heimsmet hvort sem það eru riðlar, undanrásir, úrslit í 50m fríu, bringu, bak, skrið, flugsundi, 100m fríu, bringu bak, skrið, flugsundi, 200m fríu, bringu, bak ...... og svo framvegis, en það eru svo ótrúlega margar leiðir til að komast allar mögulegar vegalengdir og sett sennilega yfir 10heimsmet á dag að manni er næstum orðið hætt að vera sama, eins og leiðinlegt og það hljómar, en veit ekki, kanski er það bara ég?

Síðan já
Aug 12, 2008, 09:47

Já var náttúrleg alveg búinn að gleyma að ég væri með bloggsíðu hérna, en já búið að vera alveg mjög lélegt bloggsumar en lofa núna að bæta aðeins úr þessu.

Ég er sumsé kominn aftur til Svíþjóð eftir 2ja vikna frí á Íslandi. Verð nú bara að viðurkenna að ég hafði það alveg hrikalega gott heima, djöfulli sem það er gott að fá tilbúinn mat á hverju kvöldi án þess að þurfa að standa of mikið í því vjézeni sjálfur :)

En fór sumsé held ég 6x í golf, stóð mig næstum eins og hetja og svo síðustu 3 dagana fór ég í sumarbústað við Apavatn hjá Laugarvatni með mömmu og pabba þar sem maður naut lífsins í hæðsta gæðaflokki. Reyndar alltaf eini ókosturinn við að vera rétt hjá vatni á Íslandi eru þessar helvítis mýflugur. Tók sumsé eina hlaupaæfingu á meðann ég var þarna, hafði séð þennann fína göngustíg við hliðina á vatninu sem ég ætlaði að taka einhverja 200m spretti á en komst ekki nema cirka 100m því þá var ég næstum búinn að æla 2x eftir að hafa hlaupið í gegnum mýský og fengið munninn alveg fullann af flugum og stóð eins og einhver ræfill útí kanti og kúgaðist og kúgaðist, en náði að taka æfinguna svona þegar ég fór lengra frá vatninu.

En lífið gengur annars bara sinn vanagang reyni að fylgjast með Ólympíuleikunum núna æfingarnar komnar á fullt, farinn að geta hlaupið á næstum því fullu, testaði meira að segja gaddaskó í síðustu tvo 250m af 8 á laugardaginn, hljóp svo 4x120m í gær þangað til að hamurinn sagði stopp þar sem ég hljóp þetta greinilega aðeins of hratt í sléttbotna, farinn að lyfta á fullu og bara nýt lífsins núna þangað til að skólinn byrjar aftur.

En eitthað sem ég mæli með fyrir fólk sem er jafnt lélegt að ferðast um Ísland eins og ég, fara yfir Kjöl, en það afrekaði ég í fyrsta skiptið sem ég man eftir amk núna þegar ég kíkti í bústaðinn. Sennilega lélegasti vegur í heimi en alveg drulluflott þarna á leiðinni, svona ef maður fílar möl, jökla og stóra steina í miklu magni :)

local