Alltaf að tæknivæðast...
Feb 27, 2006, 23:09
Hef haldið því fram vel og lengi að það sé nákvæmlega engin þörf á öllu þessu aukahlutadrasli sem er í GSM símum, maður þarf bara að hringja og senda sms úr þessu og meira þarf maður ekki, en alltaf samt gamann að hafa myndavél í kvikindinu þegar maður er í partíum enda mörg kodak mómentin sem kom þá.. En ég hafði verið að spá í einum Motorola síma núna yfir helgina, mjór og góður þannig að ég ákvað að fara niður í bæ og kíkja á gripinn og gá hve vel hann færi í hönd. Eftir að hafa skoðað hann fannst mér hann bara vera alltof stór og fór þá nottla í þessa miklu fýlu þar sem að endurnýjung á GSM síma var komin í mikla þörf og þegar mig langar að kaupa eitthvað... AÐ ÞÁ LANGAR MIG AÐ KAUPA EITTHVAÐ og ef ég get það ekki að þá er mánuðurinn bara alveg ónýtur. Þannig að ég fór bara á mitt Ragnarsrölt í gegnum gemsabúðirnar í mollinu niðri í miðbæ þegar ég sá þennann fína LG síma í einni 3-búðinni, bara nákvæmlega eins sími og ég hafði verið að spá í í hausnum á mér, svona opna loka sími, samt lítill og nettur og varð bara í rauninni alveg ástfanginn af honum og þar sem öll almenn skynsemi hverfur af mér þegar ég kemst í kaupsstuð að þá skellti ég mér á gripinn, skipti um GSM þjón og fór því frá Comviq yfir í Tre, borga 299 á mánuði í 18mánuði fyrir símann + 500 ókeypismínútur, og þessi sími er nottla með nákvæmlega allt það sem ég er búinn að vera að bölva undanfarið, 1.3pixla myndavél, vídjóvél, alltofmarga lita skjá, er 3G þannig að hann styður vídjósamtöl + að ég fékk með 512mb minni + KOSS headphones og einhvern djöfullinn meira með, þannig að 512mb MP3 spilarinn minn er farinn í verkfall í bili. En þetta hérna er sumsé gripurinn, silfraður, var algjör chicken og beilaði á þessum bleika, en hve svalur hefði maður verið þá :)
Helgin (Síðasta innanhúsmótið)
Feb 27, 2006, 01:57
Jæja jæja, spurning að byrja að tala um mótið bara á Laugardeginum hljóp ég 200m hlaup sem gekk svona alveg ágætlega í rauninni, var í riðli með strák sem var skráður á 22.20 og missionið bara að vinna hann en held að ég hafi einblýtt aðeins of mikið á hann í staðinn fyrir sjálfann mig í hlaupinu sjálfu því að fyrstu 100m voru alltof hægir og dróg varla neitt á hann, en vann það upp síðustu 100m þar sem ég dróg á hann jafnt og þétt og í 5metra lengra hlaupi hefði ég tekið hann, en því miður var þetta bara 200m hlaup og endaði ég 12/100s á eftir honum og á tímanum 23.10 sem var pínu pons svekkjó þar sem ég ætlaði mér að hlaupa undir 23 sek á þessu síðasta móti, en ennþá meira svekkjó var samt að komast ekki í C-úrslitin og mest svekkjó við það var að vera fyrsti maður sem komst ekki þangað og munaði bara 3/100s á mér og þeim síðasta, fjandans hæga byrjun. En jæja, í dag (sunnudagur) hljóp ég svo 400m þar sem ég var skráður inn á mótið með 51.10, sama tíma og annar strákur og lenti hitt gerpið í betri riðli en ég og átti slakasta tímann í sínum riðli en ég átti langbesta í mínum, næsti maður á cirka 51.60. Hljóp þetta hlaup alveg ágætlega bara, kom fyrstur í gegnum 200m á mínum hægasta 400m opnunartíma í vetur, cirka 24.5 og á móti kom að ég gat þá keyrt þokkalega vel á síðustu 100m og kom í mark á 50.53 sem er 70/100s hraðar en ég hef hlaupið í vetur. Þannig að yfir á allt litið er ég bara þokkalega sáttur með þetta lokamót á innanhústímabilinu þar sem að aðalmálið fyrir það var að komast í gegnum það ómeiddur sem er alveg gríðarlega stórt skref miðað við síðustu ár + PB í báðum greinunum, gott klapp fyrir Ragnari. Núna tekur svo bara við æfingaperíod fram að utanhústímabilinu.. En spurning að koma með smá ferðasögu er þaggi :) Ok, fórum sumsé tveir á Danska mótið núna á föstudaginn, ég og Jonas og síðan kom Moa seinna um kvöldið til að passa uppá okkur. Ákváðum að fara bara með rútu niðureftir þar sem að það var miklu ódýrara en lestin, tók fínann tíma að finna rétta strætóinn en það tókst nú 3mínútum áður en hann átti að fara, hentum töskunum okkar inn í geymsluna og ætluðum að fara inn í hann þegar bílstjórinn stoppaði okkur og sagði að við ættum að fara með hinum strætónum við hliðiná, og við bara "whuuutt" þar sem að á miðanum stóð þetta rútunúmer, ákváðum við bara að treysta kallinum og fórum inn í næsta strætó sem við komumst að var DirektBuss, þeas ók beinustu leið til Malmö án stopps, þannig að við vorum ekki nema 2klst og 45mín á leiðinni í staðinn fyrir 4klst, þannig að ekki kvörtuðum við. Þegar við komum til Malmö spögguleruðum við svo lengi í því hvort við ættum að taka Strætó eða taxa uppá hótel, náði ég að sannfæra Jonas um að við hefðum bara borgað 98sek síðast þegar við vorum þarna og við gætum þá líka náð síðustu periodunni af undanúrslitaleik Svíja og Tékka sem var á fullu í gangi og við höfðum verið að hlusta á á leiðinni auk þess að reyna að horfa á hann í gegnum video-converastion við vin hans sem setti símann fyrir framann sjónvarpið með... jaahh.. ekki alltof góðum árangri. Þannig að við skelltum okkur uppí Taxa hjá gamalli kellingu sem skutlaði okkur uppá hótel og gjörsamlega tæmdi peningabudduna þegar hún rukkaði okkur um 200sek fyrir farið, drullufúll borgaði ég nú kellingunni og skelltum okkur svo uppá hótel þar sem við sáum Svíjana flengja Tékkana við mikinn fögnuð okkar. Vorum svo búnir að keppa frekar snemma á laugardeginum þannig að við ákváðum að skella okkur niður í bæ og eftir ferðir með nokkrum ólíkum strætóum hingað og þangað að þá komumst við loxins niður í miðbæinn þar sem allar búðir voru lokaðar þar sem við höfðum verið að villast um frekar lengi og ákváðum bara að skella okkur í Bíó á "Walk the Line" sem ég hafði nú ekkert alltof miklar væntingar um. EN ég er algjörlega búinn að breyta um skoðun, mér finnst þessi mynd bara vera algjör snilld og skemmti mér alveg konunglega yfir henni og ætla að fara í kvöld að downloada fullt af lögum með Johnny Cash þegar ég er búinn að skrifa þetta rugl. Restin af kvöldinu fór svo í að liggja uppí rúmi, snacka skit og horfa á Runaway bride, við lítinn fögnuð Ragnars en þar sem EKKERT annað var í sjónvarpinu fékk Jonas sínu framgengt... :( Eftir mótið í dag rukum við beint uppá hótel til að horfa á úrslitaleik Svíja og Finna í hokkýinu þar sem að Svíjar gerðu sér lítið fyrir og urðu Ólympíumeistarar, alveg helviti magnað hjá þeim. Beint eftir þetta var svo skellt sér í annann taxa og upp á lestarstöð til að ná rútunni heim, ég ennþá ósturtaður og vel lyktandi og þegar við komum þangað spurði ég hvað þetta kostaði og fékk þá upp verðið 59sek.... og við bara whut, og bölvuðum kellingarbeyglunni frá föstudeginum í sand og ösku, sagði þá leigubílstjórinn sem var alveg hinn almennilegasti að það væru oft svart-taxar sem legðu einmitt oft beint fyrir utan lestarstöðvar og svoleiðis staði og féflétta svo vitlausa aðkomumenn og að samkvæmt lögum væri samt ekkert hægt að gera við þessu, þannig að ég fékk bara símanúmerið hjá þessu taxa fyrirtæki sem hann vann hjá og ætla hérmeð bara að hafa viðskipti við þá þegar ég er í Malmö. Ef þú ert ennþá að lesa... að þá færðu nú plús fyrir það :) En síðan tók við þessi ógeðslega leiðinlega 4ra tíma rútuferð hingað heim og hlakkaði mig ekkert smá mikið til að komast heim í fínu íbúðina mína og í mína eigin sæng með eigin kodda (ekki alveg þessi hótelmanneskja) eða alveg þangað til að ég kom heim, mundi þá eftir því að ég hafði ekki haft tíma til að vaska upp á fimmtudaginn, né áður en ég fór á föstudaginn og því bíður mín nú mission impossible að ná að losa nokkurra daga matarleifar af vel TROÐFULLUM vaskinum núna í kvöld :(
Svangur
Feb 23, 2006, 02:28
Það er alveg ótrúlegt með hvað ég er oft svangur, í rauninni sama hvað ég ét mikið að þá er ég alltaf orðinn svangur eftir mestalagi 3tíma aftur sem er í rauninni alveg óþolandi og þá sérstaklega eftir á milli hádegismatsins og kvöldmatsins þar sem ég fer alltaf á æfingu þar á milli og maður getur nottla ekkert étið almennilega rétt fyrir æfinguna þannig að 2 samlokur verða alltaf að duga svona 1-1.5klst áður en maður fer þangað, en þetta er samt algjörlega verst á kvöldin því að maður étur kanski kvöldmat uppúr 8 leytið og er orðinn alveg glorhungraður rétt áður en maður fer að sofa og er algjörlega ómögulegt fyrir mig að sofna svangur. En annars yfir í íþróttafréttir, 2x300m á æfingunni áðann með cirka 20mín á milli, fyrri ekkert alltof vel hlaupinn á 35.5, svoldið súr í lokinn eftir 22.5 opnun á 200m, en seinni alveg mikið mun betri og skítléttur á 36.4 (sumsé á réttum tíma) og en man ekki alveg 200m splittið, þannig að ég er í rauninni alveg farinn að spá í því að fyrir næsta 400m hlaup að negla bara á einn 300m svona hálftíma fyrir hlaup þar sem ég virðist alltaf hlaupa verst í fyrsta spretti og batnar bara eftir það.... En Svíjarnir annars að mala gull á þessum vetrarólympíuleikum, langflestar medalíur í mörg, mörg ár og hokkí liðið komið í undanúrslit eftir sigur dagsins en ég er orðinn alveg fastur yfir hokkíleikjum í sjónvarpinu núna og þá sérstaklega með sænska landsliðinu, vona alveg innilega að Svíþjóð komist í úrslitin og mæti Finnum, yrði það ekki bara snilld, 2 norðurlandalið og hvorki USA né Kanada, held það nú
Djöfulsins fílingur
Feb 21, 2006, 23:50
Já það er langt síðann ég hef verið með svona rosalegann fíling í löppunum í cleani frá mjöðmum eins ég hafði á æfingunni í dag, átti að taka 4x2 og hef bara aldrei upplifað jafn mikinn sprengikraf í löppunum áður (enda aldrei verið mikill kraftur í þessum fótum mínum) en byrjaði á 2x70kg sem var alveg skítlétt, tók bara stuttar hvíldir á þetta þar sem fílingurinn var svo góður og svo flugu upp 2x75kg-2x80kg-2x85kg skítlétt og ég bara WTF þar sem ég hef nú aldrei tekið meira en 85kg meira en einu sinni frá mjöðm þannig að ég ákvað að láta þennann hrika fíling ekki sleppa og skellti því 90kg á stöngina og tók þá þyngd 5x....... næstum því á 5mín, alveg ótrúlegt að þetta hafi ekki farið upp, annað hvort mætti ég þessu ekki nógu djúpt eða aðeins of framarlega og var orðinn alveg brjálaður undir lokinn þegar þjálfarinn ákvað að stoppa mig, en djöfulsins adrenalínflæði sem maður fær í þessari æfingu, og djöfulsins krampatilfinningu var ég með eftir þetta, og djöfulli blæddi úr hendinni á mér eftir að ég lamdi í vegginn, já maður er nú ekkert alltof gáfaður þegar maður er reiður... En verður ábyggilega hresst í 2x300m á morgun eftir daginn í dag þar sem að ég tók nottla alltof mikið af cleaninu + slatti af hoppum, en verður bara gamann að því enda 300m alveg ótrúlega skemmtileg vegalengd. En mundi svo alltíeinu eftir því þegar ég kom heim, ætlaði að kveikja á ljósinu í forstofunni, flaug næstum á hausinn þegar ég steig á skó sem ég sá ekki útaf myrkrinu, að ég náði að sprengja báðar perurnar í ljósakrónunni þar í fyrradag, geri aðrir betur. Svo er bara að ná að muna eftir því sem fyrst að kaupa, ekki eina, nei 2 ljósaperur og slá gamla "tók 2 vikur" metið mitt
Úldið lið
Feb 20, 2006, 23:56
Djísús, sat hliðina á einhverjum útigangsmanni í strætónum áðann á leiðinni á æfingu og djísús kræst hvað maðurinn lyktaði illa, svona einhverskonar samblanda af ælu+eitthvað ógeð og varð mér bara óglatt að sitja við hliðina á aumingja manninum, ábyggilega verið svo drukkinn nóttina áður að hann hefur lagt sig í einhvern fínann ælupoll og ábyggilega líkað lyktin það vel að hann hefur ákveðið að sleppa sinni mánaðarlegu sturtu þennann mánuðinn, hallaði mér svo mikið að stelpunni sem sat við hliðina á mér að henni hefur ábyggilega ekki liðið vel greyið en verri lykt af manneskju hef ég ekki fundið áður og vill hreinlega ekki finna aftur...bjakk
Hockey
Feb 20, 2006, 03:46
Ég er búinn að komast að því að Íshokkí er bara alveg helvítis skemmtilegt á að horfa, sá einhverntímann í fyrra vetur smá brot af leik og var bara langt frá því að vera eitthvað að fíla þetta, en þar sem er búinn að fylgjast með þessu úr fjarlægð vegna gífurlegs áhuga margra vina minna og farinn að þekkja nöfnin og andlitin á þessum bestu sænsku að þá ákvað ég að horfa aðeins á leikina með sænska landsliðinu núna á vetrar ÓL og er bara orðinn alveg fastur fyrir framann imbann núna þegar þetta er, bara alveg helvítis skemmtilegt og búinn að ákveða að reyna að fara á leik með Frölunda þegar úrslitakeppnin byrjar hérna í Svíþjóð í vor.
Ein bæting + ómfrumlegt
Feb 18, 2006, 22:12
Jæja jæja, var að koma heim af mótinu: 200m: 23.14 - Riðill 5, braut 4 Mjög vel hlaupið hlaup... en engin snerpa í því bara gúddý fílingur þegar ég kom í mark. 400m: 51.26 - Riðill 4, braut 4 Ætlaði að reyna að hlaupa þetta afstressað fyrstu 300m og negla í lokin, eeennn jú fínir fyrstu 200m en var alltof slakur á milli 200-300m og kom þar með handónýt skref þannig að 36.6 í gegnum 300m og sýra dauðans síðustu 70m og því 3ja hlaupið mitt í kringum 51.2, svoldið svekktur með tímann þar þar sem miðað við æfingarnar er ég alveg viss um að ég eigi að geta hlaupið alveg mun hraðar. En sýran fór nú alveg rosalega fljótt úr löppunum og engin ógleði þannig að það er nú alltaf jákvætt já og ég rústaði báðum riðlunum mínum þrátt fyrir enga gífurlega góða tíma og ekki verra að það var til samans 3 baunar ;) En alveg helvíti gamann að sjá Emma Green, hástökkvarann hérna hlaupa 60m, en hún vann það í dag á 7.42 takk fyrir takk, greinilega vel fjölhæf þessi stelpa. En þetta þýðir sumsé að það verður ekkert SM hjá mér í vetur og ætla ég því að skella mér niður til Malmö þessa helgina og keppa á því Danska í staðinn sem síðasta mót á þessu innanhústímabili, svo er það bara æfingar fram á sumri
Smá misskilningur
Feb 17, 2006, 22:38
Í Metro í dag (sem er ókeypis blað hérna) að þá var einhver umfjöllun um undankeppnina í Eurovision sem er um helgina held ég (annars fylgist ég voðalega lítið með þessu) og var líka spurt einhverja 3 úti á götu hvað þeim þætti best við Schlagerfestivalið (sumsé Eurovision) og hefur ábyggilega verið eitthvað textabrengl í því þar sem að þarna voru 2 konur og einn 16 ára strákur og undir honum stóð: "Allir sætu strákarnir", og ef þetta hefur verið textabrengl að þá á þessi strákur eftir að eiga skemmtilega næstu vikurnar í skólanum..... En annars bara mót á morgun, alveg böns af liði skráð og held ég að ég sé í riðli með tveimur baunum í 400m, bara gamann að því, en af tilefni af mótinu er þetta bara alveg vel rólegur dagur, nokkrir strákarnir í bekknum á leiðinni hingað í póker þannig að alveg spurning að hætta þessu rugli og fara að einbeita sér að því að vinna sér inn smá peninga :)
Magnað, alveg magnað
Feb 17, 2006, 01:03
Var búinn að vera að leita að einu lagi sem ég heyrði í útvarpinu um daginn, heyrði smá brot af því og ákvað að leita að textanum á netinu og eins og það gengur og gerist þegar maður nær broti og broti að þá tekur það smá tíma að finna kvikindið, eftir það reyndi ég í langann tíma á DC en hann ákvað að vera í verkfalli þann daginn. Náði svo að koma honum í gang áðann þegar ég kannaðist svo eitthvað við nafnið á laginu og ákvað því í þessu gáfnamómenti mínu að tékka á playlistanum mínum, og jú að sjálfsögðu átti ég þetta helvítis lag, fínt að eyða tímanum í svona rugl. Sat annars í 7klst í skólanum í dag með hópnum mínum í projektinu okkar og held ég að það sé farið að styttast aðeins í annann endann á þessu, verður ágætt svona síðustu vikuna í skólanum að geta aðeins lært í hinum áfanganum líka :) En speaking of vikur, þá ákvað ég í gær að skella mér bara með æfingahópnum mínum í æfingabúðir í lok apríl, samt bara í viku þar sem þetta er í miðri skólaönn þannig að mér fannst ég vera að missa aðeins of mikið af skólanum ef ég yrði í 2 vikur, en helvíti sweet, verð í 2ja vikna páskafríi og held að æfingabúðirnar komi strax eftir það þannig að 3ja vikna frí í apríl, jú gæti alveg vanið mig við það. Var svo í fríi frá æfingum í dag þar sem ég æfði alveg þokkalega fyrstu 3 daga vikunnar og fann fína þreytu í löppunum í gær og dag og bara létt tonus dót á morgun fyrir mótið og hélt ég upp á þessa viku fyrir mót með því að skella mér 3x í nudd sem er bara sweet, líka helvíti fyndið í dag að það var einhver gaur á undan mér, ábyggilega í fyrsta skiptið í nuddi og var eitthvað stífur í kálfunum, stór og sterkur strák og öskraði hann og æpti á meðann nuddarinn var að hamast á kálfunum á honum sem glotti bara til mín á meðann og skemmti sér greinilega alveg konunglega á meðann og sagði "Iss, íslendingurinn hérna liggur bara slakur og þegir á meðann ég geri þetta við hann", síðann reis gaurinn upp eftir þetta alveg með tárin í augunum, alveg hressandi að fara í nudd eftir að horfa upp á svona pyntingu :)
Anti-net
Feb 16, 2006, 00:02
Búinn að komast að því að ég er farinn að fækka heimsóknum mínum á venjulega blogghringinn minn alveg verulega og fækka síðunum í honum í takt við það og þegar maður hefur svo nákvæmlega ekkert að gera heima að þá sýgur maður í sig allt tilgangsleysi aðra bloggsíðna eins og hetja og nærir upp fátæklegann bloggvikuskammtinn sinn. En ekki nóg með það, heldur er ég farinn að standa sjálfann mig á því að nenna ekki að logga mig inn á MSN-ið, ég sem var online liggur við 24/7 rétt drullust þá og þá til að logga mig inn í smátíma nokkur kvöld, æi bara gott oft að fá að vera í friði og getað hlustað á tónlistina í tölvunni... Og finnst ég líka orðinn alveg hugmyndasnauður í bloggskrifum, líf mitt greinilega orðið það eðlilegt að það er bara ekkert sniðugt að gerast til að skrifa um, þess vegna hefur bloggið undanfarið mest bara snúist um æfingarnar mínar, þar sem að þær eru basicly það merkilegasta sem er að gerast... Er í rauninni núna bara í algjöru tuð stuði, nema að sá gangur á að ég hef heldur ekkert til að tuða um, jú nema um það sem kemur fram í hverju einasta bloggi hjá mér, stræóar, sporvagnar og flest í þeim dúr, en þar sem ég hef nú bara ekkert annað til að röfla um, að þá ætla ég bara að röfla um strætó. En í gær var ég alveg harðákveðinn í því að mæta á réttum tíma í skólann, var kominn þokkalega snemma á fætur, búinn að sötra í mig mitt morgunkaffi, taka það bara mjög rólega, taka mig vel til, elda hádegismatinn, smyrja samlokurnar, skella öllu bling bling á sig, allt í góðum rólegheitunum, fallegur dagur, sé svo að það eru 3 mínútur í að strætóinn komi, rölti því rólega að útidyrahurðinni og er að fara að klæða mig í skónna þegar ég heyri "bruummm" og helvítis strætóinn keyrir framhjá 2MÍNÚTUM OF SNEMMA.... Ok, við erum að tala um strætó sem hefur komið 3x of snemma allann þann tíma sem ég hef búið hérna og hef sjaldann orðið jafn svekktur þar sem ég var alveg búinn að ákveða að koma á réttum tíma þennann daginn og það allt lagt í rúst og því bara tyllt sér niður fyrir framann tölvuna í svekkelsinu og skellt smá niðurdrepandi mjúzík á fóninn svona til að hún fylgdi stemningunni. Í morgun var hinsvegar allt annað á teningnum þar sem ég var gjörsamlega að drepast úr þreytu og þurfti gjörsamlega að eiga í hörku rifrildi við sjálfann mig til að komast fram úr rúminu, en ástæðan fyrir þessu öllu, alltaf ástæða fyrir öllu, en ég byrjaði að lesa "Engla og Djöfla" í fyrradag og bara festist svona í henni í gærkvöldi að ég sofnaði ekki fyrr en rétt fyrir klukkan eitt og 6klst svefn er bara ekki nóg fyrir mr. Ragnar, en allt hafðist nú á endanum og 20mín of seint varð niðurstaðan eins og einhverntímann hefur nú gerst áður, vona bara að foreldrar mínir lesi nú ekki mikið þetta blogg mitt því að þá held ég að ég sé farinn að skapa smá áhyggjur á þeim bæ...... En annars 2x300m í dag frá startblokk að reyna að finna þennann blessaða 400m hraða fyrir helgina og gekk það nú bara alveg sæmilega, missionið að hafa þetta nálægt 36.3 og 36.2 o 36.5 er nú alveg þokkalega nálægt, en fann hinsvegar ekki alveg réttu skrefin og smá svekktur með það svona rétt fyrir mót, en þetta hlýtur nú að smella og tryggja mér SM lágmarkið.. En jæja, farinn að hlusta á : Carola - Främling: Gamalt sænskt og gott með henni Carola, must að læra fyrir næsta kareoke partý. Bob Sinclair - Love Generation: Ekki annað hægt en að komast í gott skap við að hlusta á þetta lag. Chris Brown - Run It: Æi bara töff, alveg að fíla það Air Supply - Making Love Out Of Nothing At All: Var í Mr. & Mrs Smith, lag sem ég man að ég var að leita að fyrir löngu síðann með Bonnie Tyler en finnst þessi útgáfa betri þannig að þetta verður nú að fá að fljóta nokkra hringi James Blunt - Goodbye My Lover Ég veit, ég er geðveikur, en meðaltalið 5x á dag er bara ekki að fara lækkandi þrátt fyrir að vera komið á sjötta mánuðinn í spilaranum...
Främling
Feb 13, 2006, 23:47
Ef það er eitthvað verra en að mæta of seint í skólann (jú ok, er mjög margt verra en það, annars væri ég vond manneskja) en þá er það að mæta á réttum tíma í skólann til að vinna áfram með hópverkefnið okkar í forrituninni klukkan 8:30 og komast að því að serverinn í skólanum lá niðri. Þannig að við sátum þarna og lítið hægt að gera í cirka 2.5klst þangað til að draslið komst aftur í gang, hve mikið maður grét yfir því að hafa ekki bara sofið út. En basicly alveg rosalega róleg helgin hjá manni, koma tölvunni í lag, vinna á laugardagsmorgun og restin af helginni, að meðtöldum kvöldunum fór svo í lærdóm, ekkert smá stoltur. En æfingin í dag gekk bara alveg ljómandi vel, 2x150m og 2x120m þar sem að þessir 150m voru ekki alveg nógu vel hlaupnir en þrátt fyrir það 16.3 og 16.4 en náði hinsvegar að fínpússa þetta fyrir 120m og voru þeir alveg dúndurgóðir þannig að ég er alveg hæfilega bjartsýnn fyrir að þetta geti smollið um helgina, nokkuð róleg vika, hopp á morgun, 2x300m á miðvikudaginn á svipuðum hraða og þessir á föstudaginn og svo bara þokkalega rólegt fram að mótinu þar sem ég hleyp 200m og 400m og fæ þessa fínu 2klst hvíld á milli sem er nú bara alveg yfirdregið nóg og verð ég í rauninni að ná að hlaupa almennilega þarna ef ég ætla að vera með á SM en þar er lágmarkið 50.4 minnir mig, en ef þetta verður eins og síðustu 400m hlaup að þá held ég að ég fari bara á það danska í staðinn og eftir það tekur við æfingatörn fram að sumri. En raka sig, var víst búinn að lofa sjálfum mér því í kvöld
Allt komið í gang
Feb 12, 2006, 03:13
Jæja, eftir miklar vangaveltur, breytingar, simtöl og hjálp frá Ara og meira til að þá er síðan komin aftur í fullt gang, commentin farin að virka og vonandi allt í lagi, endilega láta mig vita ef það er eitthvað eins og það á ekki að vera. En lítur sumsé út fyrir að serverinn hafi verið hakkaður eða einhvern djöfullinn þannig að málið að reyna að verja hann betur og búinn að setja hann betur upp núna þannig að það ætti amk að vera erfiðara að hakka inn á hann núna (eða það vona ég amk) En já, tók sumsé 3x300m æfinguna í gær og átti þetta að vera á cirka 400m tempói og frjáls hvíld á milli. Fyrsti var nákvæmlega eins og fyrstu 300m í Malmö hlaupinu um daginn, lélegt frá A-Ö, alltof stressað hlaupið með lélegum skrefum, 22.8 í gegnum 200m og hreyfðist varla síðustu 100m, tíminn 35.9 og vel þreyttur og súr eftir það. Ákvað að taka ekki meira en 20mínútna hvíld á milli og annar mun betur hlaupinn, fyrstu 200m á 23.1 og tíminn 36.1 á 300m en samt of þreyttur síðustu 50m. hvíldi aftur í 20mín og hljóp þá síðasta sem var í rauninni alveg fullkominn, rosalega afstressað og fínt, nákvæmlega engin áreynsla, fyrstu 200m á cirka 23.5 og 300m tíminn á 36.1 og engin sýra né þreyta eftir hann, hélt fyrst að þetta hefði verið alltof hægt þar sem þetta var svo rosalega létt, þannig að spurning að finna þetta bara á mótinu um næstu helgi þar sem 200m og 400m eru á dagskrá, 200m fyrst og 400m tæpum 2klst síðar þannig að nægur tími til að hvíla sig þar á milli. En á leiðinni heim lenti ég í því í amk annað sinn frá því að ég flutti hingað að ég sat í sporvagninum á spjalli á sænsku þegar einhver róni sem sat fyrir aftan mig bankar í mig og segir "Þú ert frá Íslandi er það ekki??" (á sænsku þeas) og ég var bara alveg wtf er í gangi hérna..... doltið spúkí sko!! En dagurinn í dag fór annars bara í lærdóm með Groten sem kíkti í heimsókn hingað og éta hamborgara A'la Ragnar, Groten alltaf jafn himinnlifandi að fá svona veislu hjá mér. En spurning að koma sér í klst vinnu í forritunarprojektinu þar sem síðan er aftur komin í gang og SOFA ÚT Á MORGUN, algjörlega þörf á því núna eftir þetta serveravjézen!!!
Síðan í messi
Feb 10, 2006, 18:37
ooohhhhh, síðan er í einhverju helvítis rugli núna, hef ábyggilega náð að fucka henni upp með einhverjum Ragnarshætti þannig að það er ekki hægt að commenta, sumir fá upp pop-up glugga og sumir sjá engar myndir.... díííí og ég sem held að ég hafi ekki breytt neinu á henni.... reyni að fixa þetta í kvöld
ííííííííííí
Feb 09, 2006, 21:35
Þannig hljóðar klósettið hjá mér nú til dags þegar ég sturta niður, frekar mikið hátt og skerandi ískur í alltof margar sekúndur. Vegna ástandsins var haldinn íbúðarfundur í eldhúsinu fyrir skóla í morgun þar sem við félagarnir, ég, Snati og Depill lögðum á ráðin um hvað sem gera skyldi, lítið gáfulegt kom fram á fundinum þar sem að tvær plöntur hugsa ekki alveg heila hugsun áður en þær tala í kapp ofaní hvora aðra þannig að mest var þetta neðan mittis húmor þannig að ég ákvað að slíta fundinum áður en þetta færi útí meiri vitleysu og spá bara að hringja í pabba heima í kvöld og leita ráða því að þetta hljóð er að gera mig alveg brjálaðann og farinn að spá alvarlega í að fá mér bara kopp og fleigja því svo útum gluggann eftir notkun hverju sinni. En veðráttan hérna er eitthvað alveg ekki á ákveðnu nótunum, búið nottla að vera sleipt frá helvíti en í morgun var svona mest að verða horfið af gangstéttunum sökum hlýinda þegar um miðjann daginn allt ákvað að kólna pínu og jólasnjókomann leit dagsins ljós 1.5 mánuði of seint en ekki frá því að "Jingle bell" hafi hljómað innst inni hjá manni í kolvitlausum takti á meðann maður raulaði hakúnamatata við litlar vinsældir nástaddra. En plús dagsins fær strætóbílstjórinn sem ég keyrði með á leiðinni á æfingu í dag, eftir að hafa beðið á meðan brúin var opin og lent svo á eftir biluðum sporvagni á leiðinni og orðinn frekar mikið of seint að þá ákvað kallinn bara að taka þetta til sinna ráða og sveigði framhjá sporvagninum og keyrði ofaná gangstétt og ruðningi hægt og rólega, með tveimur næstumþví er-fastur stoppum, með 10cm bil á milli síns og sporvagnsins og snjóskafla hinummeginn hafðist þetta nú að lokum og komst ég heill og sæll á æfingu þar sem ég fann fyrir langþráðum fílingi í löppunum sem ákváðu bara að brillega svona in i helvete, hefði verið alveg voðalega gamann ef þetta hefði verið hlaupaæfing en ekki hoppæfing, bara tjúna sig vel upp og gera sig ready fyrir 3x300m max æfinguna á morgun með fríum hvíldum! En svona á meðan ég man: Eru margir sem fá upp pop-up glugga þegar þeir fara inn á síðuna mína (eða sjá að pop-up glugginn blokki það) ?? Er nebbla búinn að fá kvörtun um það og væri alveg til í að fólk myndi láta mig vita ef það væri að fá einhverja óþekktar pop-up vitleysinga af síðunni minni, á að sjálfsögðu ekki að vera neitt svoleiðis ógeð á henni!
Munur
Feb 08, 2006, 18:50
Gærdagurinn: Vaknaði langt á undan því sem ég ætlaði að gera, vel útsofinn og því sprækur þegar ég lagði af stað í skólann í sól, logni og smá hita þannig að maður fann bara hvernig lifnaði yfir sjálfum sér á leiðinni í skólann og var bara alveg voðalega hress of fínn yfir daginn eða þangað til ég kom á æfingu, skeit á mig þar, fór svo heim og forritaði í cirka 3klst áður en ég fór að sofa. Dagurinn í dag: Svaf fínt yfir mig og fór því dauðþreyttur í skólann, rigning, slabb og ógeð þannig að maður hefur verið eins og skítur í allann dag og mest bara langað til að fara heim að sofa, sem betur fer bara létt æfing en sama mission í kvöld sem og í gær, forrita nema að núna bætist við 1klst pása sem fer í OC :) En alveg ótrúlegt hvað veðrið hefur alveg rosalega mikil áhrif á skapið á manni, en það hefur verið alveg voðalega lítið um sól undanfarið, mikið um þoku slabb og viðbjóð en þessa fáu sólardaga hefur lífið bara alveg leikið við mann og maður bara hreinlega hoppar, hlær og hefur gamann af lífinu og tilverunni á meðann þessa ekki-góðu-veðra-daga að þá virðist ekkert geta rifið mann uppúr sjálfsvorkuninni og blautum köldum tánum!
Mér finnst rigningin svo góð.....
Feb 06, 2006, 19:55
.... á heitum sumardegi í blanka logni og svona 30°C en ekki þegar það er nýbúið að snjóa!! En í gær og í nótt snjóaði alveg svona þokkalega (amk miðað við að vera í Gautaborg) og því allt voðalega hvítt og fallegt þegar ég vaknaði í morgun og var það ótrúlega heimskur að fara bara í lágum skóm í skólann því að eins og alltaf gerist í þessari blessuðu borg þegar það snjóar að þá er stutt í rigninguna og mígringdi í morgun og búið að vera svona við og við í dag þannig að ég er basicly búinn að vera blautur á tánum frá því klukkan 9 í morgun og þangað til ég kom heim fyrir stuttu, sem er ekki alveg það ferskasta í heiminum get ég sagt ykkur, sé voðalega eftir því að hafa ekki keypt mér vöðlurnar sem ég var að spá í að kaupa mér í gamla daga þegar ég stóð í stígvélum í mittisdjúpum sjónum í fjörunni heima að gera heiðarlega tilraun til að veiða fisk. Afrekaði svo í dag, annað skiptið á einni viku að gleyma símanum mínum heima þegar ég fór í skólann. Og alveg ótrúlega er maður háður þessu kvikindi, manni leið bara illa, þurfti að hringja í einhvern og bara neeeiiii, þú getur það ekki, ÞÚ ERT SÍMALAUS, já símar eru frá djöflinum held ég, en samt langar mig nú í nýjann síma og kröfurnar eru 1stk núll takki og velvirkur hátalari, ekki meiri kröfur á mér í augnablikinu, en skemmir að sjálfsögðu ekki að hann geti tekið súpergóðar myndir og spilað MP3 :)
Almenn leti og aumingjaskapur
Feb 05, 2006, 18:22
Vá hvað það er rosalega mikill sunnudagur í manni, hreinlega ekki að nenna nákvæmlega neinu og ekki búinn að afreka að gera nákvæmlega neitt í dag. En var heima hjá Groten í smá partýi í gær til cirka 3 í nótt, kom heim, stillti vekjaraklukkuna snemma þar sem ég átti að mæta í morgun og starfa á krakkamóti sem var niðri í höll í dag en tók ekki eftir því að batterýið var víst alveg að verða tómt og vaknaði því uppúr 1 leytið í dag eða 3klst of seint og síminn alveg steindauður, held ég verði vinsælasti maðurinn í friidrottshus á morgun :( Liverpool er að tapa fyrir Chelsea í augnablikinu, lítið sem ekkert í sjónvarpinu, spá í að skella mér kanski á Eurojump á miðvikudaginn, sé til hvort ég nenni en gæti orðið helvíti gamann að kíkja á það, allnokkur stór nöfn og gamann að sjá hvort að Kajsa bæti ekki bara heimsmetið aftur í hástökkinu, yrði ekki leiðinlegt að sjá það
Statement
Feb 04, 2006, 16:01
Jæja, spurning að rumpa þessu móti út úr sér. Núna man ég amk afhverju ég hætti að æfa fyrir 800m, en mér var bara farið að finnast það vera hálfleiðinlegt og dagurinn í dag var engin undantekning, meira bara svona undirstrikun á því að ég er hættur að hlaupa 800m! En alla vikuna hefur mig alveg voðalega lítið langað til að hlaupa þetta hlaup og bara hálfkvíðinn fyrir því en var nú alltaf viss um að þegar ég væri kominn af stað að þá myndi ákveðnin koma, EN ÉG GÆTI EKKI HAFAÐ HAFT MEIRA RANGT FYRIR MÉR. Einn strákurinn hafði boðist til að héra fyrir mig 27.5s-56 og sjá svo til hvað hann myndi gera. En strax eftir 200m kom bara upp í hausinn á mér "Crapp, 3 hringir ennþá eftir", kom í gegn 400m á 57 og búinn að sleppa stráknum einhverja metra frá mér og farinn að finna fyrir smá þreytu, langaði mest bara að hætta eftir 500m, sleppti þremur framúr mér eftir 650m og reyndi ekki einu sinni að hlaupa í þá, bara rúlla í gegnum restina af hlaupinu og komast í mark og hætti í rauninni að hlaupa þegar 5m voru eftir, bara hreinlega ekki að nenna þessu, tíminn 2:00.59 í því sem lítur út fyrir að vera mínu síðasta 800m hlaupi í langann tíma. Rölti svo til þjálfaranna minna og útskýrði fyrir þeim alla súpuna til að taka þetta wtf-svip af andlitinu af þeim en þökkuðu þeir mér amk fyrir hreinskilnina. Þannig að núna ætla ég bara að hlaupa 400m og eitthvað 200m því að það finnst mér voðalega skemmtilegt að hlaupa. En já, hljóp líka 60m í dag á undan 800m hlaupinu og kom þar berlega í ljós að ég hef ekkert verið að æfa neinar stuttar neglingar og var þetta bara alveg ljómandi fín hraðaaukning sem hefði dugað vel í 100m eða 200m hlaupi, tíminn 7.45 í mjög tæknilega séð góðu hlaupi, en bara einfaldlega engin negling beint. En núna tekur við góð æfingavika þar sem það er ekkert mót um næstu helgi og taka svo 200m og 400m um þarnæstu helgi.
Múv DAUÐANS
Feb 02, 2006, 20:44
og við erum að tala um að titillinn er bara vægur!! Held ég hafi mögulega náð þeirri asnalegustu dettu sem mér hefur mögulega tekist að gera í mínu 23.5ára lífi. En ég lá uppí sófa að glápa á DN-Galan, frjálsíþróttamót í Stokkhólmi, og reisti mig upp til að gá hvernig gengi að ná í bíómynd kvöldsins, gekk það bara vel þannig að ég ætlaði að leggja mig aftur í sófann, lagði því hægri hendina á hann og ætlaði að snúa mér í hring þannig að ég myndi lenda með bakið í honum, en þegar ég var kominn hálfann hring að þá rann koddinn til sem hægri hendinn var ofaná og ég hætti að snúast til hægri og byrjaði að snúast ofurhægt (gerðist amk mjög hægt í hausnum á mér allt samann) í hina áttina með hægri löppina einhverstaðar lengst uppí lofti og var að sjá að ég væri ekki að ná jafnvægi og fyrsta sem kom uppí hausinn á mér "SHITT, GLERBORÐIÐ ER HINUMMEGINN" og hélt áfram að snúast í kolvitlausa átt, áttaði mig svo á því að ég gæti ekki stoppað mig þannig að ég sleppti hendinni og hrundi niður á golfið en náði ekki að kippa hægri löppinni nógu snemma og *spliff-donkoggengjan* brothljóðin sem heyrðust, þorði varla að opna augun því að ég var viss um að þetta var borðplatan sem hefði maskast þarna en þegar ég opnaði augun sá ég mér til minni óhamingju að löppin hafði lent beint ofaná 2 matardiskum sem voru á borðinu frá því að ég hafði verið að éta rétt áður og þeir tveir diskarnir alveg í maski á borðinu EN BORÐIÐ ALVEG HEILT :) En alveg ljóst að ég get ekki boðið fleirum en 3 í mat hjá mér í augnablikinu!!
600m test
Feb 01, 2006, 18:55
Prufaði að hlaupa eitt 600m hlaup á æfingunni í dag svona til að fá smá fíling fyrir 800m um helgina og planið var að hlaupa á 1:22-1:23 sem tókst jú svona ágætlega. Var nú alveg þokkalega stressaður fyrir testið og var planið að hlaupa fyrstu 200m á cirka 27sek en sagði við Palmas að ég væri ekki alveg með fílinginn fyrir 27sekúndunum áður en ég lagði af stað, og svo var lagt í hann. Mjög afslappað og fínt fyrstu 200m þangað til ég heyri tímann "25.5" og kom þá þessi feita "SHITT, ÉG Á EFTIR AÐ DEYJA" hugsun upp í hausinn á mér og ætlaði ég því að reyna að draga smá úr hraðanum á milli 200-400 en tók aðeins of mikið af honum og kom á 54.5 í gegnum 400m, kíkti svo smá sýra í heimsókn síðustu 150 en enginn veggur beint og hélt hraðanum alveg sæmilega og lokatíminn 1:23.0 og bara alveg þokkalega sáttur, eða amk hausinn, ekki maginn þar sem að hann ákvað að létta á sér pínu eftir þetta og mæli ég bara alls, alls, alls ekki með að éta Falukorvgums A'la Ragnar + mikið af stöppu í hádegismat fyrir mögulega æluæfingu, djöfulsins viðbjóðslega eftirbragð sem þetta var!!! En annars, ÞRIÐJA SERÍAN AF OC AÐ BYRJA Í KVÖLD :) :) :) :) :)

local