Komin smá botn í þetta ?
Oct 31, 2007, 21:14

Já, vona að það sé að fara að skýrast eitthvað aðeins hérna með bakið á mér, en hef bara verið alveg hreyfihamlaður á æfingum síðustu vikuna þannig að kirapraktor varð fyrir valinu í dag og bara ekki frá því að hann geti kippt mér í lag, eða vona það, þar sem ég var víst alveg rammskakkur, hægri löppin vel styttri en sú vinstri og allt snúið fram og til baka, gæti alveg útkýrt mitt handónýta bak.
Næsti tími hjá honum aftur á föstudagsmorgun og fer ég bara þangað þar til að ég verð orðinn nógu góður eða ég verð kominn á hausinn þar sem þetta er náttúrlega bara langt frá því að vera ókeypis, eins gott að þetta virki.

Annars byrjaði skólinn aftur í dag, ný önn með nýja áfanga, Cryptography og Programming Paradigms, fer ekkert nánar út í þá en lýst bara vel á þetta og fínt að lesa bara 2 áfanga í staðinn fyrir þrjá eins og síðustu önn.

Enda þetta á smá youtube vídjó sem mér finnst nottla bara vera cool:

 

 

Heroes
Oct 29, 2007, 23:16

Æi, afhverju byrjar maður alltaf að horfa á þessa blessuðu þætti, maður gjörsamlega festist alltaf gjörsamlega fyrir framann þetta, 5 þættir í dag úr seríu 2 og ekki fleiri komnir út í augnablikinu og maður bara vill sjá meira, sjónvarpsþættir eru algjörlega verkfæri djöfulsins, reyndar eitt af þeim betri, skaðar engann að horfa of mikið á sjónvarp er það nokkuð :)

En plan helgarinnar, eða já helgarinnar, til og með morgundagsins var að taka það gífurlega rólega og held að ég hafi bara staðið mig eins og hetja í því nema að ég þarf algjörlega að læra að sofa almennilega út, minn venjulegi sovmorgon (vantar alveg íslenskt orð fyrir þetta) er bara að sofa í 8klst eins og venjulega og liggja svo í 1-2xtra klukkutíma og reyna að sofna aftur!

Þetta vídjó með Ný dönsk bjargar samt hvaða slæma degi sem er, svona fyrir utann að lagið er gott er vídjóið bara ..... já ég veit ekki hvað !

IFK Göteborg
Oct 27, 2007, 10:05

Held að það sé komin alveg góð stemning hérna í bænum í dag og verður fram yfir morgundaginn þar sem á morgun er síðasta umferðin í efstu deildinni í fótboltanum þar sem spennan er alveg gífurleg:

IFK Göteborg +20 46
Djurgården +16
46
Kalmar +9
45

Ekki leiðinlegt heldur að með IFK spila 2 íslendingar í vörninni, Hjálmar Jónsson og Ragnar Sigurðsson (sem er talinn vera einn besti varnamaðurinn í deildinni, okej okej, segir þá kanski eitthvað um styrkleikann í deildinni but what ever).
Verður ábyggilega sæmilegt líf í bænum ef þeir vinna leikinn á morgun (og ef Djurgården vinnur ekki sinn leik eitthvað of stórt), reyndar ef þeir vinna ekki deildina verður samt ábyggilega líka mikið líf, þá bara í formi að lemja stuðningsmenn Trelleborg (sem þeir spila á móti á morgun).

Alveg merkilegt nefnilega með þetta Huligana dæmi hérna í Svíþjóðinni, eftir hverja einustu umferð er alltaf eitthvað vjézen og fólk handtekið eftir einhvern leik (yfirleitt hjá þessum stokkhólma liðum, helvítis stokkhólmarar ;) ), og virðist sem svona 50% af þessu fólki í stuðningsmannaklúbbunum sé í þessu til að fylgjast með fótbolta, og hinn helmingurinn bara til að slást, ekki alveg að fatta þessa menningu.

En annars planið núna á næstu vikum að fara og sjá einhvern hockey leik með Frölunda, liðinu hérna í bænum, búið að margröfla í mér að koma með á einhvern leik, ég nottla orðinn algjör Hockey fan þannig að held að það sé málið að fara á einhvern góðann leik fljótlega og upplifa þessa stemningu í höllinni sem allir eru alltaf að tala um :)

loxins
Oct 26, 2007, 19:25

bíðið....bíðið..... bíðið....

AAAAAAAAAAHHHHHHHHHH (og legst niður í sófann.....)

Djöfulli sem það er gott að þessi önn sé búin, og ég er ekki að grínast með það.. ég er alveg að sofna hérna í sófanum, enda planið þessa helgi, sofa, sofa, slappa af, sofa sofa, og já, 2 léttar æfingar þess inn á milli, og já slappa af, kanski fixa líka eitthvað í síðunni, já og fixa síðu bróður míns.

En hvernig gengu prófin annars?
Jú þetta er allt godkänt bara held ég, næ fyrsta og síðasta prófinu en próf 2 var alveg helvíti strembið, sat þar í fjóra tíma, náði að klára 5 spurningar af 7 á fjórum klukkutímum, en var ekki alveg einn þar eftir eftir 4klst, þar sem að cirka 90% af fólkinu í bekknum var ennþá inni þegar tíminn var búinn.

Alveg að spá í að raka á mér hausinn núna um helgina, búið að vaxa alveg í 2 mánuði og orðið alltof sítt, djöfulli sem þetta vex hratt, hefur einhver eitthvað á móti því að segja ?

En Idol og Amarula bíða mín, góða nótt elskurnar mínar

Mac OS X LEOPARD
Oct 26, 2007, 09:03

Já elskurnar mínar, í dag kemur út nýjasta stærsta uppfærslan fyrir stýrikerfið í MAC tölvunum, Mac OS X Leopard !!

Eina sem mig vantar er að finna 10.000 kall í óhrauna tauinu mínu og þá verður þetta pantað ASAP !!

Gotterí ?
Oct 25, 2007, 09:35

Merkilegt alveg með það þegar maður er að læra hvað manni langar þá oft í eitthvað sætt og gott, en ég er bara greinilega ekki alveg nógu góður í þessu nammistússi!

Á sunnudaginn langaði mig alltíeinu í eitthvað sætt og gott þannig að ég skaust útí búð og keypti mér blandípoka, ekkert neitt voðalega mikið en samt alveg nokkur stykki af hinu og þessu. Málið er bara að ég borða frekar sjaldann nammi og hef greinilega eitthvað alveg voðalega lítið nammi þol þar sem að eftir að hafa borðað einhver örfá stykki var ég bara kominn með algjört ógeð og langaði bara ekkert í meira, gott eða slæmt getur fólk dæmt fyrir sig sjálft.

Síðan fór ég í gær útí búð að versla og sá þá Guacamole dip sósu í krukku við hliðina á Tortilla Chips, og bara hell yeah, þessu ætla ég að vera að japla á í kvöld yfir stærðfræðibókunum, og þar sem ég er kóngur í að búa til Guacamole sósu að þá hefur maður nottla smá kröfur á sósuna, en þar sem ég var að læra að þá var maður ekki að nenna að búa til sína eigin þannig að ég greip eina krukku af ELDORADO guacamole dip sósu og einn lítinn poka af Tortilla Chips.

Ég átti svo eftir að hafa séð eftir þessu því að þessi fucking sósa bragðaðist basily eins og einhver hafi ælt ofaní krukku, drukkið það og ælt því aftur ofaní hana, djöfulsins viðbjóður sem þetta var, prufaði meira að segja tvisvar sinnum að smakka á henni með chipsinu til að fullvissa mig um að þetta hafi verið svona ógeðslega vont.

okej, ELDORADO er svona shitt merki sem selur hitt og þetta matarkyns á skítaverði og margt sem þeir selja er alveg vel ætilegt, en guð minn góður, vill bara vara aðrar manneskjur við því að prufa þennann horbjóð!!!

Gyðingur + ítali ??
Oct 24, 2007, 08:08

Það er til alveg magnað fólk í heiminum og sumir foreldrar eru strangari og trúaðri en aðrir, mæli með að fólk kveikji á hátölurunum á tölvunni og hlusti á þetta snilldar símaat :)

Smá húmor þar sem það er þriðjudagur
Oct 23, 2007, 21:10

Oft algjörar snilldar myndir hjá þeim Wulfmorgenthaler fólkinu og fannst mynd dagsins algjör snilld :)


Nýjar myndir á hverjum degi, reyndar misfyndnar en oft algjör snilld sem fá mann til að brosa snemma morguns :)

Ég aðeins eldri ?
Oct 23, 2007, 11:31

Þetta minnir nú alveg hættulega mikið á mig í eldhúsinu...

 

 

1/3 búinn
Oct 23, 2007, 07:58

Eins og hálftæpur traktor með sprungið á öðru rúllar maður í gegnum þessa prófviku og aldrei að vita nema maður klári þetta, fyrsta prófið í gær og gekk það bara mjög vel enda léttasti kúrsinn af þessum þremur sem ég las þessa önnina.

Eftir hádegið er svo próf í Algorithmer seeeemmm, já gæti basicly farið hingað eða þangað, frekar erfiður kúrs þar sem maður þarf algjörlega að fatta grunn princípið í þessu öllu samann sem hefur gengið svona lala með vissa parta í fyrirlestrunum.
Með í för í prófið megum við hafa námsbókina (já eða hvaða bók sem er) allar glósur og næstum hvað sem okkur dettur í hug (já nema gömul próf, og gáfaðri manneskju) þannig að ég held að það segi nú alveg sinn slatta um hvernig prófið verður.

Reyndar sagði kennarinn í síðasta fyrirlestri "
já, ég held að ég hafi reyndar gert bara mjög létt próf í ár"
.
Veit n ekki alveg hve mikið maður trúir því miðað við hve oft hann hefur sagt þetta í tímunum í vetur, "Þetta er mjög létt/augljóst/grunnleggjandi" en samt hefur allur bekkurinn setið eins og idiotar og ekki fattað skít.

Annars farinn að hafa áhyggjur af mínu stressleysi í prófvikum, held að þetta sé bara hreinlega ekki eðlilegt.

Bið að heilsa flotta stráknum
Oct 21, 2007, 09:30

Var sumsé að vinna sem þakmálari í sumar hjá pabba eins stráksins sem ég er að æfa með og þessa fáu daga sem maður fékk sól allann daginn notaði maður að sjálfsögðu tækifærið og reif sig úr að ofann til að reyna að fá einhvern smá lit.

Hann (yfirmaður minn) hitti svo konuna sem sér um fasteignina núna fyrir stuttu og vildi hún alveg endilega að hann myndi skila kveðju til flotta velþjálfaða stráksins sem var að vinna hjá honum í sumar, hún og grannarnir höfðu víst alveg voðagamann af því að horfa á þennann flotta strák striplast um berann að ofann í sumar :)

Djöfulli finnst mér svo þættirnir "Close Encounters With Keith Barry" vera mikil snilld, alveg hreint ótrlúlegir hlutis sem gaurinn gerir stundum !

Á móti rauðu
Oct 20, 2007, 16:02

Já, held að maður passi sig næst þegar maður fer út að hjóla (ekki að það gerist eitthvað súpert oft neitt) en einn strákur í bekknum hjá mér var að hjóla heim úr skólanum um daignn og fór yfir ein gatnamót þar sem það var engin umferð en samt rautt ljós á hann, pældi ekki meira í því fyrr en ein hjólalögga kom, stoppaði hann og sektaði 15.000kr fyrir að hjóla á móti rauðu takk fyrir takk, frekar súrt að verða af þessum peningum.. !

En annars próflædómurinn bara í fullum gangi og gengur bara alveg ljómandi fínt, get samt ekki beðið eftir föstudeginum og mínútunni þegar ég geng útúr síðasta prófinu.

Mig langar bara mikið að sjá Ratatoullie í bíó núna !

Countdown
Oct 18, 2007, 20:43

Jæja, þá er síðasti skóladagurinn á þessari önn búinn og tekur núna við strangur lærdómur næstu dagana þar sem ég er í prófi á mánudaginn, þriðjudaginn og föstudaginn, verður alveg gífurlega næs þegar þessi önn verður loksins búin og maður fer aftur að lesa 2áfanga í einu í staðinn fyrir þrjá :)

Kíkti annars niður í bæ í gær í heimsókn í fyrirtæki þar sem einn æfingafélagi minn er að vinna hjá, mikið heimasíðudæmi í gangi hjá þeim, hönnun og forritun og sat þar, drakk kaffi og spjallaði við hann og yfirmanninn þar, aldrei leiðinlegt að fá smá sambönd innan bransans auk þess sem þessi gaur þekkir alveg fullt af fólki innan margra ólíkra tölvufyrirtækja í bænum, sem væri ekkert leiðinlegt að komast í samband við svona við tækifæri, bæði lokaverkefnið og svo vinna eftir skólann, já og ekki leiðinlegt svona ef manni vantar smá aukapeninga með skólanum (ef maður hefur einhvern xtra tíma)

Verður annars stutt kvöld hjá mér í kvöld, alveg rotinn gjörsamlega núna, skóli frá 8-17 og svo alveg stórskemmtileg æfing eftir það, 2x600m með 15mín hvíld, 3x300m með 1mín hvíld og 3x300m með 5mín hvíld.
Gekk bara alveg mjög vel, algjörlega búinn eftir þetta, Gluteus hélt alla æfinguna, jafnari tímar heldur en síðast þannig að þetta er allt að koma til, hlakka bara til að komast aftur í gaddaskóna, allt annað að hlaupa í því heldur en þessum blessuðu joggingskóm!!

 

Evropubikarinn 2008
Oct 16, 2007, 11:40

Gamann ad tvi ad um helgina kom lika i ljos hvada lid verda med okkur i ridli a evropubikarnum a naseta ari sem fer fram i Tallin i Eistlandi 21-22.juni:

Qualified teams MEN Qualified teams WOMEN
Bulgaria (-) Austria
Denmark Denmark
Estonia Estonia
Iceland Iceland
Ireland (-) Latvia
Latvia Luxembourg
Lithuania Norway (-)
Luxembourg Switzerland
(–) relegated  

iEM 2013 í Gautaborginni
Oct 15, 2007, 13:58

Svíjar og Gautaborg sóttu um ekkert alls fyrir löngu um að fá að halda Evrópukeppni Evrópumeistaramótið innanhús í Gautaborg 2011 og voru aðalkeppninautar þeirra um þetta mót, Frakkar og Parísarbúar.
Í morgun varð það svo ljóst á fundi hjá EAA að mótið 2011 verði haldið í París eftir miklar pælingar þar sem báðar borgirnar litu mjög vel út fyrir mótið, en þar sem þeim leist víst svo vel á Gautaborgina góðu að þá var einnig ákveðið á sama fundi að Evrópumeistaramótið Innanhús 2013 verði haldið þar.

Þannig að þetta þýðir að það verður byggð ný innanhúsbraut í Scandinavium sem er hérna rétt hjá Ullevi. Bara að vona að það verði byggt meira og betrumbætt þannig að maður njóti kanski góða af þessu öllu við æfingarnar hérna.

Má ég nú sjá, 2013 er eftir 6 ár, þá verð ég rétt rúmlega tvítugur + einhver rétt rúmur áratugur, já er ekki bara málið að vera með þá :)

Sunnudagur
Oct 14, 2007, 20:57

Hvernig er þetta hægt!
Var að steikja mér hakk í matinn í kvöld blandað samann með Lasagnasósu og mér tókst að brenna mig aftan á hægra lærinu !
Ekki spurja hvernig, bara ekki spurja

Virðist samt sem að minn fíni Gluteus sé eitthvað að koma til, en í gær voru brekkusprettir hjá okkur og gekk það bara alveg gífurlega vel, náði að negla vel á þá án þess að finna ekkert til í honum nema þessa æðislegu mjólkursýru. Vona að maður geti nún bara haldið áfram að negla á þetta og halda áfram á þessu góða róli sem maður var á í síðustu viku, góður hraði og betri tækni.

Vildi samt óska að maður ætti fleiri svona lærdómsdaga eins og þessir tveir núna um helgina, basicly verið í lærdómsfíling og þá gengur þetta alltaf vel, verða búinn með að fara í gegnum allt efnið í 2 áföngunu og get því notað síðustu vikuna í þriðja áfangann sem er líka sá stærsti og erfiðasti, og svo bara prófvikan eftir viku... gífurleg stemning það

Fótbolti - Ísland
Oct 13, 2007, 18:59

Mér finnst þetta alveg merkilegt að landsliðið geti unnið Norður Íra, gert jafntefli við Spánverja og svo skíttapa fyrir Lettum og Lichtenstein, manni finnst nú að þeir eigi að geta gert aðeins betur á móti hinum fótboltasmáþjóðunum....
En jákvætt við leikinn að Eiður sé kominn í gang aftur og skori mörk, held að honum veiti ekkert af því að standa sig vel í þessum landsleikjum þar sem hann er ekkert að fá margar mínútur hjá Barcelona.

En samt setning dagsins eiga þeir hjá mbl.is
"88. Ármann Smári Björnsson kemur inná fyrir Ármann Smára Björnsson."

Ekki margir leikmenn sem geta skipt sér útaf fyrir sjálfann sig :)

Dónó ?
Oct 12, 2007, 22:43

hahaha, mér finnst þetta vídjó bara vera snilld :)

Nýtt look
Oct 12, 2007, 01:16
okej okej, ég á mjög erfitt með að byrja á einhverju, hætta/taka pásu til að klára það seinna, og þar sem ég var bara kominn með svo ótrúlega mikla leið á gamla lúkkinu á síðunni minni að ég bara varð að koma þessu upp, ekki alveg 100% tilbúið en mun skárra amk (að mínu áliti) heldur en gamla stöffið.

Þannig að... já, ef þið finnið einhverja galla á síðunni, eitthvað sem ekki virkar, þá megið þið alveg endilega láta mig mig vita á msn-inu eða via e-mail ef þið væruð svo elskuleg :)

En verð að sofa núna, klukkan orðin alltof mikið !
Seinkun
Oct 09, 2007, 23:17
Nei, núna verð ég bara að fresta nýju síðunni, bara búinn að vera fastur með smá vjézen síðustu daga og notað tíma sem ég hreinlega hef ekki núna til að reyna að kippa þessu í liðinni en núna bara næstu 2 vikurnar verður skólinn bara að vera nr.1 í forgangsröðinni, því miður, planið var að koma síðunni upp í kvöld en bara nei því miður, not af fucking chance .... crap.. Já og ég hata bakið á mér !
fyrsta vikan
Oct 08, 2007, 10:15
Ekki frá því að maður hafi bara sloppið alveg sæmilega í gegnum fyrstu æfingavikuna þetta tímabilið, fékk bara aldrei neina hörmulega strengi eins og fyrstu viku síðustu ára þannig að maður var alveg hæfur til setu alla vikuna, sem er náttúrlega alveg gífurlega magnað. Er alveg dágóður slatti av hlaupum á prógramminu, meira að segja fínn hraði í Aeroba sprettunum sem ég á að taka eftir lyftingarnar á þriðjudögum (600-400-200-400-600, 3mín hvíld) sem og á rólega miðvikudeginum mínum (10x200m, 1mín hvíld), svo oná þetta bætast svo við aðal hlaupadagarnir, mánudagar (2x4x100m og 2x350m) og fimmtudagar (2x600m (1.37), 3x300m (1mín hvíld, 43-44s) + 3x300m (5mín hvíld, 40-41.5s), allt með 15mín seríuhvíld). En alveg frábært að vera kominn aftur í gang með æfingarnar. Komst svo líka að því í dag að það eru bara 2 vikur í prófvikuna, ERUM VIÐ AÐ TALA UM AÐ ÞESSI ÖNN ER BÚIN AÐ VERA FLJÓT AÐ LÍÐA.. komin smá próf óróleiki í mann, taka á því síðustu 2 vikurnar...
Upphitun fyrir ólympíuleikana í Peking
Oct 07, 2007, 11:31
Sweet mother....
Oct 03, 2007, 11:40
... of all that is good and pure! Segi þetta á hverju ári og alltaf á sama tíma: goddman hvað það er æðislegt að byrja æfa aftur. svona aðeins styttri sprettir (10x60m) + 2x350m á mánudaginn og svo sæmilegur slatti af lyftingum í gær og líður í rauninni bara óvenjulega vel í dag, engir hrikalegir strengir ennþá bara þessi æðislegar "líkaminn-er-vaknaður" fílingur í öllum vöðvum líkamans. Jákvæður á næsta tímabil :)
1.október: Ragnar, Ragnar
Oct 01, 2007, 07:12
úúú, ég á víst nafnadag í dag hér í Svíþjóðinni :)
Free counter and web stats
local