Hvað er málið með veðrið ?
Jan 31, 2008, 20:13

Held að þetta sé nú bara að verða sá ótrúlegasti "vetur" sem ég hef upplifað lengi, ef vetur skal kalla, hvað er málið með alla þessa rigningu ???

Það er basicly búið að rigna hérna í Gautaborginni síðann í haust, hitinn síðustu vikurnar verið svona á milli 0-10°C, varla sést til sólar og núna síðustu vikurnar hefur svo bara verið rok á hverjum degi, maður er alveg farinn að fá uppí kok á þessu, besta við "veturinn" var basicly þessi 2 skipti sem maður kom til Íslands og fékk að sjá smá snjó og upplifa smá vetrarfíling...

// Ragnar í haustþunglyndi !!

Ný gleraugu eða ?
Jan 31, 2008, 11:18

 Jæja krakkarnir mínir, fór að láta mæla í mér augun í dag og rakst á þessi gleraugu, núna spyr ég því ykkur, JÁ eða NEI ?

 

Samsung Galan
Jan 29, 2008, 20:47

Átti frímiða á Samsung Galan í frjálsum sem var að enda hérna í Gautaborginni rétt áðann en ákvað að læra heima í staðinn og fara á æfingu á meðann mótið var, sé svona pínu lítið eftir því núna, jújú voru nottla margar stjörnurnar að keppa þarna en held að það hefði verið lang skemmtielgast að horfa á 60m grindahlaup kvenna þar sem Susanna Kallur er náttúrlega bara að fara á kostum og bætti sænska metið um 5/100s þegar hún hljóp á 7.75s sem er einungis 6/100s frá heimsmetinu í greininni.... Stelpan náttúrlega bara í suddalegu formi.

Eins hefði verið gamann að horfa á Lenu, æfingafélaga minn í grindinni líka þar sem hún bætti sig líka svona fínt, 8.33s (úr 8.45 sem hún hljóp á um síðustu helgi) og er núna sumsé 13/100s frá HM lágmarkinu og 2/100s frá því í 60m, vill endilega fá að sjá hana komast þangað !

En í staðinn var ég bara í rólegheitunum á æfingu að lyfta og hoppa og gekk bara alveg drulluvel, náði meira að segja að bæta mig í hoppum yfir grindur þegar hækkaði þá síðustu í 1.42m og var alveg drullunálægt 1.45m, tek það seinna í vikunni !

The PirateBay
Jan 28, 2008, 11:55

Jæja, þá fer að koma að því, eftir 20mánaða rannsókn og safnanir af "sönnunargögnum" að þá á að kæra gaurana sem sjá um ThePirateBay torrent síðuna.

Fyrir þá sem ekki þekkja til hennar að þá er þetta alveg hin fínasta síða fyrir þá sem ekki nenna að borga sig í bíó, kaupa geisladiska o.s.fr.v.

Sænsk eðalsíða sem hefur eitthvað í kringum 10milljónir notendur þannig að hægt að finna það mesta á henni, þannig að spurning um að byrgja sig upp af smá efni þaðann svona in case of henni verður lokað í einhvern tíma?

Fínasta byrjun bara
Jan 27, 2008, 21:05

Jæja, hið fyrsta mót innanhústímabilsins var núna hjá mér um helgina og gekk bara alveg ljómandi vel miðað við fyrsta mót, bæting bæði í 200m og 400m, 22.73 (átti 23.10) og 4sæti og svo 49.66 (átti 50.04) og 3ja sæti þannig að þetta var bara alveg ágætt.

Byrjaði á að hlaupa 400m á laugardeginum þar sem tæknilega séð var þetta sennilega mitt besta 400m hlaup en opnaði bara fyrstu 200m of hægt, 23.61 (rafmagnstími), held ég eigi nú eitthvað ágætis inni þar sem ég næ vonandi út á næstu mótum.
Hljóp í næstbesta riðlinum og leiddi hann frá fyrsta skrefi til síðasta án nokkurrar sérstakrar keppni, næsti maður kom í mark á rétt rúmum 50s.

200m hljóp ég svo í dag og var í rauninni mjög spes, fyrir það fyrsta var allt í rugli í nafnakallinu sem átti að vera 15mín fyrir hlaup, varð alveg voðaleg seinkun á því útaf einhverjum tæknivandamálum og svo voru allir riðlarnir í rugli, endaði á að við vorum bara tveir sem hlupum í mínum riðli.
Fékk krampa í utanvert hægra lærið rétt fyrir ofan hné þannig að ég gat ekki hitað almennilega upp, fékk nudd á það og drakk einhverja lítra af vatni og ákvað bara að testa að negla á hlaupið sem gekk svona og svona. Byrjaði á því að rykkja smá í startinu og hefði átt að fá dæmt á mig þjófstart fyrir það en fékk ekki þannig að þegar ræsirinn loxins skaut að þá var ég ekki í neinu jafnvægi og því fyrstu skrefin úr blokkinni alveg lala, hljóp fínt á beinu köflunum en beygjurnar voru alveg hundlélegar þar sem að ég var orðinn svo sveittur á fótunum og þar sem ég hleyp ekki í sokkum að þá rann ég alveg voðalega til eitthvað inní skónum og gat því hálfpartinn ekki keyrt almennilega í beygjunum, þanni að í rauninni bara mjög sáttur með tímann svona miðað við fílinginn í þessu blessaða hlaupi, ætti að eiga nóg inni þarna!

Skelli vonandi inn vídjói af báðum hlaupunum núna á næstu dögum, og svo spurning hvort það verði 60m hérna í Gautaborginni um næstu helgi eða 400m í Stokkhólmi... en núna, sofa !

Kraftaverk gerast - online aftur !
Jan 25, 2008, 18:43

Já guð minn góður... eins og þið sjáið að þá er síðan LOXINS farin að virka aftur eftir 16daga, mikil gleði og hamingja í kringum það.

En málið er að heima, þar sem serverinn sem hýsir síðuna mína er staðsettur, voru mamma og pabbi að fá sér Digital sjónvarp. En routerinn sem við vorum með heima var eitthvað of gamall fyrir digitala sjónvarpið þannig að það var alltaf í einhverju rugli og fengu þau því nýrri og "betri" router í staðinn.... það var byrjunin á 16 daga rugli.

Ekkert virkaði sem sem skildi sem hafði eitthvað með serverinn og síðuna mína að gera og þar sem að Síminn er búinn að loka sínum þjónustustað á króknum og þriðji aðilinn sér um þeirra mál að þá tók þetta allt GÍFURLEGA langann tíma, allir bentu á hvern annann en þakka honum pabba mínum fyrir að nenna að standa í þessu fyrir mig og ýta á þá til að koma þessu í gang aftur og eftir endalaust mörg samtöl fram og til baka að þá loxins loxins loxins var þessu reddað aftur áðann, mér til mikillar gleði og ánægju.

En þá kanski stutt yfirlit yfir síðustu 16 daga ?

  • Fór í upptökupróf þann 14.jan, á enn eftir að fá út úr því þannig að allir að krossleggja fingurna með mér.
  • Æfingarnar hafa bara gengið mjög vel og tímabilið byrjar núna um helgina.
  • Það átti að byrja um síðustu helgi á Reykjavík International, mætti þangað gallvaskur með 2 Svíja með mér í för, Sandin og Therése, þar sem ég átti að hlaupa 400m, hljóp fyrstu 202 metrana, var þá hlaupið aftaná mig, ég missti jafnvægið og lauk þar minni þátttöku í því mótinu.
  • Bæti þetta upp með 400m og 200m á Pallasspelen í Malmö á morgun og hinn.
  • Skólinn byrjaði á mánudaginn, missti af fyrsta deginum en mætti gallvaskur í tíma á þriðjudeginum.
  • Hvað varð um veturinn í Svíþjóð ? kominn með leið á roki og rigningu.

Þetta er sumsé mjög grófur úrdráttur úr mínu lífi síðustu 16 daga, er búinn að vera að vinna í að betrumbæta vissa smá hluta síðunnar á þessum tíma sem á að gera mér ennþá einfaldara að bæta við og betrumbæta seinna meir, hendi því inn í kvöld.

En núna er fókusinn á mótinu um helgina.

Þrefalt húrra þar sem ragnarfrosti.com er kominn online aftur

Hipp hipp húrra
Hipp hipp húrra
Hipp hipp húrra

Ísland bezt í heimi ... eða ?
Jan 09, 2008, 08:24

 Eins og allir vita að þá erum við íslendingar fallegust, sterkust, ríkust, hamingjusömust, skemmtilegust, best í bólinu, mest tæknivædd og ég veit ekki hvað samkvæmt öllum heimsins skoðunarkönnunum og að sjálfsögðu trúum við þessu og tilkynnum hverjum manni sem á vegi okkar verður hve frábær við séum.

Varð því fyrir smá sjokki í gær þegar ég las á mbl.is:

Þriðja versta deild í heimi

Eftir Trausta Salvar Kristjánsson trausti@24stundir.is
Senda frétt Senda frétt
Blogga um frétt Blogga um frétt

Bloggað um fréttina

  • Þorgeir Pálsson

    þriðja versta?

Ísland er í 97. sæti af 100 á lista Alþjoðasamtaka knattspyrnusögu og tölfræði yfir bestu og sterkustu deildarkeppnir í knattspyrnu. Súdan, Armenía, Túrkmenistan, Níkaraqva og Víetnam eru allt hærra skrifaðar fótboltaþjóðir.

Aðeins Kasakstan, Bosnía&Hersegóvína og Aserbadsjan þykja veikari en Landsbankadeildin. Framkvæmdastjóri KSÍ tekur listann ekki alvarlega.

Og er í smá sjokki við viðbrögðum Framkvæmdastjóra KSÍ, "tekur listann ekki alvarlega".... en þá allar hinar tölfræðirnar?? er þá ekki heldur að marka þær ?? hverju á maður að trúa ??

e...e... erum við þá ekki best í heimi ?

It's killing me !
Jan 08, 2008, 08:23

Ekki veit einhver um einhverja töfralausn til að gjörsamlega slátra táfýlu í gaddaskóm ?

Er orðin alveg allsvakaleg og er oft á tíðum farinn að vorkenna sjálfum mér fyrir að þurfa að vera svona nálægt mér sjálfum á hlaupaæfingunum, goddamn sko, en málið er að gaddaskórnir mínir eru svo helvíti passlegir að ég get ekki einu sinni verið í þynnstu sokkum í þeim því þá verða þeir alltof þröngir þannig að ég hleyp alltaf berfættur sem .... já, hefur sumsé þessa galla... og get varla haft þessa annars frábæru skó inní íbúðinni minni :(

Einhverjar hugmyndir ?

Umbrella
Jan 07, 2008, 19:35

Finnst alveg mjög svo skemmtileg útgáfan af laginu, sem Rihanna gerði svo frægt hér um árið, Umbrella með sænsku rockhljómsveitinni LillaSystir, þannig að ég ákvað bara að skella því í spilarann hér á hægri hönd, mæli alveg með að fólk tékki á því :)

En átti annars alveg mjög fína æfingu áðann, 4x150m með þessum fínu 10mínútum á milli, tímarnir 16.3 - 16.2 - 16.3 - 16.4, ætlaði mér aðeins of mikið í þessum síðasta og náði alveg spenna hvern einasta vöðva líkamans í 150m í staðinn fyrir að hlaupa þetta eylítið afslappað og varð því hægastur, en ætlaði að reyna að ná honum niður á 16.0, en gamann að þessu þar sem ég hef ekki hlaupið hraðar en 16.2 í 150m inni áður þannig að þetta ætti alltsamann að finnast þarna einhverstaðar.

Annars ákveðið að ég keppi ekki um helgina. Þar sem ég hljóp ekki það mikið á íslandinu yfir jólin... Tek í staðinn smá test á fimmtudaginn, 150m og 450m :) og svo einhverja almennilega 400m æfingu á laugardeginum, keppnistímabilið byrjar svo í staðinn um næstu helgi í Borås þar sem ég hleyp 400m.

Og smá mont í lokinn..... djöfulli sem íbúðin mín er hrikalega flott núna, eiginlega að spá í að banna mér sjálfum að búa hérna næstu vikurnar svo ég eyðileggi þetta nú ekki alveg svona strax. Ótrúlegur munur að vera kominn með aðeins fleiri myndir uppá veggina og breyta röðuninni á öllu í eldhúsinu þannig að þetta lítur bara alveg mjög svo fínt út þó ég segi sjálfur frá. Kanski bara næst á dagskrá að kíkja í Ikea á næstunni og breyta aðeins til í stofunni :)

ha, Snjór hér
Jan 06, 2008, 11:32

Já kraftaverkin gerast greinilega ennþá og haldið þið að það hafi ekki bara snjóað hérna í gærkvöldi. Hef varla séð snjó hérna í Gautaborginni í vetur og held að hann muni heldur ekkert vera hérna neitt sérstaklega lengi þar sem að það er létt rigning úti núna, spurning að drífa sig út núna og henda upp einum snjókalli svona í tilefni dagsins.


Horfði annars á alveg rosalegann leik í íshockey í gærkvöldi þegar Svíjar spiluðu í úrslitunum á HM 20 ára og yngri á móti Kanada. Höfðu komið skemmtilega á óvart í keppninni og komist alla leið í úrslitin og á leiðinni meira að segja unnið Kanada í rosalegum leik eftir comeback frá því að vera undir 0-3 fram til síðasta leikhlutans og vinna þar 4-3 en höfðu ekki alveg sömu heppni með sér í gær, unnu samt upp 0-2 til 2-2 en töðuðu svo í framlengingunni 3-2 og gullið því til Kanada, alveg með þeim skemmtilegri leikjum sem ég hef horft á í langann tíma, hefði samt verið skemmtilegra að fá gullið heim til Svíþjóð.

 

RSS breyting
Jan 04, 2008, 17:07

Hef breytt aðeins í RSS-inu á síðunni minni og einnig slóðinni á það, þannig að ef það eru einhverjir sem nota það á síðunni minni mæli ég með því að uppfæra slóðina í RSS lesaranum sínum annað hvort með því að klicka á merkið uppí glugganum þar sem slóðin á síðunni minni stendur eða þá breyta því í RSS lesaranum hjá sér úr http://www.ragnarfrosti.com/rss.php yfir í http://www.ragnarfrosti.com/feed/.

Smá breytingar í uppsettningunni og mun betri forritun bakvið það svona fyrir sjálfann mig :)

Sverige
Jan 04, 2008, 08:08

Stóð hálf sveittur í gær þegar ég stakk lyklinum í hurðina að íbúðinni minni í gær því að lets face it, ég hef ekkert verið sá duglegasti síðustu ár við að muna að henda öllu sem rotnað getur þegar ég hef verið að fara heim um jólin, því gífurlega mikill léttir þegar mér mætti bara þessi fína lykt af nákvæmlega engu :)

Jólafríið leið alveg ótrúlega hratt og fannst ég rétt vera nýkominn þegar ég var farinn aftur, en samt alltaf viss léttir þegar maður er kominn út aftur, þá sérstaklega æfingalega séð.

Ferðalagið heim gekk bara alveg ljómandi fínt, kom lítið sem ekkert uppá og svaf bara alveg góðann hluta leiðarinnar og fann meira að segja gleraugu sem mig alveg dauðlangar í og væru alveg verðugur arftaki minna 9ára gömlu gleraugu sem eru btw týnd og hafði í rauninni ekkert notað þau af viti í 5 ár, kanski kominn tími til að gefa linsunum smá pásu einhverja tíma dagsins ? Oakley virðast bara alltaf standa fyrir sínu. 

Adam Tensta er maðurinn í spilaranum þessa dagana, check it out !

Jæja, málið að fara að koma sér
Jan 02, 2008, 11:03

Voðalega fannst mér þetta jólafrí vera fljótt að líða, varla kominn þegar maður er að fara aftur, en flýg núna suður í kvöld og út aftur í fyrramálið.

Jólafríið samt bara búið að vera alveg ágætt svona fyrir utann æfingalega séð en það ætti nú allt að fara að komast í lag þegar ég lendi aftur í Gautaborginni sem mætti heldur ekki seinna vera þar sem að fyrstu mótin eru að nálgast og bara rúmlega 1 vika í það fyrsta. En sat hérna í gær og henti cirka mótaskránni fyrir veturinn samann þannig að þær línurnar eru að fara að skýrast, en alveg vel hálf stressaður yfir í hvernig formi maður er í augnablikinu....

Stutt og leiðinlegt blogg, málið að fara að pakka og taka sig til þannig að maður verði ready 2 go seinna í dag.


local