Spennandi dagur í dag
Aug 31, 2007, 10:20
Já, eini kosturinn við að vera veikur heima er að maður hefur séð hverja einustu grein sem hefur verið á HM í japan síðustu dagana.
Og það er maðurinn á myndinni, Johan Wissman, sem hefur komið mér sem allra mest á óvart á mótinu, eða óvart og óvart, jú anskotinn hafi það, óvart, hleypur til úrslita í 400m rétt eftir kl 15 ídag (sænskur tími), átti 46.23 frá árinu 2005, 45.03 fyrir HM (Norðurlandamet sem hann tók af Oddi hinum íslenska), hljóp á 44.95 í riðlunum og 44.56 í undanúrslitunum. Fyrstu 3 sætin eru mjög svo sennilega frátekin en allt eftir það er bara mjög opið allt samann, verður hrika gamann að sjá. En af mér er annars aðeins skárra að frétta, ennþá veikur heima samt, en mun skárri og gat í nótt í fyrsta skiptið alla vikuna sofið alla nóttina, gífurlega magnað það alveg. Er líka byrjaður núna að endurforrita síðuna mína og ætla að breyta útlitinu eitthvað sem og öllum strukture-inum líka, þannig að þetta verður vonandi allt mikið betra og skemmtilegra að því gerðu :)
nei, nú er nú komið nóg
Aug 28, 2007, 11:42
s.l. vika, uppá dag, hefur bara alls ekki verið neitt mín uppáhalds, lítið basicly verið að ganga upp og held að það sé einhver lítill kall á öxlinni á mér sem vill ekki að ég hlaupi um helgina og er hann að hafa betur núna sýnist mér. Bakið fór í hönk í síðustu viku og búinn að vinna með að koma því í lag og þola 1 viku í viðbót og stefndi það allt bara mjög vel í gær, nema svona að mér var eitthvað hálfkalt á æfingunni, en ekkert meira pælt í því, síðann kom nóttin!! Man ekki eftir því að mér hafi liðið svona illa áður, fékk alveg bullandi hita, höfuðverk, illt í öllum helvítis líkamanum, hálsbólga og svitnaði eins og grís, þannig að ég náði að sofna fyrst í kringum 5 leytið í nótt þannig að það er ákveðið núna bara að taka það rólega og keppa ekki meira í ár (smá spurning með bikarinn samt, sjá hvernig fílingurinn verður þá) // Ragnar í sjálfsvorkun
Warning !!
Aug 23, 2007, 19:26
Það á alveg að banna einni manneskju að gera pönnukökudeig fyrir heila fjölskyldu!! Okej, pönnukökur eru góðar og það er að sjálfsögðu alveg stranglega bannað að henda pönnukökudeigi þar sem pannan er hvort eð er heit og ég er nú heima þannig að þegar deigið er tilbúið að þá er bara að borða allann afreksturinn, búinn að liggja uppí sófa að springa núna í rúma 3 tíma, held ég geri mér ekkert pönnukökur næstu 2 dagana amk !!!
Magnað alveg
Aug 22, 2007, 20:46
Jæja, þá er maður alveg official orðinn gamall, 25 ára í gær.... En þrátt fyrir alveg stórafmæli að þá hef ég átt betri daga. Próf í gær í stærðfræði og í stuttu máli þá fannst mér þetta barasta ekki ganga vel. Fór á æfingu eftir það, búinn að vera með verk í mjóbakinu hægra meginn síðann eftir ferðalagið heim frá Meistaramótinu í lok ágúst og hefur bara farið versandi síðustu 2 vikurnar og var alveg ónýtur í því fyrir 300m á sunnudaginn en alltaf komist alveg í gegnum æfingarnar/mótin, en núna hefur það aðeinst sagt stop við mig og gat varla gert neitt á æfingunni í gær. Þannig að restin af deginum fór bara í almennt þunglyndi. Fór svo til Napropat-sins míns í dag og lét hann kíkja á bakið á mér, var það víst orðið vel skakkt, stíft og handónýtt þannig að hann kippti því í liðinn og mér bara skipað í 2ja daga heilhvíld og á að tala aftur við hann á mánudaginn, ef það verður ekki orðið nógu gott snemma í næstu viku að þá held ég að tímabilið sé bara búið hjá mér og áhersla nr. 1, 2 og 3 að vera 100% heill fyrir undirbúningstímabilið í október. þannig að góða skapið í meirihluta þessa dagana
úje
Aug 20, 2007, 11:19
Það eru greinilega margar hetjur sem eiga afmæli á morgun, eins og t.d. hin dúndursæta Hayden Panettiere frá Heroes Þáttunum, alveg spurning að plata stelpuna til að halda daginn hátíðlegann með mér! En úr einu í annað, hljóp 300m og 150m í gær á StoneHill Games í Lerum sem er hérna rétt fyrir utann bæinn. Í rauninni lítið um þetta mót að segja, hljóp 150m frekar illa, kom þriðji í mark á 16.86s eftir að hafa hlaupið alltof stífur fyrstu 60m, verð að fara að átta mig á því að ég er enginn sprinter! 150m var aðeins seinkað og áttum við upphaflega að fá 1klst á milli 150m og 300m en vegna seinkuninnar á því og að 300m var hlaupið á réttum tíma (meira að segja næstum 5mín á undan áætlun) að þá fékk ég bara cirka 30mín hvíld sem dugði greinilega ekki alveg eftir 400m hlaupið daginn áður og illa hlaupið 150m hlaup og var ég bara alveg búinn á því eftir 200m, hafði mig nú samt í mark í öðru sæti á 35.29, planið hafði verið að hlaupa undir 35s þannig að smá svekk með þetta. Þá sérstaklega þar sem strákurinn sem vann hljóp á 34.7x og hefur hann hlaupið í ár 200m 1/100 hraðar en ég og 400m 2/100 hraðar en ég, þannig að ég ætlaði að sjálfsögðu að taka hann... men men, næsta ár :) Próf á morgun, þessvegna er ég sennilega að blogga núna, búinn að laga til í annað skiptið um þessa helgi og stefnir allt í að ég verði bara heima hjá mér um alla næstu helgi, sem verður bara basicly í fyrsta skiptið sem það gerist í sumar, ekkert mót eða neitt þannig að ég, sófinn og sjónvarpið verðum gífurlega náinn öll samann held ég. Síðasta mót sumarsins verður svo vonandi um næstu helgi, þeas 1.sept, í Örebro á ÖrebroGalan þar sem ég ætti að geta komist inn í fínt 400m hlaup, það fyrsta í þessum mánuði, en þá er síðasti séns fyrir sænsku 400m strákana að ná sér í sæti fyrir Finnkampen sem fer fram aðra helgina í sept hér í Gautaborginni, býst því við nokkrum strákum þar að hlaupa til að ná amk sæti í boðhlaupinu, en held að fyrstu 3 sætin séu frekar mikið frátekinn fyrir Wissman (45.03), Nikitin (46.14) og Fredrik (46.33), en nokkrir strákar á milli 47.5 og 48.5 sem vilja ábyggilega hlaupa þar þannig að spurning að maður reyni að blanda sér eitthvað í það :)
49+
Aug 18, 2007, 18:12
Enn eitt hlaupið þarna vitlausum meginn við blessuðu 49sekúndurnar, en hljóp í dag 400m í Falköping á einhverju litlu móti þar í bæ, ekki alveg góð keppni í þessu blessaða hlaupi og kom í mark cirka 6.5s á undan næsta strák!! tíminn 49.15 samt sá annar besti sem ég hef hlaupið á, ágætis veður svosem, nema mótvindur síðustu 140m. Ennþá smáatriði í þessum hlaupum mínum sem ég verð að bæta mig í, þannig að 48.x finnst hérna, bara fá það fram :)
Nóg er af rigningunni og já, hlaupum bara líka
Aug 17, 2007, 14:28
Það hættir amk ekki að rigna hérna í gautaborginni, það er nokkuð víst, búnir að koma þessir þvílíku demburnar hérna á hverjum degi þannig að maður sér varla húsið sem er hérna 30m við hliðina á íbúðinni minni, alveg magnað þetta og að sjálfsögðu þrumur og eldingar fylgt með eins og hverjar aðrar hetjur. Vaknaði við eina svona bununa í nótt þegar ég hélt að rigningin væri að ná að brjóta sér leið í gegnum gluggana á heimilinu, reyndar magnað við það að þegar ég vaknaði að þá mundi ég eftir einhverjum 3 ólíkum draumum sem mig hafði verið að dreyma um nóttina (samt bara búinn þá að vera sofandi í 2 tíma, og svo þegar ég vaknaði aftur um morguninni mndi ég eftir 2 draumum í viðbót, helvíti magnaður árangur það :) En annars bara lítið að gerast svona fyrir utann lærdóm og það að ég ætla að keppa aðeins um helgina, fer til Falköping á morgun til að hlaupa 400m (frekar keppnislaust þar reyndar) og svo 150m og 300m hérna í Lerum rétt fyrir utann borgina, alveg spurning að bæta sig bara í þessu öllu samann þar sem maður er nú að fara að hlaupa þetta :)
Gat á hausi
Aug 15, 2007, 21:20
Átti alveg magnaðann hádegismat í gær, en við strákarnir í vinnunni borðum alltaf á veitingastöðum í hádeginu sem er nottla bara voða fínt, ekki hægt að kvarta yfir heitum hádegismati. En rétt fyrir matinn ákvað ég að skjótast aðeins á klósettið, var eitthvað frekar lítið og þröngt þannig að maður hálf tróð sér inn, lokaði hurðinni og ætlaði að snúa mér að klósettinu þegar ég sló hausnum í horn á einhverjum djöfulsins skáp sem var fyrir ofann vaskinn og eyddi því öllum hádegismatnum með gaffal í einni og klósettpappír í hinni ofaná hausnum... magnað shitt það. En tók annars fína æfingu núna áðann, 1x300m og 1x150m 10mín síðar og gekk þetta bara alveg ljómandi fínt, 34.3 á 300m með 21.95 fyrstu 200m (nottla allt handtími en fyrsta skiptið þar undir 22s á æfingu), ljómandi fínt þetta fyrir helgina þar sem planið er að hlaupa 400m á laugardeginum (48.x kansi ? ) og 150m og 300m á sunnudeginum. Annars fer mestallur tíminn núna í prófalærdóm, fæ frí í vinnunni á fráOgMeð morgundeginum og tilOgMeð þriðjudeginum en þá er einmitt prófið. Gangi mér vel :)
einum séns færra
Aug 12, 2007, 22:11
Þetta virðist ekki alveg ætla að sleppa, hljóp 100m og 400m á litlu móti í Varberg í dag. Fílingurinn bara góður og byrjaði á 100m hlaupi. Virðist sem ég þurfi aðeins að æfa startblokina betur ef ég ætla niður á einhverja tíma þar, en hljóp amk vel síðustu 50m, vann hlaupið og bætti mig smá þar, 11.26 í +0.2 meðvindi. Hljóp síðann 400m hlaup þar sem við hlupum með P19 strákunum og voru þetta blandaðir riðlar þannig að þetta yrði einhver almennileg keppni, vann einnig 400m hlaupið á skítsæmilegum tíma, 49.68 og var 7/100s á undann öðru sætinu. Vindurinn jókst eitthvað rétt fyrir hlaupið og hljóp alltof varlega á milli 100m-200m í mótvindinum og fékk engann almennielgann hraða í gegnum seinni beygjuna.. Þannig að núna fækkaði sénsunum um einn að komast undir 49s en en, vonum að þetta hafist allt á endanum :)
raaaaki
Aug 11, 2007, 22:12
Shitt hvað veðrið er alveg fucked up í svíþjóðinni í sumar, búið basicly að rigna svona mestallt sumarið, alveg frábært núna í vikunni svona fyrir utann smá rigningu inn á milli, en svo núna í 3 daga er búið að vera alveg viðbjóðslega rakt úti og maður gerir lítið annað en að svitna og samkvæmt einhverjum tölum frá Stokkhólmi í dag fór rakastigið uppí 90% takk fyrir takk, gamann að bera það samann við regnskóganna í Brasilíu þar sem rakastigið er 85%, wtf is going on here.... En þökkum amk fyrir að búa ekki á Skáni þar sem einn einu sinni fór allt að flæða yfir þar í dag, Skánn sumsé alveg að fara bara undir sjávarmál, ekki það að fólk gráti það nú eitthvað enda alltof mikil "danska" töluð þar ;) Gerrard er annars maður dagsins þar sem hann tryggði Liverpool sigurinn í leik dagsins á móti Aston Villa með þessu helvíti fína marki beint úr aukaspyrnu :)
Bikarinn 2007
Aug 10, 2007, 06:49
Jæja þá er komið að bikarhelginni góðu, og í fyrsta skipti frá því ég byrjaði að æfa frjálsar að þá verður maður ekki á svæðinu, stærsta ástæðan nú sú að við féllum niður í aðra deildina í fyrra og bikarinn í þeirri ágætu deild verður ekki fyrr en 15.september... sem er alveg gífurlega seint, en aldrei að vita nema maður láti nú sjá sig og hjálpi til við að koma liðinu upp um deild aftur :) En um helgina er einnig Sænska meistaramótið sem er alveg gífurlega slæmt fyrir mig, þar sem ég má ekki taka þátt í því (útlendingur) og þar af leiðandi er lítið um önnur mót þessa helgina og á því móti sem ég ætla að hlaupa á verða engir sem geta neitt (ljótt að segja en satt) þar sem þeir sem geta eitthvað verða á meistaramótinu. En plan helgarinnar er að hlaupa fyrsta 100m hlaup ársins og svo 400m eftir það.
Seinnipartsblundur
Aug 08, 2007, 15:05
Alveg merkilegt alltaf þegar ég sofna svona mitt um daginn að þá steinsef ég alltaf með galopinn munn (sef þá á bakinnu). Alltaf algjört æði að vakna svo eftir nokkra tíma og gjörsamlega þurrarri en andskotinn í kjaftinum og ekki séns á því að tala eðlilega, en lenti í því áðann þegar helvítis síminn hringdi og vakti mig, fór alveg hundfúll í símann og sagði "aaa. d e ðaaanaað" frekar þreyttur og myglaður.... það var skellt á mig strax!
hann er í formi kúturinn
Aug 07, 2007, 20:31
Sit hérna í makindum mínum í svitablautum sokkum frá bæði vinnu og æfingunni í dag, get bara ekki slitið mig frá sjónvarpinu núna og farið í sturtu útaf DN-Galan sem er í sjónvarpinu hérna, Drullugott mót sem er í Stokkhólmi og var basicly að horfa á Jeremy Wariner hlaupa 400m á 43.50, takk fyrir takk ! En snilldarveður verið síðustu dagana, gott um helgina og bara snilld í gær og í dag, á milli 25-30°C og því verið alveg helvíti gamann bara í vinnunni, bara einn smá pínu ókostur... maður er að sjálfsögðu alltaf ber að ofann... ég er að mála = er næstum alltaf með bakið á móti sólinni þannig að jú ég er brúnn á maganum, EN ER FUCKING DRULLUBRÚNN Á BAKINU!!! Spurning að skella olíu á magakvindið á morgun til að reyna að jafna þetta helvíti út.. En er annars bara byrjaður að vinna 50% vinnu þar sem að ég er á fullu í stærðfræðilærdómi fyrir próf sem ég fer í eftir nákvæmlega 2 vikur, á mínum 25ára afmælisdegi. Gífurlega mikil stemning það!
uselt... en samt bæting... ???
Aug 04, 2007, 19:27
Núna þegar flestallir Íslendingar drekka sig blindfulla um þessa verslunarmannarhelgina ákvað ég að hlaupa í þessu eina 400m hlaupi sem ég fann á mótaskránni þessa helgina í Nässjö, sem að ég hafði basicly ekki hugmynd um hvar var, en amk, skellti mér samt þangað. Ekkert gífurlega góðir keppinautar þar, áttu sem best í kringum 50.70, en ég kom samt þangað með það hugarfar að skella mér undir 49sekúndurnar. Mér fannst þetta hlaup alveg skelfilegt, startið mistókst alveg agalega, var orðinn hálfstífur eftir 80m, kom virka þriðji í gegnum 200m, fannst ekkert gerast í beygjunni og rúllaði því bara síðustu 100m, kom fyrstur í mark og bjó mig bara hundfúll undir það að heyra tíma í kringum 50.50s!!! EEENNN, mér til mikillar furðu og undrunar (eftir að hafa bölvað öllu sem finnst á þessari jörðu og tekið mér góðann göngutúr eftir hlaupið) að þá heyrði ég að ég hefði víst verið að bæta mig og tíminn hefði verið 49.04s, þannig að í staðinn fyrir að vera hundfúll með tímann varð ég bara hálfsvekktur við sjálfann mig fyrir að hafa ekki hlaupið almennilega síðustu 10metrana!! Þá bara málið að finna sér fleiri 400m hlaup í ágúst og kveðja 49s á þessu ári!
iPod
Aug 03, 2007, 20:39
Nýja elskan á heimilinu, þessar apple vörur eru alveg að gera sig hérna hjá mér :)
Héri
Aug 02, 2007, 20:29
Alltaf gamann að prufa eitthvað nýtt, en á Folksam Grand Prix mótinu hérna í Gautaborginni í gær var ég ráðinn í það hlutverk að vera héri í A-hlaupinu í 800m og gekk það bara alveg ljómandi vel, hljóp í gegnum 400m á rétt rúmum 51s eins og ég átti að gera og allir bara happy með það, líka í fyrsta skiptið sem maður fær eitthvað borgað fyrir að hlaupa þannig að alveg spurning að fara að gera þetta bara oftar ;) En annars er Stephen Lynch alveg mest í spilaranum núna, grínisti sem á nokkur alveg snilldarinnar lög, mæli með að fólk tékki á honum (finnst t.d. nokkrur góð Vídjó á YouTube svo lítið sé nefnt. Lagið Special Olympics er t.d. algjör snilld: watch them run, watch them fall, watch them try 2 catch a ball...........olympics, at the special olmypics. watch them laugh, watch them drool, watch them fall into the pool- thats diving-at them special olympics. and i know, full well, that i will buuurn in hell-but those guyz playin wheel chair basketball has got 2 b one of the funniest freakin things i have ever seen in mai life................at the special olympics. VERSE 2 (he actually sais that) kid with downs wins the race, even though he stood in place, olympics....at the special olympics. 'round his neck, gold medals hung, resting on his giant tounge-olympics, at the special olympics. but i kid when i sing, cuz these games r a beautiful thing- ok i am really just avoiding karma, cuz i know mai kids will b born crippled and blind and until i am retired i will have 2 spend all of mai time...................... at the special olympics............... "i feel, i feel so guilty about this.", "and as u should!"
Free counter and web stats
local