"Við höfum fengið upplýsingar sem benda til þess að kortanúmerið þitt gæti hafað hafnað í röngum höndum. Til að koma í veg fyrir að kortið þitt verði misnotað og af öryggisástæðum viljum við skipta út kortinu þínu [...]"
Gífurleg stemning í þessu, hringdi í bankann minn í eitthvað númer sem þeir gáfu upp og lét loka kortinu mínu (eftir cirka 1klst bið í símaröð), komst svo að því að það hefði sennilega alls ekki verið vitlaust að skjótast niður í hraðbanka fyrst og taka út smá peninga...
// Ragnar, sem á þar af leiðandi enga peninga fram á þriðjudag.

Iss, hver þarf að vera í grikklandi í æfingabúðum þegar það eru 21°C og sól hérna í gautaborginni. Lena, ég og Moa á æfingunni í dag
Þegar ég verð stór ætla ég að verða veðurfræðingur!
Eða kanski sækja um það sem sumarvinnu því að ég get sagt ykkur það ágætu lesendur að ég gæti alveg lífs ómögulega staðið mig verra heldur en þessir veðurfræðingar í að giska á veðrið næstu daga. Sennilega eina inntökuskylirðið í veðurfræðinginn er að "þú verður í 9 af 10 skiptum að geta horft framann í myndavélina og logið framann í þjóðina hvernig það á að klæða sig fyrir helgina án þess að fá slæma samvisku eða brosa, þá fatta allir að þú sért að ljúga".
Reyndar myndi þetta gera mig óhæfann í starfið þar sem ég get ómögulega logið án þess að brosa :(
En ekki það að ég sé eitthvað að kvarta þar sem að á fimmtudaginn í síðsutu viku var spáin rigning og 9-12° alla daga næstu vikuna. jú ok, það rigndi smá fyrripartinn í gær en annars hefur bara verið þurrt, alveg sæmilega hlýtt nema á laugardeginum og í dag er 16° úti, sól og hitinn gæti farið upp í 20°, magnað shitt það.
En annars var þetta bara gífurlega róleg helgi svona þegar ég var ekki að lemja hausnum á mér í vegg því að þessir algorithmar sem ég er að nota hérna voru ekki alveg að standa sig jafn vel og ég vildi.
Mér finnst þetta vídjó bara vera snilld !!
Elska alveg svona daga í skólanum, mætti kl. 09 þar sem hópurinn minn í öðrum áfanganum sem ég les ætluðum að vinna í hópverkefni, kom í ljós að 2 strákarnir komust ekki í morgun og einn þurfti að fara heim fyrr þannig að við hinir tveir bara "hell no, ætlum ekki að gera þetta bara tveir" og fórum því heim, þannig að núna hefur maður allann föstudaginn fram fyrir sig, taka létta æfingu núna eftir smá, nudd klukkan 14 og svo bara fínt chill í dag finnst mér hljóma alveg glimmrandi vel.
Hljóp annars ágætlega á æfingunni í gær, 1x450m + 4x200m með 3mín hvíld á milli 200m sprettanna. Var ekki alveg nógu sáttur með 450m en fínir 200m hinsvegar eftir það:
1x450m: 59.4s (52.1s)
4x200m: 24.0s - 23.9s - 23.8s - 24.7s, þar sem síðasti var í þessari fínu sýru.
Splittaðir 400m á morgun þar sem takmarkið er að reyna hlaupa alla (samanlögðu 400m) cirka hálfri sekúndu hraðar en síðasta laugardag, og fæ svo rólegri viku í næstu viku.
Tók lyftingaræfingu í fyrradag niðri í frjálsíþróttahöllinni og jú eins og ég var búinn að nefna að þá er æfingahópurinn minn í æfingabúðum í Grikklandi núna og því æfi ég mjög mikið einn núna.
Var sumsé að lyfta og var í einhverjum vandræðum með 95kg í clean-i frá mjöðm eins og síðustu 2 vikurnar og spurði því einn kastþjálfarann í liðinu mínu hvort hann væri ekki til í að horfa á þegar ég cleanaði 95kg og segja mér hvað ég gerði vitlaust þar þar sem 90kg flugu upp létt.
Fékk bara stutt og gott svar frá honum, "Ragnar, þú ert bara of aumur!".
Mæli annars með heimasíðunni www.styrkeprogrammet.se sem er heimasíða með böns af styrktaræfingum + vídjóum af öllum æfingunum (einhver hundruð) sem eru á henni, bæði einföldum sem og erfiðum æfingum fyrir nýbyrjendur byrjendur sem og lengra komna. Einni g er hægt að logga inn á síðuna og búa til sín eigin æfingaprógröm ofl.
Síðan, sem er reyndar á sænsku, er gerð af 3 strákum hér í Gautaborgini, 2 fyrrverandi og einum núverandi frjálsþíþróttastrákum.
Það er alls ekkert lítill lélegur leikur í sjónvarpinu í kvöld sem maður gjörsamlega verður að horfa á :
VS
Held að þetta verði alveg suddaleikur (já það eða dauður 0-0 leikur) enda undanúrslitin í meistaradeildinni, bara spurning hvort liðið vilji mæta Man Utd drullusokkunum í úrslitunum því að eins og Barcelona hafa verið að spila að þá er ég því miður ekki að sjá fram á annað nema að Man Utd drullusokkarnir komist í úrslitin.
Mín spá í kvöld amk, þægilegur 2-0 sigur með 2 mörkum frá Torres!
En það hefur annars verið alveg frekar hálftómlegt á æfingunum hjá mér í gær og í dag, enginn þjálfari og enginn til að hlaupa eða lyfta með, kvarta svosem ekkert gífurlega mikið þar sem það hefur bara gengið alveg mjög vel hjá mér einum og yfirgefnum, hljóp mjög vel í gær 4x4x80m og svo hin fínasta lyftingaræfing í dag.
Í rauninni ekki annað hægt en að ganga vel með allt sem maður gerir þessa dagana nú þegar veðrið er svona dúndur gott, varð frábært fyrir helgina og hefur bara orðið betra og hlýrra síðann þá. Varla séð ský á himninum í einhverja 4 daga núna og hitinn í 17° í gær og ekki var kaldara í dag, vona að þetta haldist bara svona áfram þannig að maður geti sleppt því alveg að hlaupa inni og tekið allar hlaupaæfingarna úti !
bara rétt rúmur mánuður í fyrsta mót, does not feel like I´m really there yet..!
Haldiðið að strákurinn sé ekki bara að drepast úr metnaði! mættur niður í skóla á sunnudegi kl 10.00 um morguninn til að vinna hópverkefni með hópnum mínum.
Alveg næstum því stoltur yfir sjálfum mér :)
Stærri hluti æfingafélaga minna heldur af stað í æfingabúðir til Grikklands alveg eldsnemma í fyrramálið þar sem þau verða í jda vikna æfingabúðum í Rhodos (?), og eins og fyrirsögnin segir um að þá fer ég sumsé ekki með í ár, mikið að gera í skólanum og get eiginlega ekki misst af honum í 2 vikur og fannst bara hreinlega ekki þess virði að fara bara í 1 viku = ég heima í blíðunni :)
Vorið er sumsé komið hingað til lands, 13°, sól og smá gola í dag og á að vera eitthvað svipað veður næstu daga sem er alveg gífurlega næs.
Fagnaði þessu góða veðri í dag með því að taka æfingu úti á velli svona frekar mikið léttklæddur eins og mér einum er lagið. En þessar 2 síðustu hlaupaæfingar hafa bara gengið mjög vel, fór í gegnum mjög þungar 2 vikur þar sem lítið var að virka, lappirnar þungar osfrv en núna á fimmtudaginn tók ég fína æfingu, reyndar inni þar sem það var frekar hvasst, en hljóp þá 1x450m og 4x200m með 3mín hvíld eins og vikuna áður, mun betri hlaupið nún, allt mun léttara og tímarnir þareftir jú betri:
1x450m: 58.5 (400m: 51.3)
4x200m: 24.3 - 24.4 - 25.0 - 25.9
Alveg skemmtilega mikil sýra í síðasta en náði honum samt amk undir 26s.
Í dag var svo 3xsplittaðir 400m á dagskránni með alveg fínni hvíld, farið að koma aðeins meiri gæði í æfingarnar núna þegar það er farið að styttast í tímabilið. Sumsé 200m+200m, 250m+150m, 200m+200m með 45s hvíld á milli spretta og 20-30mín á milli setta. Hefði alveg þegið örlítið minni mótvind fyrstu 200m en jú hefur oft verið verra en fékk því aðeins hægari fyrstu 200m heldur en ég vildi fá:
200m+200m = 23.8 + 24.7 = 48.5s
250m+150m = 30.1 + 18.3 = 48.4s
200m+200m = 23.3 + 24.9 = 48.2s
Hefði jú eins og alltaf viljað fá þetta eylítið hraðar en hljóp bara svo mun mikið betur heldur en undanfarið þannig að ég er bara alveg ljómandi ánægður :)
Chill helgi !
Einn af þessum hálf tilgangslausu fyrirlestrum í einum áfanganum sem ég les þessa önnina og sit í núna, gífurleg stemning gleði og hamingja....

Var í alveg merkilega leiðinlegum fyrirlestri í skólanum í morgun, svo leiðinlegum að þrátt fyrir að hafa komið seint í fyrri hlutann að þá fór ég aftur heim áður en seinni hlutinn byrjaði, svona með því meira waste of time sem ég hef tekið þátt í lengi, ákvað að skella mér í staðinn til augnlæknis og láta tékka augun og kaupa mér nýjar linsur, og í fyrsta skiptið dagslinsur þar sem maður notar gleraugun náttúrulega mun meira núna.
Lét tékka augun alveg út og inn og komst að því að ég er víst með 3 ör í augunum, 2 í vinstra og eitt frekar "stórt" í hægra, magnað shitt það og góð leið til að losa sig við 5000kall, en gömlu linsurnar voru náttúrlega orðnar alltof gamlar þannig að...
Annars búið að vera frekar rólegt æfingalega séð síðustu dagana, fengið xtra hvíld og tekið frekar rólegar æfingar þar sem að lappirnar á mér hafa bara verið gjörsamlega búnar á því, hamurinn í fucki, og ekki náð að jafna mig á þessum rólegu dögum á milli erfiðari æfinganna, en full frískur og góður í dag þannig að vonandi að maður geti neglt á þetta aftur frá og með deginum í dag :)
En djöf... í morgun hafði ég heilann helling af einhverju skemmtilegu sem ég ætlaði að blogga um núna..... man bara ekkert hvað það var, crap. !
En mig langar samt alveg geðveikt mikið í svona peysu !!!

Jæja, þá er þetta komið í gang aftur. En serverinn fór í eitthvað í fuck á föstudaginn þegar rafmagnið fór af bænum og fór harðidiskurinn alveg stórklikkaði þannig að núna eftir einhverja 4-5ára þjónustu að þá er ég fluttur í burtu af servernum sem ég hafði heima, búið að vera mikið rugl í gangi síðustu árin og er hann bara alveg að gefa sig núna.
Er núna búinn að flytja síðuna mína til ekki ómerkari manns en Ara sem vorkenndi mér nógu mikið til að leyfa mér að hafa síðuna mína hjá honum.
En er á kafi í skólanum núna, þannig að later fólks
*UPDATE*
Þetta tók dágóðann tíma og vinnu í dag en held að ég síðan sé kominn í tipp topp stand aftur núna, íslensku stafirnir komnir inn og allt ætti að rúlla sæmilega þægilega áfram núna :)
"Ari, Þú ert náttúrlega algjörlega maðurinn fyrir að bjarga mér og síðunni" :)
Mæli alveg alls ekki með því að setja niður í fyrirlestrarsal í skólanum rétt rúmum 30mínútum eftir að maður skrölti fram og til baka á hlaupabrautunum til að reyna að ná mjólkursýrunni úr lærunum.
Tók sumsé í fyrsta skiptið í ár æfingu úti á velli, veðrið bara alveg ágætt, rétt tæpar 10°C, sól og smá gola bara, innanhúshöllin líka full af einhverjum krakkagríslingum þannig að þurfa að hlaupa inni og sviga á milli þessara greyja var ekkert alveg að lokka þannig að útibrautin varð fyrir valinu.
Finnst reyndar alltaf alveg merkilega erfitt fyrstu útiæfingarnar eftir innanhústímabilin þar sem allt virkar einhvernveginn svo hrikalega langt og erfitt, þessvegna bara fínt að byrja nógu snemma og venja sig fyrir keppnistímabilið. Æfingin í dag var reyndar ekkert sú besta í heimi, 1x450m, 15mín hvíld og svo 4x200m með 3mín hvíld. Hrikalega þungur 450m sprettur og steindrapst svo í síðasta 200m sprettinum en æfingarnar undanfarið setjast alveg rosalega í lærin á mér núna, sérstaklega mánudags- og þriðjudagsæfingarnar, refsað vel núna fyrir að hafa misst svona mikið af hlaupum og lyftingum í haust.
Annars bara allt gott að frétta og ef veður leyfir að þá hleyp ég 3xsplittaða 400m spretti úti á velli á laugardaginn, annars brekkusprettir :)

Hverjir muna ekki eftir "End of the Road", "Water runs dry", "One sweet day" og fleirum snilldarlögum með rjóma-smjör gaurunum í Boyz II Men?
Amk er ég einn af þeim, hef alltaf fílað þessi rjóma RnB lög þeirra alveg í botn og frétt núna um helgina að þeir væru að spila hérna í Gautaborginni núna í kvöld. En miðað við það að ég er hérna heima að blogga um þeta þýðir sumsé að ég fór ekki, mig gjörsamlega alveg dauðlangaði, en 5000kr verðið á miðanum inn á tónleikana er bara cirka 5000kr of mikið fyrir mig og þurfti því að sætta mig við símtal frá 2 frjálsíþróttafélögum mínum, Dennis og Martin, sem eru þar núna og leyfði þeir mér að hlusta á eitt lag í gegnum símann... sit því bara heima að hlusta á þá í tölvunni og horfá á nokkur vídjó á youtube þar sem ég kemst ekki nær þessu í augnablikinu :(
Nefndi hérna aðeins fyrr í vetur að einn bekkjarfélagi minn lenti í því að vera tekinn af löggunni fyrr í vetur þegar hann hjólaði á móti rauðu og fékk einhverja 15.000 ísl. króna sekt, náttúrlega ekki alveg það skemmtilegasta í heimi en við amk búnir að gera alveg helvíti mikið grín af honum enda alveg ömurlegt að lenda í þessu. En þetta er víst bara hreinlega ekki búið því að hann fékk fyrir stuttu bréf sent heim þar sem að það er víst verið að spá í að taka ökuskírteinið af honum fyrir þetta, senti eitthvað mótmælabréf til þeirra og situr núna heima með krosslagða fingur og vonast til að þetta verði lagt niður. Ætti að kenna fólki að ekki HJÓLA á móti rauðu...
Er ekki verið að grínast í mér... á meðann ég skrifaði þennann texta fór Liverpool leikurinn úr 2-1 í 2-2 og strax eftir það í 3-2 !! ef ég fæ hjartaáfall að þá er það þessum leik að kenna !
UPDATE: JÁÁÁÁÁÁ, djöfulsins snilld, Liverpool komnir í undanúrslitin í meistaradeildinni eftir að hafa unnið Arsenal núna í kvöld 4-2!! næsta fórnalamb á listanum er Chelsea :)
Virkilega næs og róleg helgi, algjörlega það sem ég þurfti, chilla heima, læra, fara í gufu og glápa á vídjó og fótbolta hafa verið helstu afrek helgarinnar.
En Liverpool og Arsenal spiluðu í gær í annað sinn á fjórum dögum, eiga núna bara einn og mikilvægasta leikinn eftir á þriðjudaginn á Anfield Road, heimavelli Liverpool. Var alveg virkilega skemmtilegur leikur í gær, mjög jafn og hefðu bæði liðin alveg eins getað stolið sigrinum undir lokin þannig að jafntefli kanski alveg sanngjörn úrslit og frekar meira hagstæð fyrir Liverpool heldur en Arsenal, gamann líka að sjá varaliðið standa sig svona fínt líka bara, gamann að sjá að þeir þurfa ekki alltaf að vera jafn lélegir eins og þeir voru á móti Barnsley hér fyrr í ár...
Held að ég sé samt alveg hættur að stórþrífa heima hjá mér... amk um helgar þar sem að í hvert einasta sinn sem ég stórþríf að þá fæ ég gesti og endar alltaf allt í rusli eftir það, ágætt kanski að ég montaði mig ekki á því hvað allt var fínt og flott hérna heima hjá mér í gær :)
En Emelie og Dennis, æfingafélagar mínir, kíktu í heimsókn til mín í gærkvöldi, átum gott og horfðum á myndina Dan in real life með Steve Carell. Mér fannst þessi mynd vera algjör snilld, bara helvíti fyndin og skemmtileg.
Jaha, det här kommer bli skoj.
Ett par svenska polare har klagat över att hemsidan fanns endast på isländska så att jag bestämde mig att översätta en del av sidan samt att försöka skriva in lite nyheter hyfsat regelbundet.
Folk kan kommentera på mina inlägg så länge som det handlar inte om min dåliga svenska, då kommer jag självklart sluta blogga direkt ;)
Nej okej inte riktigt, men men, som islänning då får jag leva med min svenska.
Tror egentligen att mina inlägg kommer mest handla om friidrott, hur det går med träningen samt lite tävlingsrapport över tävlingssäsongerna.
Så att... ja, tror det får räcka som första inlägg :)
Alveg helvíti svekkjandi að þegar maður fær loxins einhverja almennilega gaura a hlaupa með sér á æfingu að þá þarf maður að hlaupa svona líka lélega, svekk svekk.
En hljóp í gær 500-400-300-200-100, áttu allir að vera á max með eins langri hvíld og við þurftum, hljóp 500 og 400 alveg fáránlega illa og 200 var svona lala, hitt var í lagi
65s (50.0 á 400m) - 49.9 - 35.3 - 22.3 - 10.5.
Lítið um þetta að segja, sama hve þreyttur ég hef verið síðustu vikuna og að þetta hafi átt að vera rólega vikan mín að þá á maður nú andskotinn hafi það að hlaupa þetta betur.
En jákvæðu fréttirnar eru jú að Liverpool gerði jafntefli við Arsenal á útivelli í fyrradag og eiga ágætis líkur á því að komast áfram í undanúrslitin í meistaradeildinni.
Jæja, eftir langt og gott páskafrí komst skólinn aftur á fullt í dag, reyndar alveg hrikalega afslöppuð fyrsta vikan þar sem ég er bara í þremur fyrirlestrum, einum í dag, einum á fimmtudaginn og einum á föstudaginn, mæti reyndar ekki á fimmtudaginn þar sem ég ætla að vera á æfingu þá þannig að tveir þessa vikuna, í næstu viku byrjar svo geðveikin þar sem það eru stór hópverkefni í báðum áföngunum sem við verðum að vinna í næsta 1.5 mánuðinn.... hlakka alveg gífurlega mikið til að vinna við þau eftir þetta skemmtilega hópverkefni og þennann skemmtilega hóp sem ég var í á síðustu önn!
En talandi um æfinguna á fimmtudaginn að þá gæti það orðið alveg helvíti skemmtileg æfing, en núna þessa vikuna er frekar róleg vika þar sem ég er búinn að æfa núna í fjórar án pásu og því orðinn skemmtilega vel slitinn eins og sást vel á lyftingaræfingunni í dag, en hljóp samt gífurlega vel í gær 4x4x80m enda vel stuttir sprettir :)
En já, á fimmtudaginn, planið er annaðhvort að hlaupa 500-400-300-200-100 eða 400-300-250-200-100, allt með valfrjálsri hvíld á milli og allir sprettirnir á cirka 95-100% hraða, hleyp 500 og niðurúr ef einn strákur sem heitir Fredrik (46.3s) verður í bænum, en annars hleyp ég hina æfinguna með Simon (21.7s) sem er frekar nýlega byrjaður að æfa með okkur = löng hvíld og mikill hraði, eftir það verður 3ja daga hvíld hjá mér áður en allt fer á fullt aftur á mánudaginn, gífurleg stemning sumsé :)

