Pirringur
Mar 31, 2006, 16:13
Djöfulli myndi mig langa að eiga svona cirka 50þúsund krónur núna sem ég gæti bara eytt í föt, já svo kanski 20þúsund í viðbót í tattoo. En fataskápurinn minn er búinn að vera alveg ótrúlega mikið eins núna í rúmlega 2 ár sem er bara ekki alveg að gera sig hérna, svo mikið af stöffi sem mig langar í en hef bara hreinlega ekki efni á, t.d. bara 1stk aðeins fínni jakka til að fara í á djammið, kostar ekkert mikið í rauninni, en maður hefur bara ekki efni á því núna... oooohhhhhh hvað ég hata fátæka-námsmanna-lífið En eftir-hádegis-blundur eru best í heimi
Whut
Mar 30, 2006, 21:11
Og þegar ég hélt að lífið væri allt á leiðinni í rétta átt fæ ég þetta:
Sendu þetta til minst tveggja annars byrjarðu ekki með neinum í 1 ár.. Þetta er ekki bull, þetta er keðja sem byrjaði árið 2006.. Ef þú sendir þetta til 10 manna verðuru kysst/ur innan 6 daga.. Ef þú sendir þetta til 15 manna muntu fá þann sem þú elskar
Sleit þetta að sjálfsögðu eins og allt annað og fæ því miður ekki að byrja með neinum í eitt ár, sem er alveg helvíti svekkjandi, þannig að ef einhver damann kemur til mín innan árs og segir "Ragnar, jag vill vara ihop med dig" að þá verð ég einhvernveginn að útskýra fyrir henni að það gangi því miður ekki þar sem ég sleit þetta keðjubréf... hálf svekkjandi það stöff.... En tók annars einu erfiðu æfinguna mína á þessu vikutímabili í dag, síðasta skipti sem ég hljóp 3x(300m-150m) og já... þarf greinilega nokkurra daga hvíld í viðbót, hljóp þetta illa tæknilega séð en vel tímalega séð þar sem tímarnir voru vel jafnir (amk 300m): 37.0 - 17.5 (nákvæmlega tímarnir sem ég ætlaði að reyna að hafa alla) 37.2 - 17.9 37.4 - 18.2. Og endaði þetta svo alveg jafn vel eins og fílingurinn var í löppunum, með því að liggja smástund í hástökksdýnunni og var farinn að fíla mig þokkalega, labbaði svo hálfa leið til baka að fötunum mínum þegar þessi hrikalega vanlíða kom svona alltíeinu og endaði æfinguna því með að levera smá... en bara gamann að því er þaggi :) Núna, 3ja daga frí frá æfingum og ætla ég að reyna að njóta þess aðeins núna, fá mér smá nudd og láta lappirnar komast í almennilegt stand aftur fyrir átök næstu vikna!
Skit jävla svårt
Mar 29, 2006, 16:09
Jááááá, held ég hafi fengið klósettið núna til að hætta að syngja fyrir mig falska söngva í hvert skipti sem ég hef létt á mér eftir margra vikna pirring og 5mínútna vinnu en gafst upp áðann þegar það söng í cirka 5mínútur eftir notkun á hæsta C-i sem eyrað getur heyrt og gerði mig næstum geðveikann og ákvað af því tilefni að þrífa klóstið bara að innann í leiðinni, ekki á hverjum degi sem það er gert... En fékk út úr forritunarprófinu í gær, prófi sem ég tók fyrir cirka 3 vikum or some og var ég hálf smeykur áður en ég sótti það þar sem að ég hafði lært í svona cirka 30mínútur fyrir það og 2 stór dæmi sem ég var í vafa að ég hefði gert rétt í en reiknaði nú samt alveg með þristi, en vissi að ef ég hefði nú lært fyrir það hefði þetta verið easy 5:a og kom það mér því svona gífurlega skemmtilega á óvart að ég fékk 5:u (hæðsta einkun) þannig að á síðustu periodu tók ég 2 próf og fékk fjarka og fimmu sem maður getur bara í rauninni ekki kvartað yfir. En það er samt einn smá pínú ókostur við að ég sé að ná öllum prófum hingað til..... !!! já þið lásuð rétt, þar sem að í alltof mörgum áföngum hingað til hef ég verið alveg gjörsamlega alltof latur meirihlutann af önninni og tekið svo bara rispu í lokin á náð prófunum, yfirleitt bara með þristi, en náð og hef því í rauninni voðalega lítið lært af þessum letimistökunum mínum, eða mistökum mistökum, bara ef maður myndi læra almennilega alla helvítis önnina væri maður að fá alveg toppeinkanir sem myndu ekki skemma neitt alveg fyrir. En núna er algjörlega breyting á hjá Ragnari þar sem að ég hef ákveðið (og gerði fyrir nokkrum vikum) að vera samviskusamur í lærdóminum heima og hef því gert vikustundarskrá þar sem ég er búinn að lista niður það sem ég ÆTLA að gera á hverjum degi og verð ég andskotinn hafi það að gera það áður en ég sest fyrir framann sjónvarpið og tölvuna (eða já... cirka) á kvöldin alveg fram til 23:00 en þá fer ég að sofa. Finn líka alveg góða breytingu á þessu núna þegar ég hef verið að keyra eftir þessu skipulagi að maður er bara miklu meira með á nótunum í tímum og þar af leiðandi verða hálftæpir áfangar bara ágætlega skemmtilegir sem lætur að sjálfsögðu daginn líða hraðar og því "styttra" í að maður komist á æfingu. Þannig að eftir (23.5-16) = 7.5ár af því að slugsa á því að læra heima er komiinn tími á það að hækka einkanirnar og hætta bara að treysta á gífurlega miklar meðfæddar gáfur rétt komi manni í gegnum áfangann.... DJÖFULL ER ÉG ALLTAF YFIRLÝSINGARGLAÐUR, sjáum amk til hvort ég endist í mánuð...
já sæll og blessaður kúturinn
Mar 27, 2006, 22:03
einhvernveginn þegar maður er orðinn voðalega þreyttur og fær svona setningu í lestrinum langar manni bara mest að henda henni í ruslið og fara að sofa:
In other words, routing protocols enable routers to route routed protocols.
Þurfti líka að lesa hana 3x til að fatta kvikindið, svona gott dæmi um að það sé að verða komið nóg í kvöld, svona eins og um daginn þegar við vorum að læra undir stærðfræði og ég slóg inn "0.6/1" í reiknivél.... þá er þetta orðið gott í dag held ég. En alveg langþráð vika núna finn ég á mér, Róleg æfingavika og þá meina ég Róleg enda fann það bara á löppunum á mér í dag að ég myndi ekki meika alveg fjórðu vikuna í röð á hrikakeyrslu, þar sem ég var bara ekki alveg að meika það í dag, sem betur fer bara 3x4x80m en ekki 4x4x80 eins og síðustu vikur, svo bara recovery á morgun, hvíld á miðvikudag + fös-sun og 3x(300m+150m) á fimmtudaginn, shitt hvað þetta verður næs..
Ljósaperukaup, steg 2 av 3
Mar 26, 2006, 15:28
Já það virðist ekki ætla að takast hjá mér að kaupa réttar ljósaperur í ljósið á "ganginum/forstofunni" hjá mér, en það er orðið vel meira en mánuður held ég frá því að ég afrekaði að sprengja báðar perurnar á sama degi. Steg 1. Fyrir cirka 2 vikum þegar ég var í IKEA keypti ég mér perur, venjuleg stærð, 60W en þar sem ég hafði ekki kíkt á perurnar sem ég þurfti að kaupa að þá var þetta að sjálfsögðu kolvitlaust, máttu vera MAX 40W og miklu mun minni. Steg 2. Þannig að í gær þegar ég var í matarleiðangrinum stóra mundi ég eftir helvítis perunum og sá einmitt 40W í réttri stærð og greip með mér, hrikalega glaður í bragði með sýru í örmum klöngraðist ég því uppá stól enn einu sinni, reif perurnar úr og komst að því að perurnar sem ég hafði keypt voru með stórann skrúfgang en áttu að vera með lítinn... Þannig að Steg 3. verður vonandi um næstu helgi og get varla klúðrað þessu þar sem ég veit núna 100% hvernig perur ég þarf að kaupa mér! OG hvernig gat það farið fram hjá mér að sumartíminn byrjaði í dag... Var búinn að plana í morgun að æfa með Jonatan og Therese og vaknaði í morgun við SMS frá Therese þar sem hún spurði hvort ég væri ekki örugglega búinn að stilla klukkuna... Ég nottla alveg nývaknaður hélt bara að hún væri að meina vekjaraklukkuna og senti bara "jújú að sjálfsögðu", settist því fyrir framan tölvuna og ætlaði að reyna að læra smá þegar ég sá að klukkan í tölvunni var 1klst of snemma, Fattaði þá alltíeinu hvað hún hafði verið að meina, reif í mig morgunmatinn og rétt hafði mig á æfingu á "réttum tíma" kl. 11, þannig að ég missti í rauninni af 1klst í dag sem er alveg frekar mikið hálf svekkjandi. En annars fyrir utan þetta nokkuð róleg og fín helgi, unnið xtra mikið í gær, bauð Rakel og Bjössa í mat og fór í Partý heim til Elías í gær og var kominn heim fyrir miðnæti enn einu sinni sem er alveg helvíti kengimagnað.
Sýra
Mar 25, 2006, 15:34
Svoldið skondið að koma heim úr vinnunni og verslunarleiðangrinum í morgun og lesa commentið frá mömmu:
Það þíðir lítið að skammast útí LÍN góurinn.Nú er bara að spara
Því að ég held að ég hafi slegið met í morgun í matarinnkaupum, eða amk alveg við það, reyndar tæpur 2000kr sem ég var að kaupa fyrir annann en annars var alveg hrikalega duglegur í matarinnkaupunum þar sem að ég var frekar tæpur á peningum í lok síðasta mánaðar og því ísskápurinn og frystirinn frekar tómlegir þangað til í morgun, því smá pínu "úbs" þegar ég las commentið hennar mömmu... En hef reyndar einu sinni lent í því áður að kaupa það mikið í frystinn að það komst ekki allt fyrir, já ok, einu sinni tvisvar, amk ekkert svo oft, en í morgun náði ég hinsvegar að kaupa það mikið að ég gat varla labbað áfram með alla pokana, djöfulsins þyngsli, mjólkusýra, sjálfsvorkun og undrunarsvipur á öllum þeim sem ég labbaði framhjá, en eftir góða kvöl og pínu komst ég nú loxins heim og mér til mikillar furðu, með öll eggin heil, helvíti magnaður skítur það...
ER EKKI VERIÐ AÐ GRÍNAST!!!!
Mar 24, 2006, 17:22
okok, ég veit að ég hef ekki farið fögrum orðum um Lánasjóð íslenskra námsmann áður og ég er nákvæmlega ekkert að fara að gera það í nánustu framtíð, djöfulsins andskotans fífl sem þetta eru!!! Í haust þegar íslenska krónan var alveg voðalega sterk gagnvart þeirri sænsku hélt ég að ég myndi alveg frá dágóða upphæð frá vinum og félögum mínum í LÍN en þá komst ég að því að peningarnir miðast við gengið og því fékk ég sömu skítaupphæð og ég hefði fengið ef krónan hefði verið veikari. En svo núna þegar allir eru að hrauna yfir íslensku bankana og drepa gjörsamlega sterka gengið á krónunni þannig að hún er búin að veikjast all verulega undanfarið miðað við þá sænsku og ég kíki inn á bankareikninginn minn til að sjá hvort að ég sé búinn að fá aurana mína frá LÍN og sé þá mér til allfrekar lítillar hrifningar að ég er að fá 800SEK minna á mánuði um þessi mánaðarmótin, hringi því í karlföður minn sem tékkar á þessu í bankanum að þá er bara víst ennþá miðað við gengið á sænsku krónunni þegar hún var svona helvíti lág og því fæ ég rúmlega 10% minna í lán þennann mánuðinn og ég því enn skítblankari núna en ég hef verið hina blönku mánuðina OG Á LEIÐINNI ÚT Í ÆFINGABÚÐIR EFTIR TÆPANN MÁNUÐ!!! Á náttúrlega ekki orð yfir þessum fíflum að dirfast að gera fátækum námsmönnum þetta þegar þeir geta ekki einu sinni hækkað þetta skíttlága lán pínu pons þegar ísl krónan er sterk en minnka það svo eins og ekkert sé...... DJÍSÚS KRÆST Ætla að ná mér svona pínu lítið niður áður en ég sendi mail á þessi fífl og spyrjist fyrir um þetta hjá þeim og gá hvort að þetta verði nú ekki leiðrétt... ef ekki, að þá sendi ég þeim annað mail í virkilega vondu skapi og hendi eggjum og tómötum í húseignina hjá þeim þegar ég kem á landið í sumar... ef ég hef efni á því....
My Favourite
Mar 24, 2006, 14:38
Blivar nottla ekkert annað eftir handónýtan dag en að vera sofnaður klukkan 21:00 og sofa í 11klst, ekki hægt að vera annað en frískur eftir það, hef ekki sofnað fyrr frá því ég var 3ja ára og ekki sofið lengur frá ..... já man ekki eftir því að hafa náð að sofa svona lengi.. reyndar langt frá því að vera gott minni but who cares. Skellti mér því á æfingu núna í morgunsárið með Rafael og Christopher og gekk bara mun betur en í síðustu viku, reyndar smá á kostnað 150m sprettanna en niðurstaðan í 3x(300 - 5mín hvíld - 150m) með 15mín hvíld á milli: 36.9 - 17.1 37.5 - 18.1 37.4 - 18.0 Var reyndar hrikalega fúll með 37.5 í öðrum 300m sprettinum þar sem ég lagði bara of hægt af stað en amk miklu jafnari tímar en í síðustu viku og engir helvítis spretthlauparar að skríða framúr manni á línunni í síðasta 300m sprettinum. En síðan bara róleg næsta vika, æfi á mánudegi og þriðjudegi, hvíli mið-fim og hleyp svo sömu æfinguna í síðasta skipti á föstudaginn næsta og svo hvíld alla helgina. Og að sjálfsögðu málið að hvíla almennilega um helgina líka og planið að fara ekki í nein af partýum helgarinnar, 2 nóg um síðustu helgi, og reyna að lesa eins og vitleysingur í skólabókunum, en þessi 2 próf sem ég þarf víst að taka í hverri viku á þessari önn taka alveg góðann lestíma frá námsbókunum og veit varla neitt leiðinlegra og meira svæfandi að lesa 50 síður á viku af tölvuskjánum!
Helt slut
Mar 23, 2006, 19:36
Ok, var nú frekar þreyttur þegar ég var mættur í skólann í morgun í eina 8:30 tímann minn í vikunni en þetta er nú bara nákvæmlega ekkert fyndið núna, sat í skólanum til cirka 3 og fann bara að ég varð alltaf þreyttari og þreyttari, fór beint á æfingu og hef nákvæmlega aldrei svo ég muni eftir verið jafn ótrúlega illa upplagðu til að æfa eins og í dag, fílingurinn basicly eins og hausinn væri að fara í þessa átt og lappirnar í hina og bara nákvæmlega ekkert að gerast, þannig að eftir upphitunina og að hafa spjallað við þjálfarann fór ég bara heim, enda ekki að sjá neitt fara að gerast á þessari æfingu af viti og skellti mér beint uppí sófa þar sem ég lá í 1.5klst þangað til ég drattaðist loxins til að éta og fara í sturtu og er bara alveg að leka niður hérna, en meikar bara engann veginn sens að fara að sofa núna klukkan 19:30, reyna að þola út til cirka 21:00 og leggja mig þá, ætti þá að vera úthvíldur fyrir æfinguna á morgun. En það er samt ekki eins og ég fái ekki nægann svefn, því að ég er sennielga að fá um 9klst meðalsvefn á nóttu sem er nú bara alveg andskotinn hafi það alveg nóg, eitthvað alveg fucked up dagur. En á morgun er hin stórskemmtilega 3x(300-150) þannig að spurning að vera hress og kátur á henni, en tek hana uppúr 10 í fyrramálið þar sem að strákurinn sem ég ætlaði að hlaupa með gat bara æft um morguninn á morgun þannig að ég sleppi öðrum fyrirlestrinum í vikunni fyrir æfingu, helvíti magnað það... GÓÐA NÓTT
Rappedírapp
Mar 22, 2006, 10:32
Kíkti á síðuna hans Arnars Bróðurs í gær og sá að hann og Helgi voru búnir að gera nýtt lag og ákvað því að kíkja á gripinn og finnst það nú bara vera algjör snilld, svona lag sem fær mann bara til að setjast niður og brosa :) Gerðu þetta víst á einhverjum mettíma eða eins og stendur á blogginu:
Svo datt okkur það heilræði í hug, þar sem að við værum nú rapparar, að rappa smá. Grófum nokkrar rímur uppúr hausnum á okkur, gripum í takt sem við áttum ekki og skrifuðum svo viðlag til að gera þetta allt saman krúttlegt
Smá tilbreyting í þetta
Mar 21, 2006, 23:58
Jæja jæja, náði að setja smá tilbreytingu í einkanirnar mínar þegar ég smellti inn fjarka í Reglerteknikinni, en fékk að vita það í dag sem var alveg ágætlega sweet, vissi að ég myndi ekki fá fimmu og hefði verið alveg hundóánægður með þrist þannig að ég er bara sáttur, reyndar með alveg helvíti góðann slatta af Ragnarsvillum þarna = fljótfærnisvillur og hefði sennilega bara verið alveg helvíti nálægt fimmunni hefði ég getað sleppt þeim svona einu sinni, en að sjálfsögðu óþarfi að breyta of mikið útaf vananum... En annars alveg yfirdregið nóg að gera í lestrinum hérna í skólanum, en búinn að eyða öllu kvöldinu í að lesa fyrir netpróf nr. 2 sem er á morgun og fer svo ábyggilega allur lauslegur tími á fimmtudaginn í að lesa fyrir föstudagsprófið þannig að maður er ekki alveg að komast nógu hratt áfram í hvorugri námsbókinni þannig að maður verður alveg helvíti þunglyndur við að sjá 2x 900bls bækur standa hlið við hlið og með bókarmerki einhverstaðar í kringum síðu 20 í þeim báðum, þá virðist bara hreinlega vera alveg heil eilífð eftir. Og svo er ég bara hreinlega ekki alveg sá duglegasti við að lesa í námsbókum þar sem að þessi litla einbeiting sem finnst í mér er bara algjörlega ekki að virka þegar ég er að lesa námsefni:
"However, this attempt is not satisfactory. To see the problem, suppose shape implements Comparable. Suppose square extends Shape. Then all we know is that Square implements Comparable. Thus a Square...... hmmm, hvernig í andskotanum fær maður út grænann þegar maður blandar samann gulum og bláum... væri ekki skrítið ef grænn héti rauður og rauður grænn, meikar bara engann vegin sens.... IS-A Comparable"
Og svona heldur þetta áfram í 20blaðsíður þannig að ég les helming og pæli í einhverju allt öðru í helming og niðurstaðan er að ég man hvorki hvað ég var að hugsa né lesa... En svona spælandi í hlutum, fór að spá í gærkvöldi eftir 26 ára afmælið hans Tomasar.... OK, eftir 2 ár verð ég 26 ára, sem mér finnst bara vera alveg helvíti gamalt, og þá eru bara 4 ár í að ég verði orðinn 30 ára sem er algjörlega hrikalegt þannig að ég var alltíeinu að fá þessa halastjörnu í hausinn að ég fer bráðum að verða gamall.... OG MÉR LANGAR BARA EKKERT AÐ VERÐA GAMALL, finnst ég bara ennþá vera 15 ára og vill bara vera það áfram!!!! Fer í morgun í dótabúð og kaupi mér LEGO til að reyna að viðhalda mér ungum
Bowling baby
Mar 20, 2006, 23:53
Alveg helvíti þétt dagskráin hjá manni í dag, mættur í skólann 10:30 með viðkomu á pósthúsinu til að koma langþráðu drasli í póstinn, fór fyrr úr tíma í dag klukkan 2 til að ná að klára æfinguna áður en ég mætti í surprise afmælisveislu til Tomas heima hjá honum, en gamli kallinn varð 26 ára í dag, shitt, ég varð bara þunglyndur við að skrifa þetta, 2 ár í að ég verði 26 ára og þá eru bara 4 ár í að ég verði 30ára sem er nottla bara skandall því að þá verð ég orðinn helvíti gamall... SHÍTT... En jæja allavega, fengum smá kökubita hjá Tomas sem kærasta hans hafði bakað í dag og skelltum okkur svo 16stk í bowling sem ég hef basicly ekki spilað í 2-3ár og sást það alveg greinilega á spilinu, 107 stig í fyrsta og 111 í næsta og rétt vann eina stelpuna með bara 2 stigum í fyrsta leiknum, djöfulli var ég líka orðinn stressaður þá og kanski ágætt að ég tapaði ekki enda varla hægt að vera mikið tapsárari en ég var á þessu mómenti.... En fínn dagur annars og kominn heim hálf ellefu þannig að svefninn er alveg að kalla á mig núna. En fyrst, snilldaræfing í dag, 4x4x80m og bara ein mín besta spretthlaupsæfing ever held ég, alveg hreint ótrúlega gamann hvað maður er að finna hvað æfingarnar eru að smella vel hjá manni núna og undanfarið, bara gamann að því :)
Hiphopper / Dancebander
Mar 19, 2006, 19:36
Búinn að vera að hlusta svoldið á lagið Hiphopper með TeddyBears & Thomas Rusiak og er bara að fíla alveg í botn. Teddybears hafa unnið með alveg fullt að frægum sænskum tónlistarmönnum og ákváðu svo að láta eitt dansband, Torgny Melins, endurgera lögin sín og gefa út og þá í staðinn fyrir lagið hipphopper kom lagið Dancebander sem er náttúrlega bara algjör snilld og hefur alveg gífurlega óvænt orðið hrikalega vinsælt hérna í Svíþjóð og er meira að segja að fá spilun á mörgum skemmtistöðum hérna, eitthvað sem gerist ekkert alltof oft með dansbönd, ekki að sjá Ragga Bjarna vera að meika það mikið á hverfisbarnum, but you never know.... En annars þokkalega róleg helgi bara, afrekaði að fara í 2 partý og vera samt kominn heim kl. 23:00 bæði kvöldin takk fyrir takk, eitt afmælispartý og eitt innfluttningspartý en það virðist samt ætla að vera alveg nóg að gera næstu daga því að á morgun á Tomas afmæli og ætlum við heim til hans annaðkvöld (án þess að hann viti af því, kærstan búin að bjóða okkur) og kíkja í smá góðgæti og fara svo í bowling eftir það og svo er ein afmælisveisla í viðbót næsta föstudag þannig að alveg yfirdregið að gera þessa dagana
Svona pínu þreyttur
Mar 17, 2006, 23:47
Var eitthvað búinn að minnast á það í gær að ég væri alltaf í stöðuprófum á föstudögum þannig að ég ætlaði að vera alveg voðalega duglegur í gærkvöldi og lesa fyrir prófið í dag og taka það svo áður en ég færi í skólann (10:30) þar sem þetta er allt gert á netinu, lesturinn og prófið. En þar sem ég var bara svo ótrúlega þreyttur eitthvað að þá var ég kominn uppí rúm uppúr 22 leytið algjörlega ólesinn og steinsofnaður stuttu á eftir. Þannig að það var bara rifið sig á fætur uppúr 7 leytið, lesið í gegnum þennann fjanda sem strákarnir sögðu að tæki cirka 1.5klst, + rústaði þessu prófi, allt í allt á 45mínútum og fékk 92% rétt á því (þarf 70% til að ná) þannig að ég hafði meira að segja tíma til að ryksuga og laga til hérna áður en ég fór í skólann, alveg meiriháttar dugnaður það. Svo alveg helvíti skemmtileg æfingin í dag, sama og í síðustu viku, 3x(300m-5mín hvíld-150m) með 15mín hvíld á milli setta. Fékk eitthvað drasl í nárann í hoppunum í gær og fann aðeins fyrir því í upphituninni þannig að ég sleppti bara slatta af hlaupunum í upphituninni og skellti mér bara í góða stöffið með Sandin og byrjaði þetta bara alveg helvíti fínt: 37.2 - 17.2 37.5 - 17.5 En eftir þennann 150m sprett að þá gjörsamlega ákvað líkaminn að gefast upp og kom þessi skemmtilega sýra og ælufýlingur í heimsókn, þannig að ég hékk bara við ruslafötuna alveg fram að síðasta spretti og náði að halda aftur að mér áður en við hlupum síðasta 300m sprettinn á 38.8, leið alveg viðbjóðslega illa fyrir síðasta 150m og rétt hafði mig á línunna, langt frá því að labba beint, komst einhvernveginn af stað eftir 30m og komst þá á fínt skrið en hljóp á mjólkursýruvegg þegar það voru 50m eftir og skreið í mark á 19.2s og fékk þá ruslatunnann loksins að finna fyrir hádegismatnum. En alveg helvíti langt síðann mér hefur liðið svona illa á æfingu, en bara gamann að því :) Fór svo í innfluttningspartý til PJ og Paula í kvöld en var bara svo ógeðslega þreyttur eftir daginn að ég var nú bara kominn heim uppúr 11 leytið og er held ég bara farinn í rúmið núna.... góða nótt
Komið í lag
Mar 16, 2006, 23:41
Jæja, náði víst að fucka aðeins commentkerfinu aftur á síðunni þegar ég var að fikta í myndadótinu í gær því að ég notaði óvart gamla fælinn frá fuckinu fyrir mánuði síðann en allt komið sumsé í lag aftur núna :) En já spurning að nefna aðeins skólann.. Byrjaði á nýrri periodu núna á mánudaginn s.l. og tveimur nýjum áföngum, "Datakommunikation" og "Algoritmer och Datastrukturer" sem eru basicly báðir sem tengjast tölvum sem er í fyrsta skiptið sem það gerist hjá mér, yfirleitt verið í 1 tölvuáfanga og einum drasláfanga með en ákvað ég að vera með í vitleysunni núna og skráði mig líka í viðbótardót við DataKom áfangann þannig að það bætist við amk 4klst vinna á viku + stöðupróf alla föstudaga þannig að það lítur út fyrir að verða alveg nóg að gera hjá mér, því að þessar tvær 800bls bækur voru nú alveg yfirdregið nóg fyrir, en það er þá eins gott að vera duglegur og draga úr sjónvarpsglápinu á móti!!!
Myndasíðan
Mar 16, 2006, 03:15
Jæja, loksins náði ég að koma mér af stað með að gera myndasíðuna og hérna er hún loxins tilbúin og er ég bara alveg allþokkalega sáttur með útkomuna og kóðunina og fékk basicly fram allt það sem ég vildi fá, en á reyndar ekki mikið af myndum á lager þannig að meirihlutinn er gamall en núna verður maður að sjálfsögðu duglegur með símann á lofti að taka myndir af hinu og þessu og skella inn, mun ekki alltaf láta vita þannig að fólk getur verið duglegt að kíkja þarna inn á ef það hefur áhuga en er amk með smá safn þarna núna, hægt að kíkja á þetta með því að klikka á myndir hérna vinstra megin á síðunni. Frí í skólanum í dag og því góður tími í lærdóm og klára myndadæmið auk þess bara að hvíla sig, en sofmorguninn minn fór alveg til helvítis þegar ég var glaðvaknaður klukkan 7:50, ekki alveg sáttur við það en lítið við því að gera þegar maður er farinn svona snemma að sofa undanfarið. En já, núna á 2 dögum er ég búinn að sjá 2 manneskjur gera vel góðar heiðarlegar tilraunir til að drepa sig með því að labba fyrir bíl, í skólanum í gær var einn strákur eitthvað utanvið sig og labbaði yfir götuna eftir að hafa komið úr strætó þegar annar strætó kom á fleygiferð, náði einhver að öskra á hann og tókst honum einhvernveginn að hoppa afturábak og munaði ekki mörgum centimetrum að hann hefði orðið að pönnuköku þarna 2metrum frá mér, helvíti hressandi svona í morgunsárið fyrir fyrsta tíma morgunsins. Annað tilfellið var svo áðann þegar ég var í sporvagninum á leiðinni á æfingu að það stóð einhver miðaldra kona við gangbraut og var rautt ljós á henni þegar hún ákvað bara alltíeinu út af engu að labba af stað, flautaði þá bíll á hana og sveigið framhjá þannig að hún staulaðist aftur til baka, en eftir svona 15sekúndur og ennþá rautt ljós á henni veður hún aftur af stað og heyrir maður þá þetta hrikalega flaut og kemur bíll skransandi með öll hjól læst til helvítis í átt að henni og rétt nær með einhverjum ótrúlegum hætti að hitta hana ekki og staulaðist kellingin þá aftur til baka og síðan kom grænt ljós og þá stóð hún bara ennþá grafkjurr...... eitthvað vel furðulegt þetta grey!! En jæja, spurning að koma sér í háttinn, later folks
Older is betra eller?
Mar 14, 2006, 12:59
Eftir að hafa setið yfir breytingum á síðunni yfir alla helgina að þá ákvað ég í gær að breyta síðunni bara ekki neitt þar sem ég var hreinlega ekki nógu sáttur með lúkkið sem ég sá á skjánum, gekk ekki alveg nógu vel að færa hugmyndina úr hausnum á sér og yfir á skjáinn, en í staðinn ætla að ég hinsvegar að gera smá uppfærslur á síðunni eins og að t.d. loxins gera myndaalbúmið, sem er btw komið langt á veg, skelli því inn í vikunni, og svo svona smádrasl sem mig langar að laga. En alveg magnað með þetta, eftir að hafa átt nokkra mánuði af of þreyttum morgnum og misst af of mörgum morgunstærótum að þá held ég að ég sé búinn að koma svefninum alveg í tipp topp núna, en hef undanfarið verið kominn uppí rúm á milli 10:30-11:30, sef eins og fucking engill, draumarnir komnir niður á nokkuð eðilegt level og farinn að vakna sjálfkrafa á undan vekjaraklukkunni sem er nottla bara alveg mjög jákvætt nema á sofa-út morgnunum mínum... sem eru btw fjórir talsins miðað við nýju stundartöfluna mína... Alveg magnað hinsvegar með læris/rassgatsvandamálið sem ég minntist á í síðustu færslu, en ég finn fyrir þessu þegar ég labba, get ekki teygt nema 50% af teygjunum á vinstri löppinni vegna verka en hinsvegar get ég hlaupið alveg í botni án þess að finna neitt fyrir þessu, sem er náttúrlega alveg kengimagnað og hélt ég uppá það í gær með alveg brilliant 4x4x80m æfingu, þannig að ég bara alveg mjög sáttur
In The Jungle The Mighty Jungle
Mar 13, 2006, 00:59
Já já, erum að tala um það afslappaða og fína helgi að ég man hreinlega ekki eftir að hafa tekið þetta svona rólega svo stutt sem ég get munað aftur í tímann. Eina sem ég gerði frá hádegi á fimmtudaginn til nú var að æfa alla dagana nema laugardaginn og þá vann ég um morguninn, annars var bara setið heima fyrir framann tölvuna með kveikt á HM í frjálsum við hliðina á sér og brasað í nýju síðunni sem er nú farin að fá smá lúkk á sig... já litir ójá litir, en sýnist ég nú ekki ná að klára þetta um helgina þannig að næsta vika verður notuð að einvherju leyti í að fá þetta í gang :) Kíkti annars í IKEA í gær eftir vinnuna þar sem ég var nú að vinna í næsta húsi við og ætlaði bara að kaupa mér pennastatí og svona dót til að setja fjarstýringarnar í og á sófahandriðið en þar sem að það var ekki til að þessu sinni og ég því bara með eitt lítið og heimskt pennastatí og 3km löng röð (IKEA á laugardögum er basicly það heimskulegasta sem maður getur gert) að þá ákvað ég bara að versla mér inn smá meira af smádrasli til að það væri nú vert að standa og bíða þarna sem mér tókst nú bara alveg ágætlega og keypti mér meira að segja perur í ljósið í forstofunni, takk fyrir takk, tók ekki nema cirka 3 vikur að muna eftir því. En næst þegar ég ætla að kaupa mér ljós í ljósin hérna á heimilinu að þá ætla ég að athuga hvernig peran á að líta út og hve sterk því að ég keypti of sterkar og stórar ljósaperur þannig að það er ennþá niðamyrkur í forstofunni auk þess sem ég á 10stk auka ljósaperur, held að þetta titlist sem afrek helgarinn... Eða afrek og afrek, en held ég hafi afrekað að ná að meiða mig í teygjunum eftir æfinguna á föstudaginn, eða held ekkert, ég dauðmeiddi mig, eða Rafael sá nú aðallega um það, en við vorum basicly að hjálpast að teygja á þannig að maður sat með gleiðar lappir og að reyna að kyssa hné og gólf. Var ég kominn bara vel á leið með þetta og langt síðann ég hef verið svona liðugur þegar "KLIKK" sem við heyrðum báðir efst í hamstringnum/rassinum á mér þannig að ég hoppaði eldsnöggt upp, enda langt síðann eitthvað hefur smollið svona rosalega í mér þrátt fyrir að hafa verið hnykktur til nokkrum sinnum í vetur, en þetta gerði nú bara alveg ógeðslega vont og er ég ennþá aumur í dag og get ekki setið gleitt, en gat hinsvegar hlaupið 20x100m með 100m gönguhvíld í dag þannig að þetta er nú ekki alvarlegra en það, og ef þetta verður í lagi í 80m sprettunum á morgun að þá verð ég bara sáttur sko...
Ledig
Mar 10, 2006, 18:52
Vá hvað þetta er næs, kláraði seinna prófið í gærmorgun og þarf því ekki að hugsa neitt um skólann núna í 3 daga í viðbót og spurning að koma nú mörgu í verk sem maður hefur ekki haft tíma fyrir, jeeeyyy, en prófið gekk bara alveg þokkalega vel held ég og verð basicly ósáttur með einkun undir 4, komnar kröfur hjá kallinum sko. En var annars að skríða heim af æfingu núna vel þreyttur og góður enda helvíti mögnuð æfingavika að enda, slatti af hoppum, 2x4x50m mótstöðuhlaup, 5x60m og 20x15sek með 15sek hvíld var í gær og í dag 3x(300m - 5mín hvíld - 150m) og svo 15mín hvíld á milli settanna og var nokkurnveginn á tilsettum tímum: 38.4 - 18.3 38.3 - 18.1 38.1 - 18.3 En alveg magnað að mér leið ekki illa eftir þetta eða var neitt voðalega súr eða þreyttur, lappirnar hreyfðust bara ekki og greinilegt að það situr einhver smá þreyta í þeim eftir vikuna
and one to go
Mar 09, 2006, 00:36
Jæja, eitt próf búið og seinna prófið á morgun og verð að viðurkenna það að Stress hefur aldrei verið neitt vandamál hjá mér í kringum próf áður en núna er þetta hreinlega fáránlegt því að ég er bara hreinlega alltof, alltof, alltof slakur um þessi próf hérna og bara haft nokkuð gamann af því að læra fyrir þau sem hefur bara ekki gerst lengi, eða já, læra fyrir ÞAÐ, þar sem að lærdómurinn fyrir forritunarprófið í morgun var sá minnsti sem ég hef gert fyrir próf, eða cirka 30mínútur...... Í rauninni ekki mikið sem var hægt að læra fyrir það og ætlaði ég bara að taka það eftir æfinguna í gærkvöldi en var bara svo ógeðslega þreyttur að ég var kominn uppí rúm uppúr 10 leytið og sofnaður hálftíma síðar.... Hefði nú ekki verið neitt slæmt að læra aðeins meira, en næ þessu prófi nú alveg, meira að segja að spá í að ef einkunin verður ekki nógu góð að taka þá þetta próf aftur með aðeins meiri lærdómsfyrirvara til að hækka einkunina, en sjáum samt til hvort að það mun einhverntímann gerast... En speaking of sofa.... Djöfulli svaf ég fáránlega í nótt, var gjörsamlega dauðþreyttur í gærkvöldi og því kominn snemma uppí rúm, tók heldur lengi að sofna miðað við hvað ég var þreyttur, glaðvaknaði svo klukkan 01:30 og hélt að það væri kominn morgun, tók smá tíma að sofna aftur og vaknaði svo 4x seinna um nóttina en samt búinn að vera alveg óvenjulega ferskur í dag fyrir utan fáránlega mikla strengi frá baki og í öllum vöðvum lappanna og hefur bara farið versnandi eftir því sem lengra líður á daginn.. En nenni nú ekki að væla um það, er alveg gjörsamlega stútfullur af hugmyndum fyrir nýtt útlit á síðuna mína og með functionir á henni og get ekki beðið eftir því að prófið í fyrramáli verði búið þannig að ég geti byrjað á þessu og tékkað hvort að eitthvað af þessu sé nú mögulegt í framkvæmd, en litagleði og hamingja verða aðalmerki útlitisins :) En hey já, var orðinn frekar loðinn og fallegur í andlitinu eftir tveggja vikna frí frá rakstri og þar sem að ég hafði nú eyðilaggt hársnyrtinn sem er svona mikið mun betra að nota á undann ef skeggið er orðið of langt að þá skellti ég mér út í búð áðann til að kaupa mér ný og fín Mach3 blöð enda ekki annað hægt en að ráðast á runnann með hrikabeitt blöð en í staðinn kom ég bara út með enn eina útgáfuna af Mach3, eða Power Nitro or some sem á að vera alveg voðalega gott og betra en allt annað, með batteríi og öllum græjum sem svinvirkaði bara svona á lubbann, alveg helvíti sáttur með það og því kominn með Prófskegg þessarar annar, trukkarann sem á ábyggilega eftir að vekja jafn mikla lukku og hann gerði síðast :)
Gæti versnað pínu
Mar 08, 2006, 02:11
Úje babe hvað ég er viðbjóðslega þreyttur í löppunum, bara langt frá því að vera fyndið. En var svona ágætlega þreyttur eftir æfinguna í gær og kvíður mig bara hreinlega fyrir restina af vikunni eftir lyftingaræfinguna í dag, en að fara úr því að æfa í nokkrar vikur til að halda sér ferskum og hröðum og yfir í það að bæta ofanáþað sem maður hefur er bara alveg meiriháttar öðruvísi, en var gott magn af cleani, eins fóta hnébeygju, stepup, slatta af hoppum, utfallstegi og fínum slatta í viðbót og var ég gjörsamlega með þessa fínu krampatilfinningu í flestum vöðvum sem finnast í löppunum á mér, verður sem betur fer rólegt á morgun, reyndar að spá í að sleppa þeirri jogg+magaæfingaæfingu og læra í staðinn fyrir fimmtudagsprófið (en fara samt í nuddið) svo fínn slatti af hoppum og öðru skemmtilegu á fimmtudaginn og aðaldæmið á föstudeginum, 3x(300+150) með 5mín + 15mín hvíldum, verður bara stemning í því. En eftir prófið á fimmtudaginn ætla ég að reyna að setjast niður hérna í tölvunni og koma myndasíðunni minni loxins í gang og ef það gengur voðalega vel að þá er missionið að byrja á að hanna nýtt útlit á þessa blessuðu síðu mína enda þetta hérna orðið ársgamalt eða eitthvað álíka sem er náttúrlega alltof gamalt og löngu kominn með leið á því... En jæja, klukkan að verða 22:00 þannig að ég er að spá í að fara að sofa, gjörsamlega að drepast úr þreytu hérna og próf alltof snemma í fyrramálið.... jibbýýý
allt komið á fullt
Mar 07, 2006, 00:38
Búinn að liggja vel yfir lærdómnum um helgina fyrir utan gærkvöldið þegar ég komst alltíeinu af því að X-MEN 2 var bara helvíti skemmtileg, en ágætt að fá smá pásu þar eftir langann lærdómsdag en hef reyndar komið mér alveg skemmtilega á óvart því að ég er að fatta langmestann hluta af þessu og hef fest mig alveg voðalega lítið þannig að ég er á nokkrum dögum farinn í svartsýni yfir í þessa venjulegu Ragnars bjartsýni "þetta reeeddaaassst" sem er alveg ágætt eftir að hafa ekki haft tíma til að læra svo mikið í þessum áfanga síðasta mánuðinn... já eða tíma ekki tíma, langar mest að bitchslappa mig fyrir kæruleysið í kringum námið síðustu mánuði og hefur ekki verið að hjálpa mikið að þrátt fyrir það hef ég verið að ná öllum áföngunum.... ekki alveg nógu gott sko, eða samt jú... Æfingarnar byrjuðu svo aftur í dag á fullu sem undirbúningur fyrir sumarið og djísús kræst hvað kroppurinn var ekki alveg að samþykkja að fara úr nokkrum 200-300m með fullri hvíld og yfir í 3x4x80m neglingar í göddum með 3mín hvíld + 15mín setthvíld og fór maginn strax að væla eftir fyrsta settið... sem er ekki alveg nógu jákvætt þegar það eru ennþá 2 eftir, en amk, þoldi út þetta og hljóp bara betur og betur þannig að það reddaðist allt samann... En hvað er maður að blogga.... núna er það lærdómur sem gildir.... eftir sturtu... og kvöldmat... svo er aldrei að vita hvað finnst í sjónvarpinu í kvöld ;) En top 5 á MP3 listanum yfir prófvikuna: Mary J Blige : I Found My Everything Modest Mouse : The World At Large Howie Day : Collide John Legend : She Don't Have To Know Pearl Jam : Yellow Ledbetter
Æi bara týpískur laugardagur
Mar 05, 2006, 14:34
Vann í gærmorgun eins og flesta aðra laugardaga í vetur nema að núna tók ég 2 búðir í staðin fyrir eina og ef fólk man eftir IKEA ferðasögunni frá því þegar ég flutti hingað út að þá er hin búðin basicly staðsett í næsta húsi við þetta IKEA út í rassgati, men what só ever... Byrjaði morguninn á því að vakna snemma svona alveg þokkalega hress og skokkaði niður á stoppustöð til að vera alveg handviss um að ná sporvagninum, en helgartraffíkin er ekki alveg upp á marga fiska og hvað þá klukkan 08:00 um morguninn, og var ég komin niður á stoppustöðina 4mín áður en sporvagninn átti að koma og mý god ó god hvað ég hélt að helvítis nefið ætlaði að frjósa af mér á leiðinni þangað svo ógeðslega kalt var og að sjálfsögðu þegar það er ógeðslega kalt að þá gleymdi ég húfu og vettlingum heima, síðan beið ég..... og beið... og beið... og helvítis sporvagninn bara hreinlega kom ekki, ekki nema 24mínútum síðar þegar ég hélt gjörsamlega að allir útlimirnir væru að hrynja af mér vegna frostsins en missionið í dag var að reyna að drífa sig með vinnuna svo ég yrði kominn heim snemma til að læra með Groten.. Vinnann í fyrri búðinn gekk bara alveg ljómandi og smellhitti ég á sporvagninn þaðan í frá og niður í Mölndal þar sem ég þurfti að skipta í strætó restina af leiðinni og þá tók ég alveg hrikalega góðann Ragnar á þetta, kíkti á strætóplanið og bara "neeeeiiiii" því að það voru 50mín í að eini strætóinn sem ók þangað kæmi, en hann keyrir á 1klst fresti um helgar þannig að ég settist inn þarna og beið í fjandans 50mín og þá hoppaði ég út og fattaði alltíeinu, nei hvur djöf, þessi strætó er að keyra í vitlausa átt, fattaði þá að ég hafði kíkt á strætóplanið fyrir strætóinn sem var að keyra akkúrat í hina áttina og hefði ég í rauninni ekki þurft að bíða nema í 10mín eftir strætónum í rétta átt en svo varð það að 1klst + 10mín, svona helvíti ferskandi þegar maður er að gera heiðarlega tilraun til að flýta sér.... En restin af vinnudeginum gekk bara alveg ágætlega, kom svo heim og lærði til rétt uppúr 7 með Groten áður en ég ákvað að kíkja í smá partý með honum til að skella smá kæruleysi inn í lærdómsplanið, afrekaði reyndar að eyðileggja hársnyrtinn minn þegar ég missti hann í golfið og hætti hann því að klippa hárið og ákvað að rífa í það í staðinn þannig að núna er komin góð þörf á nýju kvikindi áður en ég verð orðinn síðhærður aftur
Nasty
Mar 03, 2006, 01:41
Æi þetta er nú bara pínu mikið fyndið
Fyrsti vordagurinn
Mar 03, 2006, 00:56
Nei núna er ég hreinlega kominn með nóg af snjó, kulda og myrkri... ÉG VIL FÁ SUMAR, SÓL, HITA OG SÓLBAÐ!!! Fyrsti vordagur í gær or some en ég er hreinlega ekki að sjá vott af þessu blessaða vori, bara helvítis skítakuldi, hált, dimmt og allt þetta sem ég var búinn að nefna fyrir ofann. En tók annars tölvuna mína í gegn áðann og uppfærði Linuxinn yfir í nýjasta stöffið og forritin öll komin í toppstand, MSN-inn t.d. farinn að virka núna án galla og er vonandi hættur að slökkva alltaf á sér. Kláruðum annars loksins projekted í dag og gekk bara alveg ágætlega, var reyndar alveg gjörsamlega búinn eftir daginn í dag og ætla að nota sofa út daginn minn á morgun áður en æfingin byrjar, 6x200m í sléttbotna með 5mín hvíld svona til að koma sér aðeins í gang fyrir næstu viku og síðan tekur alvaran og geðveikin við fyrir prófin.... oooohhhh hvað ég er ekki að nenna því
æibarasta
Mar 01, 2006, 01:19
Var alveg að hrynja niður úr þreytu í gærkvöldi en náði samt að halda mér á fótum þangað til ég kom meŕ uppí rúm um 23:30 og þá var bara eins og það hefði verið dælt koffíntöflum beint í æð á mér í nokkurra vikna törn því að ég hef bara aldrei á ævinni verið jafn langt frá því að sofna og það sem hausinn fór í ofvirkniskast að ég ætla bara ekkert að minnast á það en veit hreinlega ekki hve lengi ég lá þarna glað-glaðvakandi í rúminu áður en ég sofnaði en það var ekkert alltof snemma, en ekki nóg með það. Vaknaði alveg vel ferskur og þokkalega sáttur að hafa náð að gera það á undan vekjaraklukkunni en það kraftaverk hefur gerst nokkrum sinnum á síðustu vikum en ákvað að liggja bara uppí rúminu í rólegheitunum þangað til að vekjaraklukkan myndi hringja, svo lá ég, og lá, og lá þangað til ég drattaðist á lappir til að tékka á hvernig tímanum leið og fékk þá sjokkið, 03:30 sumsé hánótt, ég ekki búinn að sofa nema kanski í einhverja 2-3 tíma og alveg glaðvakandi AFTUR.... þannig að það tók aftur alveg góðann tíma að ná að sofna aftur og er virkilega farinn að finna fyrir þreytunni núna.. En annars alveg yfirdregið nóg að gera í skólanum þessa blessuðu vikuna, síðasta vikan á þessari periodu og því prófvika í næstu viku, próf á miðviku- og fimmtudegi, verð að óska þeirri manneskju innilega til hamingju með að hafa fengið þá flugu í hausinn að láta brautina mína fá bæði prófin sem fyrirhádegisprófi og að hafa þau svona þétt samann á þessari annars 7daga prófviku, gott klapp hérna... En já, sumsé nóg að gera í skólanum núna, klára endanlega þetta projekt sem við höfum verið að dútla við síðustu 4:ar vikur í skólanum og þurfum að vera komnir með það 100% á hreint á morgun og vera svo með fyrirlestur um það og sýna á fimmtudaginn, útaf þessu verkefni að þá hef ég, og margir fleiri, lent alltof langt á eftir í hinum áfanganum þannig að maður þarf að nota þessa viku og þann tíma sem maður hefur fram að prófum til að vinna það upp, fínt að krossa fingur fyrir því. Síðan var 4:urra tíma Lab í dag í þeim áfanganum + að ég þarf að gera á morgun skilaverkefni fyrir fimmtudaginn í sama áfanga þannig að þessi síðasta vika fyrir prófin er svona líka alveg að gera sig, þakka bara fyrir að ég sé í rauninni í fríi frá æfingum út þessa viku því að ég hef bara ekki verið að koma heim frá skólanum fyrr en uppúr 19:00 leytið á kvöldin og þá lítill nenningur verið en að fá sér að éta, gera heiðarlega tilraun til að læra meira og svo bara beint að sofa, en missionið samt að komast á nokkrar æfingar, bara létt, maga og bak og að sjálfsögðu beach 2006 æfingar, enda tíminn farinn að styttast fyrir þær æfingar.. Og svo er veðrið ekkert búið að vera uppá neitt marga fiskipinna núna í dag, snjókoma allann daginn og smá gola þannig að flestum hérna fannst nú vera hálfgert óveður, enda sjaldann að snjórinn falli ekki beint niður og þar sem að það er orðið langt síðann ég var síðast á klakanum að þá fannst mér þessi gola bara vera hávaðarok og er farinn að biðja 10 bænir á kvöldi til sólarguðanna um að gefa mér sól og yl. En nýji síminn alveg að gera sig við að halda mér ánægðum í þessum önnum mínum og langt síðann að ég keypti mér eitthvað "stórt" án þess að hafa fengið samviskubit yfir því næstu dagana, greinilega góð kaup þarna á ferð ef ég hef náð að friða samviskuna svona vel