Sverige
Aug 31, 2006, 16:11
Var búinn að skrifa eitthvað smá blogg hérna en fannst það bara svo leiðinlegt að ég henti því út, bara láta vita að ég er kominn út!
Houston, we\'re going down
Aug 30, 2006, 11:56
Hve spúkí er það að dreyma að maður lendi í flugslysi þegar maður er að fara í flug næstu 2 daga? Komst allaveganna heill og höldnu til RVK, bara eitt aðeins lengra eftir. Sjáumst aftur um jólin Ísland
Bikarinn
Aug 28, 2006, 21:07
Jæja, núna er Íslandsferðin bara næstum á enda, fer suður á morgun og út aftur á miðvikudaginn. En bikarinn var núna um helgina hérna á króknum, bara alveg ágætisskemmtun svona fyrir utan það að við féllum niður um deild :( Ég hljóp 100m, 200m, 400m + bæði boðhlaupin um helgina og gekk bara alveg ágætlega, stór bæting í 100m (11.31) og hitt gekk bara sinn vanagang, engar bætingar og svipaðir tímar og ég hef bara verið að hlaupa á í sumar. Enduðum sumsé einhverjum 15stigum á eftir ÍR og munum því keppa í annari deild að ári, tímabilið núna búið hjá mér og því langþráð pása fyrir hásina til að komast í lag áður en maður byrjar á fullu aftur í október. EN djöfulli er skítkalt hérna núna, eitthvað sem ég á ekki eftir að sakna þegar ég fer aftur til Svíþjóðar verður veðrið, núna eru einhverjar 7°, rok og rigning, já ekki að fíla það get ég sagt ykkur. En annars búin að vera skemmtileg ferð svona yfir höfuð, virkilega gamann að hitta fólkið hérna sem maður sér bara því miður alltof sjaldann, bara jólin næst er þaggi :)
Síðustu dagar - lítil skemmtun
Aug 25, 2006, 01:31
Hvar á maður eiginlega að byrja.... Jú þriðjudagur, keppti þar á MAI Galan í Malmö, tek þetta í mjög stuttu máli. Hörmung.... Planið fyrir hlaupið var bara að hafa gamann af þessu og hlaupa mitt hlaup þar sem ég var að fara að hlaupa á móti alveg sæmilega góðum gaurum, vissi að þeir myndu koma framúrmér í seinni beygjunni en málið bara að halda haus þar og hlaupa mitt hlaup alla leiðina í gegn... sem var víst mun auðveldara að segja en að gera, var á 8 braut og fékk alla framúr mér í einu eftir einhverja 220m og eftir hálfa beygjuna langaði mig bara mest að hætta, fannst þeir bara fjarlægjast og hætti liggur við að hlaupa síðustu 100m þar sem ég hélt bara að ég væri að hlaupa ömurlega, tíminn varð 50.64 en fékk svo splittin eftir hlaupið 23.0 á 200m og 35.5 á 300m, þannig að ef ég hefði bara hlaupið almennilega síðustu 100m hefði verið alveg góðar líkur á bætingu... aumingjaháttur og ekkert annað!! Miðvikudagurinn var bara svo ekkert skárri, tölvan alveg í rústi því að driverinn fyrir skjákortið fór í verkfall, eyddi hálfum deginum í að reyna að koma því í lag en tókst ekki fyrr en bara rétt áðann. En þá var vondi dagurinn ekki búinn, því að ég fór svo að þvo þvott.... sem hefði bara ekki verið neitt mál NEMA AÐ EINHVERNVEGINN LENTI HELVÍTIS GRÆNA SAMFELLAN MÍN Í ÞVOTTAVÉLINNI MEÐ HVÍTA ÞVOTTINUM!!!!! Þannig að núna á ég basicly enga hvíta sokka eða brækur + að allnokkrir hvítir bolir og skyrtur eru núna "fallega" græn, langaði mest bara að leggjast niður og grenja, verstu 24 tímar sem ég hafði átt alveg virkilega lengi. En eftir alla þessa hörmung hendi ég ekki-grænu fötunum mínum ofaní tösku og flaug af stað til Íslands þar sem ég er núna, kominn á krókinn (sem mér finnst bara núna vera alveg ofboðslega lítill bær, næstum 8 mánuðir síðann ég var hérna síðast...) og planið næstu daga, Bikarkeppnin sem verður síðasta mót sumarsins þar sem það verður sæmilega þétt dagskrá hjá manni :) Góða helgi allir
Þá er komið að því
Aug 22, 2006, 11:37
Jæja jæja, fer upp til Malmö í dag til að láta rasskella mig aðeins í 400m, bara vona að ég nái að hlaupa þetta almennilega og koma með smá bætingu. Er búinn að taka 2 hlaupaæfingar frá Meistaramótinu heima og mest vera í léttum styrktaræfingum auk þess að hvíla alveg hrikalega mikið þannig að bara að vona að maður komi hrikalega frískur til leiks og að hásin haldi almennilega. Næst lélegasti maðurinn í hlaupinu á tæpum 2sekúndum betri tíma en ég þannig að lítið annað að gera að hafa gamann að þessu, negla á þetta, gera stóru smáatriðin rétt og koma með gott hlaup, allar góðar hugsanir vel þegnar klukkan 17:50 að íslenskum tíma :)
Gamall kallinn
Aug 21, 2006, 15:48
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli ég sjálfur, ég á afmæli í dag. Jæja, alltaf eldist maður og lítið við því að gera og ákváðu veðurguðirnir að fagna því með að ausa rigningu í allann dag, sveijattann. Bara eitt ár í að maður verður hálffimmtugur þannig að spurning að fara að nýta tímann á meðann maður er ennþá ungur.....
Crash
Aug 20, 2006, 12:47
Horfði á myndina Crash í gærkvöldi og djöfulli fannst mér hún vera góð, fyrsta skiptið sem ég leigi mynd hérna í Svíþjóð og stefnir allt í að það verði eitthvað meira um það héreftir þar sem maður hitti á svona helvíti mganað mynd. Fjallar um rasisma basicly á mismunandi levelum þjóðfélagsins, fannst hún bara alveg hrikalega góð. En annars fór fjölskyldan heim áðann og því situr maður einn eftir hérna í nokkra daga áður en ég fer til Íslands aftur á miðvikudaginn, þannig að núna verða 2 hrikalega afslappaðir dagar þar sem ég þarf ekkert að vera að læra undir neitt próf núna, svo bara Malmö á þriðjudaginn og negla á eitt 400m hlaup. En búið að vera alveg frábært að hafa fjölskylduna hérna hjá sér og virðast verslunargenin vera vel í fjölskyldunni og því nokkrar búðir næstum tæmdar, og ég líka kominn með nokkur ný klæði svo maður líti nú almennilega út þegar skólinn byrjar ;)
Gott að vita núna
Aug 18, 2006, 14:41
Búinn að vera að læra undanfarnar 2 vikur undir upptökupróf sem planið var að taka á miðvikudaginn næsta í Datakommunikation og fékk prófið sem ég tók í vor í hendurnar í gær og leit aðeins yfir það og komst þá að því að það vantaði einhver 5bónus stig á það sem ég átti að fá, hafði því samband við kennarann í gær og hitti hann í dag og þá komu bara smá mistök í ljós þannig að ég náði þessu prófi.... og því 2ja vikna lærdómur (ekkert gífurlega mikið samt á hverjum degi en samt, 2 vikur) til einskins, nema kanski fínt að vera búinn að rifja þetta allt samann upp.... þannig að núna get ég bara verið slakur og góður þangað til ég kem á klakann á miðvikudagskvöldið :) 3 dagar í að ég á afmæli... Don't fucking dare to forget about it!!! ;) En mamma, pabbi, Arnar og Hulda komu til mín á miðvikudaginn og verða framá sunnudaginn í heimsókn hjá mér, var búið að rigna vel í viku þangað til þau komu en síðann hefur sumarveðrið bara komið aftur með stæl, eyddum reyndar góðum hluta gærdagsins í verslunum (fékk jakka í afmælisgjöf) + að kaupa mér smá shitt sjálfur og í dag fórum við í Liseberg í þessari dúndrandi blíðu, alveg heavy næs nema að ég fór aðeins heim á undan þeim þar sem ég fer á æfingu eftir smástund og fínt að leyfa löppunum að slaka svona aðeins á í labbinu svo maður geti nú eitthvað smá í því... Tók mína aðra hlaupaæfingu á miðvikudaginn s.l. á tveimur og hálfri viku og þoldi hásin hana þannig að ég keppi alveg örugglega á þriðjudaginn, sé svo til eftir það mót hve mikið maður getur nýðst á henni á bikarnum, gríðarlega gott það, allt bara svo jákvætt og skemmtilegt í dag :)
Mótaskráin
Aug 16, 2006, 12:38
Mótaskráin fyrir síðustu mót sumarsins hefur breyst svoldið mikið hjá mér núna, hljóp ekki 400m í gær og hleyp ekki heldur á sunnudaginn útaf hásinni á mér þar sem ég ætla að reyna að hvíla hana fyrir MAI-Galan á þriðjudaginn og svo til að geta gert mitt á bikarnum heima um næstu helgi. Var svo að sjá skráningarnar á MAI-Galan áðann, frekar sterkt mót þar sem ég var að vonast eftir því að lenda í sæmilega góðum B-riðli, eeennn, eru (amk ekki í augnablikinu) ekkert neitt rosalega margar skráningar í 400m þannig að ég er í A-riðli og lítur hann svona út:
FöddFörening/LandÅrsbästa
Richard Buck86GBR46.59
Joni Jaako86GoIF Tjalve47.37
Andreas Mokdasi84Hässelby SK46.97
David Gillick83IRE45.67
Ragnar Frosti Frostason82Ullevi FK49.54
Matt Scherer83USA45.19
Mattias Sunneborn70Spårvägens FK47.86
Þannig að þetta gæti bara orðið helvíti skemmtilegt hlaup :)
Mr. Romance
Aug 14, 2006, 14:17
Var einhverntímann um daginn að flakka á milli rásanna á imbanum heima þegar ég lenti á einum raunveruleikaþætti sem ég byrjaði aðeins að horfa á (þar sem það var bara ekki neitt annað í imbanum) og finnst bara vera algjör snilld. Hef nú aldrei verið neinn mikill raunveruleikaþátta fan #1 en festist alveg yfir þessum sem fjallar basicly um eins og nafnið segir að finna Mr. Romance eða arftaka hins eina og sanna Fabio (sjá mynd) sem allar konur virðast elska. í þessum þáttum eru sumsé 12 keppendur flestir algjör vöðvabúnt og sumir jafn mikið af vöðvum eins og egóið er stórt og heilafrumurnar fáar en svo finnast þarna inn á milli líka algjörir snillingar sem vilja bara hafa sín hár á löppunum og nota frekar sjarmann til að heilla konurnar heldur en að rífa sig úr að ofann fyrir framann þær. Ekki hugmynd hvort að þetta sé sýnt heima á skerinu en amk góð skemmtun :)
EM - the last day
Aug 13, 2006, 11:23
Jæja jæja, þá er bara síðasti EM dagurinn í dag en mér finnst þetta bara hafa verið helvíti gamann hingað til, veðrið reyndar ekki alveg verið eins og ég hefði viljað hafa það, minni rigning og meiri sól, en maður fær nú ekki allt sem maður vill. Búinn að vera á Ullevi og horfa á síðustu 3 daga, þökk sé Bjössa Arngríms og Samma og hefur í rauninni verið alveg viss upplifun að sjá þá í actioni við lýsingarnar en eftir að maður flutti út hefur maður hálf saknað lýsinganna hans Bjössa en síðustu 3 dagar hafa nú bara bætt fyrir síðustu 2 árin sem ég hef misst af honum. Hérna er svo útsýnið yfir Ullevi þaðann sem ég hef setið síðustu daga:
En á eftir fer ég með æfingahópnum mínum á völlinn og sitjum við þá í beygjunni hjá stangarstökkinu og ef það kemur mynd af mér í sjónvarpinu að þá verðið þið að afsaka sænska fánann framann í mér ;)
Óhollt?
Aug 09, 2006, 21:34
Shitturinn hvað ég held að ég hafi hreinlega ekki gott af því að horfa á frjálsar íþróttir þegar ég virkilega held með einhverjum, þá sérstaklega ekki hástökk.. En núna er málið að svíjar eiga 4 hástökkvara í úrslitum, 2 kvenna og 2 karla, undanúrslit kvenna var í gær þar sem Emma Green komst áfram í síðasta hoppinu sínu á 1.92 og ég standandi uppí sófa öskrandi eins og lítil smástelpa og púlsinn einhverstaðar í kringum 200 slög. En það var hreinlega ekkert miðað við úrslitin hjá körlunum áðann, alveg frábært keppni þar sem að Linus Thörnblad og Stefan Holm voru að stökkva og ég hélt hreinlega að ég myndi missa mig, þvílíka adrenalínið í gangi, fagnaðarlæti, öskur og ég veit ekki hvað og hvað, veit ekki hvernig þetta verður ef ég verð á vellinum á föstudaginn þegar úrslitin hjá konunum verða... En annars hrikalega skemmtilegt EM kvöld, var búið að spá mögulegu þrumuveðri sem kom sem betur fer ekki hingað til Gautaborgar en alveg frábær keppni, mjög svo spennandi keppni í þrístökki kvenna, 400m kalla, spjótkasti kalla og veit ekki hvað og hvað, ef næstu dagar verður þetta seint toppað...
Mánudagur já
Aug 07, 2006, 21:30
Já ég skellti mér á opnunarhátíðina fyrir EM í gærkvöldi, og eins og tímaskynið mitt er alltaf jafn gott að þá kom ég hálftíma eftir að dagskráin byrjaði og já, það var alveg slatti af fólki þarna og náði ég einhvernveginn að troða mér inn í fólksfjöldann svona 100m frá sviðinu þannig að ég sá basicly lítið sem ekki neitt hvað var að gerast þar nema á stóra skjánum þar við hliðina á. En ég veit ekki alveg hvort að það er bara ég en mér finnst oft þetta rokkaralið vera alveg voðalega sorglegt lið. Hammerfall, sænskt Metal band voru eitt af þeim sem voru að spila þarna (ásamt Ronan Keating, Carola ofl) þannig að maður sá svona alveg hina og þessa rokkara þarna á svæðinu og æi, veit ekki alveg, náttúrlega allir alveg svartklæddir og jafn töff, með spjöld sem stóðu á "Carola suger" og svo loksins þegar Hammerfall komu á sviðið voru þeir alveg hoppandi og skoppandi þarna með puttana uppí loftið við hliðina á gömlu fólki og barnsfjölskyldum, æi ég veit ekki...... greeeeyyyyiiinnn hvað þetta var sorglegt eitthvað... En annars er ég byrjaður að læra, sem er ekkert alveg svona léttast í heimi þegar það eru 25° úti og EM inni... spurning að kaupa lítið ferðasjónvarp og hafa það með sér útí sólbað ásamt skólabókunum, gæti alveg virkað sko :) En hásin ekki alveg komin í 100% stand og því áframhaldandi magaæfingar og rehab á æfingunum, vonast til að geta hlaupið almennilega á fimmtudaginn..
EM festin komin í gang
Aug 07, 2006, 00:07
Sumarfrí
Aug 04, 2006, 16:07
Djöfulli var síðasti vinnudagurinn í dag alveg ógeðslega leiðinlegur enda gerði maður ekkert annað en að bíða eftir því að fara heim, eða já, síðasta vinnuvikan var bara leiðinlegt, svona jobb sem maður á bara að halda sig við að vinna 1 dag í viku og þá er þetta alveg ok en ekki 5x á dag. Veðrið virðist vera að laga sig aðeins aftur núna fyrir EM eftir að hafa verið mýgandi rigning og einhverjar þrumur og eldingar síðustu 3 daga, hitinn kominn uppí 23° núna og sólin að skína. En svo núna verslunarmannahelgi heima á klakanum og er ég því búinn að vera að spá hvað ég myndi gera þar ef ég væri á Íslandi núna og held að ég sé hreinlega bara að verða svo gamall eða eitthvað álíka vitlaust því að það sem heillar mig í rauninni mest væri bara að fara heim á krók til mömmu og pabba, grilla og taka það rólega. En í staðinn verður það víst að glápa á upphitunarmótið fyrir EM á morgun, kanski fara með Dennis eða Groten í partý og svo að sjálfsögðu lærdómur. Hljómar hreint og beint alveg æðislega
Allt að gerast
Aug 04, 2006, 00:58
já, ekki frá því að það sé allt að gerast hérna í rólega hverfinu mínu hérna downtown göteborg!! sat bara í rólegheitunum að glápa á sjónvarpið eftir að hafa komið heim frá bænum með Groten þegar ég heyrði þetta dúndur brothljóð fyrir utan íbúðina mína. Rauk út í glugga og sá 2 stráka vera með keðju úr bílnum sínum í hurðina á tölvubúðinni fyrir neðann, og lá hurðin á gangstéttinni fyrir neðann og þeir að setja einhverjar ferðatölvur inn í bílinn sinn. Kom svo einhver hjólreiðagaur framhjá sem hræddi þá í burtu, ég beint í símann í 112 og hringdi á lögguna og eyddi svo smá tíma ásamt einhverjum nágrönnum og gangandi vegfarendum í að lýsa þessu, náði meira að segja bílnúmerinu og öllu þannig að ég held að við höfum öll bara staðið okkur eins og hetjur þarna sem vitni..... Eins gott að ég fái forsíðumynd af mér í blöðunum á morgun!!!
2 vinnudagar eftir
Aug 02, 2006, 22:24
Styttist aðeins í sumarfrí nr 2 í sumar, eða já frí og ekki frí, fer sennilega góður tími af því í lærdóm, helvítis rugl og vitleysa náttúrlega. En já, ekkert mót hjá mér um helgina, búinn að vera eitthvað hálfaumur undir hásinni á vinstri fæti núna í næstum allt sumar og eftir meistaramótið virðist það hafa versnað svona sæmilega mikið þannig að ég gat eitthvað lítið hlaupið á æfingunni í gær og í dag, þannig að ágætt að reyna að taka þetta aðeins rólega núna, ná þessu úr sér og geta neglt á nokkur 400m hlaup í lok ágúst... 2 dagar í sumarfrí 5 dagar í EM hér í Gautaborg 13 dagar í næsta mót 14 dagar í að mamma, pabbi og litlu systkynin mín koma í heimsókn 19 dagar í að ég á afmæli 21 dagur þar til ég verð næst á Íslandi 33 dagar þangað til ég byrja aftur í skólanum
Myglaður
Aug 01, 2006, 15:16
Djísús hvað ég elska ekki að ferðast, þá sérstaklega ekki einn og sérstaklega ekki með því að þurfa að fara í gegnum Kastrup.... Fór niður á keflavíkurflugvöll uppúr hálf eitt í gær því að flugið átti að fara klukkan 15:30, en eins og má alltaf reikna með þegar maður flýgur með Iceland Express að þá var einhver seinkun á fluginu og kom ég því tæpum klukkutíma seinna til dk heldur en planið hafði verið og eins og alltaf gat ég heldur ekki sofnað í flugvélinni + að ég gleymdi öllu lesefni og mat þannig að ég skemmti mér alveg konunglega við að dauðleiðast í þessu 3ja tíma flugi. Síðan var þetta basicly alveg eins og þegar ég kom frá Evrópubikarnum að þá er bara ein lest sem fer svona seint á kvöldin til Gautaborgar og það er 23.08 lestin, þannig að enn ein biðin á kastrup staðreynd. Danskan mín er heldur alls ekki að batna eitthvað með árunum og eftir heiðarlega tilraun við að kaupa mér á Burger King ákvað ég að skipta úr sænskunni yfir í enskuna þar sem ég var bara ekki að skilja orð í þessum baunum, en fékk amk það sem ég pantaði mér sem voru alveg gífurlega góðar fréttir. Fékk svo ekki gluggasæti í lestinni á leiðinni heim og gat því alveg voðalega lítið sofið á leiðinni nema svona síðasta korterið í þessari rúmlega 3ja tíma lestarferð, tók mér taxa heim þar sem að allar almenningssamgöngur eru af einhverjum ástæðum hættar að ganga klukkan 02:30 og var því kominn heim rétt uppúr 3. Og til að bæta svörtu í svart að þá gat ég hreinlega ekki sofnað af einhverjum stórskemmtilegum ástæðum og lá því andvaka í rúmlegann klukkutíma þangað til ég náði mínum 3ja tíma svefni áður en ég fór að vinna.... Og mér til mikillar gleði var nákvæmlega EKKERT til að borða í morgunmat og fór því óétinn í vinnuna.. Halda áfram?? æi jájá, svo þegar ég var búinn að vinna, með 2 spikfeita innkaupapoka af mat var tilkynnt að það væri einhver bilun í sporvagnatraffíkinni akkúrat þar sem ég var að bíða þannig að ég þurfti gjörðu svo vel að labba heim með pokana, held ég verði alveg gífurlega sprækur á æfingunni á eftir.... Íslandið En út í skemmtilegri hluti, að þá var ég sumsé á Íslandinu í einhverja 5 daga og var bara alveg ljómandi fínt, svona fyrir að frjósa úr kulda þegar ég kom útúr fríhöfninni rættist bara alveg ótrúlega vel úr veðrinu og kvarta ég bara ekkert yfir því. Náði ekki að gera næstum allt og hitta næstum alla sem ég ætlaði að gera á þessum stutta tíma því miður því miður, verð hreinlega að stoppa lengur en þetta ef maður er að koma til Íslands og svo þegar ég var að fara í gær að þá kom bara basicly "I don't wanna go" fílingur í mig, sjálfann svíjann, elska ykkur öll og hlakka til að koma aftur heim eftir 3 vikur og 1 dag... Meistaramótið gekk nú bara alveg ágætlega, góð bæting í 400m úr 49.91 í 49.54 og eftir hlaupið er ég ennþá meira viss um að ég fari undir 49s í sumar þar sem að það eru vissir hlutar sem ég get gert betur. Varð í helvítis öðru sæti á eftir manni helgarinnar Sveini Elíasi. Hljóp svo 200m á sunnudeginum, fínt og létt hlaupið í undanrásunum á 22.95 en svo alltof hægt af stað í úrslitunum og endaði sjötti á 22.86, 1/100 á eftir Arnóri og 2/100 á eftir Gunna Bergmann... eeekkkkiiii alveg sáttur með það hlaup og því alveg spurning að bæta þennann blessaða 200m tíma minn um næstu helgi á Uppvärmingen sem er lítið upphitunarmót á Ullevi fyrir EM sem byrjar eftir tæpa viku... Stuð og stemning
local