Metnaður?
Sep 30, 2006, 11:33
Núna eru ekki nema 2 dagar í að maður byrji að æfa aftur á fullu eins og vitleysingur og planið fyrir veturinn er basicly að setja eins mikinn metnað í þetta og hægt er, reyna að gera öll smáatriðin í kringum æfinguna (matur, svefn og allt það dót) rétt og sýnist stefna í að 2 æfingadagana verði 2 æfingar (amk út þessa skólaönn), fer nottla allt eftir skólanum hvort og hvaða daga ég get tekið 2 æfingar og vegna 4ra anna verður þetta eitthvað breytilegt í vetur. Bara gífurlega róleg helgi núna, reyndar alveg ömurlegt kvöld í gær til að velja að vera bara heima og slappa af þar sem sjónvarpsdagskráin var algjörlega ömurleg, og á þessum kvöldum þakkar maður kærlega fyrir hraða internettengingu og DC++ :) Í kvöld reyndar innflutningspartý hjá Dennis æfingafélaga mínum sem ég verð nú bara að viðurkenna að akkúrat núna, kl. 11 um morguninn er ég bara hreinlega ekki að nenna að fara í, en sjáum til hvort það verði ekki betri fílingur seinni partinn, býst nú samt ekki við löngu stoppi, bara að láta sjá sig og sjá aðra. En annars nóg svosem hægt að dúttla í núna um helgina, lesa nokkra kafla í einni námsbókinni, klára að setja upp útlit fyrir Web Applikation hópverkefnið í hinum áfanganum, reyna að gera það besta úr lélega Hattrick liðinu mínu og svo klára útlitið á síðunni fyrir Fanney systir sem ég komst loxins í gang með í fyrradag, ætti ekki að vera svo mikið eftir þar :) En reyndar alveg merkilegur áfanginn sem við erum að gera Web Applikation verkefnið í, en þetta er í fyrsta skiptið sem þessi áfangi er kenndur og er alveg sæmilega mikið nýtt kynnt í þessu, ætla ekki að segja kennt þar sem það er farið rosalega grunnt yfir þetta og svo eigum við að gera web applikation, svona til að nefna upp nokkur atriði sem við höfum ekki lært áður í skólanum en "á" að vera í þessu eru t.d. JSP, CSS, SAS, Tomcat, Mysql, CORBA, Servlets, XML, XMLRPC, RMI og eitthvað meira góðgæti. Mössum þetta!!
Og gefum IcelandAir gott klapp....
Sep 26, 2006, 18:09
Ég hef aldrei verið svona þessi stressaða týpa varðandi flug og ferðalög og því lítið verið að panta mér flugmiða eitthvað of langt fram í tímann, en ákvað að gera breytingu á núna, enda maður orðinn svo gamall og þroskaður.... *hóst* En þá byrjar að sjálfsögðu alltaf að pirra mig allir punktarnir sem ég á hjá IcelandAir.... sem ég bara get alveg ómögulega ekki notað, hef ferðast alveg góðann slatta síðustu árin og því einhver slatti sem ég á inni sem gera lítið annað en að fyrnast svona frá ári til árs og afhverju..?? Jú kæra fólk því að ég bý úti í útlöndum og til að kaupa einhverja helv**** vildarferð verður maður að fljúga beint frá Íslandi, er bara ekki boðið einu sinni uppá að fljúga frá einhverjum öðrum stað ef maður vill kaupa einhverja vildarferð, núna hugsa kanski einhverjir... "en Ragnar, þú kaupir þá bara að sjálfsögðu bara aðra leiðina fyrir punktana þína" en neeeeiii kæra fólk því að IcelandAir fólkið er bara svo helvíti sniðugt að þú getur kanski keypt ferð, fram og til baka á 25þúsund, en ef þú kaupir bara aðra leiðina... ÞÁ KOSTAR ÞAÐ 75ÞÚSUND!!! en kaffið mitt er amk gott núna.... get glatt mig yfir því.....
heitt
Sep 25, 2006, 22:10
Það er bara hreinlega ekki hægt að kvarta yfir veðrinu hérna núna í lokin á september, búið að vera í kringum 25° undanfarna daga og minnir að ég hafi lesið einhverstaðar að þetta sé heitasti septembermánuður hérna í einhver 100ár.... ... bara verst hvað ég hef verið mikið inni að læra og því mestmegnis misst af þessu fína veðri :( Svo þar sem maður hefur náttúrlega þennann gífurlega "mikla" frítíma núna þegar það er slatta að gera í skólanum og svo fara æfingarnar að byrja aftur að þá ákvað ég að sjálfsögðu að byrja að leika mér í Hattrick og já.... djöfulli getur maður hangið í einhverju svona rugli, er orðinn algjör fíkill eftir aðeins nokkurra daga notkun í 7:undu deildinni í Svíþjóð og goddamn hvað ég á eftir að hanga í þessu áfram, bara spilaður einn leikur á viku (+ 1 æfingaleikur ef maður vill eða bikarleikur) þannig að basicly heng ég mestmegnis af deginum að kaupa nýtt lið eins og sönnum gömlum Championship Manager fíkli er einum lagið :)
Kastmótið - úrslitin
Sep 21, 2006, 20:06
Gleymdi nottla alveg að henda inn úrslitunum úr kastkeppninni en það gekk bara alveg ágætlega, við strákarnir köstuðum allir kvennaáhöldum og stelpurnar eitthvað aðeins léttara en það og allt tekið án atrennu: Nafn Kúla - Sleggja - Spjót - Kringla - Samanlagt 1. Peter W 12,08 - 32,43 - 27,15 - 26,08 - 97,74m 2. Rafael 13,39 - 33,85 - 25,01 - 25,33 - 97,58m 3. Marcus 13,93 - 27,98 - 28,50 - 25,60 - 96,01m 4. Ragnar 13,76 - 28,90 - 25,29 - 25,45 - 93,40m 5. Anna 12,06 - 26,38 - 23,73 - 24,87 - 87,04m 6. Jessica 10,69 - 21,96 - 19,31 - 24,87 - 78,83m 7. Dennis 13,69 - XXX - 25,11 - 23,58 - 62,34m 8. Rebecca 10,05 - 19,00 - 15,32 - 10,27 - 56,64m Þannig að engin hrikahörmung neitt en greinilegt að maður þarf að bæta sig aðeins í sumum greinunum...
Allt að gerast hér í bæ
Sep 20, 2006, 22:24
Virðist bara allt vera að verða crazy hérna í bænum núna, tvö stk sprengingar hérna í bænum á tveimur dögum, fyrst í gær á Hisingen sem er nú svoldið frá mér og svo aftur í dag bara niðri í miðbæ hjá Vasaplatsen. Einhver/jir sumsé að dúttla sér í því að setja handsprengjur undir bíla og svo þegar þeir bakka springur allt í loft upp, en enginn dáið hingað til en einhverjir 3 slösuðust í dag, eitthvað underground gengi víst grunað um þetta...
Kastkóngur??
Sep 19, 2006, 12:16
Alveg er það helvíti magnað að eiga aðeins að vera í einum fyrirlestri í skólanum í dag kl. 10:00 og þegar maður mætir að þá er enginn.... hefði verið algjör snilld að skoða stundartöfluna í morgun og sjá að ég átti ekkert að vera í skólanum í dag :) En í kvöld verður hinsvegar action og læti en þá verður Castorama hjá æfingarhópnum hjá mér, sumé kastkeppni í spjóti, kúlu, kringlu og *hóst* sleggju, held að við köstum reyndar bara konuþyngdunum (sem betur fer því annars yrði það hörkuspennandi keppni hvor myndi kasta lengra, ég sleggjunni eða sleggjan mér) þannig að update frá því kemur í kvöld...
Nóg komið af rugli núna
Sep 17, 2006, 20:53
Búinn að vera undarlegur fílingur um helgina og því hlustað mikið á Vangelis - Conguest of paradise, Bach og fleira í þeim dúr, vantar í rauninni fleiri svoleiðis lög þannig að ef þið lumið á góðri svoleiðis mjúzík megið þig alveg láta mig vita hvað þau heita, fínt að hlusta aðeins á svoleiðis svona á milli :) Öll mín 400m hlaup sem ég hef dáið hrikalega í síðustu 100m lúkka bara alveg hrikalega vel út eftir helgina miðað við afrekið hjá einum æfingafélaga mínum á Skol-SM um helgina. Hann hleypur aðallega 100m (11.08) og 200m (22.80) en ákvað uppá djókið að hlaupa 400m í gær og eins og almennilegum spretthlaupara sæmir að þá var bara neglt af stað, fékk splitt einhverstaðar í kringum 22.60 fyrstu 200m og DÓ svo stuttu eftir það og tók seinni 200m á cirka 35s og endaði á 55.2 og sló þarmeð hið eftirminnilega hlaupið hans Arnars Más frá Spáni 2001..... sem enginn trúði að væri hægt að gera......
Vitlaus?
Sep 14, 2006, 19:39
Djöfulli getur maður verið alveg misgáfaður svona inn á milli... Var að elda mér kjúklingalæri í ofninum í svona fínu glerfati, notaði hanska við að taka kjúklinginn úr ofninum og setja á diskinn minn, tek svo hanskana af mér, hengi þá upp og tek svo upp fucking fatið með berum höndum til að setja það í vaskinn og fatta bara á miðri leiðinni að ég sé ekki með hanskana á mér og get nottla ekki sleppt því á golfið og dríf með þetta ofaní vaskinn á meðann ég finn puttana á mér gjörsamlega brenna, já gler í ofni í klukkutíma á 200° er fucking heitt!!! sé fram á blöðrur á öllum 10 puttunum á morgun!
nææææs
Sep 12, 2006, 12:42
Ekkert meira hressandi en að vakna hvern morgunn, kveikja á tölvunni, setja hátalarana í botn og syngja hátt og snjallt með Herberti Guðmundssyni: Svaraðu Kallinu Frá méééééér út við hinstu mörkin Bíð ég eftir þééér Skellti mér á fyrstu "æfinguna" í gær frá því ég tók mér pásu eftir Bikarinn heima á skeri, alveg cirka 2ja vikna pása og hefur bara liðið eins og aumingja á meðann. Virðist bara vera að þegar maður hættir að æfa í smá tíma að þá linast maður bara allur upp og verður bara að aumingja þannig að það var bara alveg æðislegt að hreyfa sig smá. Afrekaði þarna 20mín skokk á mjög rólegu tempói (rólegur á hásina í byrjun) og svo bara frekar léttar almennar lyftingar á flesta vöðvana, meira að segja hnébeygja í fyrsta skiptið í tæp 2 ár og niðurstaðan, þessir fínu strengir í dag... :) En alveg bongóblíða í dag, 20°C og lampandi sólskin meira að segja glampandi án "g" þar sem ég gleymdi því og nennti ekki að færa músina upp til að laga þetta. En doltið skondið, var að röfla yfir fjölda geitunga inni hjá mér síðustu daga, eftir það röfl í mér komu 3 stk sem fengu mjög svo skemmtilega meðferð hjá mér sem innihélt "Luft Fräschare" og 0.5l glas og held að ég hafi náð að senda þessi skýru skilaboð til Geitungaflokksins þannig að það hefur enginn þorað hingað inn síðann þá :)
Geitur og ungar
Sep 08, 2006, 14:31
Það er ennþá alveg ágætisveður hérna í Svíþjóðinni, þannig að ég er mikið með opinn glugga í stofunni og man bara hreinlega ekki eftir því að það hafi verið svona mikið um geitunga að fljúga inn um gluggann hjá mér áður eins og það hefur verið síðustu daga, eins litlir og þeir eru að þá er maður alltaf eins og lítil smástelpa í kringum þá og hálferfitt að ná þeim þar sem þeir eru ekkert gífurlega mikið fyrir að standa kjurrirr (Arnar Freyr, þér er hérmeð boðið í heimsókn). Ýmsar kenningar hafa komið upp undanfarið og var lokaniðurstaðan að þetta væri táfýlan hans Bjössa sem er að lokka þessi kvikindi hingað inn ;) Fyrsta skólavikan svo búin núna, alveg magnað að vera í fríi á föstudögum og geta sofið út og slappað bara af..... já og lært.... sem minnir mig á að ég á víst að vera að gera það núna.
September já
Sep 05, 2006, 19:21
Það er bara hreinlega ekkert svo alslæmt að vera byrjaður í skólanum, tveir alveg fínir áfangar, er í topphópi í hópavinnunni, frábær stundarskrá (t.d. bara einn tími á þriðju- og miðvikudögum og FRÍ á föstudögum) þannig að maður nennir ekkert að röfla neitt mikið, já og svo var nottla cirka 20° hiti í dag og sól :) Settist svo niður í hádeginu í dag með Palmas þjálfara og fórum yfir sumarið og komandi vetur, get bara ekki beðið eftir því að byrja að æfa aftur eftir vikuhvíld!
Skóli skóli
Sep 04, 2006, 07:48
Jæja, búinn að vera vel latur við að blogga síðustu daga enda góð ástæða fyrir því.... er bara latur! En að öllu gríni slepptu og útí alvöruna að þá er skólinn að byrja núna á eftir, klukkann alltof lítið núna, rétt tæplega hálfátta sem er basicly 5-6klst fyrr heldur en ég hef verið að fara á fætur síðustu daga enda búinn að vera að kynna mér sænskt næturlíf íturlega í þessari æfingapásu minni en eftir vikupásu er hreyfingaþörfin farin að gera verulega mikið vart við sig, sennilega nokkura ára æfingasöfnun farin að gera vart við sig og líkamanum líður hreinlega best hálfdauður með strengi og aðra almenna æfingaþreytu. Bjössi nokkur Margeirsson kom til Gautaborgar í gær og ákvað maður bara að vera grand á þessu og bauð honum bara gistingu hérna í þessa 10 daga sem hann verður hérna alltaf gott að hafa einhvern hérna til að kúra hjá sem getur einnig rifið mann á fætur á morgnanna ;) En skólinn já, allt búið að vera í rugli á netinu og sá hluti heimasíðu skólans sem heldur utanum stundarskrárnar hefur verið í ruglinu um helgina og ekki virkað og því spurning að fara að koma sér uppí skóla og komast að því hvar og hvenær ég á að vera í skólanum í dag, já og svo kanski gott að finna pennaveskið sitt til að hafa með sér :)

local