Flutningur
Jan 31, 2007, 00:30
Vá hvað það er ekki mikið í uppáhaldi hjá mér að flytja... held að það sé í rauninni varla margt sem er leiðinlegra en það enda sameinar það alveg það margt það leiðinlegasta sem maður þarf að gera. EEnn það getur líka haft smá gott í för með sér, t.d. að maður hendir loxins fullt af drasli sem maður hefur safnað að sér en mun aldrei nokkurntímann nota og maður finnur hluti sem voru búnir að vera týndir alveg gífurlega lengi, eins og tildæmis fann ég í dag HAMARINN minn og SKÚRJÁRNIÐ sem eru búin að vera týnd í ábyggilega meira en ár núna, lágu einhverra hluta vegna undir einhverju drasli inní fataskáp, en hafði keypt mér þetta snilldarinnar skrúfjárn með böns af hausum en skrúfjárnið sjálft hafði týnst og því lítið gagn af hausunum þannig að hinir ýmsir hnífars sem pössuðu í skrjúfuhausana hafa sumsé þjónað sínum tilgangi í bili cause the skrúfjárn is back in the business yeah babe yeah.. Flytja á fimmtudagsmorgun þannig að smá tími í viðbót hefur maður til að fixa þetta allt, verð helvíti feginn eftir hádegi á fimmtudaginn þegar þetta er búið og ennþá fegnari á sunnudaginn þegar ég hef loxins nennt að raða öllu og koma í skikkanlegt ástand!!
Sumar helgar ganga vel, aðrar ekki
Jan 28, 2007, 23:49
og a var bara ein af þeim sem var ekkert alveg að smella neitt, hrikalega þungur í löppunum í báðum hlaupunum og fannst þær bara ekki virka neitt, engin vinnsla eða neitt, þannig að miðað við fíling og aumingjaskap að þá ætti maður kanski að vera sáttur með tímana en bara veit ekki. Amk mín fyrsta 1klst og 50mín upphitun í steikjandi hitanum í höllinni þar sem fíflin sem voru að vinna þar sögðu mér að bestu riðlarnir myndu hlaupa fyrst, sem var svo að sjálfsögðu öfugt og tekur alveg smátíma að koma 12 riðlum í gang þannig að mín lengsta upphitun staðreynd, braut eitt í að ég held fyrsta skipti í 400m innanhús sem maður var ekki að fíla alveg sem var alveg synd þar sem þetta var alveg fínn riðill sem ég var í, gerðist bara ekkert og ekkert passaði og tíminn 50.48. Í dag var það svo 200m og alveg sami fílingur eins og í 400m í gær, gerðist bara ekki neitt og allt í rugli og tíminn 23.14. Bara gleyma þessari helgi og einbeita sér að meistaramótinu eftir 2 vikur!!
Snjókorn fall á allt og alla
Jan 24, 2007, 23:39
Já, haldiðið ekki bara að fyrsti snjór vetursins hafi fallið í gær, bara feiti jólasnjókoman sem ég hafði óskað mér á aðfangadag en ekki fengið! Fyrsti skóladagurinn í gær eftir jólafríið og gekk bara alveg óvenjulega vel að vakna í 8:30 fyrirlesturinn, kom mér alveg skemmtilega á óvart eftir gífurlega þreytu á mánudaginn, sú þreyta kom bara í staðinn í morgun þegar það tók mig 2 tíma að rífa mig á lappir (má sá maður sem fann upp á snoozinu fara fjandans til) og mætti því ekki alveg hinn ferskasti á morgunæfingu en hljóp samt bara alveg drulluvel nokkra 120m með hraðabreytingum þrátt fyrir viðbjóðinn. En áfangarnir á þessir önn eru sumsé Industrial Ekonomi og svo verkefnavinna þar sem það eru 2 hópar með 9manneskjum í hvorum og eigum við basicly að búa til eitt heilt RISA fucking verslunarsystem frá A-Ö takk fyrir takk. En lýst bara vel á þetta annars, miðað við stundartöfluna mína á ég að vera í algjöru fríi á mánudögum og miðvikudögum og bara frá 8-10 á fimmtudögum en sýnist þessir 2 áfangar muni alveg fylla vel í þann frítíma minn og eitthvað mun meira en það, en já.. bara gamann að því. En önnur æfingin hjá mér með árg 94 krökkunum mínum og lýst bara hrikalega vel á þetta, farinn að kynnast þeim aðeins betur núna og held að mitt first impression á æfingunni í síðustu viku hafi bara verið alveg mjög gott, amk var einhver mamman þarna að segja mér frá því að stelpunum fannst ég amk vera helvíti kúl og skemmtilegur bara ;) Flutningur eftir viku... hlakkar eeekkiiii til þess!!
Helgin: Ferðin, keppnin, pb, ferðin
Jan 23, 2007, 00:19
Úje, taka þetta smá í stuttum pistli (eða sjáum til með lengdina þegar þetta er allt komið niður). Amk lögðum við af stað alltof snemma á laugardagsmorgninum, lestir fór héðan frá Gautaborg kl. 06:40 á íslenskum tíma og vorum komnir til Keflavíkur uppúr 15 leytið og gekk allt bara alveg voðalega vel, svona fyrir utan að ég gleymdi passanum mínum þegar ég fór í gegnum öryggishliðið á Kastrup en tók ekki eftir því fyrr en ég ætlaði inn í vél, Visa kort með mynd reddaði því bara vel :) Egill sótti svo okkur + Norðmennina og Danina í Leifsstöð, skutlaði okkur á æfingu og svo niður á hótel. Fær hann alveg gott klapp á bakið fyrir stjanið í kringum okkur útlendingana og var alveg gífurleg ánægð hjá þeim með bara allt í kringum mótið, hótelið, matinn og allann pakkann bara. Í rauninni bara alltof stutt ferð þar sem maður náði varla að hitta helminginn af fólkinu sem manni hefði langað að hitta og þá sem maður hitti var það alltof stutt enda þétt dagskrá og tíminn naumur :( Byrjaði sunnudaginn á því að keyra aðeins með Sandin og 2 norðmenn um Reykjavíkina svona til að sjá bæinn aðeins enda lítið gamann að koma hingað, bara hanga uppá hóteli, keppa og ekki sjá neitt annað, þannig að maður fixaði það að sjálfsögðu. En bara alveg nokkuð sáttur með mótið, mjög vel fyrstu 330-340m en verð greinilega að einbeita mér betur í síðustu beyjunni og restinni eftir og ná aðeins betri skrefum þar, fékk splittin 23.2 og 35.7 (give or take) og lokatíminn 50.07 sem er hálfra sekúndu bæting þannig að lítið hægt að kvarta yfir því, skrefin hrundu bara alveg þegar ég fékk þá báða framúr þegar cirka 40m voru eftir þannig að mörg smáatriði hægt að bæta, en nokkur hlaup eftir þannig að bara bjartsýni framundan með þetta. Eftir mót var svo bara kíkt í laugardalslaugina og í mat á Ask og svo bara rólegt kvöld þar sem við þurftum að vera mætt í rútu kl. 05:00 mánudagsmorgun :( En nenni ekki að fara mikið í gegnum heimferðina, maður var vel druslulegur og þreyttur, náði að sofa vel í fluginu en vaknaði samt alveg milljón sinnum á leiðinni, en leið bara nokkuð hratt. Fékk passann aftur í Kastrup á löggustöðinni þar, svona smá léttir og svo bara uppí lestina til GBG aftur þar sem Bjössi Margeirs var með okkur í för sem manni fannst ganga alveg voðalega hægt, sofnaði ekkert og með 2 hrikalega pirrandi krakka sitjandi fyrir framann okkur síðustu 2 tímana... Já og btw... Í FYRSTA SKIPTIÐ Í 6 ÁR VAR ÉG EKKI STOPPAÐUR Í TOLLINUM Á ÍSLANDI!!!
Resa
Jan 19, 2007, 21:26
Æi voðalega hefði bara verið fínt að taka bara ferðalagið í dag og geta slappað af á morgun, but but, þarf að vakna á alveg virkilega ókristilegum tíma í fyrramálið og ná lest kl 07:40 til Köben þar sem við fljúgum svo til Íslands, ætti að vera komin einhverntímann um miðjann dag og reyna svo að taka smá létta æfingu eftir það... Hleyp svo 400m á sunnudaginn, reyna að gera eitthvað sniðugt eftir það og svo aftur óeðlilega snemmur mánudagsmorgunn með flugi aftur til Köben og svo æðislega lestin til Gautaborgar, sennilega með þeim styttri ferðum sem ég hef farið í á milli landa.... Bara mestmegnis chill bara í dag, aðeins lagað til eftir pókerkvöldið hjá mér í gærkvöldi þar sem maður reið ekki beint feitum hesti og svo smá göngutúr úti í svala veðrinu sem á bara að halda áfram niður á við og á víst að vera alveg hundleiðinlegt annaðkvöld nema að núna gæti komið brjáluð blaut snjókoma með, fínt þá bara að vera í stinningskuldanum á klakanum :) It doesn't hurt me. You want to feel, how it feels? You want to know, know that it doesn't hurt me? You want to hear about the deal I'm making. You, (If I only could, we running up that hill) You and me(If I only could, we running up that hill) Útgáfa Placebo af Kate Bush laginu "Running up that hill" alveg fast í hausnum á mér núna, var í fyrsta OC þætti þriðju seríunnar og bara... já kengimagnað lag sko
jólafrí nr. 2
Jan 17, 2007, 23:55
Jæja jæja, alveg ofboðslega var gott að vera búinn með prófið sem ég gerði í gær, núna svo bara að krossleggja fingurna og vona eftir því besta, alveg óþolandi að fara í próf, muna eftir því að hafa séð allar þessar spurningar áður, en bara alveg ómögulega koma fyrir sér svarinu á sumum... krosslagðir fingur!!! Já en fínt að fá daginn áður út úr hinum jólaprófunum og ná þeim alveg örugglega, smá power boost það. Gæti komið nýtt óveður í nótt, bara ekki séð veðurfréttirnar í dag þannig að veit ekki alveg hvort við sleppum, kemur í ljós bara á morgun :) En ágætisæfing samt í dag, 350-150-150 með bara fríum hvíldum, cirka 20-25 eftir 350m og einhverjar tæpar 8 held ég eftir 150. 350 var ekki alveg eins góður og ég hefði viljað, frekar bara þungur og tæknilega séð ekki alveg nógu góður, of hægt fyrstu 200m, 23.4 og bara orðinn mjög þreyttur af einhverri góðri ástæðu eftir 260m, í gegn 300 á 36."man ekki alveg" og 42.8 á 350m, bara ágætlega sáttur við það miðað við fíling, 42.loow á betri degi. en 2x150m gekk bara alveg mun miklu betur, báðir með hraða- og tíðnibreytingu á 50m kafla, bara helvíti mjög góðir, mí bara sáttur.. En annars gengur ekkert að bæta sig í bekk, held að þetta sé alveg fast í hausnum á mér, sama með helvítis cleanið þar sem ég hef nauma forystu á bekkinn, tekið 95kg í cleani frá mjöðm og 92.5kg í bekknum núna í vetur en 95kg vilja bara ekki fara upp, 2x90kg nokkuð létt í gær en 95... já hálfa leið og svo búmmkrass!!!! 100kg í báðu upp fljótlega já og svo byrjaði ég að þjálfa í dag, meiriháttar shitt það, 13 ára krakkar, nokkrir alveg drulluefnilegir, held að það verði bara gamann í vetur :)
rok og próf
Jan 15, 2007, 17:51
Var víst alveg hið sæmilegasta rok hérna í Svíþjóðinni en ég missti einhvernveginn af því, fínt að búa bara niðri í bæ með fullt af stórum húsum í kringum sig því að mér tréin fyrir utan stóðu bara frekar mikið kjurr allann daginn sem ég horfði útum gluggann, en amk 3 létust og ennþá einhver 200-300þúsund manns rafmagnslaus og eitthvað vjézen, eina sem ég fann fyrir þessu var að útvarpsstöðin sem ég var að hlusta á datt út þannig að playlistinn í tölvunni fékk bara að rúlla í staðinn, bara ekkert verra það. En á morgun er svo próf hjá mér, nottla algjör aumingjaskapur að vera eitthvað að falla á prófum og eyðileggja annars bara gott frí með því að þurfa að fara í upptökupróf en svona er þetta, amk orðinn betur lærður undir það núna en síðast en veit samt ekki helminginn í þessu efni, bara ekki alveg að fíla þessa lesa lesa lesa muna muna muna áfanga, svo helvíti mikið efni að hálfómögulegt að muna þetta allt, en eins og kennarinn sagði "betra að vita lítið um mikið heldur en mikið um lítið" og er ég að ég held að nálgast það, veit núna lítið um sæmilega mikið, þannig að þetta er að nálgast, bara djöfulli sem maður verður þreyttur á þessu lestrardóti.. en já hlýtur að hafast á endanum. Prófið sumsé eftir hádegi á morgun og svo bara frí út vikuna þangað til skólinn byrjar aftur á mánudaginn.. Miklar æfingabúðar pælingar í gangi... já sem og aðrar... en geymi þær allar í bili.. Software engineering glósurnar kalla... júhúúúú :) EDIT 16.jan útaf Burkna yfirlesara!!
Fyrsta mótið búið
Jan 13, 2007, 19:47
Ef fólk lítur á tímana á það ábyggilega von á alveg góðu drullbloggi hérna af minni hálfu en verð nú bara alveg að svíkja fólk alveg hrikalega og þá sérstaklega Burkna sem þarf þá að sleppa sínu venjulega drullu-neikæði-Ragnar commentinu sínu því að jújú ég er bara alveg sæmilega sáttur með þetta fyrsta mót svona ef maður skoðar þetta aðeins niður í detail. Sama mót í fyrra, 200m: 23.39 400m: 51.27 (og steindrapst eftir 300m) í ár 200m: 23.16 400m: 50.80 Og þá aðeins í smáatriðin: 200m: Bara léleg hraðaaukningin fyrstu 50m, kleif úr blokkinni og ekki alveg nógu akvtívur, fínt bara restin af hlaupinu, kom í öðru sæti, fyrsti maður á 22.97 Úrslit (minn riðill): 1 Daniel Norgren IF Kville 22.97 2 Ragnar Frostasson Ullevi FK 23.16 3 Jonas Hilmersson Ullevi FK 23.34 4 John Svensson IF Kville 25.33 400m: Fyrir hlaupið var ég að vona að tveir strákar sem eiga 49.5 og 50.low myndu hlaupa með en þeir ákváðu að hlaupa á morgun í p17 eða p19 flokknum (já ég er gamall, þarf enginn að minnast á það) þannig að næstbesti strákurinn sem hljóp átti eitthvað í kringum 52-53.sek... Hljóp þetta 1klst á eftir 200m sem var alveg fínt og ákvað bara að fókusera svoldið á 100m kaflann á milli 200 og 300 sem hefur allaf verið frekar slakur hjá mér. Opnaði bara alltof hægt fyrstu 200m, rétt tæpar 24s, ~36.5 í gegnum 300m og svo bara chill síðustu 100m í rauninni, voðalega erfitt eitthvað að fá sig til að taka alveg hrikalega á því þegar maður er svona frekar einn og yfirgefinn. Annað sætið tæpum 3s á eftir mér. Úrslit (minn riðill): 1 Ragnar Frostasson Ullevi FK 50.80 2 Jonathan Moonen Ullevi FK 53.53 3 Alexander Palm Sävedalens AIK 53.57 4 Johan Sjöberg IK Ymer 54.89 Úrslitin af mótinu er hægt að skoða hér Til vídjó af þessum báðum hlaupum og get vonandi hent þeim inn núna næstu daga, alltaf gamann að horfa á vídjó af mér er þaggi?? :)
Sól sól skín á mig
Jan 12, 2007, 15:24
Þökkum sólinni alveg kærlega fyrir að hafa kíkkt í heimsókn í morgun og ábyggilega létt þungdlyndinu af góðum hluta bæjarbúa eftir nokkra mánuði af myrkri, rigningu og roki, mátt alveg gera þetta aðeins reglulegra en á 4ra mánaðar fresti !!! En komst svo á hreint í gær að ég kem á boðsmótið um næstu helgi á Íslandinu þar sem ég mun hleypa 400m, gríðarleg stemning það, og loxins þarf maður ekki að ferðast alveg einn þar sem Sandin æfingafélagi minn verður með mér í för til að hlaupa 60m og 200m, aldrei að vita nema maður grípi gæsina meðan hún gefst og kíkja svona í fyrsta skiptið í bláa lónið þar sem maður verður nú hvort eð er þarna ... :)
atsjú
Jan 11, 2007, 11:02
Djöfulli sem ég hef náð mér í stórskemmtilegt kvef síðustu daga og einhvern smá vott af hálsbólgu, já svona fara þessar 10° og rigning með mann..! Fer í próf á þriðjudaginn þannig að í rauninni er alveg gífurlega lítið að frétta af mér og lítið frá að segja þar sem maður situr basicly meirihlutann af deginum inni og lærir... já eða reynir að koma sér af stað að læra, en alveg merkilegur andskoti hvað það er alveg ótrúlega erfitt og svona sérstaklega eftir jólin og náttúrlega handónýtt að vera með allt þetta skemmtilega fólk á msn-inu, allar áhugaverðar vefsíður á netinu og bara hvaða sjónvarpsdagsrká sem er..! En já, hleyp sumsé 200m og 400m núna á laugardaginn, fæ einhvern klukkutíma á milli þeirra sem verður alveg glimmrandi, fín keppni í 200m en eitthvað minna um það í 400m hlaupinu og fyrir utann einn 38 ára gamlann kall að þá er ég ELSTI KEPPANDINN í báðum þessum greinum....djöfull er ég að verða gamall!!
ready for action?
Jan 08, 2007, 18:44
Jæja, alveg fínasta æfing sem smá undirbúningur undir 200m og 400m um næstu helgi, virðist sem 200m og 300m splittin séu orðin alveg sæmilega stabíl, sumsé á dagskrá 350m + 150m með 15mín hvíld á milli, reyna að hlaupa 350m á 400m tempói og svo bara all-out í 150m eftir það. Var reyndar alveg í smá sjokki eftir 350m þar sem mér fannst ég hafa hlaupið þetta bara alveg ágætlega og 200m voru á 23.0 = fínt, 300m á 35.9 = fínt og svo 350m á 43.9 = 8 sek síðustu 50m, eftir alveg 10mín bömmer fattaði þjálfarinn minn að við höfðum víst hlaupið að vitlausri línu og var þetta víst þá 360m í staðinn fyrir 350m þannig að smá léttir eftir það, þannig að 360m á 43.9 var alveg ásættanlegt. Líka gamann að því að sýran var bara alveg í lágmarki eftir þetta en ekki maginn og því var skilað morgunmatnum í ruslafötuna áður en við tókum 150m sem var bara alveg óvenjulega léttur og bara ágætlega sáttur líka við 16.9 þar. Þannig að maður er bara alveg sæmilega spenntur fyrir því að fara að keppa fljótlega :) Líka alltaf gamann að vera fastur í dauðum sporvagni í svona 20mín ógeðslega svangur eftir æfingu
Back on the track
Jan 06, 2007, 18:00
jæja, eftir frekar slappar síðustu hlaupaæfingar virðist þetta hafa sleppt aðeins í dag, eftir 3 peppsímtöl frá Coach, mjög svo fína koma-sér-í-gírinn æfingu í gær að þá átti ég að taka í dag 300-150-300-150 með 5mín á milli 300m og 150 og svo sæmilega frjálst á milli 150 og 300m. missionið var cirkar 23.2-23.2 fyrstu 200m í 300m sprettunum og endatíma á 36.low og svo bara negla á 150m. tæknin virtist stemma bara miklu mun betur núna en síðustu 2 vikur og náði fínum ,sæmilega léttum, fyrsta 300m á 35.9 með 23.3 fyrstu 200m og svo 150m eftir það á 17.0, svona ekki alveg jafn léttum og 300m á undan. Alveg ágætis vanlíðan eftir þetta, maginn ekki alveg í góðu formi þessa dagana og fór hvíldin yfir öll mörk útaf krampa í kálfa og varð á endanum komin uppí tæpar 30mín þegar það varbara tekið smá fuck it á þetta og skellt sér í næstu seríu þar sem ég byrjaði aðeins of rólega fyrstu 200m (23.5) með lokatíma 36.2 en kálfinn þoldi því miður bara ekki meira og því hljóp ég ekki seinni 150m, en leið nú samt mun betur eftir seinni 300m heldur en þann fyrri, spes það. Hrikalega gott að hitta tímana sína aftur enda fyrsta mót eftir viku og því gott að vera ekki með neina efasemdir neitt í hausnum fyrir það, æfa bara vel út þessa viku og svo 200m og 400m sennilega næstu helgi, lýst bara vel á þetta :)
Sweden
Jan 05, 2007, 19:30
Jæja jæja þá er maður kominn aftur til Gautaborgarinnar, í rigninguna og rólegheitin, alveg frábært að vera á Íslandi heima hjá familíunni en samt alltaf líka gott að komast út aftur í sömu rútínu og venjulega. En stutt ferðarsaga, ferðin gekk bara vel, reyndar einhver hálftíma seinkun á fluginu en þrátt fyrir það náði ég lestinni alveg örugglega, og líka gamann að því að allt eða já, meirihlutinn af íslenska handboltalandsliðinu var með í fluginu, reyndar hálfskammaðist mín þar sem ég þekkti bara 3 af öllum leikmannahópnum, Óla, Guðjón Val og svo Snorri (minnir mig að hann heiti) djöfulli sem maður þarf að fara að fylgjast meira með handboltanum svo maður viti nú hvaða fólk þetta er.. En var kominn hingað í íbúðina rétt fyrir 6 og bara tekin góð leti restina af deginum, enda ekki mikið sem maður nennir að gera eftir svona ferðalög en kom mér samt alveg skemmtilega á óvart að depill, hitt blómið mitt (þeas ekki snati sem er dauður, blessuð sé minning hans) var ennþá á lífi, en ég gleymdi bara alveg að vökva hann áður en ég kom, hálf slapplegur en greinilega ekki jafn mikið dekurdýr og Snati var sem þoldi ekki alveg 2ja vikna einveru. Svo hitt, ábyggilega eitthvða rusl or some bakvið ruslatunnuna mína, þeas dottið bakvið innréttinguna þar eða eitthvað því það var einhver smá svona pínu myglulykt þegar ég kom aftur, tékka á því um helgina, bara hafa gluggann nógu mikið opinn þangað til ;) En æfingarnar gengu bara alls ekki vel yfir jólin, þeas þessar 3 hlaupaæfingar sem ég tók, lappirnar bara ekki alveg með, sennilega mörgu hægt að kenna um það en nenni ekki að standa í því núna, mót eftir viku og því málið að koma þessu í gang aftur, gott samtal við Coach í gær og alveg dúndrandi góð æfing í dag, svona power, hopp og smádót þannig að bara negla almennielga á þessa 300-150-300-150 á morgun... Aldrei að vita nema maður setjist niður um helgina og taki smá annál á árið sem var að líða... svona ef ég nenni :)
2007 og komið á 3ja dag
Jan 03, 2007, 14:16
Já, maður mættur á stór Reykjavíkursvæðið og á leið til Gautaborgar bara alltof snemma í fyrramálið, svona missionið þar að koma lífinu aftur á réttann kjöl, en maður er alveg búinn að snúa öllu við hérna á landinu og hafa það bara alltof gott, nú verður það bara alvaran aftur ;) en hélt stoltinu sem stóri bróðir eftir hina árlegu hæðarmælingu í fjöldskyldunni og einhvernveginn lítur bara út fyrir að síðustu 2 ár sé ég búinn að vera að stækka.... en vann mjög örugglega með 3mm, 186.1cm á móti Arnari bróður sem var einungis 185.8cm, bara missionið að taka pabba gamla fljótlega, einungis 3cm í það.. En bara mjög fínt jólafrí sumsé að taka endi, eða amk já íslandshlutinn, byrja ekki í skólanum fyrr en einhverntiann í kringum 22.jan, en eitt lítið upptökupróf 16. eða 17. jan og svo um það leyti byrjar svo að líka innanhústímabilið um það leytið þannig að allt að gerast og fínt að koma löppunum aðeins í gang aftur fyrir það.. hálf þreyttur, æfing í dag, 350m-300m-300m, sjáum til hvort það gangi eitthvað betur en hinar hlaupaæfingarnar í jólafríinu...
local