Magnað shitt alveg, held ég hafi ekki verið jafn glaður í alveg dúndurlangann tíma eins og þegar ég skellti mér á æfingu í gær.
Hef náttúrlega ekki náð að hlaupa af "viti", þeas án þess að þurfa að hætta vegna meiðsla, eymsla eða annars aumingjahátt síðann um miðjan júní eða alveg þangað til í gær þegar ég hljóp 8x200m með 2-3ja mínútna hvíld á æfingunni í gær. Reyndar bara frekar rólegir "sprettir", byrjaði mjög varlega á 28.8s á sléttbotna racerum en náði svo að auka hægt og örugglega og 3 síðustu undir 27s, 26.9s, 26.4s og 26.3s, bara eylífð hamingja það og vonandi að maður geti farið að kveðja þrekhjólið og sundlaugina og byrja bara að hlaupa núna nokkrum sinnum í viku á brautinni.
Hef líka núna kíkt einu sinni í golf með Arnari bróður og ætla alveg að kíkja nokkrum sinnum í viðbót áður en ég fer aftur út á fimmtudaginn í næstu viku.
Var alveg mun betri núna heldur en síðast en skíttapaði samt 8-1 í holukeppninni á móti honum, alveg merkilegt hvað ég get skotið langt en alveg viðurstyggilega skakkt þannig að maður þarf að taka 1-3 víti á hverri einustu braut þar sem ég finn aldrei kúlurnar sem ég skít, helvítis háa gras, vötn og tré á golfvöllunum alltaf !!!
Okej Okej, sit í rólegheitunum í sætinu mínu og sé að það á að sýna myndina Jumper á leiðinni heim, bara hey kúl, betra en margt annað sem er sýnt í þessum blessuðu flugum....
En mér til mikillar vonbrigði er vitlaus mynd sett í tækið þannig að í staðinn fyrir Jumper að þá er Bridget´s Jones Diary sýnd....
Þið getið rétt ýmindað ykkur vonbrigðin....
v Tannbursti
v Hleðslutæki fyrir síma
v Peningaveski
v Of mikið af fötum að venju
Já ekki bara frá því að ég sé bara búinn að pakka öllu í töskuna, svo bara að sjá til hvernig það gengur að vakna í fyrramálið, svoldið langt síðann sem ég þurfti að vakna svona snemma...
En já, bara chilla í Reykjavíkinni yfir helgina og svo beint á krókinn á sunnudaginn, virkilega næs allt það og algjört mission með ferðinni er að vera betri í Golfi heldur en síðast þegar ég var á landinu.... ætti ekki að vera erfitt að bæta það..
Gífurlega svekkjandi samt að um helgina á sumarveðrið (30°+) að koma til Svíþjóðar og þá er verð ég á Íslandi, sveeekkkk.
En allavega, Sjáumst á klakanum folks !
Linkur á mótið svona fyrir þá sem eru ekki með Eurosport
DN-Galan í frjálsum verður haldin á morgun hérna uppí Stockholm og var að skoða skráningarnar á mótið og bara er ekki verið að grínast, held að það séu bara Ólympíuleikarnir í ár sem slá út gæðin af öllum mótum ársins, mun pottþétta setjast niður á morgun og horfa á mótið, ef einhverjir hafa áhuga að þá er smá möguleiki að það sé hægt að horfa live á mótið í gegnum heimasíðu SVT, sænska ríkissjónvarpsins þá sennilega hérna. (en mun uppfæra linkinn hérna á morgun ef ég finn þetta einhverstaðar annarsstaðar).
Flest allir þeir bestu í heiminum eru með og svo hleypur Susanna Kallur kanski núna í fyrsta skiptið eftir meiðslin fyrr í sumar og svo er smá séns að Christian Olsson stökkvi þrístökk í fyrsta skiptið í amk ár held ég ásamt miklu mun meiru..
mæli með því að fólk setjist niður og horfi á þetta ef það hefur möguleika á því, byrjar kl. 17:00 á íslenskum tíma (19:00 á þeim sænska).
Jæja, þá er það komið á hreint, á fimmtudaginn kem ég til Íslands og verð þar í hvorki meira né minna en 2 vikur takk fyrir takk, mætti halda að það væru jólin núna!
Er svona að spá í að vera í Reykjavíkinni til sunnudags og horfa á meistaramótið og skella mér svo norður eftir það og vera þar restina af ferðinni, held að þetta verði bara virkielga gamann, hitta fjölskylduna og slappa almennilega af heima.
En verð sumsé ekki með á meistaramótinu, þrátt fyrir að kálfinn sé allur að koma til og allt á leiðinni í rétta átt að þá er ég bara nýbyrjaður að skokka aftur en farinn að geta lyft ágætlega á það en samt of langt í að ég geti byrjað að negla á spretti aftur í göddum, en styttist amk með hverjum deginum.
Annars bara nokkuð slök og góð helgi, boðið í mat til Sandin og Bea í gærkvöldi og chillaði úti á landi með þeim og svo á leiðinni til Halmstad í dag að hitta Mattias sem er með eitthvað stórt og gott partý og verð þar yfir nóttina.
Sá Porsche niðri í bæ um daginn með skíðaboga á þakinu.... þetta var eins siðferðislega rangt eins og það getur orðið.
Ég er búinn að búa í Gautaborg núna í næstum því 4 ár og hafði aldrei farið út í eyjarnar hérna fyrir utann sem eiga að vera voðalega fínar svona á sumrin, fullt þá af fólki sem búa þar og svoleiðis. En í dag varð breyting á þegar ég fór þangað með þjálfaranum mínum og aðstoðaði á frjálsíþróttanámskeiði þar.
Djöfulli sem ég væri til í að eiga svona 20-30milljónir til að kaupa eitt sumarhús þar. Hrikalega næs einhvernveginn og á örugglega eftir að kíkja þangað oftar í sumar og baða þar kanski við tækifæri.
WOW er djöfullinn, meira ávanabindandi en ég veit ekki hvað, tekur gjörsamlega allann frítíma sem maður á (sem ég á jú nóg af) og meira til, mæli ekki með því að fólk byrji að spila þetta...
Verður önnur heimsókn til Íslands í sumar ?
Jæja jæja, sagan endalausa já.
Er sumsé mættur út í Svíþjóðina aftur, flaug hingað út aftur á mánudagsmorgninum og fékk á leiðinni loxins út úr þessum blessuðu blóðprufum sem ég hef verið að bíða eftir og niðurstaðan að allt er í toppstandi, ekki skortur á neinum vítamínum eða neitt svoleiðis og allt er í góðum gír, kom mér ekki á óvart en var samt að vonast að það væri eitthvað þarna sem væri að og gæti útskýrt alla þessa krampa síðasta mánuðinn.
En löppin var sumsé orðin vel bólgin, blá, marin og alveg drulluljót þannig að ég kíkti til eins mjög góðs íþróttalæknis rétt fyrir utan Gautaborgina og sagði hann mér þá að ég væri tognaður í kálfanum (kom heldur ekki á óvart þar sem ég var orðinn helaumur í honum) og má því ekki hlaupa núna í 2-3 vikur ef allt gengur vel, og miðað við að ég hef varla hlaupið í 3 vikur núna að þá eru að verða komnar 6 vikur án hlaupa þannig að ég þyrfti þá einhverjar vikur til að komast í eitthvað keppnishæft form aftur = að þá ætti að vera komin september = engin mót eftir = keppnissumarið búið í byrjun júlí ?
Þó að þetta sé náttúrlega drullusvekkjandi að þá er næstum því ennþá meira svekkjandi að læknirinn gat ekkert útskýrt hvað orsakaði þessa krampa, bara fleiri getgátur, borðað nógu vel, fengið í mig nóg af kolvetnum og svo framvegis. Allt þetta er dót sem ég hélt amk að væri allt í toppstandi en er að spá í að heyra kanski í næringafræðing til að tékka svona á þessu öllu, better safe than sorry, right ?
En hjóla, synda, magaæfingar og hendur er basicly það sem er á dagskránni hjá mér á æfingunum þessa dagana....
Náði að hlaupa eitt 100m hlaup á bikarnum núna um helgina, eða svona hlaupa og hlaupa, gat ekki neglt á það úr blokkinni en rúllaði bara fínt og þægilega í gegn á 11.48s og versnaði ekkert mikið í rauninni í kálfanum, var því að vonast að ég gæti hlaupið 400m seinna um daginn sem tókst því miður ekki.
En, er með mun minni verk í kálfanum núna heldur en síðustu 2 vikurnar EN hann lýtur út eins og versta kjarnorkuslys í augnablikinu, fékk nottla vökva inn á hann núna á fimmtudaginn og í gær byrjaði mar að koma fram basicly útum allt og í dag er kálfinn og allur fóturinn gjörsamlega feitur og fjólublár, ég kominn með smá áhyggjur þar sem ég hef ekki hugmynd hvað þetta er og þetta lýtur út náttúrlega langt frá því að vera eðlilegt. Á að fá svar úr blóðprófunum á morgun og ætla að reyna að komast til eins góðs íþróttalæknis til að láta hann kíkja á löppina þar sem ég hef ekki hugmynd hvort ég sé gjörsamlega að rústa henni með því að hlaupa eða ekki....
En flýg annars út aftur núna í fyrramálið, en vonast til að vera orðinn heill fyrir meistaramótið því annars kem ég ekki til landsins fyrr en um jólin.... (held ég)
En UMSS féll niður um deild núna um helgina, kom í rauninni ekki á óvart enda frekar vængbrotið lið og með marga unga krakka sem mér fannst standa sig ótrúlega vel og eiga að sjálfsögðu gott hrós skilið fyrir hetjulega baráttu.
Skellti mér í golf í gær í fyrsta skiptið í djöfulli langann tíma þegar Arnar bróðir reif mig með sér til að reyna niðurlægja mig svona aðeins í blíðunni heima á krók.
Spiluðum með gömlu golfkylfunum sem ég átti þegar ég var 13-14ára þannig að þær voru jú alveg heldur litlar og kenni ég þeim að sjálfsögðu um hvað ég var ógeðslega lélegur, drive-in voru voðalega blönduð, höggin á brautinni slök, skelfilegur að chippa, en púttaði hinsvegar eins og Tiger Woods.
Niðurstaðan var 4.5vinningur hvor eftir að Arnar hafi komist í 4-1 í holukeppninni en með glæsilegum endaspretti þar sem ég vann síðustu 3 náði ég jafntefli.
En í dag, suður á bikarinn og gera mér vonir að geta keppt... amk eitthvað.. ?
Allir sem hafa internetið og eru eitthvað sæmilega virkir á youtube hafa mjög líklega séð myndböndin við lagið Stronger með Daf Punk:
Hendurnar
Stelpurnar:
Og þar sem stelpurnar voru búnar að gera þetta... þá verða að sjálfsögðu köttaðir strákar með sólgleraugu að gera þetta líka:
EN þá er náttúrlega bara eftir myndbandið sem er lang best af þessum öllum og tekur í rauninni það besta frá öllum hinum og skellir því í eitt best-of myndband:
Verð að sjálfsögðu að biðja Arndísi afsökunar fyrir bloggleysið undanfarið þannig að hún hefur þurft að "vinna vinnuna" sína á vinnutímanum...
En lenti annars á landinu í gærkvöldi og kom á krókinn núna í morgun, ætla að dútla mér hérna svona fram á fimmtudag og vonast til að geta verið með á bikarnum á föstudaginn.
Held að virknin hérna á síðunni endurspegli samt vel skapið á mér síðustu vikurnar útaf þessu kramparugli. Kálfinn var í ruglinu í síðustu viku og gat því hvorki hlaupið né keppt en held ennþá í vonina að þetta sleppi almennilega fyrir helgina þar sem ég gat hlaupið smá í dag áður en þetta stífnaði allt upp aftur.
Nenni samt ekki að röfla of mikið um þetta, þetta lagast þegar það lagast, en fór til læknis á föstudaginn sem tók blóð- og þvagpróf til að reyna að finna út hvort það vanti basicly eitthvað í mig, sem ég vona í rauninni að sé málið þannig að maður viti amk hvað er að og hvað sé hægt að gera...
En reyni að rífa upp virknina aftur á síðunni hérna og fara að tala um eitthvað annað en allt það sem er að mér :)
-
2008
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- December
- November
- October
- September
- August
- November
2007
2006
2005
1999