Stutt gamann...
Jul 30, 2007, 01:02
Ekki var/er þetta langt stopp á landinu hjá manni að þessu sinni, kominn suður aftur og fer út í fyrramálið. En stutt yfirlit frá Meistaramótinu núna um helgina: Ég hljóp 400m á laugardeginum, því miður, vegna veðurs voru tímarnir ekki uppá marga fiska, hljóp á 50.20 og kom þar í öðru sæti, einungis 1/100s á undan Einari Daða, svosem sæti sem maður var búinn að búast við þrátt fyrir að maður hefði að sjálfsögðu viljað gera betur þar. Á laugardeginum var algjör skítakuldi, 11°C og köld norðanátt þannig að þegar maður kom útúr beygjunni eftir 100m var það eins og að hlaupa inn í vegg, en ákvað samt að reyna að keyra vel á fyrstu 200m sem kostuðu mig bara því miður of mikið í lokinn, fékk hið mjög svo hæga 24.1 splitt á fyrstu 200m og hljóp gjörsamlega inn í vegginn eftir cirka 370m þar sem ég tapaði öllum hraða og missti næstum Einar fram úr mér, en annað sætið tryggt. Á sunnudeginum var svo 200m á dagskrá. Markmiðið þar var að koma sér á pall, þar sem enginn (fyrir utann Svenna) höfðu verið að hlaupa 200m neitt sérstaklega spes í ár... en þar var breyting á í dag... Rúllaði þægilega í gegnum 200m undanúrslitin og kom fyrstur þar á 22.73s og komst þar af leiðandi í úrslitahlaupið. Fannst ég í rauninni hlaupa það bara mjög vel, eða já... það sem ég man af því, var það einbeittur að reyna að ná Bjarna á fyrstu brautinni (var á fjórðu) að ég man ekki alveg hvernig ég hljóp þetta, en kom í því gífurlega svekkjandi fjórða sæti, einungis 4/100s á eftir bronssætinu á stórbætingu, 22.24 í +1.6 meðvindi, frekar mjög svo mikið svekkjandi að missa af verðlaunarsætinu þar, en sáttur samt með bætinguna. Flug út í fyrramálið og svo að hlaupa sem héri í 800m á miðvikudaginn... verður spennandi það :) En sumsé stutt stopp að þessu sinni, og mjög líklega ekki meira á Íslandi fyrr en um jólin, sem er pínu púkó alveg, mun sakna ykkar allra mikið... knús úr Svíþjóðinni
kominn heim á krókinn og MÍ
Jul 27, 2007, 13:10
voðalega rosalega finnst mér gamann að ferðast (lesist með góðri kaldhæðni). Þessar morgunferðir eiga bara ekki við mig, búinn að margsanna sig svona í gegnum árin og gærdagurinn var engin undantekning á þessu. Málið var að ég flaug frá Köben í gær, svona basicly þar sem ég vildi fara aftur út á mánudeginum og það er bara ekki hægt frá Gautaborginni, eins fúlt og það er, en lítið við því að gera, flug frá Köben kl. 14:00 en þegar ég keypti lestarmiðann minnti mig alveg að flugið væri kl. 13:00 þannig að ég keypti í rauninni lestarmiða svona aðeins of snemma. Þannig að ég stillti klukkuna hugulsamur kl 04:40 þar sem lestin átti að fara kl 06:20 og ætlaði að hafa góðann tíma að klára að pakka og laga aðeins til hérna í svínastíunni minni. Hefði það bara verið svo gott, en ég á það til að sofa frekar mikið fast þannig að vekjaraklukkan hringdi í rétt rúmann klukkutíma áður en ég drullaðist á lappir, ALLTOF FUCKING SEINT, og mínútu eftir að síðasti strætóinn fór sem ég hefði getað tekið til að ná lestinni þannig að ég fékk nottla smá sjokk, en þakkaði svo guði fyrir öll þessi leiðinlegu leigubíla auglýsingalög sem eru alltaf í útvarpinu þannig ða ég mundi númerið hjá einu svoleiðis, hringdi í þá og basicly 6mínútum eftir að ég vaknaði var ég kominn upp í taxa á leið niður á lestarstöð þar sem ég rétt náði lestinni... En restin af ferðalaginu gekk annars bara mjög vel, bara alltof langt ferðalag, var kominn á krókinn í KULDANN, erum að tala um fucking 6°C, rétt uppúr níu um kvöldið. En hleyp annars 200m og 400m núna um helgina, formið fínt, alveg spurning um að bæta sig sko!
úúú, Rúsínutær... mússí mússí mússí
Jul 23, 2007, 17:46
"Enough is fucking enough"!!! Átti bara alveg mjög fína helgi með fjölskyldunni í landi bauna og óskyljanlega tungumálsins þar sem grunnur þess virðist liggja í að tala með fullann munn af grauti. Það er að segja svona nema rétt fyrir brottför aftur til Gautaborgar, en við ákváðum að eiða... nei annars, eYða deginum í dýragarðinum þar í bæ, skoða mörg lötu dýrin en annars hina fersku apa alveg þangað til að himininn ákvað að setja alla illsku sýna á jörðina í formi vatns þannig að maður var orðinn alveg gegnblautur og kaldur á tánum þegar ég steig uppí lestina heim á leið, í þessa skemmtilegu heimferð þar sem ég ók með 3 mismunandi lestum og einum strætó til að komast þessa annars stuttu vegalengd, legg hérmeð bölvun mína á allar teinaviðgerðir! En tærnar náðu varla að verða þurrar aftur áður en ég mætti gall"ferskur" í vinnuna í morgun, í aðra mýgandi rigningu þannig að ég var varla stiginn útúr strætónum áður en hinir götóttu Asics-fyrr-um-góðu-hlaupaskórnir mínir ákváðu að halda partý hjá öllu vatni og svitafýlu veraldar í báðum skónum mínum, reyndar eru rúsinutær alveg svoldið sætar sko. En svona í alvöru talað.... HVERNIG GETUR VERIÐ EITTHVAÐ VATN EFTIR ÞARNA UPPI, það er bara fucking búið að mýg-fucking-rigna í allt-fucking sumar og spáð rigningu út vikuna... Me just don´t fucking like!!!
Gott og slæmt...
Jul 19, 2007, 20:37
Byrja aðeins á þessu slæma, svona fyrir utan það að vera hrikalega latur að blogga undanfarið. Í gegnum öll þessi ár mín sem ég hef búið einn hafa mínar þvottatilraunir bara gengið alveg eins og í draumi fyrir utan einu sinni þegar græna Ullevi keppnissamfellan mín lenti "óvart" með hvíta þvottinum mínum í þvottavélina, fékk þá flesta sokka, nærföt og nokkra boli "fallega" ljósgræn. Eftir það hef ég passað mig alveg voðalega mikið á því hvað sem fer inn í þvottavélarnar og allt bara gengið eins og í sögu (svona fyrir utann einn og einn hvítann sokk sem finnst gamann að leita á vit ævintýranna og fara í þvott með litaða dótinu mínu). En hef alltaf verið voðalega slakur með að henda bara öllu samann í þurrkarann og alltaf gengið eins og í sögu, þangað til í gær. En þá hefur einhver af rauðu flíkunum mínum tekið sig svona duglega til og dreyft alveg duglegum rauðum lit í þurrkaranum þannig að núna á ég mestmegnis ljósgræn og hálfbleykar brækur og sokka... alveg magnað það :) Síðan hafa bara æfingarnar alveg gengið frekar illa eftir Landsmótið, verið mjög illa upplagður og lítið gengið bara. En þá að því góða.... Æfingin í dag gekk bara alveg snilldarlega vel :) Kíki svo til DK á morgun þar sem pabbi og öll familjan ætlar að fagna 50ára afmælinu hans með stæl, verður bara stemning það, en verð þar yfir helgina, vinna út vikuna og svo bara Íslandið aftur á fimmtudaginn eftir viku, alveg nóg að gera á næstunni :)
Laxaspelen
Jul 14, 2007, 17:37
úfff, bara alveg sami fílingur í dag og síðustu daga og ekki bætti það að ég hálf svaf yfir mig þannig að ég þurfti að vera í góðu stressi að borða og svoleiðis vjézen áður en við lögðum af stað, síðan gekk umferðin alveg voðalega hægt niður til Halmstad, þannig að það tók einn og hálfann tíma í staðinn fyrir bara einn tíma, komum því þangað klst fyrir hlaup og var ég bara voðalega þungur og ekkert að virka neitt. Þannig að ég ætlaði bara að reyna að fókusera á að hlaupa tæknilega séð gott hlaup með 400m rúll fíling. Var á braut 6 í fyrsta riðlinum og fannst ekkert gerast í beygjunni en hljóp þetta samt bara tæknilega mjög vel, bara enginn kraftur í löppunum og kom því mjög á óvart þegar ég sá tímann, 22.54, smá bæting í 0.2 meðvindi. Fínt að geta amk bætt sig smá þegar fílingurinn er ekki alveg í toppi. Næst á dagskrá, MÍ á króknum eftir 2 vikur!
Þreyttur og smá uppgefinn
Jul 12, 2007, 23:36
Vá hvað maður hefur ekki verið í fíling síðustu dagana, bæði orðin smá þreyttur eftir öll hlaupin síðustu 3 helgar auk þess sem það hefur verið alveg nóg að gera í vinnunni, en þar sem það er búið að mýgrigna síðustu daga að þá höfum við mestmegnis hangið í línu á 70° þaki og svei mér þá hvað það tekur mikið á bakið og bara restina af líkamanum, en kláruðum það amk í dag þannig að vona að þessi rigning fari að hætta og sólin fari aðeins að skýna. En reyndar alveg gífurlega skemmtilegt í gær þegar ég hékk þarna í þakinu heyrði ég Jonas vinnufélaga minn hrópa á mig og benda á svalir á húsinu beint á móti, leit við og grenjaði úr hlátri því að þar stóð gamall spikfeitur kall, allsber, að hreinsa einhverjar mottur, viðurkenni alveg að þetta var ekki alveg beint nein falleg sýn, en samt alveg hálfgamann af því :) komst líka að því að þessi grindverk sem eru sett upp á þakinu hjá okkur gera alveg mikið gagn þar sem að það er nottla búið að mýgrigna undanfarið og það sem við vorum búnir að mála verður þá alveg hrikalega hált og flaug ég á hausinn 2x í dag og rann niður á fleigiferð beint á þessi grindverk, amk skemmtilegra heldur en að lenda í einhverju 20m falli ofan á gangstétt :) En 2 lélegar æfingar síðustu daga og 200m hlaup um helgina..... þetta verður bara stemning :)
Kominn út aftur
Jul 09, 2007, 20:49
alveg hvað morgunflug er ekki alveg svona mest í uppáhaldi hjá mér, flogið 07:00 þannig að maður vaknar alltaf á þessum ókristnilega tíma til að komast þangað í tíð og svo er maður alltaf jafn gáfaður að fara of seint að sofa, reyndar smá lúxus að það voru ekki neitt hrikalega margir í vélinni þannig að maður lagðist bara í 3 sæti og steinsvaf þar alla ferðina og mætti því sæmilega ferskur í vinnuna eftir hádegið og svaf svo 2 tíma áðann fyrir kvöldmatinn, bara snilld! En við hlupum annars 1000m boðhlaup í gær og enduðum þar í fjórða sæti og var aðeins rétt rúmlega 1s munur á okkur og fyrsta sætinu, hljóp 400m sprettinn og fékk splitt uppá 48.5 þannig að bara samanlagt var maður sáttur með helgina. Núna taka hinsvegar við æfingar næstu 2 vikurnar fyrir utan 200m hlaup sem ég hleyp í Halmstad um helgina, en mun æfa frekar stíft þessa vikuna þannig að maður verður kanski ekki með neinar gífurlegar kröfur á tíma í því hlaupi, sjáum bara til með hvað gerist þar... En núna... taka uppúr töskunum!
Landsmót dagur 3
Jul 07, 2007, 21:12
Já, ég er bara alveg mjög sáttur bara, bæting í 400m í dag, 49.17 í léttri rigningu og smá golu og ekkert alltof hlýju veðri :) Ef ég á að setja útá eitthvað að þá hefði ég mátt keyra eylítið betur á milli 270m og 320m, annars bara gífurlega sáttur, 23.3 í gegnum 200m eins og planið var. Þannig að niðurstaða helgarinnar er bætingar bæði í 200m (22.58) og 400m (49.17). Klára svo mótið á morgun í 1000m boðhlaupi. Verð samt að koma með gagnrýni varðandi skipulagið á mótinu, en í dag var náttúrlega stór skandall þegar það var stórt svið hafið við hliðina á frjálsíþróttavellinum með tónleika og læti þannig að maður heyrði ekkert sem þulurinn á vellinum var að segja auk þess sem það truflaði þegar það var verið að ræsa hlaupagreinarnar. Finnst þetta bara vera gífurleg vanvirðing við það fólk sem er á vellinum að keppa og virðingarleysi við frjálsar íþróttir á Íslandi!
Landsmótið - Dagur 1 & 2
Jul 07, 2007, 11:44
Bara alveg nokkuð sáttur með þessa fyrstu 2 dagana á Landsmótinu, þeas árangurinn minn, ekki beint landsmótið sjálft, Alveg vonlaust að vera að halda þetta á Reykajvíkursvæðinu, engin tjaldbúðarstemning eða neitt í þeim dúr þannig að landsmótsfílingurinn er í fjarri góðu formi og hefði alveg verið gífurlega gamann með meira fólk á vellinum þannig að fýlingurinn er bara eins og á venjulegu móti, væri gamann að hafa fólk öskrandi allann hringinn eins og þetta hefur verið á fyrri landsmótunum. EN amk, er búinn að hlaupa 2stk 200m hlaup, á fimmtudaginn voru riðlakeppnin í 200m þar sem ég hljóp alveg frekar illa og kom inn sem sjöundi maður á 22.86 (+0.5) og hljóp því í B úrslitunum í gær, reyndar alveg merkilegir vindar á þessum blessaða velli, í fyrra hlaupinu var góður mótvindur fyrstu 80m og svo léttur meðvindur síðustu 100m en í gær í úrslitunum var þetta svo alveg öfugt, meðvindur fyrstu 80m og svo hljóp maður bara inn í vegg þegar maður kom inn á beinu brautina, náði reyndar að hlaupa tæknilega séð mitt langbesta hlaup í ár og kom langfyrstur í B riðlinum og þriðji samanlagt á mínum besta 200m tíma hingað til, 22.58 í -3.6 mótvindi. bara gamann að því. Í dag er svo planið að hlaupa almennilegt 400m hlaup kl. 17:40 og svo einn sprett í 1000m boðhlaupinu á morgun. Þangað til... hafið það gott!
Íslandið á morgun
Jul 03, 2007, 23:36
Vá hvað það er leiðinlegt að koma sér af stað í að pakka, já, að koma sér af stað í það, að pakka tekur ekki nema svona... eeehhh, 5 mínútur en bara hugsunin við það lætur mig alveg sökkva í sófann og gjörsamlega ómögulega nenna að standa upp, tók basicly lengri tíma að koma sér í að byrja að skrifa þetta blogg heldur en það hefði tekið mig að pakka öllu draslinu ofaní tösku og vaska upp í leiðinni.... en núna á ég það bæði eftir... Var svona að spá í að geyma bara pökkunina þangað til í fyrramálið, vona að það rigni þannig að ég þurfi ekki að vinna og hafa þá nægann tíma í þetta á sama tíma og ég drekk morgunkaffið EEENNN ef það verður ekki rigning verð ég að vinna þangað til ég fer og þá gæti þetta orðið of stressað og ég gleymi helmingnum, crap, afhverju reddaði ég ekki þessu bara áðann í staðinn fyrir að horfa á 3klst af leiðinlegu sjónvarpsefni, I reaheahealy need to get a life!! En já, hljóp annars um helgina 2 ekkert alltof góð hlaup neitt beint, 400m á 49.64 þar sem ég hljóp á 23.6 eins og planað var fyrstu 200m, og vel svo síðustu 100m en eins og kelling á milli 200-300m og þar með skeit það hlaup svona aðeins í sig. 200m vill ég bara gleyma, lélegir fyrstu 50m og síðustu 50m en fínt svona þess inn á milli, reyna að gera þetta svona aðeins betur á landsmótinu, 200m og 400m þar. Hvað er málið með allar þessar Jean Claude Van-Damme myndir í sjónvarpinu hérna ??
local