Held að það sé basicly eitthvað að fólki. Maður hefur oft lesið um mjög svo heimsulega gjörninga hjá "listamönnum" en þetta gjörsamlega toppar allt!
Heimskur íslenskur "listamaður" í Toronto, Kanada var með gjörning þar í bæ og fannst greinilega vera mjög svo sniðugt að gera gervisprengju, skilja hana eftir á Listasafni þar, hringja inn og segja að það væri "ekki sprengja" á listasafninu!
Er drengurinn bara heimskur ?? allt varð að sjálfsögðu crazy þar, listasafninu lokað, götuninni lokað, fullt af löggum og sprengjusveit mætt á staðinn og hann hélt að þetta væri ekki ólöglegt þar sem hann setti fínann miða á "sprengjuna" þar sem ástóð "Þetta er ekki sprengja", hafði víst talað við lögrfræðing hjá skólanum um að tékka hvort þetta væri í lagi... hægt að lesa aðeins um þetta hérna...
Er allt gjörningur í heimi listamanna ??? þið verðið að fyrirgefa, en maður ætti kanski að fara í listanám og gæri basicly klárað það nám á einum degi og bara vitnað í nokkur af þeim fjölmörgu heimsku atvikum sem maður hefur gert í gegnum árin og tatamm.. ég er listamaður !
æi þetta er bara heimskulegt !
aaahhh, fílingurinn alveg eins og eftir fyrstu lyftingaræfinguna, fyrstu vikuna á haustin, vaknaði bara sprækur í morgun, smá þreyttur í lærunum en ekkert alvarlegt, fyrr en ég ætlaði að rölta niður tröppurnar fyrir utann hjá mér og hélt ég myndi gjörsamlega hrynja niður, lappirnar ekki alveg að gera sig, eeeelska þetta.
Á morgun, 2x500m, 3x300m, verður bara æðislegt :)
Verður annars spennandi þriðjudagur eftir 2 vikur, Liverpool flengdi að sjálfsögðu Porto í kvöld og verður svo að vinna Marseille í síðasta leiknum til að komast áfram í 16 liða úrslit, eru búnir að spila vel undanfarið og vonandi að þeir haldi því áfram.... já og þessi deila á milli Benitez og eigendanna fari að leysast, yrði nottla skandall dauðans ef hann yrði látinn fara útaf einhverju svona rugli!
ÁFRAM LIVERPOOL !
Og þegar maður hélt að Scottie Pippen væri alveg hættur körfuboltaiðkun að þá les maður þessa grein á Expressen á netinu.
Scottie Pippen með comeback - í Sundsvall !!!
En hann er víst á leiðinni til landsins og ætlar að spila einn leik með Sundsvall á móti Akropol þann 11.janúar.
42ára er kappinn núna og því alveg spurning hve sprækur hann verður á vellinum, aldrei að vita nema maður kíki upp til Sundsvall og sjái hann spila ;)
En annars er loxins eitthvað jákvætt að gerast á æfingum hjá mér, en ég er núna farinn að geta hlaupið aftur svona næstum á fullu og tók mína fyrstu almennilegu lyftingaræfingu í dag s.l. mánuðinn þannig að það er vonandi að maður verði kominn á fullt á næstunni ...
Horfði á American Gangster um helgina, var búinn að heyra mjög gott um hana og varð bara ekki fyrir vonbrigðum, hélt reyndar að hún yrði aðeins grófari, en það skemmdi ekkert fyrir samt.
Denzel Washington klikka heldur ekki frekar en fyrri daginn sem aðal gangsterinn í myndinni, Frank Lucas með lögguna Richie Roberts (Russel Crowe) á eftir sér.
Myndin er byggð á sannri sögu um einmitt Frank Lucas sem var alveg helvíti virkur í fíkniefnasölunni í New York fyrir nokkrum áratugum síðann.
Jæja jæja, búinn að vera fá smá undanfarið frá fólki á MSN-listanum mínum skilaboð með linknum : http://www.clickforyou.com þar sem maður á víst að geta séð hverjir hafa blockað mann á MSN-inu.
FÓLK, ekki klicka á þennann link og alls alls ekki senda inn notendanafnið og passwordið ykkar þangað, afhverju, jú þetta er mjög líklega vírus og regla nr. 1. 2 og 3 á netinu er að ALDREI nokkurntímann gefa notendanöfnin og passwordin ykkar til þriðja aðila.
Þannig að ef þið hafið notað þetta, vinsamlegast farið inn á hotmail login svæðið ykkar og breytið lykilorðinu ASAP !!
las þetta hérna eihverstaðar:
its malware,collects information stored in the computer or logs keystrokes then sends the information back to whoever wrote the program.you dont need to share your passwords it just steals them.
Auk þess sem þetta notar hotmail accountinn ykkar til að dreyfa ruslpósti til allra á póstlistanum/MSNlistanum ykkar !
Þetta er sama með öll E-mail sem maður fær, aldrei opna neitt sem maður kannast ekki við og guð minn góður aldrei gefa neinum lykilorðin ykkar!
Ef allir fara eftir þessu að þá hætti ég að fá svona mikið rusl sent frá ykkur á MSN-inu :)
Jæja, lenti í smá vjézeni í morgun þegar database-inn fór fjandans til en náði sem betur fer að kippa því í liðinn aftur núna ásamt að setja inn smá nýtt.
Hægra meginn er kominn smá spilari þar sem ég skelli inn því sem maður er að hlusta á mest þá stundina þannig að fólk getur alveg drullað yfir tónlistarsmekkinn minn, ástamt því að hafa þar lög sem ég bara get ekki fengið leið á, sama hve mikið ég hlusta á þau...
Svo henti er myndaalbúmið líka komið í gang aftur, engar nýjar myndir þar (ekki búinn að setja einu sinni upp þannig að ég geti sett inn nýjar myndir, en það hlýtur að koma fljótlega), þannig að núna ætti held ég bara allt að virka á síðunni sem á að virka.
Er reyndar ennþá að breyta útlitinu á valröndinni hérna hægra meginn, get bara lífs ómöglega verið sáttur eða ákveðið mig hvernig hún á að líta út, but but, verður svona næstu dagana amk.
Þannig að.. já... læra kanski ?
Mér finnst þetta bara töff, "It´s a man's world" með James Brown og Pavarotti..
heeeyyy, ekki verið mikið skrifað hérna síðustu daga, ástæða, já bara búið að vera mikið að gera í skólanum, hrikalega mikið, og bara í rauninni verið lítið að blogga um, eeennn, tek smá færslu á þetta og skelli upp því helsta frá síðustu dögum í punktaformi :)
- Var frekar góður laugardagur, kíkti með nokkrum gömlum skólafélögum í gufu og sund hérna í kjallaranum, fórum í sundlaugarúgbý á móti nokkrum strákum frá Austur Evrópu og voru þeir gjörsamlega flengdir eftir að hafa komist í 1-0, niðurstaðan 25-1 fyrir okkur og niðurlægingin algjör fyrir greyin. Kíktum svo niður í bæ eftir þetta á einn sportbar þar sem við horfðum á Spán niðurlægja Svíja í fótbolta, helvíti skemmtilegur dagur og kvöld svona fyrir utan úrslit leiksins.
- Mætti í síðsta tímann minn hjá kíropraktornum mínum á mánudaginn, því miður orðinn of blankur til að fara oftar þangað þennann mánuðinn, kíki aftur einhverntímann í des, en hann búinn að gera ágætis jobb við að koma bakinu amk í rétta átt.....
- Hljóp í fyrsta skiptið í tæpann mánuð í gær, 2x3x100m með labbhvíld, gekk bara fínt og var ekki að drepast eftir það, ekkert í tipp topp neitt en versnaði amk ekki við að hlaupa, vona að þetta sé á leiðinni í rétta átt, er að verða geðveikur á þessu rugli.
- Haskell er rugl forritunarmál sem ég sé enga ástæðu fyrir að vera að læra, hata heimaverkefnið í Programming Paradigms þessa vikuna.
- "Hey Ragnar, ertu búinn að vera að lyfta á hendur undanfarið, kominn með stærri bicep" FYRSTA skiptið sem ég heyri eitthvað í þessa átt um mig og mína vöðva.... En svar já.
- 4000kr á cirka 20 daga.... þetta verður áhugavert....
- Grikkland verður víst málið í æfingabúðir vor 2008, bara kúl að prufa eitthvað nýtt og verður "skemmtilegt" pússluspil að borga þá ferð
En komið nóg í bili !
Held bara hreinlega að minni heili sé bara gerður fyrir afslöppun og rólegheit og er hér með búinn að komast að því að ef ég mæti pirraður og stressaður í próf að þá get ég alveg eins snúið við í hurðinni og labbað heim aftur.
Komst að þessu í dag þar sem ég sat heima og var að reyna að leysa einhver skilaverkefni sem gekk bara ekki neitt og var orðinn alveg vel pirraður á þeim, leit svo á klukkuna og sá þá að ég átti að byrja í tíma eftir einhverjar 5mínútur og þurfti því að stressa út til að koma bara cirka 5-10mín of seint í hann.
Ákvað samt á leiðinni að koma við í einni sjoppu til að kaupa mér eina powerrade flösku þar sem ég hafði í öllu stressinu heima að sjálfsögðu gleymt að taka vatnsflöskuna mína með mér, ekkert mál með það, nema að þegar ég er búinn að strauja kortið og er að fara að slá inn pinnúmerið mitt að þá var það gjörsamlega horfið úr hausnum á mér, fucking kort sem ég nota á hverjum degi, prufaði alveg 2x þar sem ég mundi alveg eina tölu úr því, en endaði með því að ég þurfti að afsaka mig við afgreiðslumanninn og alla hina í röðinni að ég bara hreinlega myndi ekki kóðann og fékk þá að skrifa á kvittunina í staðinn (gamla góða aðferðin).
Fattaði svo þegar ég var komin úr sjoppunni að ég var með kóðann skrifaðann í "leynihólfageymslunni" í símanum, bara ddduuuuhhh, kíkti á kóðann og jú, var með eina töluna rétta amk.
En nóg af því, dreif mig í tíma og komst að því að tíminn byrjaði 15mín yfir þrjú en ekki klukkann þrjú þannig að ég var í rauninni mættur 10mín of snemma.
Rólegheit eiga best við mig !
Vá, hve erfitt á það eiginlega að vera að bara nenna að vaska upp 3x á dag smá leirtau?
Alveg ótrúlegt hvað maður þarf alltaf að safna þessu upp í háa hauga, blóta því þriðja hvern dag að það sé ekki til hreint glas til að maður loxins nenni að koma sér í að vaska upp.. oooohhhhh, alveg jafn erfitt að muna að maður átti þvottatíma í gær.
Nr. 1 á jólagjafaóskalistanum mínum í ár er uppþvottavél !
En núna er kominn vetur, djísús hvað það er búið að vera kalt úti síðustu daga og snjóaði svo smápínupons í allann dag, langbrók, here I come...
Djísus, planið um helgina var að vera alveg voðaduglegur að læra, klára eitt skilaverkefni fyrir morgundaginn og lesa svo yfir glósur og nokkra kafla í þessum áföngum sem maður er að lesa.
Varð ekki alveg svo gott því miður þar sem að þetta blessaða skilaverkefni í Cryptography tók alla helgina og rétt náði að klára það áðann og náði því ekkert að læra í hinu dótinu eins og planað var, skilaverkefnið var basicly bara: Hvað stendur hérna:
ZOZNK NRTRN NASGK NOSXG RORFJ OCVOE
RJSFS OHFSE WSKJG EVONS FNVZJ CROCR
GRMSG JNSAW SKGJR ORMOZ BRCVB RGRVM
CRJKN CRGRV FJWSK MSKTJ FSOMR TRIGV
ORCZD EZOCS KOIRZ FUHFS EFWSK GNRTA
ECRFD SGOZD RGOST JDRWS KGFVD RCRMS
KTJFS OJRFW WSKGZ JRFOZ OWZAW SKVGR
CRGRO CRFZO ASTTS ENOCV ODGNC RGTSM
HCSTD RNZNZ FORGR NOZFU CZDNR TAZFO
CRDVO ORG
Alveg ótrúlegt ef maður hefur einhverja ákveðna hugmynd hvað maður getur fastnað alveg í henni og verið algjörlega blindur á allar aðrar lausnir !
En annars jákvætt við helgina, ÉG ER KOMINN MEÐ LEOPARD Í TÖLVUNA :) loxins loxins loxins
Held að maður sé bara að verða geðveikur á þessu, já og blankur, MIG LANGAR AÐ HLAUPA OG LYFTA !
Bakið er bara ekki besti vinur minn núna, ekki hlaupið neitt í 2 vikur núna og eitt öðrum hverjum degi í það að hanga hjá nýja besta vini mínum, kíropraktornum sem er að vinna í að koma þessu blessaða baki í lag, var víst vel skakkt og asnalegt, allir vöðvarnir í kringum það því of stífir sem útskýrir basicly afhverju ég er búinn að vera að vera með verki í því undanfarna mánuði.
Þannig að í augnablikinu er ég næstum í banni í öllu, má ekki lyfta né hlaupa og hef því bara undanfarið ekki gert neitt annað nema að hjóla, hlaupa í sundlauginni og lyfta létt í bekk, stuð og stemning sumsé.
En í gær var þetta farið að líta mun betur út og farinn að fá meiri hreyfanleika í þetta allt samann þannig að núna má ég amk gera léttar magaæfingar og stabíliserings dót fyrir bakið, allt á réttri leið amk.
Annars gamann að því að sjá að Liverpool kunna ennþá að spila fótbolta eftir nokkra alveg mjög slaka leiki undanfarið þegar þeir gjörsamlega rótbustuðu Besiktas 8-0.
Ætli maður geti ekki tekið einn svona hraðakúrs í íslensku 103 um jólin, held að mannig veiti ekki af því að fá upp smá orðaforða aftur.
Lék annars algjöra hetju í skólanum í gær, sátum inní tölvusal með verkefni þegar ég fann eitt peningaveski á röltinu með sjálfum sér, vel troðið af kortum og peningum, cirka 7000kr þannig að ég ákvað að vera góði gaurinn og leitaði upp stelpuna í símaskránni og bjallaði í hana og lét vita að ég hefði fundið veskið hennar.
Hún var reyndar í hálfgerðu sjokki greyið stelpan, bæði það að hafa verið í stressi að leyta að veskinu + að hún vissi ekki að það væru til svona heiðarlegar manneskjur þegar ég sagði henni að það væru fullt ef peningum í því, sá svo að sjálfsögðu strax eftir því að hafa sagt það þar sem ég á nú ekki nema 190kr (íslenskar) inn á debitkortinu mínu í augnablikinu ;)
But hey, einhver verður nú að leika góða gæjann !
Jæja, fann nokkrar myndir frá föstudagskvöldinu, bæti við fleirum ef ég finn einhverjar góðar ;)




Átti alveg mjög spes föstudagskvöld, eða já, föstudag getur maður sagt.
Byrjaði með því að ég fékk símhringingu frá einhverri konu á miðvikudaginn þar sem hún fór að bulla um eitthvað sem á hafði ekki hugmynd um, en talaði eitthvað um catwalk, show og að labba um í fötum frá Björn Borg, hafði þá einhver (einn æfingafélagi minn í djóki) skráð mig hjá þeim, þannig að ég hélt að þetta ætti bara að vera eitthvað model dæmi, sýna föt or some, þannig að ég ákvað bara að slá til og vera með.
Þannig að ég mætti þarna á föstudaginn í góðum fíling og hitti strákana sem ætluðu að vera með í þessu, og var svo farið í gegnum allt þetta dæmi með okkur, komst ég þá að því að þetta var ekki neitt módeldæmi, heldur var þetta einhver "Herra Svíþjóð" keppni, þannig að basicly held ég að ég hefði ekki einu sinni mátt vera með þar sem ég er nú íslenskur ríkisborgari, en þar sem maður var nú mættur þarna ákvað maður bara að hafa gamann að þessu.
Vorum mættir uppúr 4 um daginn og farið í gegnum catwalkið, hvernig við áttum að labba á sviðinu, haga okkur og allt svoleiðis dæmi, fórum svo í make-up, þá meina ég alvöru fucking make-up þannig að maður leit út eins og hin fínasta barbie dúkka, æft eitthvað aðeins meira eða þangað til rétt uppúr 1 um nóttina þegar keppnin fór af stað.
Var alveg góð blanda af gaurum í þessu, 10stk, og svona heldur mismikil alvara í þessu hjá þeim, sumir bara voðalega slakir og bara að hafa gamann, og svo hinir sem voru basicly í þessa 9klst sem við vorum að bíða, alltaf að fixa hárið, make-upið og hafa voðalega miklar áhyggjur af útlitinu.
Síðan uppúr 2 leytið um nóttina var keppnin búin og 3 fyrstu fengu einhver verðlaun og top 2 komust áfram í undanúrslitin, fengum allir líka einhver smá gjafakort (siglingu á milli Helsinki og Svíþjóðar, bara kúl það, + að við fengum að eiga brókina sem við vorum í á sviðinu.
- Er alveg nokkuð viss um að einn gaurinn þarna hafi verið að reyna við mig mestallt kvöldið.
- Strákar, ef þið viljið fá suddaathygli á dansgólfinu á skemmtistöðum bæjarins, þá mæli ég alveg eindregið með því að standa fyrst olíuborinn á brókinni uppí á sviðinu, það virkar alveg.
- Held ég hafi aldrei fengið jafn mörg hrós yfir útlitinu eins og á dansgólfinu eftir keppnina, voða mörgum stelpunum sem fannst að ég hefði átt að vera á top3 :)
- Í fyrsta skiptið bauð stelpa mér uppá drykk á barnum, en ekki öfugt.
- Ég komst því miður ekki með brókina alla leiðina heim, þar sem að í sjoppunni fyrir utann skemmtistaðinn voru 2 stelpur sem vildu endilega eiga brókina sem ég og einn annars strákur vorum í á sviðinu, þannig að við kipptum okkur bara úr þeim og gáfum þeim, við lítinn fögnuð kærasta annara þeirra, vona að það sé ekki öryggismyndavél á staðnum....
En þetta var bara annars hin fínasta stemning, þrátt fyrir alla þessa hundleiðinlegu bið eftir því að komast uppá sviðið. Skelli ábyggilega inn einhverjum myndum fljótlega ef ég finn einhverjar á netinu :)
Fór svo í innfluttningspartý í gærkvöldi hjá einum æfingafélaga mínum og, TAKIÐ EFTIR, við fórum í SingStar og ÉG, lélegasti söngvari heims, vann í öllum 3 skiptunum sem ég söng, maður ætti kanski bara að fara að snúa sér að söngnum ??

