Macbook air og Dell air ??
Mar 31, 2008, 11:57

Eins og flestir vita að þá komu apple með macbook air fyrir ekkert það löngu síðann, hér er auglýsingin:

Rakst síðann á þessa Dell "auglýsingu" á youtube sem er í macbook air style :)

Sumartími
Mar 31, 2008, 11:15

Perfekt alveg, allur snjórinn fór loxins í gær á sama tíma og sumartíminn byrjaði í Svíþjóð þannig að núna erum  við 2klst á undan íslensku klukkunni, þannig að öll símtöl eftir kl 22 á ísl tíma eru ekki vel þegin, ekki það maður sé eitthvað að fá mörg svoleiðis, en en, gott að vita bara :)

Síðasti dagur páskafrísins annars ídag og byrjar því skólinn aftur á fullt á morgun, gífurleg stemning það alveg og hóstinn sem er búinn að vera að bögga mig síðustu 2 vikurnar er eiginlega að verða horfinn núna, eins gott líka það þar sem að ég er búinn að leggja út einhverjar milljónir í hóstameðöl sem virkar nákvæmlega minna en ekkert og get því haldið áfram að hlaupa á æfingunum án þess að drepast úr hósta á millri allra sprettanna.

Talandi um hlaup, mjög svo stuttir sprettir í dag á æfingunni, 4x4x80m, held ég hafi bara ekki hlaupið svona mikið stutt í einhver fjölda ára, verður bara stemning það.

Og gleðitíðindi helgarinnar að sjálfsögðu í gær þegar Liverpool vann Everton og kom sér þægilega fyrir í fjórða sætinu.

Hef annars ekkert að segja þannig að fínt bara að stoppa núna ... .er þaggi :)

Mar 29, 2008, 15:50

Þið megið kalla mig vondann og latann, en djöfulli sem ég er ekki að nenna í afmælispartý í kvöld, ok, ef þetta væri svona venjulegt afmælispartý hérna í bænum, ekkert mál, en einn félagi minn flutti úr bænum fyrir einhverju síðann og í annann bæ hérna cirka hálftíma fyrir utann og ég er bara gjörsamlega ekki að nenna að mæta þar sem að ég hef ekki hugmynd hvar nákvæmlega hann á heima í bænum, bara vjézen að komast þangað, það er rigning úti og ég er drulluþreyttur eftir æfinguna í dag.
En svona til að vera ekki alveg ömurlegur að þá mæti ég þangað og sé svo alveg til hve lengi ég nenni að vera þar, er eiginlega bara í liggja-uppí-rúmi-og-glápa-á-góða-myndarfíling eins og staðan er núna, æ mig aumann :(

Fín æfing annars í dag, 8x200m (3mín hvíld) þar sem ég mætti langt frá því að vera ferskur í fótunum, ein vika í viðbót og svo verður það róleg vika. Byrjaði örlítið of hratt eins og venjulega, fannst þetta vera alveg hálfómögulegt eftir 2 spretti þar sem ég var eitthvað hrikalega þreyttur í lærunum en hafði þetta af og náði fínum síðasta spretti amk:

24.9 - 25.9 - 25.4 - 25.3 - 25.7 - 25.5 - 25.7 - 24.9 = 25.4 meðalhraði.

Djöfulli sem það verður gott með algjöra hvíld á morgun !!

Að gera.... ekkert svo mikið
Mar 28, 2008, 17:17

Merkilegt alveg að þegar maður hefur allann tíma í heiminum til að gera allt að þá nennir maður ekki neinu, sit ennþá á rassgatinu og er alveg að koma mér í stórþrifin á heimilinu....

En æfingarnar rúlla bara nokkuð vel áfram, náði að skella mér í þessa fínu mjólkursýru á æfingunni í gær þannig að 1klst joggið í dag var langt frá því að vera létt, þægilegt og endast í 1klst.

En æfingin í gær, þessi hálftýpíska fimmtudagsæfing eins og síðustu vikurnar, 2x450m og 3x200m nema að eylítið meiri hraði í þessu núna og bara 1x3x200m.
man ekki alveg lokatímann á 450m en var á 54.7 og 53.8 í gegnum 400m á þeim (cirka 61-62s í gegnum 450m minnir mig).

Síðann 3x200m: 24.5 - 24.1 - 25.5. (með 3mín hvíld)
Var örlítið of hraður (cirka sekúnda) fyrsti spretturinn þannig að eftir cirka 100m í síðasta sprettinum kom þessi dúndrandi skemmtilega mjólkursýra þannig að í staðinn fyrir að vera hraðasti spretturinn varð hann langhægastur.

Á morgun 8x200m með 3mín hvíld, bara skemmtilegheit það og stóra spurningin að sjálfsögðu, "Verð ég búinn að taka íbúðina mína í gegn fyrir æfinguna ?" 

Arthúr
Mar 27, 2008, 22:22

Djöfulli sem mér finnst þessi Arthúr saga vera fyndin, klickið á hana til að sjá í fullri stærð !

Luvly
Mar 26, 2008, 10:54

Eins mikið og ég hef nú blótað snjónum síðustu daga að þá elska ég alveg svona daga, nokkurra gráðu hiti, heiðskýrt, sól og blankalogn :)

Þarna þekki ég þetta
Mar 25, 2008, 20:13

 

Og ef það er snjór hér í bæ að þá fara allar samgöngur fjandans til, sýndi sig best í dag þegar það snjóaði í kringum 10-20cm af snjó á einum degi að öll sporvagna og rútusystemið hérna í bænum klikkaðist alveg, á öllum sporvagnaskiltum stendur "miklar tafir" og strætóarnir eru hættir að stoppa á stoppustöðvum á leiðinni upp brekkur, gífurleg stemning

Súkkulaði... nei takk !
Mar 24, 2008, 16:29

Djöfulsins ógeð sem ég er kominn með á súkkulaði í augnablikinu, Nóa Síríus eggið sem ég keypti mér og er búinn að horfa á standa uppí hillu síðustu 3 vikurnar er nokkurnveginn búið, smá eftir af botninum og mig langar alveg ótrúlega mikið ekki í að klára það akkúrat núna.
Held að það taki núna við nokkurra vikna nammipása.

Það er bara ekkert verið neitt að grínast með þetta veður hérna, í allann vetur hefur varla sést snjór hérna í bænum og núna þegar maður hélt að vorið væri að koma að þá hefur snjóað í viku.

Ég er kominn með horbjóð á hósta !

virðist vera sama hvað ég ét/drekk það bara virðist ekkert hjálpa neitt við að losna við slímið í hálsinum og þennann leiðindarhósta sem er alveg að gera útaf við mig á æfingunum og stend ég eins og vitleysingur á milli allra spretta og hósta lungunum út úr mér eins og versti reykingamaður.

Afmæli í kvöld og reyna að njóta af síðustu viku páskafrísins :)

Gleðilega páska
Mar 22, 2008, 15:19

Búinn að vera pæla alveg helvíti mikið í hvað maður ætti að borða svona á páskadag.... í rauninni alveg heilmiklar pælingar þar sem að frá því að ég flutti að heiman að þá hef ég aldrei spáð neitt mikið í því, yfirleitt bara endað á pizzu eða einhverju álíka gáfulegum mat.

Nema að í ár er/var planið nautakjöt, bara skella smá lúxus í þetta, kaupa einhverja feita nautakjötssneið og njóta hennar vel og lengi. Nema að þegar ég fór að versla að þá var ekki til neitt velútlítandi kjötbiti sem mig langaði í, allt svo helvíti þunnt eitthvað og ræfilslegt og varð fyrir svo miklum vonbrigðum að ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera, spurning hvort þetta endi bara á skítnum Pizzubita svona enn eina ferðina, ekki það að það séu ekki til fleiri búðir en þessi eina, en þessi liggur næst mér og er varla að nenna að fara eitthvað lengra til að kaupa mér í matinn, svo hjálpar það heldur ekki að ég fór 3x útí búð í gær, tókst alltaf að gleyma einhverju sem var algjört mösst í kvöldmatinn þannig að í rauninni er ég búinn með búðarkvótann minn næstu vikuna... shitt hvað lífið er nú erfitt.

Annars bara ljómandi fín æfing í dag, 8x200m með 3mín hvíld á milli þar sem 2 síðustu sprettirnir áttu að vera hraðastir og tókst það bara ágætlega, byrjaði reyndar aðeins of hratt, en hélt svo bara svipuðu tempói í gegnum æfinguna með jú 2 síðustu hraðasta eins og takmarkið var, allir 8 sprettirnir á 25-26s: 25.4 - 26.0 - 25.4 - 25.7 - 25.5 - 26.0 - 25.2 - 25.0.

Nokkuð sáttur bara við þetta, nema þá kanski þennann síðasta því að ég byrjaði á því að negla á fyrstu 50m í honum og eftir einhverja 70m labbaði eitthvað fífl inn á brautina og fyrir mig þannig að ég hætti að hlaupa, snéri við og gekk að 200m startinu aftur og negldi á þetta aftur í þessu fína vonda skapi, ekki næstum því jafn ferskur og rétt áður en hafði hann amk hraðastann þannig að þetta reddaðist á endanum.

Svo krakkarnir mínir, á morgun:  Man Utd - Liverpool !

Kanski ekki alveg tipp topp
Mar 20, 2008, 17:23

Tók mjög léttar æfingar í gær og í fyrradag og fannst fílingurinn bara vera alveg ágætur, eina sem er að mér núna er bara hósti og bassarödd dauðans þannig að ég ákvað að taka almennilega hlaupaæfingu í dag.

Tók mig reyndar ekki nema 1 sprett til að finna að líkaminn er bara eiginlega alls ekki í tipp topp standi til að æfa á fullu akkúrat núna eftir slappleika helgarinnar, helvíti mikið svekk það þar sem mig langaði að taka almennilega æfingu í dag en helvítis skynsemin sagði stopp og hljóp því bara 2x450m í dag og ekkert meira, 55.9 og 56.0 í gegnum 400m á þeim tveim.

Sé aðeins til hvernig ég verð á morgun en stefni samt á að hlaupa aftur á laugardaginn, þetta hlýtur bara að fara að koma til núna.... !

Er búinn að drekka upp eina flösku af hóstameðali á 2 dögum, bryðja 3 poka af hálstöflum og var að kaupa mér hóstameðal í töfluformi, eitthvað af þessu hlýtur andskotinn hafi það að fara að virka, en drekk auk þess te & kaffi til að fá eitthvað heitt í hálsinn auk þess að drekka hlandvolt vatn allann daginn, ekki að grínast en held ég sé búinn að vera í 8+ lítrum af vatni á dag frá því að ég varð veikur.

Í kvöld verður það svo heit gufa, ef það drepur ekki restina af þessum viðbjóði þá veit ég ekki hvað!

Turn around bright eyes.......
Mar 19, 2008, 10:29

IIII´m baaack, já haldiði að ég hafi ekki bara hvatt veikindin í fyrrinótt og mætti því gallvaskur á æfingu í gær og því lífið að komast í eðlilegar horfur aftur, nema svona eitt smáatriði...

Þegar ég vaknaði í morgun að þá í staðinn fyrir mína gífurlega fallegu tenórrödd var kominn þessi dúndursexy bassarödd með smá whiskeyraddar yfirbragði sem hljómar bara svona líka glimmrandi vel þegar ég þen þetta uppá háa C-ið í hinu gífurlega magnaða lagi "Total Eclipse Of The Heart", sem ég er að sjálfsögðu orðinn margfrægur fyrir að "syngja" við hin furðulegustu tilefni, að ég er bara ekki frá því að ég fari bráðum að borga mér sjálfum fyrir að fá hlusta á mig sjálfann góla, ekki slæmt það fólk mitt gott og býð ég að sjálfsögðu öðrum að koma og njóta þessara fögru tóna næstu tíma/daga þar sem ég get ekki lofað að þetta vari lengi þar sem að hálstöflur, hóstasaft og eitthvað kellingate með hungangi er notað af miklum móði til að losna við þennann skít sem fyrst.

miði á fremstu röð í eldhúsinu hjá mér kl. 15 í dag, einungis 3 miðar í boði í fremstu röð og 3 í öftustu röð (sem liggur nú samt frekar nálægt þessari fremstu) á einungis 5000kr stk og 3000 fyrir aftari sætin.... fyrstur kemur fyrstur fær!

Allt fyrir Ara
Mar 17, 2008, 14:27

Að sjálfsögðu má ég ekki draga greyið Ara niður í myrkrið með mér svona á mánudegi og ákvað því að skella inn einu svona jákvæðara bloggi seinnipart mánudags þar sem mér er farið að líða eylítið betur og Ari sennilega orðinn þreyttari og neikvæðari en hann var í morgun.

Því að það var ekki gjörsamlega allt ómögulegt um helgina því að Liverpool stóð að sjálfsögðu fyrir sínu og unnu Reading 2-1, eins gott fyrir þá líka þar sem ég veit ekki alveg hvað ég hefði gert hefðu þeir tapað fyrir þeim.... aftur...

Melodifestivalen var hérna í Svíþjóðinni um helgina, en það er basicly undankeppnin fyrir Eurovision og voru úrslitin núna um helgina, það kom nákvæmlega ekkert á óvart í úrslitunum þar sem Charlotte Perrelli vann nokkuð örugglega með þetta svona týpíska eurovision lag, greinilega engin áhætta tekin í ár eftir að þeir sentu The Ark í fyrra, með náttúrlega langbesta lagið, ekki þetta týpíska eurovisionlag, en floppaði alveg hrikalega, þannig að hafa þetta bara safe í ár, öruggt í top-5 er það ekki ?

En hún Perrelli vann þessa keppni einhverntímann í kringum aldarmótin minnir mig, segjum bara 1999 en hengi mig nú ekki uppá það... en lagið sem Svíinn sendir núna í ár heitir Hero og hljómar svona: 

 

Held að dagurinn í dag sé annars sá snjómesti í Gautaborg í allann vetur, það var snjór þegar ég vaknaði í morgun og núna kl 15:04 að þá er ennþá snjór sem er bara nýtt met, gefum snjónum því gott klapp... *klapp* *klapp* ... flooottt, núna má hann alveg fara !

En Te með hunangi kallar á mig þannig að later fólks (vona að þetta hafi verið nógu jákvætt fyrir þig Ari minn :) )

Helgin
Mar 17, 2008, 09:36

Eitthvað voðalítið hægt að skrifa um þessa blessuðu helgi þar sem ég basicly gerði ekki neitt nema liggja uppí rúmi og vorkenna sjálfum mér.

En í stuttu máli að þá var ég handónýtur á laugardeginum, mun skárri í gær og mjög svipaður ídag eins og ég var í gær = fer ekki heldur á æfingu í dag :(

Held ég hefði líka þornað gjörsamleag upp um helgina hefði ég ekki drukkið svona mikið vatn þar sem ég er bara búinn að svitna fáránlega mikið þessa 2 daga, sýndi sig þegar ég fór og þvoði þvott í gær og þurfti að þvo rúmlega vikuskammt af fötum fyrir einungins tvo daga.

En þar sem þetta er bara leiðinlegt blogg, hef ekki um neitt skemmtilegra að blogga, nema jú, það er fucking snjór úti... !!!

Ég bara verð ekki veikur... eða ?
Mar 15, 2008, 11:34

Alveg fáránlega margir sem ég þekki búnir að vera veikir núna undanfarið og jú, ég veikist alveg helvíti sjaldann (finnst mér amk miðað við aðra) þannig að ég er að sjálfsögðu búinn að vera alltof góður með mig alla vikuna og tuðandi á hverjum degi "Ha ég, iss nei nei, ég verð aldrei veikur"... á skilið gott fucking bitchslap í andlitið fyrir að hafa sagt þetta svona oft.

Sit núna heima á laugardegi, fyrsta deginum í páskafríinu mínu með þennann feita hausverk og bara almenna beinverki og vanlíðann um allann líkamann, gat varla sofið í nótt og vaknaði einhverntímann í kringum fjögur leitið og þurfti að skipta um rúmföt, hengja upp sængina og koddann og sofa með teppi og hundlélegann kodda þar sem ég svitnaði svo mikið alla nóttina að það var fucking ekki þurr blettur á í öllu rúminu, stuð og stemning :)

Þannig að plan dagsins er basicly..... ekki neitt nema jú að sjálfsögðu að horfa á Liverpool vinna Reading og svo... ekki neitt... júhúúúú

á lífi og..... páskafrí :)
Mar 14, 2008, 11:09

Ekki komin nógu löng blogg pása núna ?

Bara búið að vera í rauninni nóg að gera hjá mér núna þessa vikuna enda prófvika og því lítið að blogga um og hef reynt að fókusera mest á að læra svona inn á milli æfinganna og því hvorki nennt né haft eitthvað til að blogga um.

En síðustu 2 daga hef ég basicly setið frá 09:00 á morgnanna til miðnætis með heimapróf í einum áfanganum og þá bara með pásu þá þegar ég fór á æfingu. Kláraði þetta í gærkvöldi og skilaði í morgun rétt tæplega 3000 orða umfjöllun um allt og allt sem við höfum verið að gera í þessum áfanga í vetur, fyrsta skiptið sem ég hef haft heimapróf þannig að vona að maður hafi gert þetta nokkurnveginn eins og kennarinn vill hafa það, væri amk ógeðslega svekkjandi að ekki klára þetta eftir alla þessa vinnu sem fór í þetta....

En núna bíður mín þá sumsé 2ja vikna páskafrí, reyndar með einu upptökuprófi í seinni vikunni þannig að ég mun bara chilla hérna í gautaborginni yfir páskana, æfa eins og vitleysingur og læra svona þess inn á milli auk þess að betrumbæta þessa blessuðu síðu mína, fæ bara aldrei nóg af því enda alltaf hægt að bæta eitthvað :)

Var annars alveg virkilega næs á þriðjudagskvöldið, eftir prófið í hinum áfanganum þegar ég, Jonas og Marcus, tveir æfingafélagar mínir fórum heim til mín eftir þriðjudagsæfinguna, elduðum okkur alveg hrikalega stóra feita hamborgara og horfðum svo á Liverpool slá Inter út úr meistaradeildinni, dagurinn gat bara hreinlega ekki endað mikið mun betur.

Æfingarnar ganga annars bara alveg ágætlega, finnst ég bara ennþá vera svona hálf úthaldslaus og á alveg voðalega erfitt með að hlaupa fallega þegar ég hleyp ekki á hámarkshraða eða 90+% hraða, verð greinilega að vinna í því almennilega núna næstu vikurnar en tók í gær 2x450m + 2x3x200m, 15mín hvíld og 3mín á milli 200m með 12mín hvíld á milli seríanna, 450m eiga í rauninni bara að vera nokkuð þægilegir og 200m sprettirnir eiga að vera þannig að fyrsti í hverri seríu á að vera hægastur og síðasti hraðastur:

450m:
64.7s (28 - 57.4, á 200m og 400m), of hægir fyrstu 200m og illa hlaupið.
63.2 (27.4 - 55.8), tæknilega séð miklu betri sprettur
Báðir mjög þægilegir og engin mjólkursýra.

200m:
25.7 - 25.5 - 24.8 : voðalega þægilegt bara nema alltof spenntar axlir og hendur
25.5 - 25.7 - 25.8 : fannst ég vera að hlaupa annann sprettinn of hratt þannig að ég hægði aðeins of mikið á mér síðustu 50m þannig að hann varð hægari en sá fyrsti, dó svo hreinlega síðustu 80m í síðasta sprettinum.

Merkilegt nok samt að ég hafði meiri mjólkursýru í triceps á hægri hendinni heldur en í fótunum sem hlýtur bara að segja að það er eitthvað sem ég er ekki alveg að gera rétt .... !

En var samt betra en í síðustu viku þannig að þetta er á réttri leið og miðað við hvað ég hljóp vel á mánudaginn að þá finnst þetta allt samann hérna, bara fá þetta í hvert hlaup á hverri æfingu :)

Annars er æfingaplanið örlítið breytt núna miðað við fyrir jól og síðasta ár þar sem að ég æfi núna í 4 vikur og tek eina viku rólegri viku og mun gera það fram að sumri miðað við áður þegar ég æfði 3 vikur og tók svo eina rólega, missti af slatta af vikum fyrir jólin þannig að það verður allt samann bætt upp núna :)

En núna er málið að fara að vaska upp, ekki verið mikið um það síðustu dagana þar sem ég hef setið fyrir framan tölvuna og skrifað þetta heimapróf, étið, og haldið áfram að skrifa osfrv.

Later folks

mbl.is á góðum degi
Mar 10, 2008, 18:08

Hef alltaf jafn gamann af stafsetningarvillunum á mbl.is, en finnst reyndar alveg ótrúlegt hve mikið af þeim finnst á svona stórum fréttavef... frétt dagsins

Dwyane Wade hefur lokið keppni á þessari leiktíð með Miami Heat en bakvörðurinn er meiddur á hné og mun hann nota tímann til endurhæfingar hjá sjúkrateymi liðsins.

Heat fór í aðgerð á hné s.l. sumar [.....]

Dwayne Wade..... Miami Heat... nema náttúrlega allt liðið hafi skellt sér á hópafslætti í hnéaðgerð... hvað veit ég ?

En annars prófvika núna, próf á morgun og heimapróf sem ég þarf að skila inn á föstudaginn, gífurleg stuð og stemning í því.

Og er alveg mjög svo sáttur með æfinguna í dag, fannst ég hlaupa bara alveg drulluvel þannig að það er jákvætt að sjá hvað þetta er fljótt að koma aftur eftir frekar lélega síðustu viku, bara gamann að því :)

möl + skokk + rigning
Mar 09, 2008, 13:02

Mæli bara ekki með því fyrir neina manneskju að fara út og skokka/hlaupa í rigningu á malarvegi/göngustíg.

Var í blóma lífsins á góðu skriði syngjandi (já ef fólk kallar það söng) og alveg ekki með hugann við skokkið þegar eitt lítið skref fór ekki alveg þangað sem það átti að fara og vegna bleytunnar fór þetta náttúrlega allt fjandans til og ég hringsnerist í loftinu, en eins og fólk veit flest að þá er ég náttúrlega fæddur með góð viðbrögð og skellti höndunum framfyrir mig áður en ég lenti.

Nokkur atriði afhverju maður á ekki að setja hendurnar fyrir sig þegar maður er að skokka vettlingalaus í rigningu á malarvegi:

  • Ég sé kjötið þar sem áður var húð á höndunum á mér
  • Það er svo langt frá því að vera þægilegt að spreyja rakspíra beint á kjöt
  • Sit með nál og flísatöng við að tína steinana úr kjötinu
  • Er svo ekki að sjá framá það að ná öllum þessum steinum út
  • Það hættir ekkert að blæða úr þessu

Svo náttúrlega lúkkar ekkert það kanski ekkert best í heimi að koma skokkandi heim með fallegum skrefum og líta út einsog maður hafi farið í leðjuslag í öllum fötunum sínum....

/ Ragnar, brúnn og fallegur !

Viðtal við Michael Ford
Mar 07, 2008, 19:21

Eins og kanski ekki allir vita að þá skipti Jeremy Wariner um þjálfara fyrir ekkert það löngu og fyrir áhugasama og þá sem kanski ekki vita hver Ford er að þá er hérna linkur á viðtal við hann um Wariner.

7.26 !!!!
Mar 07, 2008, 16:54

 

Djöfulli sem þetta var æðislegt, Lena var að hlaupa á 7.26s í undanúrslitunum í 60m, bæting með 6/100s og var bara 4/100s frá því að komast í úrslit.. er náttúrlega bara hetjan mín núna !

HM byrjað - Live á netinu
Mar 07, 2008, 11:05

 HM í frjálsum

Frétti heimanað að HM væri víst eitthvað voðalega lítið sýnt heima í sjónvarpinu, þannig að ég ákvað þá bara að vera góður strákur og leita þetta upp, En sænska sjónvarpið er með þetta live á netinu og mæli með því að þeim sem langar að sjá keppnina notfæri sér þetta.

Bara annað hvort að klippa og klístra eftirfarandi slóð inn í Windows Media Player
http://akastreaming.svtiwebb.se/vp/sesvt/ebu/sesvt_live_a.asx

Eða þá fara inn á heimasíðu SVT og þar velja "Sport/Friidrott/Inomhus VM 2008" og þar "SVT Play sänder direkt från inomhus-VM" :)

Njótið vel :)

*UPDATE*
Rúv sýnir víst mótið eftir kl. 16 á daginn, en ekki fyrri part dagsins þannig að þá er um að gera að nota þessa linka hérna ef áhugi er fyrir því :)

Fyrsta og síðasta vikan
Mar 06, 2008, 17:25

Bara 1 dagur eftir af af skólanum núna þessa önnina + þá prófvikan að sjálfsögðu, vorum með fyrirlestur í gær þar sem við kynntum verkefnið sem við vorum að vinna í einum kúrsinum og gekk það bara alveg ljómandi vel, enda enginn annar en ég sem ákvað að taka þetta bara í mínar hendur og sjá um þetta bara, semog að fara yfir þetta allt samann með kennaranum í dag, ekki mörgum öðrum treystandi úr hópnum mínum því miður....

Bara eitt lab eftir á morgun, klára það á eftir og þá tekur bara próflærdómurinn við + að horfa á HM í frjálsum :) verður virkilega spennandi á morgun en hún Lena æfingafélagi minn hleypur 60m undanrásir uppúr hádeginu og allt nottla sýnt í beinni þannig að maður verður alveg á tánum við að horfa á þetta, væri alveg virkilega virkilega gamann ef hún kæmist í undanúrslitin... krosslagðir fingur fyrir henni á morgun :)

Morgundagurinn líka alveg planaður eftir því að hún komist í undanúrslitin, lab dæmið á morgun á milli 08:00 - 10:00, út að hlaupa í klst, horfa á hlaupið, drífa sig og taka restina af æfingunni niðri í höll og vera kominn heima aftur og horfa á undanúrslitin uppúr fimm leytið, eftir það, próflærdómur.

Já byrjaði sumsé að æfa aftur þessa vikuna eftir algjöra vikuhvíld frá æfingum, byrjaði á lyftingunum á mánudeginum og tók nokkra spretti (2x4x100m m/3mín hvíld) á þriðjudeginum, var víst ákveðið að taka lyftingarnar á undan fyrstu vikuna þannig að sprettirnir yrðu ekki of hraðir....

En finnst ég bara ekki hafa verið að hlaupa vel hinsvegar, hvorki á þriðjudeginum né í dag þegar ég var farinn að þreytast pínu, reyndar of létt æfing í dag fannst mér, 2x450m og fara í gegnum 400m á 57s.... með 15mín hvíld og svo 3x200m með 3mín hvíld á 26.0-25.5-25.0, og þrátt fyrir að hlaupa ekkert spes vel í dag hljóp ég á:

450m: 65.4 (27-57.5 á 200m & 400m) aðeins of hratt fyrstu 200m og hægði of mikið á mér seinni 200m.
450m: 63.5 (28-56) jafnt og fínt og miklu betra hlaupið en fyrri
3x200m: 25.? - 25.5 - 24.5 (mistókst aðeins tímatakan á fyrsta)

Var ekkert dauður neitt eftir þetta en fannst ég ekki hlaupa neitt spes samt í síðasta 200m þannig að í næstu viku bætum við einu setti við af 3x200m og ætla að hlaupa 450m aðeins hraðar (55-56s í gegnum 400m) þá held ég að þetta verði bara fínt.

Þessi mynd er bara of frábær til að ekki hafa hana með hérna :)

So worth it
Mar 04, 2008, 09:25

Það er á svona dögum sem það er algjörlega þess virði að fara á fætur á morgnanna, opna gluggana út og hlusta á fuglana syngja fyrir sig svona yfir morgunverðaborðinu.

Þriðji dagurinn í röð sem sól, logn, EKKI RIGNINGU, og með nokkrar plúsgráður í loftinu.

Sumardagur í Svíþjóðinni

og tíminn líður
Mar 03, 2008, 20:56

Já þið eruð að meina það, er það bara ég eða voru fyrstu 2 mánuðir ársins fljótir að líða ?

Var svona basicly að komast að því að í dag byrjaði síðasta vikan í skólanum á þessari önn, næsta vika er próf, svo páskafrí, svo upptökuprófvika, síðann eftir það byrjar skólinn aftur, virkilega næs það, verður líka virkilega gott að klára þetta hópverkefni sem við erum búin að vera í á þessari önn, ok, er í fínum hópi svona félagslega séð en goddamn it hvað ég er ekominn með mikla leið á hvað það gerist ekkert í honum, ekkert alltof virk svona þessi grey sem er að gera mig hálfbrjálaðann þar sem ég þoli ekki að skila inn einhverju sem mér finnst ekki nógu gott !! þrauka nokkra daga í viðbót.

En annars líka sæmilega næs með prófvikuna að það er bara eitt próf og eitt heimapróf þannig að maður er ekkert alveg beint að deyja úr stressi fyrir það sem er kanski ekkert nýtt en alveg óvenjulega slakur á því núna, maður ætti amk að geta æft alveg virkilega vel næstu 3 vikurnar án einhvers óþarfa skólastress :)

En já, Liverpool vann í gær og held að ég hafi náð að sjá algjörlega fallegasta mark tímabilsins, og ef þið hafið ekki séð það að gjörið svo vel, Gerrard sýnir hvernig á að negla boltanum í netið... eða já eitthvað svoleiðis, dæmið það sjálf :)

Too much spare time !
Mar 01, 2008, 16:19

Búinn að taka mér algjöra hvíld núna í viku frá frjálsunum eftir bikarinn um síðustu helgi og goddamn hve mikinn frítíma maður hefur haft, skil ekki hvað aðrir sem eru í skóla séu að kvarta yfir hvað það sé mikið að gera ef þeir gera ekkert annað en að vera í skóla.

Ætlaði reyndar að hlaupa eina æfingu á miðvikudeginum, 300-300-200-200-100-100 með 90s hvíld með Simon, einum strák sem flutti hingað fyrir stuttu og byrjaði að æfa með okkur sem er alveg gífurlega gott fyrir mig þar sem hann hleypur stundum 400m og ég eitthvað vel undir 22s í 200m. en amk, ákvað að sleppa því þessa vikuna og hvíla bara algjörlega þar sem lærin og nárinn á mér eru bara alltof alltof stíf eftir innanhúsmótin þannig að bara algjörlega þess virði að hvíla það í viku og byrja svo á undirbúninstímabilinu á mánudaginn aftur, farinn að hlakka hrikalega mikið til að byrja að æfa aftur almennilega og hlaupa þessar skemmtilegu mjólkursýru-mér-líður-svo-illa æfingarnar aftur :)

Merkilegt samt miðað við hve mikinn frítíma ég hef núna hvað ég hef ekkert til að blogga um, eehh skelli inn einhverjum skemmtilegum æfingabloggum í vikunni :)

local