Gamalt og gott
May 31, 2007, 10:25
Alveg magnað þegar maður rekst aftur á gömlu góðu tónlistina sína sem finnst einhverstaðar niðurgrafið í tölvunni, t.d. búinn að hlusta mikið á Goo Goo Dolls, þá helst Iris, Wonderwall með Oasis og í rauninni alla (What´s the story) Morning glory plötuna með þeim, Imagine með Lennon, R.E.M. og fullt af svona gamalli góðri gæða tónlist, yljar alveg mitt litla hjarta :) Reyndar líka alveg helvíti gamann af "The Rare Ultra Rare Tracks" með R.E.M. og tónleikadiskarnir Stockholm 1998 með R.E.M., "Live at Knebworth" með Robbie Williams och "Live At Wembley" með Queen. Veit ekki hvað maður myndi gera án góðrar tónlistar... en er samt í voðalega mikilli þörf á nýja tónlist í tölvuna hjá mér.... mæliði með einhverju ??
Ljósið í myrkrinu
May 29, 2007, 18:46
Jæja jæja, þýðir ekkert að vera í einhverju helvítis þunglyndi alltaf, sérstaklega ekki þegar veðrið er svona fínt úti og ég er inni að læra... eeehhhh.... yeeeaahhh En að góðu fréttunum. Hitti Naprapater-inn minn í dag og er þetta ekki tognun í hamnum heldur helvítis krampadjöfull sem vill bara ekki fara, varð mun betri eftir smá meðhöndlun þar og ef að bjartsýnustu menn tala að þá ætla ég að keppa um helgina, en stórefa það samt. Og laaaaang þráð 100kg fóru upp í dag í cleani frá mjöðm og bara alls ekki langt frá 102.5kg, stefni á 105kg innann langs tíma. Próf á morgun, reyna að rúlla því upp og fara með faði vorið í kvöld og vona að hamurinn fari að komast í lag.
Jävla skit
May 28, 2007, 17:05
Já, svona megin ástæða fyrir bloggleysi undanfarið er hreinlega það að það hefur verið nóg að gera með lokaverkefnið hjá okkur hérna + að ég er að læra fyrir 2 upptökupróf þannig að blogg er ekki alveg að gera sig í forgangsröðinni, enda lítið sem maður hefur að skrifa um þegar maður situr inni og lærir allann daginn, nema já jú um æfingar. Veit reyndar ekki alveg hve mikil virkni verður í mér næstu daga heldur, þá bæði útaf lærdómi, þunglyndi og almennu vondu skapi.... og hvað kemur Ragnari í vont skap ?? Jú æfingarnar! Á dagskránni 1x450 og 2x150m og átti að reyna að taka þetta á keppnishraða. Þvílíkt góður fílingur í upphituninni en byrjaði svo á því að gera eitt "How you´re not supposed to run 400m for dummies". Var fínn mótvindur á milli 100m-200m og náði ég að hlaupa það nógu illa til að fá mjólkursýru í báðar hendurnar og hreyfðist því varla síðustu 200m, ekki það að fyrstu 200m hafi heldur verið eitthvað þeir hröðustu í heimi, 23.6, en jújú, mótvindur inní því, en amk, splittið í gegnum 400m var 49.9 en ekki hugmynd með 450m þar sem ég gat varla hreyft hendurnar síðustu 100m.... Síðan var planið að hlaupa 2x150m, fann ekki neitt til í hamnum, sæmilega heitt úti, ég kem mér þægilega fyrir, keyri vel af stað fyrstu 30m og klick.... Pantaðann tíma hjá sjúkraþjálfara á morgun og keppi mjög líklega EKKI um fucking helgina... Góð leið til að eyðileggja annars fínann dag!
Og já bara... hlaupa hlaupa!
May 25, 2007, 07:28
Sýnist hamurinn vera alveg að nálgast sitt besta form og því búinn að skrá mig á mót um næstu helgi, eitthvað lítið mót hérna rétt hjá, og bara ekki frá því að þetta sé sama mót og ég hljóp á í fyrra, vann með 3s, fékk 1.brautina og að völlurinn er bara einhverjir 380m þannig að þarna eru alveg xtra krappar beygjur, en jú, einhverjstaðar verður maður að byrja. En á meðan hlaupin hafa ekki verið í miklu magni síðustu vikurnar að þá hef ég getað keyrt meira á lyftingarnar í staðinn og er bara alveg mjög sáttur með þær og held hreinlega ég hafi aldrei verið sterkariog massaðri... eða já.... best að sleppa bara massaðri og hafa bara sterkari.... En hlaupin já, hljóp í gær 2x400m með 30mín hvíld á milli í ekkert alltof miklum hita með smá mótvindi síðustu 100m. Missionið var að hlaupa báða sprettina undir 51s og þá helst undir 50.50 en samt að hlaupa tæknilega séð mjög vel. Fyrsti var á 50.4s, voðalega þægilegt hlaup bara, reyndi að rúlla þetta bara til að verða ekki of þreyttur fyrir seinna hlaupið og jú var bara sæmilega sáttur, reyndar í hraðaaukningunni eftir cirka 80m fann ég fyrir hamnum þannig að ég komst ekki alveg uppá þann hraða sem ég vildi í byrjun.. Annar lenti svo á svekkjandi 51.0s og kenni þar algjörlega um fyrstu 150m þar sem ég var alltof hikandi í hraðaaukningunni útaf hamnum, en vel keyrt á síðustu 150m þannig að það reddaðist amk. En niðurstaðan eftir æfinguna, gífurlega lítið magn af mjólkursýru, þreytu og engin vanlíðan... vill bara geta hlaupið á max hraða og þá held ég að maður verði bara bráðum tilbúinnn fyrir tímabilið!
Nei nei nei
May 24, 2007, 08:14
Það er ekki eins og það sé auðvelt að taka því að Milan hafi unnið leikinn í gær. En að helvítis auminginn og væluskjóðan Inzaghi hafi skorað bæði helvítis mörkin..... það get ég hreinlega ekki sætt mig við!!!
Stutt eða langt
May 20, 2007, 22:52
Húff, erfitt að velja, á ég að hafa hárið stutt eða langt ?
Fékk amk leið á því svona enn einu sinni í dag og lét það vaða :)
Og þetta bara sýgur alla orku úr líkamanum
May 20, 2007, 12:51
Bara svona smá hint.... ekki ákveða klukkan 05:30 um morguninn hvað maður á að taka með sér þegar maður er á leiðinni á mót með krökkunum, gerið það kvöldið áður!! Vaknaði nolla vel úrillur og góður, klæddi mig reyndar alveg svona sæmilega og eina sem ég hugsaði að ég þyrfti að taka með mér var koddi til að sofa í rútunni..... en gleymdi smá öðru: a) ég á alveg voðalega erfitt með að sofa í rútu þannig að þetta eina gáfulega sem ég tók með, koddinn, gerði nákvæmlega ekkert gott b) Regnhlíf, alltaf þegar ég fer á mót og þarf að standa á vellinum allann daginn, ÞÁ RIGNIR! c) Regngalli. d) Peninga, þarf að fara að læra að það eru ekki tekin kort í þessum sölubásum á völlunum. Þannig að ekki nóg með að rútuferðin í gær, fram og tilbaka hafi verið rétt tæpir 8klst heldur gjörsamlega mýgringdi allann helvítis daginn þannig að maður stóð þarna í alveg allmarga klukkutíma, rennandi blautur, svangur og þreyttur. En krakkarnir stóðu sig nú bara ágætlega, þannig að eitthvað gladdi mann amk
Góður nætursvefn
May 17, 2007, 17:42
Ef maður ætlar að sofa yfir sig er alveg eins gott að gera það með stæl! Naði sumsé þessum ljómandi fína næstum 11klst svefni í nótt, sofnaði eitthvað rétt fyrir miðnæti og vaknaði ekki fyrr en Tomas, sá sem ég geri lokaverkefnið mitt með, hringdi í mig kl. 10:30 í morgun og spurði hvar í andskotanum ég væri :) Ef það gengur jafn vel að vakna á laugardaginn að þá verður það eitthvað skrautlegt, en fer þá til SKRUV.... já nákvæmlega... WTF!!, en það er einhver lítill bær rétt hjá Växjö, sem segir ykkur ábyggilega ekki neitt, á eitthvað með krökkunum sem ég er að þjálfa, verður farið KLUKKAN 07:00 um morguninn og komið aftur heim um kvöldið, shiiiiittt hvað ég á eftir að sofa yfir mig! Verð bara meira og meira pirraður á þessum blessaða hamstring á mér, en hljóp í dag 400m - 10mín hvíld - 3x300m með 3mín hvíld - 7mín hvíld - 3x100m. Átti bara að taka þetta nokkuð rólega il að sjá hvað hamurinn þoldi og byrjaði fínt, 51.5s á 400m alveg voðalega létt og þægilegt, 24.6-24.8-25.1 á 200m en var þá farinn að finna fyrir hamnum í lokin og svo alveg skíthægir 100m útaf helvítinu. Hljóp reyndar inni í dag þar sem hitinn var bara rétt yfir 10°, rigning og vindur... En nýjasti Heroes var að koma í hús þannig að sjónvarpið kallar :)
Hamstrings
May 15, 2007, 08:20
Neeeiii, hvað er að gerast með mig!!! Ýmindið ykkur að lifa einn heilann dag og hafa Franska eurovision lagið á volume 10 í hausnum á sér ALLANN DAGINN, og nr 1, 2 og 3 að það var ekki einu sinni gott!!! Og hvað er það fyrsta sem gerist núna þegar ég vaknaði í morgun, jú labba inn í eldhús, sest þar niður að fara að fá mér að borða, og byrja að raula þetta fucking lag! Held að heimurinn sé að fara undir. En er annars orðinn svoldið þreyttur á þessum blessaða hamstring á mér, komnar 2 vikur síðann ég fékk létta tognun í hann og get ekki ennþá hlaupið á 100% hraða, sem er að gera mig crazy ásamt þessu franska lag, og hafa seinusti 2 vikur því einkennds af hægari sprettum sem eru ábyggilega að drepa blessaða hraðann sem á að finnast þarna einhverstaðar í fótunum á mér. En eigi skall gráta .... blablabla ... heldur fara og taka á því í lyftingarsalnum í staðinn, yeah
Eurovision
May 11, 2007, 19:53
Jæja, Ísland dottið út úr Eurovision eftir forkeppnina í gær sem var .... eeehhh já... eftir 2 lög ákvað ég bara að setja "mute" á sjónvarpið, þvílíka hörmungin, hlustaði svo bara svona smá og smá á meðan þetta rann allt út í sandinn og já, ekki viss um að ég láti eyrun á mér þola þetta annaðkvöld núna þar sem ekkert Ísland verður með þannig að 90% af "spennunni" við þetta er horfin. Pabbi var annars hérna í bænum í vikunni á einhverju fundaveseni, alltaf gamann að hitta kallinn og fá svona aðeins fínna að borða :) Skítaveður búið að vera núna, rétt rúmlega 10°C og rigning, vona að þetta verði eitthvað aðeins skárra á morgun þegar ég verð að vinna við Göteborgs Varvet sem er hálfmaraþon hér í bæ með 40.000 þáttakendum, á sama tíma sem Nato verður með einhverjar heræfingar hérna, og búist við mótmælum við Nato niðri í bæ þannig að vonandi að það eyðileggji ekki hlaupið, en kanski það hlýji manni smá ef maður stendur þarna niðri í bæ, illa klæddur í rigningunni. En já... matur....
Fleiri myndir frá Spáni
May 10, 2007, 22:07
Það er hægt að sjá fleiri myndir frá Spáni á Flickr síðunum hjá Bea og Sandin ef fólk hefur áhuga á, eins og t.d. þessa fínu mynd þegar það var verið að vaxa á mér bringuna ;)
Nýjar myndir
May 08, 2007, 23:53
kominn tími til að setja inn smá nýjar myndir, búinn að setja inn nokkrar frá Spáni og bætast vonandi fleiri við innan skamms
Latasti bloggarinn
May 06, 2007, 16:49
held ég gefi mér sjálfum þann titil og ekki frá því að bara svona almenn latasta manneskjan, shitt hvað ég á erfitt með að koma einhverju í verk núna. Bara eftir ferðalagið á sunnudaginn frá Spáni til Íslands hef ég verið alveg ónýtur af þreytu og viðbjóði, ullabjack á það! En úr einu í annað af aftur í þetta eina. Tók eina æfingu á Íslandi þegar ég var þar í stuttri heimsókn, tognaði í hamstring í upphituninni (sem ég hélt að væri guðsómögulegt) og hef því ekki hlaupið hratt alla þessa viku... er að gera mig geðveikann. Alltaf æðislegt að koma heim til Íslands og hitta familiuna, þá áttar maður sig alltaf á því hvað þau eru æðisleg og maður saknar þeirra mikið. Það er alveg vonlaust að eiga enga Digital myndavél, en fæ myndir frá hinum og þessum í æfingahópnum mínum sem ég get svo hennt inn á síðuna, fyrsti skammtur kemur hérna aðeins seinna í dag. Ég er að safna í eight pack, hreinlega ekki langt frá því! Vaxa bringuna er ekki beint það sniðugasta í heimi, ef maður gerir þetta ekki alveg rétt eftir vaxninguna að þá getur maður víst fengið útbrot á bringuna sem er langt frá því að vera fallegasta í heimi, next time I´ll do this right! Ég gerði mér bestu heimagerðu pizzu ever á föstudaginn, reyndar sú fyrsta sem ég hef gert en verður ekki sú síðasta, eigið deig og eigin sósa með smá Ragnars fiffi í og tating.. djöfull var þetta gott. Spilaði póker í gærkvöldi og er pókerkóngurinn, kom sá og sigraði og þakka sólgleraugunum fyrir að hafa tekið hina strákana á taugum. Búinn að vera með fucking hausverk í allann helvítis dag, mí dónt læk! Bjössi M að kíkja í heimsókn á eftir, ætlum að gera okkur almennilegann kvöldmat eins og okkur einum er lagið, ábyggilega mikið af kjöti og lítið annað með því og horfa á Svíþjóð vinna Finnland í hokkýinu. Svo styttist bara í fyrsta mót, bara 2 vikur í það held ég, spurning að fara að taka sig samann og hlaupa almennilega :)
Æi COME ON!!
May 03, 2007, 09:56
Djöfulli sem ég er bara ekki að nenna að standa í þessu fucking rugli hérna, sit á flugvellinum, alltof snemma dags, vaknaði á óskyndamlegum tíma og nú þegar komin klukkutíma seiknun á fluginu og hef ekki hugmynd hvort það verður einhver meiri seinkun eða ekki, hefur bara bæst við 15mín á 15mín fresti síðasta klukkutímann á þennann blessaða skjá hérna við hliðina á mér, tölvan að verða batterýslaus, ég er þreyttur og bara alls alls alls ekki að nenna þessu... ÉG HATA AÐ FERÐAST !!
Fucking magnað
May 02, 2007, 00:41
Frábært að muna núna í dag að ég gleymdi að segja upp morgunblaðinu mínu útí svíþjóðinni áður en ég fór í æfingabúðirnar.... Málið er nefnilega það að ég er með póstkassa í húsinu sem ég bý í, sem er ekki alveg það stærsta í heimi, þetta morgunblað (GP) er alveg vel feitt blað þannig að það er sennilega ekki pláss fyrir meira en max 3 blöð í hólfinu mínu, þannig að þegar ég kem heim á ég að hafa fengið 14stk + allann venjulegann póst... verður fróðlegt að sjá hvernig það hefur verið leyst eða hvort að pósturinn minn sé hreinlega vel dreyfður út um allt húsið!!!!
local