Hvíld...!
Mar 29, 2007, 22:18
Djöfulli sem maður er búinn í fótunum núna, en þessi vika á að vera svona aðeins rólegri til að jafna sig eftir álagið frá síðustu 3 vikum enda finnur maður alveg vel fyrir þeim og basicly eins langt frá því að vera ferskur eins og hægt er, alveg búinn bara eftir þriðjudagslyftingaræfinguna en ákvað að taka síðustu almennilegu hlaupaæfinguna í dag eeen, maður hefði kanski bara átt að sleppa því að gera eitthvað aðeins léttar í staðinn en æfingin í dag: 2x350m með 15mín hvíldum 2x300m með 10mín hvíldum 2x200m með 3mín hvíldum Hlupum úti í dag í fyrsta skiptið en var langt frá því að vera ferskur eins og ég fann eftir 100m í fyrsta 350m sprettinum, hljóp í gegnum 300m á 37.7 en ekki með 350m tímann þar sem við höfðum mælt eitthvað vitlaust og hlupum cirka 370m :) næsti á 37.3 í gegn og 44 á 350m 2x300m : 36.9 og 38.1 en hljóp ekki 2x200m þar sem ég fékk krampa í báða kálfana eftir 2 skref í fyrsta sprettinum, ákváðum að þetta væri bara gott ídag.... Í fríi næstu 3 daga frá æfingum og því stefnir allt í að sófinn verði minn besti vinur :)
Sólbað ?
Mar 27, 2007, 16:41
19°C hiti hérna í gær takk fyrir takk! Annars helvíti magnað eitt skemmtilegt forrit hérna fyrir MAC, parallel Desktop, sem gerir manni kleyft að keyra bæði Mac OS X og eitthvað annað stýrikerfi (t.ex. Windows) samtímis, prufaði að setja þetta upp hérna hjá mér í gær og alveg svínvirkar, og afhverju er ég að þessu? æi bara kúl :)
Djöfulsins snilld
Mar 25, 2007, 12:41
Þetta vídjó er bara mesta fucking snilld í heimi, einhver ungverskur "rappari" alveg að meika það með boybandið sitt með sér, algjört MUST SEE!! yeah come on.... business, yeah.. :)
Vilken underbar dag!
Mar 24, 2007, 17:31
Já ekki annað hægt en að brosa bara og njóta af það sem eftir er af deginum, basicly fyrsti vordagurinn, 15°C og sól, ekki annað hægt en að brosa bara og njóta :) "Ef þú smælar framann í heiminn þá smælar heimurinn framann í þig" Tók daginn kanski of hátíðlega með því að hlaupa alltof hratt brekkusprettina í morgun sem leiddu til sæmilega góðs dauða í 3x300m með 5mín hvíld eftir það, en maður hefur bara gott af því að deyja reglulega er þaggi ?
Á leið í form
Mar 23, 2007, 10:42
Já fuck that, ekki frá því að maður sé á leiðinni í eitthvað ágætisform barasta, en er núna inni á 3ju og síðustu vikunni í þessari æfingaperiodu, róleg vika næst og ný period eftir hana þannig að maður er farinn að verða alveg virkilega þreyttur í löppunum og í rauninni bara öllum líkamanum, en þrátt fyrir það er ég bara að hlaupa betur og betur og hraðar á æfingunum núna og æfingin í gær bara gott dæmi um það, þessi hefðbundna fimmtudagsæfing, 2x450m með 15mín hvíld og svo 3x200m með 3mín hvíld. Aðaltíminn í 450m sprettinum er í rauninni 400m splittið sem á að liggja á 54s og svo 200m eiga að vera á 26-25-24s þeas hraðari og hraðari, síðustu 2 vikur hef ég hlaupið þetta á: 1) 63s(56.2) - 61s(54.1) - 25.3s - 25.0s - 24.0s 2) 61.1s(54.2) - 61.2(54.3) - 25.1 - 25.1 - 26.0 Og svo loxins æfingin í gær, byrjaði með mína 2 hröðustu 450m og 400m splitt (fyrir utan síðustu 50m í seinni sprettinum, var eitthvað fólk fyrir þar) 60s með 53.3s splitt á 400m 61.2 með 53.5 splitt á 400m 3x200m: 25.7 - 24.3 - 24.5 Lika alveg merkilegt með þetta að það var enginn gífurlegur dauði eða neitt, bara sæmilega ferskur og góður, líka frábært að ég hef ekki fundið fyrir neinni ógleði á neinni af hlaupaæfingunum undanfarið sem er náttúrlega bara snilld, bara hrikalega mikil sýra en nottla munurinn á sýru og ógleði er að sýran fer eftir svona 10mín en ógleðin getur alveg verið að dúttla sér þarna í maganum í uppí 40mín eða þangað til maður fyllir ruslatunnuna :) Ekki frá því að lyftingarnar og hoppin séu að gera smá gæfumun núna en gat ekkert lyft þungt á lappirnar né hoppað í haust og fram yfir keppnistímabilið útaf hnjánum en það virðist allt vera gleymt og grafið núna, alveg magnað það!
Loftnet
Mar 22, 2007, 14:34
Jæja, reyna að vera sérstaklega virkur með þennann flokk og bara skella öllu þessu ljóskulega sem ég geri hérna út, já eða bara svona dagsdaglega. En amk, var ég að flytja inn í nýju íbúðina mína fyrir rúmum einum og hálfum mánuði síðann vorum bara tveir eftir, ég og Jonas skólafélagi minn og planið að henda upp humangus sjónvarpsskjápnum mínum, fá sjónvarpið í hilluna og sitja svo uppí sófa með kaffi með tærnar uppá borði og slappa af eftir flutninginn. Allt gekk eins og í sögu, eða svona jújú, hefði alveg mátt ganga betur að koma skápnum samann, but what so ever, þannig að ég skuttlaði mér uppí sófa, kveikti á sjónvarpinu og sá mér til mikillar furðu að engin stöð virkaði í sjónvarpinu Ég: "Nei hvur djöf, þarf ég að stilla inn allar stöðvarnar aftur" og fór að fikta í fjarstýringunni að undirbúa að fara að leita að öllum stöðvunum Jonas stóð þarna við hliðiná mér, horfði á mig eins og ég væri fífl og sagði "Ragnar....!! þú þarft líka að setja loftnetið í samband!!" Ég nottla alveg dauðskammaðist mín þar sem ég var nú með snúruna í hinni hendinni og bara "jájá, veit það alveg". Tróð mér bakvið sjónvarpið og setti loftnetið í samband við sjónvarpið og settist svo í sófann aftur. "Nei hvur djöf... þetta virkar ekki ennþá!!!" * ath, þegar hér var komið við sögu var maður vel þreyttur eftir flutninginn og allt vjézenið um morguninn * Jonas stóð þá við hliðina á mér og horfði á mig eins og ég væri algjört fífl, beið í smástund og sagði svo "RAGNAR, ERTU VIRKILEGA EKKI AÐ GRÍNAST?????" Ég : "Nei þetta er bara ekki að virka" Jonas: "Ragnar, þú þarft líka að setja hinn endann í vegginn!!!!" Tók þá eftir mér til mikillar skelfingar að ég hélt ennþá á hinum endanum af loftnetsnúrunni í annarri hendinni, lá svo mikið á að kveikja á sjónvarpinu að ég hafði hreinlega steingleymt að setja hann í vegginn... Já.. þurfti sumsé að þola ekkert fá skot næstu vikurnar eftir þetta, en svona vitlaus getur maður nú verið þegar maður er þreyttur!!
Vinna ?
Mar 22, 2007, 00:42
Búinn að kíkja á nokkrar svona vinnumessur undanfarið í skólanum, svona dæmi þar sem fullt af fyrirtækjum koma, eru með bása, kynna sig og sína og reyna að veiða nýútskrifaða námsmenn til sín, undanfarin ár hefur markaðurinn verið alveg sæmilega mettur fyrir tölvuverkfræðinga, eða frá 2000 þangað til að í ár að þá er alveg gífurleg vöntun á okkur tölvunerdunum. Þannig að núna hálf svíður bara að vera að fara að lesa í 2 ár í viðbót þegar margir félagar manns eru úti að leita sér og veiða öll tækifæri sem eru í boði og fara að vinna sér inn sæmilega almennilegann pening. Líka alveg ótrúlegt hvað maður hefur breyst undanfarna mánuði, fyrir jól datt manni ekki í hug að fara að byrja að vinna núna í sumar og frameftir en núna væri maður í rauninni alveg til í það, fínt í að hætta á námslánunum og kaupa sér 42" flatskjá með peningnum í rassvasanum :)
Morgunkaffið
Mar 21, 2007, 09:52
oookeeejjj, ég held (99%) að ég hafi gert kaffið mitt í morgun úr sama kaffi og í gær (gleymdi að skipta um kaffipoka), djöfulli var þetta ógeðslegt, mæli ekki með þessu svona snemma á morgnanna!
Svona almennt bara
Mar 19, 2007, 22:22
Ef við hugsum okkur sporvagnaleiðir í bæ, og á einum stað niðri í miðbæ fara flestallir sporvagnarnir framhjá, segjum svo að á þessum stað bili rafmagnskerfið fyrir sporvagnana þannig að næstum engir sporvagnar geta ekið um í bænum, þá þakkar maður fyrir að búa á stað þar sem maður spjarar sig fínt með strætó. Þannig dagur var í dag þegar ég var á leiðinni á æfingu! Tók það annars alveg gíhíhífurlega rólega um helgina eins og planið var, þannig að í rauninni stóð ég mig eins og hetja, var með nokkur hundruð lög í tölvunni sem þurfti að sortera og breyta nöfnunum á, þakkaði þá fyrir að vera tölvunerd og gerði bara lítið forrit sem reddaði því fyrir mig, ætti kanski að nota það sem hösl línuna mína þegar ég fer út á djammið næst.. Já og byrjaði svo að horfa á Heroes um helgina, og bara já, ég er alveg að fíla þessa þætti í botn, komst alveg í gegnum fyrstu 7 þættina frekar auðveldlega og missionið að taka restina svona út vikuna og um næstu helgi, svo bara fiffað aðeins á síðunni og undirbúa hana aðeins undir smá breytingu, þarf eitthvað að endurkóða þetta kóða rusl mitt. Bætti mig svo í hástökki án atrennu í dag eftir alveg sæmilegann slatta af 100m og 150m sprettum, kominn uppí 1.50m, fínt að sjá til hvað maður geti gert þegar maður er ferskur í löppunum, amk nálgast 1.60 hratt og örugglega :)
RSS and some shit
Mar 17, 2007, 18:43
Jæja, eftir mikið tuð í mörgum, almenna leti hjá mér og margt margt fleira að þá er ég loxins búinn að setja RSS stuðning á síðuna mína, þannig að núna getur fólk hætt að röfla! En annars bara hin fínasta æfing í dag, brekkusprettir í smá mótvindi, 2x3x40m og 6x100m og svo endað á 3x300m með 5mín hvíld í göddum á brautinni eftir það, urðu aðeins hraðari en í síðustu viku með enn meiri mjólkursýru og dauða en þá: 37.8 (24.7 í gegnum 200m) 37.3 (24.3) 39.6 (25.3) og svo bæting í hástökki án atrennu eftir það, 1.45, stefni á 1.60 fyrir æfingabúðirnar 19.apríl!! Annars varð gærdagurinn ekki alveg jafn afslappandi eins og planað var, byrjaði á því að ég fór eftir æfinguna niður í bæ til að kaupa mér eina græju til að tengja tölvuna við sjónvarpið, ekkert mál, borgaði það og fór heim. Komst svo að því að ég hafði keypt vitlausa snúru og hafði þá klukkutíma til að koma mér niður í búð til að skila henni, gekk það svona og svona, byrjaði á því að strætóinn kom 15mínútum of seint og fór bara hálfa leiðina, hljóp restina (einvherjar 5-8mín) en var þá ekki rétta snúran til þar, en þeir eru með aðra búð hérna niður í bæ og vissi ég "cirka" hvar hún var, hljóp þangað alveg á botni og eftir smá leit hér og þar að þá fann ég búðina alveg við endann á götunni, fixaði snúruna og ekkert mál. Fattaði svo að strætóinn sem fer beint heim átti að koma eftir einhverjar 5mínútur aðeins lengra frá þannig að ég tók einn sprett þangað, rétt náði strætónum og ók heim gjörsamlega alveg að míga á mig enda nýkominn heim af æfingu þar sem ég drakk fullt af vatni og hoppið og skoppið við að hlaupa var bara hreinlega ekkert að hjálpa vatninu að halda sér á réttum stað og vildi það alveg endilega komast út, alveg gífurlega langt síðann ég hef verið svona helvíti nálægt því að míga á mig!! en hafðist nú alla leiðina inn á klósett... jeeeyy :) En planið í kvöld og morgun: CHILLA!!!!
Sovmorgon
Mar 16, 2007, 11:33
Næææs Og þá er geðveikinni lokið í bili, en í gær héldum við með fyrirlesturinn um verkefnið í verkefnakúrsinum sem við vorum í og þar með lauk þessari önn sem er mest búin að einkennast af stressi, of löngum skóladögum og vinnandi kvöldum þannig að núna getur maður aðeins tekið það rólega, fengið sýna 8klst á nóttu og kanski líka bloggað reglulega, aldrei að vita sko. En fyrirlesturinn gekk bara vel í gær, demokeyrðum svo allt dæmið og allt virkaði bara mjög fínt og flott, þriðji áfanginn minnir mig þar sem við fáum hrós fyrir að hafa gert allt mun flottara og betur virkandi en undanfarin ár, alltaf gamann að heyra það, en líka alveg ótrúlega mikil vinna sem við lögðum í þetta, sat t.d. til korter í eitt aðfaranótt miðvikudagsins og svo frá 10-20 í skólanum með hópnum að fínpússa svona hitt og þetta. En núna er það bara fókus á lokaverkefnið fyrir BS gráðuna næstu 2 mánuðina og skella sér þess inn á milli í æfingabúðir til Spána, held að það sé komið á hreint að ég fari þangað. Þrátt fyrir þessa geðveiki með skólann undanfarið að þá hafa æfingarnar bara gengið eins og smurt, alveg hrikalega ánægður með þessar fyrstu 2 vikurnar eftir innanhústímabilið og alveg frábært að vera farinn að lyfta aftur þungar æfingar á lappirnar en gat það ekkert í haust útaf hnéhelvítinu, en það allt í gúddý núna. Æfingin í gær var sú sama og fyrir viku síðann, 2x450m með 15mín hvíld og svo 3x200m með 3mín hvíld, splitta 400m í 450m á 54s og svo fara 200m á 26-25-24... tókst næstum... en amk: 450m: 1.01.1 (54.2 í gegnum 400m) 450m: 1.01.2 (54.3 í gegnum 400m) - merkilegt hlaup þar sem kálfarnir tæmdust alveg eftir 250m þannig að smá streð síðustu 200m... 200m: 25.1 (aðeins of hratt) 200m: 25.1 200m: 26.0 (komst aldrei uppá neinn hraða útaf mjólkursýru frá spretti nr. 2) En bara gamann að þessu :) Og markmiðið um helgina fyrir utan að chilla og taka 2 æfingar, LAGA TIL hérna heima hjá mér, sortera öll MP3 lögin í tölvunni og fiffa smá til á síðunni minni... Just gotta love this weekend!!
Einfaldur ?
Mar 14, 2007, 11:22
Æi kanski er ég bara svona einfaldur, en mér finnst þessi mynd bara alltaf jafn fyndin:
Eurovision
Mar 11, 2007, 09:58
Jæja jæja, þá er loxins búið að velja lagið sem Svíjarnir senda í Eurovision í ár og basicly já, ekki alveg eftir sænsku formúlunni, en sigurvegarinn í ár var sumsé The Ark með lagið "The Worrying Kind" þannig að ekki alveg þessi týpíska Abba balaða sem fer héðann í ár.
En þetta dæmi er samt ekkert smá stórt hérna, kallast melodifestivalen og varla verið neitt annað í sjónvarpinu eða í blöðunum síðustu vikurnar nema umfjallarnir, spár og spögguleranir um þetta allt samann. Síðan eru að sjálfsögðu undankeppnir, fjögur stykki minnir mig að það hafi verið með 8-9 keppendum hver þar sem þau 2 efstu í símakostningunum fara áfram í úrslitin og einhver 2 í viðbót fara í "andra chansen" og svo er einn þáttur í viðbót með öllum lögunum í andra chansen og fara þá 2 lög þaðann áfram í úrslitin og svo eru að sjálfsögðu úrslitin sjálf. Meira ruglið, sá ekki úrslitin í gær þar sem ég var svona frekar upptekinn af því að læra til miðnætis og hafði ekki heyrt lagið með The Ark áður en með hjálp af DC og youtube var því reddað á no-time, amk, hérna er sumsé lagi sem svíjarnir senda í ár, tekið af youtube og er þetta held ég í undanúrslitunum, ekki frá úrslitinum í gær.
bara að spýta í lófana!
Mar 10, 2007, 16:16
Góð upphitun fyrir lærdómsalvöru helgarinnar var tekin í morgun í þessari fínu brekku (4x100m m/3mín hvíld + 4x300m m/6mín hvíld)og svo endað á göddunum, 3x300m m/5mín hvíld, í höllinni. Brekkan átti að bara að taka sæmilega í, ekki allout en smá sýra vel þegin og gekk það bara alveg svona ljómandi vel, amk ekkert sá sprækasti neitt í heimi þegar maður lagði af stað í 3x300m, en það leit sumsé svona út: 38.1: - Ofboðslega léttur, hélt reyndar að ég væri á cirka 37s en eitthvað sveik það mig nú enda alltof hægir fyrstu 200m á rúmum 25s. 37.6: - Mun betra tempó á þessum en kalla mig aumingja fyrir kaflann á milli 100m-200m, alltof slappur þar. En amk sæmilega þreyttur eftir þennan 39.5: - Jaahh, alltaf stemning að vera ennþá með mjólkursýru þegar maður leggur af stað og staðfesti hér með aumingjatitilinn fyrir að beila svona hrikalega á milli 100m-200m en fæ + aftur fyrir síðustu 100m. Niðurstaðan í dag er að ég verð aðeins að lemja hausnum í vegg og þora að negla betur á miðpartinn í hlaupunum þó að ég sé þreyttur, minn langstærsti galli í augnablikinu! En nú þegar búinn að sóa 15mín af lærdómstímanum mínum í blog vitleysu, þannig að góða helgi bara :)
4 langir dagar framundan
Mar 08, 2007, 22:25
Merkilegt alveg að vera með sudda streng í maganum, þá nýtur maður þess bara engann veginn að hlægja og hósta! Núna verða hrikalegir 4 næstu dagar, læra undir próf sem er á mánudaginn, en í dag var síðasti fyrirlesturinn hjá mér áður en ég klára BS gráðuna í tölvunerdafræðunum, bara 2 ár í viðbót og þá ætti maður að vera búinn með þetta. En já, búin að vera alveg helvíti fín æfingarvika bara, margir styttri (100-150m) sprettir á mánudaginn, góður slatti af lyftingum á þriðjudaginn og svo 2x450m + 3x200m í dag, 15mín hvíld eftir 450m sprettina og 3mín á milli 200m og átti að hlaupa þetta á ágætistempói svosem, fara í gegnum 400m á 54s og 200m áttu að liggja á 26s-25s-24s. 450m: 63 - 56 í gegnum 400m, passaði mig of mikið á því að fara ekki of hratt 450m 61 - 54.1 í gegnum 400m, bara sáttur við það, en maður fann alveg fyrir þriðjudagslyftingaræfingunni í löppunum, ekkert alveg sá ferskasti 200m: 25.3 - djöfull er erfitt að hlaupa svona hægt aftur eftir keppnistímabilið 200m: 25.0 - ágætlega þægilegur bara, fínt rúll 200m: 24.0 - sáttur með að hafa sett þennann akkúrrat á tíma, samt ekkert dauður eftir æfinguna, mkt bra :) Og svo bara að negla á laugardagsæfinguna sem inniheldur mångsteg (æi man ekkert hvað þetta heitir á íslensku, hoppa áfram hægri-vinstri-hægri-vinstri) í brekku, 4x100m í brekku, 4x300m í brekku og enda þetta svo með 3x300m á brautinni með 5mín hvíl á milli og eiga þeir að vera bara drulluhraðir svona miðað við það sem á undan verður gengið. Verð sprækur í lærdómnum á laugardaginn!
Viðbrigði
Mar 07, 2007, 11:15
Eins og ég minntist á í gær að þá eru æfingarnar byrjaðar aftur á fullu fyrir sumarið og alltaf helvíti magnað að sjá svona hvernig líkaminn bregst við þessu öllu samann, nottla í gegnum keppnistímabilin eru engar hrikalegar æfingar, svo var síðasta vika frekar róleg þannig að í fyrradag og í gær komu svo 2 mjög erfiðar æfingar í röð og nákvæmlega eins og í haust að þá kemur maður hrikalega þreyttur heim, nennir varla að gera neitt, legst uppí rúm frekar snemma, steinsofnar og vaknar svo milljón sinnum yfir helvítis nóttina og í annað hvert skipti í algjöru svitabaði, gekk meira að segja svo langt í nótt að fara á fætur, skipta um lak og sængurver þar sem það var ekki þurr blettur sem hægt var að liggja á í rúminu!! Rúmfélagi... einhver??
Magnað alveg
Mar 06, 2007, 14:14
Jæja, undirbúniningstímabilið fyrir sumarið komst á alveg fullt skrið í gær, fagnaði því með mikilli mjólkursýru auk þess að endurnýja kynnin mín við eina af ruslafötum húsins sem er alltaf jafn ánægð við að hitta mig (ábyggilega sem og húsverðirnir þegar þeir labba fram hjá henni). En lýst bara vel á framhaldið fram að sumrinu og verður vonandi innifalið í því æfingaferð til Spánar með liðinu hérna, ætti vonandi að koma í ljós núna á næstu dögum hvort ég komist útaf lokaverkefninu í skólanum sem við eigum að byrja á eftir tæpar 2 vikur. Próf í næstu viku, vorið er að nálgast, ekki erfitt að sjá það miðað við rokið og rigninguna síðustu daga, en annars bara alveg nóg að gera svona við að ná að klára allt síðustu vikuna fyrir prófin, jíhaaaaa EDIT: "Tók eftir því hvað ég er gífurlega frumlegur með síðustu 2 subject á bloggunum mínum" :)
Merkilegt alveg
Mar 03, 2007, 10:39
Er búinn að vera alveg ótrúlega þreyttur og í gær alveg hálfónýtur af þreytu, en ákvað að harka það af mér, spila póker hérna heima með nokkrum félögum mínum og svo bara sofa út í morgun, langt síðann maður hefur getað gert það og þarf ekki að gera neitt í dag nema vera þjálfari á móti hérna í dag fyrir krakkana mína milli 12-16. En eins og það hefur verið erfitt að rífa sig á fætur í skólann alla vikuna að þá var ég glaðfuckingvaknaður rétt fyrir 08 í morgun!! HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞAÐ ??? Fór út með ruslið áðann og hefur greinilega verið gott djamm hérna niðri í nótt þar sem að stór gluggi í anddyrinu var gjörsamlega í maski... alltaf gott að eiga bara heima á fjórðu hæð.... En talaði einhverntímann um daginn um að það hefðu verið arbetsdagar í skólanum þar sem það koma alveg fullt af fyrirtækjum í skólann, eru með sína bása að kynna fyrirtækið sitt og reyna að fá til sín fólk í vinnu. Var eitt franskt fyrirtæki, staðsett í frönsku riverunni í Frakklandi, sem við töluðum við þar, hljómaði alveg ágætlega nema að þeir voru ekki með neina bæklinga um fyrirtækið sem maður gat haft með sér, þannig að gaurinn þar bað okkur bara að fylla nafn, e-mail og smá upplýsingar um okkur á eitthvað umsóknareyðublað sem hann var með þarna og svo myndi hann senda allar upplýsingar á okkur, talaði svo heillengi um hvað þeir myndu borga alla ferðina fyrir okkur þangað út, redda íbúð, frönskunámi og veit ekki hvað og hvað ef við myndum fara þangað og vinna fyrir þá, við bara jájá, sendir okkur bara smá upplýsingar. Síðann nokkrum dögum síðann fengum við allir mail með einhverjum upplýsingum um fyrirtækið og að þeir vildu alveg endilega fá okkur í vinnu hjá þeim, bara senda CV og smá meiri upplýsingar um okkur til þeirra, sem maður gerði nú ekkert þar sem að stefnan er nú mastersnámið í haust. But anyway, svo núna á þriðjudaginn síðasta fékk ég símtal frá frakklandi frá einhverri konu sem er að vinna hjá þessu fyrirtæki, og eins lítið og ég skildi í þessari ensku með þessum frábæra franska hreim að þá vildu þau bara alveg endilega fá mig þangað út til þeirra, væri alveg helvíti gamann ábyggilega að prufa eitthvað svona í 1-2 ár, en núna, nei held ekki, Frakkland reyndar ekki alveg heillað svona mest í heimi, en ætli maður verði ekki bara með alla ólíka möguleika opna að námi loknu :) Þar sem þetta blog er nú orðið svona helvíti langt og ég búinn að vera svona hrikalega latur að blogga undanfarið að þá er bara alveg jafn gott að halda bara aðeins áfram er þaggi :)
Ég er sumsé núna kominn með þetta feita Apple fever, bara gjörsamlega elska þessa blessuðu tölvu mína og allt sem að þessu fyrirtæki kemur í augnablikinu, er líka búinn að vera duglegur undanfarið að kaupa mér alveg hitt og þetta sem mig hefur langað í lengi (jájá, lifi mjög fátæku lífi næstu mánuðin en fuck that, totally worh it) og basicly langað að gera allt þráðlaust hérna heima hjá mér, netið, soundið, prentarann og allt svoleiðis og þar sem maður var nú kominn inn á apple línuna að þá var þessi snilldargræja hérna keypt í gær, Airport Express sem leysti bara öll mín vandamál á sama tíma, Prentarinn tengdur við þetta, iTunes og græjurnar komnar samann og allt þráðlaust of fínt!! I´m living in my own dream right now, og þakka Ara alveg kærlega fyrir að ýta mér síðustu metrana yfir í Apple lífið :) Og ef Webcamið og Photo Booth er ekki nógu góð ástæða fyrir því að kaupa sér Macbook að þá veit ég ekki hvað :
OG HÚN ER KOMIN HEIM!!
Mar 02, 2007, 08:41

local