Pínu sjokk jú
Dec 31, 2005, 00:00
Djöfulli langar mig ekki neitt að minnast neitt á þetta mót sem var áðann, basicly hinn hreinasta hörmun frá A-Ö, en held að maður verði bara að viðurkenna mistök sín og vinna út frá þeim til að bæta sig. "Hljóp" sumsé 400m áðann í nýju höllinni, ákvað að hafa orðið hlaupa innann gæsalappa þar sem að mikill vafi er að þetta hafi verið hlaup. En niðurstaðan: 53.39 (minnir mig) sem er btw mitt hægasta 400m hlaup í..... hmm... 15.júní 2002 þegar ég hljóp eftir að hafa verið með Kamfílóbakteríuna, takk fyrir takk og held samt að ég hafi aldrei verið jafn hraður og ég er núna! En fílingurinn var bara alveg útí rassgati, var hrikalega hægur í upphituninni og engin snerpa í hraðaaukningunum, fékk svo algjörlega keppnislaust hlaup þar sem ég splittaði 200m á 24.3 sem var tæpri 1sek hægara en planið var plús að það var miklu erfiðara vegna þess hve illa hlaupið það var. En var búinn að ákveða að verða ekki fúll ef ég myndi hlaupa lélegt hlaup, þrátt fyrir að vera ekki undirbúinn undir svona hörmung. En gerði reyndar ekki mikið á meðann ég var í bænum, basicly ekki neitt svona fyrir utan að æfa, sem gekk bara alveg ljómandi í gær, sjaldann hlaupið jafn vel og þá þannig að var alveg helviti bjartsýnn fyrir daginn í dag og svo í dag var ég að betrumbæta login hlutann á síðunni minni sem fer að verða kominn aftur í nothæft stand eftir 3ja mánaða rugl, sem er bara jákvætt :)
På väg söderut
Dec 28, 2005, 11:35
Jæja jæja jæja, sit núna bara hérna á chillinu að bíða eftir farinu suður en fer þangað á eftir og verð til föstudagskvölds (eða seinna ef öll för klikka) en ætla að ná að hlaupa eitthvað í kvöld og morgun og keppa á föstudaginn, alveg gríðarleg stemning í því. En kíkti á annan jóla djammið hérna í bænum í fyrradag, sem var jú, annar í jólum og bara, jaahhh, jú skemmti mér alveg konunglega í förfestinni þegar maður var að hitta alla en svo var djammið á barnum bara svona ekki mikið meira en lala þar sem mér fannst bara vera alveg alltof mikið fólk þarna og djammfílingurinn bara ekki alveg til staðar, sussumsvei hvað maður er að verða gamall, líka búinn að ákveða að vera bara þokkalega rólegur um áramótin, chilla bara heima hjá mömmu og pabba fram yfir miðnæti í fyrsta skiptið í allmörg ár og kíkja svo bara kanski á ball eftir það, bara ekki alveg búinn að negla neitt niður. En fer svo aftur heim til Gautaborgar eftir 6 daga... vá hvað þetta er fljótt að líða, hef ætlað að gera svo margt en komið mér í rauninni í lítið vegna þess að ég hef verið svo upptekinn við að gera lítið, mjög merkilegt allt samann, en var alveg helvíti fín stemning hérna í gærkvöldi þar sem að Arnar Már og Ari kíktu að norðann hingað, Arndís bakaði súkkulaðiköku og heitann rétt og svo kíktu S.Arnar, Katý og Anna Beta og spiluðum við Partý & Co og Viltu vinna milljón, niðurstaða kvöldsins: PANT VERA ALLTAF MEÐ ARNARI MÁ!!! en það er gjörsamlega ómögulegt að vinna þennann dreng ef leikirnir tengjast spurningum. Keppti svo líka í gær á innanhúsmóti UMSS í hvorki meira né minna en langstökki án atrennu, hástökki og kúluvarpi. Langstökkið rétt bjargaðist fyrir horn í lokinn þegar ég drullaðist rétt yfir 2.90 og stökk 2.92 en alveg skammarlegt ef það er styttra en það, hástökksgetan lækkar svo alltaf niður um 5cm á hverju ári og endaði ég með 1.65 sem er að sjálfsögðu skammarlegt fyrir mann sem á 1.85 en átti ég reyndar alveg salinn sem fær góðar þakkir fyrir stuðninginn þegar maður þurfti á að halda ;) Já og kúluvarpið.... come on, ER ÉG KÚLUVARPSLEGUR, en kastaði 8.61 sem er alveg 40cm styttra en ég á, en fæ góðann plús fyrir gríðarlega fallegann stíl auk öskrisins sem ég notaði í síðasta kastið, fór reyndar svo mikil orka og einbeiting í öskrið að kastið var örstutt og ég flaug á hausinn :) En vonum að 400m hlaupið á föstudaginn verið jákvæðara en þessar greinar :)
December vs Júní
Dec 26, 2005, 12:46
24-25.December 2005: 10°C Júní 2005: 3-8°C Já ekki frá því að ég fari bara að taka snjógallann með mér ef ég kem til Íslands næsta sumar og stuttbuxurnar um næstu jól, því að það var hlýrra um jólin núna heldur en það var þegar ég var hérna í sumar eins asnalega og það hljómar, reyndar bara í 2-3 daga því að á fimmtudag var -10° frost og núna þegar ég ligg uppírúmi í tölvunni og lít útum gluggann að þá er snjór, thanx you fucker, just two days to late!!!! En núna er tími jólaboðanna og var því skellt sér í 2stk í gær og fer norður á AK á eftir í eitt í viðbót, bara stuð og stemning í því, reyndar helvíti nálægt því að éta yfir sig í gær, en viktunin gleymdist reyndar alveg fyrir þau átökin, en ég og litli bróðir viktum okkur alltaf fyrir og eftir matinn á aðfangadag og var gífurleg vonbrigði annað árið í röð þegar ég þyngdist aðeins um 1.9kg en litla kvikindið náði 2.0kg og því aðfangadagur ónýtur. Reyndar aldrei verið jafn nálægt 70kg áður en fór uppí 69.4 sem hefur held ég ekki heldur gerst áður en var reyndar búinn að missa þessi 1.9kg morguninn eftir :) En annars að spá í að keppa á mótinu 30.des og þá í 400m, langar alveg helvíti mikið að taka svona smá test og sjá hvort maður geti nú eitthvað í þessari annars ágætu vegalengd
We wish you a merry xmas
Dec 24, 2005, 10:14
Planið í gærkvöldi var að sofa alveg vel og lengi út í morgun, niðurstaðan: vaknaði hálfátta og lá uppí rúmi í klukkutíma, bara hreinlega langt frá því að vera þrettur og geta sofnað og kenni þar algjörlega hausnum þar um þar sem að það komu alveg 1000nýjar pælingar og hugsanir á sekúndu og þá er bara hreinlega ekki hægt að sofna. En jólafílingurinn er bara langt frá því að vera kominn í heimsókn og hef ég því núna 9klst & 20mín í að finna hann og skella honum beint í æð en annars hefur fílingurinn síðustu jól bara verið einhvernveginn bara eins og venjulegir dagar, veit ekki alveg hverju á að kenna um, snjóleysi, hef reyndar ekki ennþá séð neinn jólasvein í ár, held að maður verði að leyta þá uppi í bænum í dag og skipa þeim að koma til Dalatún 12 og gefa mér pakka. En gæti náttúrlega líka verið að ég klúðraði náttúrlega þorláksmessunni alveg þegar ég var búinn að kaupa síðustu jólagjöfina uppúr 4 í gær og klúðraði þar með algjörlega þorláksmessukvöldstemningunni en bara alveg vel sáttur með allar jólagjafirnar sem ég ætla að gefa í ár enda peningastaðan mun betri heldur en í fyrra. Hirriðið já, svo er missionið núna að standa sig betur í jólapakkainnpökkuninni heldur en í fyrra, hálf skammaðist mín nefnilega því að þá fattaði ég rétt fyrir kvöldmatinn á aðfangadag að ég átti eftir að pakka inn öllum jólagjöfunum og varla til jólapappír eða neitt, en það reddaðist nú allt sem betur fer þannig að spá í að sleppa því stressi í dag. Kom svo fjölskyldunni inn í Achtung Die Kurve í gærkvöldi og spiluðum hann alveg heillengi í gærkvöldi og alveg djöfulsins stemning, varla heyrt jafn mikil blótsyrði meðal fjölskylduaðila frá því að við spiluðum síðast Hættuspilið sem ég held að verði bara ekki spilað aftur innan fjölskyldunnar.. En jæja, nóg í bili, spurning að fara að koma sér í bað og pakka inn, þannig að ég óska bara öllum gleðilegra jóla :)
Honkí kónk
Dec 22, 2005, 21:03
Kíkti norður á Akureyri í gær á æfingu og svo á King Kong í bíó, alveg rúmlega 3ja tíma mynd þannig að maður var á ferðinni svona frekar seint heim í gærkvöldi, en alveg hin fínasta mynd sko, gamann að því að bæta við risaeðlum og fleiri snilldardýraandskotum. En svo já, haldiðið að strákurinn sé ekki bara búinn að kaupa allar nema eina jólagjöf OG ENNÞÁ 2 DAGAR TIL JÓLA!!!! en varð að sjálfsögðu að skilja eftir eina fyrir þorláksmessukvöld enda engin jól ef maður breytir því útaf vananum. En annars bara róleg vika í æfingunum enda átti þetta að vera róleg vika, tekið vel á því í næstu og ætla að kíkja suður í cirka 2 daga og ná að hlaupa almennilega í höllinni þar og aldrei að vita nema maður keppi á mótinu 27:nda eða 30:sta bara spurning hvort ég ætli að hlaupa 200 eða 400m bara hreinlega ekki búinn að ákveða mig en bara alveg dauðlangar að prufa og hlaupa í nýju höllinni og svo eiginlega líka búinn að ákveða að koma hingað heim fyrir MÍ innanhús og keppa þá helgina, svona eiginlega búinn að negla það niður. En líka búið að vera nóg að gera hér heima bara, setja upp netið fyrir allt húsið, bæði þráðlausadæmið og annað, núna 3 tölvur í gangi í húsinu og spá þessvegna líka bara í að setja serverinn í gang aftur, þá núna með Linux og aldrei að vita ef vel tekst að ég hendi síðunni minni þangað inn aftur :)
I'm alive and fucking freezing
Dec 19, 2005, 14:20
OK, frá byrjun, forritunarprófið gekk bara alveg ljómandi þrátt fyrir lítinn sem engann lærdóm, næ því alveg örugglega. Þá er það lítil og stutt ferðasaga: Ok ég ákvað að vera svo gáfaður að henda töskunni minni niður á lestarstöð í geymslu þar svo að ég þyrfti ekki að vera að brastast með hana svona snemma á sunnudagsmorguninn og ákvað Gauti að gera það sama enda endalaust góð hugmynd þar á ferð. Síðann var lagt af stað með sporvagni niður á lestarstöð klukkan 05:25 um nóttina og vorum komnir uppúr 20mín í 6 niður á lestarstöðina og því 20mín til að ná í töskurnar og koma okkur uppí rútuna en þá byrjaði vjézenið því að rútustöðin og lestarstöðin eru 2 einingar og opnaði lestarstöðin ekki fyrr en klukkan 7:30 og töskurnar okkar því læstar inni þar og því góða hugmyndin mín.... jahh ekki góð lengur og því alveg góð ráð dýr um hvernig í andskotanum við ættum að ná að redda töskunum og 20mín í brottför. Hlupum því inn í rútustöðina að leita að einhverju starfsfólki og þurftum að bíða til korter í 6 eftir því að miðasalan oppnaði og báðum kellinguna þar um að hringja í öryggisverðina til að fá þá til að reyna að opna fyrir okkur, eftir smá stund náði hún sambandi við einhverja og senti okkur bakvið þar sem við áttum að bíða eftir þeim og komum við þangað cirka 10mín í 6 og sáum nákvæmlega ekki neinn þar, biðum í cirka 5mínútur og þá komu tveir öryggisverðir sem voru svo elskulegir að opna fyrir okkur þannig að við tókum sprett inn og náðum í töskurnar og hlupum eins hratt og hægt er að komast með risaferðatöskur í eftirdraginu enda höfðum við ekki hugmynd hvar strætóinn var, fórum því aftur í afgreiðsluna og spurðum kellinguna og benti hún okkur þá á einhvern hvíta rútu sem stóð þarna rétt hjá og sagði að við gætum alveg verið rólegir, þannig að við bara yes og röltum að honum. En þegar við komum að honum sáum við að hann var gjörsamlega tómur auk þess sem það stóð OSLÓ á honum ,kom þá smá fát á drengina þar sem það var 1mín í að rútan átti að fara, en sáum við þá aðra alveg eins rútu cirka 200m í burtu þar sem einhverjir voru að loka farangursgeymslunni og labba inní, þannig að þá var sett pb í 200m með tösku og rétt náðum þegar síðasti gaurinn var að labba inn og komumst því til Köben, alltaf fínt að fá smá stress í sig svona rétt í morgunsárið, því að ef við hefðum ekki náð þessum strætó að þá hefðum við basicly misst af fluginu þar sem þetta var eina kvikindið sem fór þennann morguninn og náði í tíma fyrir flugið. En restin af ferðinni gekk bara alveg ljómandi vel og kom inn í þetta ljómandi góða ógeðslega veður hérna, skítakuldi og viðbjóður. En er reyndar ennþá staddur í Teykjavík þar sem farið mitt tafðist um 1dag og er því bara að bíða eftir að komast heim á krók og geta tekið það almennilega rólega
Pússluspil
Dec 16, 2005, 23:22
Yeah, fékk í jólagjöf frá mömmu og pabba svona sjónvarpshillu, ef það er hægt að kalla það það, sem ég valdi mér sjálfur og var alveg kominn tími á að fá sér það sem þessar tvær kommóður voru bara ekki alveg að meikaþað undir sjónvarpinu, auk þess sem önnur var aðeins lægri þannig að því var að sjálfsögðu fixað með 3settum af símaskránni. En ég vel hinsvegar alltaf bestu tímasetningarnar í allt, fékk mér massa breiðband á sunnudaginn, einum degi fyrir prófvikuna og fór í að setja hilluna samann í dag, daginn fyrir síðasta prófið, reyndar orðinn áhyggjufullur yfir því hvað ég er alltof rólegur fyrir þetta blessaða próf og sit því hérna klukkan 23:09 að drekka kaffi og gera mig ready fyrir næturlærdóm, svona í fyrsta skiptið á ævinni.... ef ég nenni.. En amk að þá tók þetta alveg svona 100x lengri tíma að setja þetta samann en ég hafði búist við, eins og allt sem ég geri að þá reikna ég með að það taki ekki meira en klst, en well well... Já og hvað er málið með að hafa þetta svona í fucking öreindum, hefði nú alveg verið hægt að gefa mér smá breik og vera búið að setja smá samann. En amk, yfir 100stk skrúfur + 127 naglar, hrikalega margar plötur, glerhurð og 3 glerhillur sem ég var nú búinn að setja 1000kr í pott að ég myndi brjóta áður en ég byrjaði. En endaði nú bara á því að verða eitthvað um 4klst verk en hrikalega sáttur með útkomuna, bara svo miklu heimilislegra en kommóðurnar. Tókst samt næstum að brjóta helvítis glerhurðina í byrjun, en ákvað að setja hana langt í burtu þar sem ég væri ekkert að rekast á hana en tókst það nú samt einu sinni og var hún á leiðinni í golfið þegar ég með mín hrikasnöggu viðbrögð náði henni þegar hún var hálfnuð á leiðinni, shitturinn hvað ég svittnaði mikið þá, en niðurstaðan er sumsé þessi hérna snilldarhilla:
Þannig að núna er bara að kaupa meira af smádrasli og fylla kvikindið :) Já, tók svo eitt stk test í dag á æfingu, 2x300m, og svona...... æi ok, skal reyna að vera jákvæður, bara fyrir Burkna.. hmmmmm, hljóp 0-100m og 200-300m vel, en þar inn á milli gerðist bara hreinlega ekki neitt í báðum hlaupunum sem er svona pínu áhyggjuefni, en tímarnir 36.2 & 36.7 og kom algjörlega óþreyttur og eigi glaður í mark eftir seinnisprettinn þar sem að missionið fyrir þá var að skella báðum undir 36, en tek þetta ábyggielga aftur í júní þegar ég kem hingað aftur eftir jólaátið og þá verður ekki sætt sig við neitt yfir 35.99... Reyndar fílingurinn bara ekki verið jafn hrikalegur fyrir fyrri sprettinn í allann vetur, síðasti dagurinn í þessari 3ja vikna æfingaperiodu sem hefur bara verið hrikaelga strembin og því róleg næsta vika, en var bara hrikalega ferskur í löppunum, reyndar vel stressaður og adrenalínið í botni og því niðurstaðan: of mikil átök, verð bara að læra að slappna aðeins af þegar ég hleyp lengra en 200m.. En já, ætlaði víst að læra í kvöld.. próf á morgun klukkan 14:00 og á svo eftir að pakka og gera nákvæmlega allt klárt áður en ég kveð kotið og Snata sem verður sendur í pössun til Groten þannig að annaðkvöldið er algjör spurning!!
En tenta kvar och snart hemresa!!
Dec 16, 2005, 09:50
Om du var min nu så skulle jag va' din nu Jag skulle aldrig lämnat det vackra vi haft Om du var min nu så skulle jag vara din nu Jag skulle hålla om dig av hela min kraft Fín stemning í að syngja smá með Nanne Grönwall hérna svona ferskur í morgunsárið en smá review frá gærdeginum: - Það var víst stærðfræðipróf í gærmorgun, hélt mig vera þokkalega vel undirbúinn, flengdi þessar æfingaspurningar sem við fengum frá kennaranum og bjóst við að prófið yrði eitthvað í þeim dúr.... ég hafði rangt fyrir mér, hrikalega erfitt próf og sat í fyrsta skiptið í meira en 2-2.5klst í prófi en var í 3klst og 10mín þegar ég ákvað að yfirgefa svæðið, hreinlega ekkert alltof viss um að ég náið því og býst við að verða á bilinu 15-25 stig (20 til að ná) basicly allt eftir hve góð giskin mín hafa verið, já og hvort að brandarinn á aftasta blaðinu gefi stig :) Jólagjafainnkaupadagurinn minn var í gær, og komst ég að þeirri niðurstöðu 23árið í röð að ég er algjörlega hugmyndasnauður þegar kemur að jólagjöfum og það er alveg ótrúlega leiðinlegt að rölta í búðum að leita basicly að einhverju, og ekkert handa sjálfum sér, þannig að ég reddaði mér einni jólagjöf handa sjálfum mér, lítið af smádrasli í íbúðina og í lokin, jólagjöf handa LITLA bróður. Reyndar alveg merkilegt að þegar ég tek æfingu sama dag og ég hef verið í prófi að þá er ég alltaf eitthvað voðalega slappur á þeim og seigur, en í gær var lyftingaræfing þar sem cleanið gekk hreinlega ekki þannig að vonandi að það þýði þá bara góð æfing í dag, en ég tek test í dag 2x300m með frjálsri hvíld og á að negla eins hratt og ég get á þetta þannig að það verður bara stemning :) Síðasta prófið svo kl 14:00 á morgun og djöfulsins gleði og hamingja sem það verður eftir það, en nokkuð vel afslappaður fyrir það próf en síðan er algjörlega spurningamergi (?) hvað ég geri eftir það, kemur í rauninni fernt til greina vegna þess hve smeykur ég er að sofa yfir mig í 06:00 rútuna: - Kíkja í eftirtentafest hjá Pontus um kvöldið og fara með strákunum úr bekknum á dansiball í skólanum eftir það, sleppa því að sofa og beint úr djamminu í rútuna og sofa þar og í fluginu. - Kíkja í eftirtentafestið en vera bara kominn heim uppúr 12 og annað hvort leggja mig í 4klst eða bara vaka og hanga á netinu. - Hanga bara heima allt kvöldið og taka því rólega.. Ekkert alltof auðvelt að ákveða þetta shitt, en sýnist vera smá möguleiki að ég nenni að pakka eitthvað í kvöld, en annars ætla ég bara að byrja á að taka mig til eftir prófið á morgun, bara hreinlega ekki að nenna því.. En lærdómur elskurnar mínar, lærdómur
Pæling
Dec 15, 2005, 07:10
Þar sem að núna í dag er 15.desember og því 9.dagar í 24.desember og ég fer til Íslands árla morguns 18.desember sem þýðir að síðustu 6 daga fram að aðfangadegi verð ég ekki heim, að eru þá ekki reglurnar þannig að ég megi borða 3stk súkkulaði úr jóladagatalinu á dag þar sem ég nenni ekki að ferðast með það?? En próf eftir cirka klukkutíma, er orðinn mjög stressaður þar sem morguninni byrjaði ekki alveg nógu vel, jú vaknaði en ætlaði að fylla sykurkarið með sykri til að strá yfir morgunkornið en var nógu utanviðmig til að fylla það með hafragrjónum, ekki gott ekki gott
Tilkynning:
Dec 14, 2005, 19:07
Ungur piltur, góður ferðafélagi, óskar eftir fari frá RVK til Sauðárkróks sunnudaginn næstkomandi eftir kl. 16:30 af því að helvítis flugið er svo seint. Áhugasamir, vinsamlegast commentið. Með fyrirfram þakkir Ragnar Frosti Svona myndi þetta hljóma ef þetta væri smáauglýsing! En próf 2 er á morgun, snemma í fyrramálið þannig að alveg spurning að sofa ekki yfir sig, væri leiðinlegt eftir allann lærdóminn, en eftir gríðarlega mikinn kvíða, eða ok, ekkert gríðarlega mikinn, bara svona smá áhyggjur yfir gengi í þessu prófi að þá lýtur bara allt bjartara út núna (vona ég) en það hefur bara gengið alveg ljómandi vel að læra fyrir þetta kvikindi en ég, Groten og Hasse erum búnir að sitja hérna í gær og dag og stúdera þetta og bara gengið alveg þokkalega vel og ég búinn að vera jákvæður allann tímann sem gerist bara ekki alltof oft þegar ég og lærdómur eigum í hlut. En höfum svo í leiðinni verið að stúdera matsölustaðina hérna í kring og varð Tai-dæmi í gær og Indverskt í dag, Tai dæmið var bara algjör snilld og kom maður vel saddur þaðann af mjög góðum mat en Indverski staðurinn var bara góður en maður kom næstum svangur þaðann í frá, þannig að held að maður fari að stunda þennann Tai stað í staðinn... En á morgun eftir prófið er svo stefnann að reyna að redda öllum jólagjöfunum þar sem ég er ekki enn búinn að því og reyna að sleppa svona eitt ár við að fara í skaffó kl. 22:00 á þorláksmessu, fínt að prufa að taka því rólega svona einu sinni á þeim ágæta degi og taka kanski bara æfingu í staðinn.. En það sem er bara hreinlega lang verst við að kaupa jólagjafir er að finna þær, en ég er svo gjörsamlega hugmyndasnauður að hálfa væri meira en böns af helling, en hins vegar mjög duglegur að finna jólagjafir handa sjálfum mér og kominn með langann lista yfir það :) En á víst að vera að læra þannig að.... já, spurning að læra
Lærdómspása
Dec 13, 2005, 11:29
Jæja, Groten og Hasse úti að reykja þannig að spurning að skella inn einu stuttu bloggi, sem gerist ekki oft, yfirleitt svona í lengri kantinum. En amk, fyrsta prófið var í gær og gekk bara svona allþokkalega, 100% viss um að ég nái því og vonandi verður það fjarki, en við bárum áðann samann lausnirnar sem við fengum í gær og leit þetta bara helvíti líkt út þannig að ef við höfum ekki allir verið að grafa sömu holu að þá sleppur þetta þokkalega vel. En strax eftir prófið í gær var haldið á æfingu sem gekk bara alveg ljómandi vel, þannig að Burkni minn ég þurfti ekki á heimsmeti að halda til að vera sáttur, nóg að hlaupa bara vel, en þessi venjulega mánudagsæfing 2x80-2x100-2x120 & 2x150 var bara sú besta hingað til og allir sprettirnir mjög góðir, náði loxins að hlaupa almennilega út úr beygjunni þannig að allt gott og fallegt við það. Reyndar alveg óþolandi við að vera að æfa og ætla að gera kvöldmat því það verður oft alveg helvíti seint, en var ákveðið að gera Lasagne í gær og tekur það svona smá tíma þannig að maður byrjaði að borða kvöldmatinn uppúr 22:30 sem mér finnst bara vera svona í aðeins seinni kantinum, er meira svona 19-20 kvöldmatatýpan en sökum frjálsra íþrótta að þá hefur það ekki gerst að ég éti kvöldmat á þeim tíma í cirka.... 5 ár, en nægur tími í það þegar maður er orðinn gamall :) En tvö próf eftir, erfiða stærðfræðiprófið er á fimmtudaginn þannig að verður geðveiki næstu 2 daga en svo þokkalega rólegt fyrir forritunarprófið á laugardaginn... en strákskrattarnir komnir inn og því back to the geðveiki!!
Sunday Bloody Sunday
Dec 11, 2005, 18:23
Mót uppí Friidrottshus í dag þannig að æfing dagsins var tekinn í litla bróðurnum GAK sem er lítill lyftingarsalur við hliðiná. Það allra skemmtilegasta við þann klefa er að sjálfsögðu kellingavinnubrögðin sem eru þar, aðallega einhverjir sem gera ekki neitt annað en að lyfta á efri kroppinn og pósa fyrir framann speglanna og skemmtilegustu reglur í heimi eru að sjálfsögðu í þeim lyftingarsalnum en þær eru að það má sumsé ekki skella lóðunum niður... sem er alveg jújú ekkert að nema að í Cleani er það frekar erfitt þegar maður er að maxa og reyna svo að renna þyngdinni rólega niður, nei gengur ekki og því verið skammaður einu sinni fyrir að láta kvikindið bara vaða niður "ha ég, nei ég er bara smá sveittur í höndunum og missti þetta bara". Þannig að ég missti í rauninni af einni góðri clean æfingu og var bara með léttari þyngdir í því í dag til að halda öllum góðum. Og það var sko ekki leiðinlegt þar í dag, nei, því að einhver eldri dúddi ákvað að veita mér þessa gífurlegu skemmtun með því að mæta þarna í Disco fötunum sínum, ef einhverjum fannst náttbuxurnar mínar ljótar að þá setjið þær í 65 veldi og bætið við 30 litum auk þess sem hann var í þessari hrikalega ljótu skærbleiku peysu og hefur svo stolið gleraugunum af náttborðinu hjá Ömm sinni þannig að þau þökktu vel 70% af andlitinu, þannig að maður naut þess alveg að horfa á hann taka á öllu sínu í tækjunum, gretta sig svo hrikalega á meðann þannig að hann virkilega leit út eins og 70ára gömul kona í framann, en bara gamann að því. Hef reyndar komist að því að ég þarf að bæta mig hrikalega í Cleaninu, en Christian Olsson hefur verið að æfa hérna síðustu vikur og drengurinn er svona, jú ok, aðeins hærri en ég en andskotinn hafi það ekki mikið breiðari og er að taka 120-130kg í cleani, missionið núna að taka hann á næstu dögum, æi ok, höfum það á næstu árum..... Svo nottla alveg spurning að við förum að leyfa einhverjum öðrum að fara að vinna þessa blessuðu fegurðarsamkeppni, orðið slæmt þegar 300.000 manna þjóð flengi þetta ár eftir ár, nei nei segi svona, frábært hjá stelpunni, alveg spurning að maður fari að leita að almennilegri mynd af henni. Já og Liverpool vann enn einu sinni í gær, þannig að ofaní allt lærdómsþunglyndið finnst allveg fullt af glaðlegum gloppum :)
La Isla Bonita
Dec 10, 2005, 18:13
Ok, hef haldið því fram í 9 mánuði að ég þurfi ekkert hraðari tengingu en 256kb/s og gef ég mér stórann kredit fyrir að hafa náð að halda því fram í allann þennann tíma en núna undanfarið hefur þessi "hraði" einfaldlega bara verið að fara í taugarnar á mér og endaði á því að ég hringdi áðann í ComHem og pantaði mér 8mb/s sem á að vera orðið virkt á morgun, ó boy ó boy hvað það verður mikil snilld, en þurfti reyndar að binda mig í aðra 12 mánuði... hef íbúðina í minnst 12 mánuði þannig að... só what... en þetta kostar cirka 140kr meira á mánuði og.. 32x hraðari tenging, jú that's worth it!! Líka það besta við ComHem er hvað þetta gerist allt samann hratt hjá þeim, fékk tenginguna mína fyrst eftir aðeins fjóra daga, sem, ef ég væri á Íslandi myndi finnast vera lengi, en þar sem að hjá sumum tekur þetta uppí 5 vikur að þá eru fjórir dagar basicly ekki neitt. En vá hvað ég elska 24, get varla beðið eftir næstu seríu en á þangað til að þá á ég reyndar eftir að sjá fyrstu tvær sem ég á btw á diskum þannig að það lýtur amk út fyrir að maður hafi eitthvað að gera um jólin :) En ég, Groten og Elias sátum heima hjá Groten í gærkvöldi, átum kvöldmat, eftirrétt og horfðum á síðustu 3 þættina í alveg helvíti góðum fíling, rosalega næs svona fyrir prófin, núna bara 1 vika í geðveiki og þá getur maður tekið það vel rólegt aftur. En var reyndar ekki alveg sprækasti maður í heimi heima hjá Groten í gærkvöldi því að æfing kvöldsins fór hreinlega ekki vel í mig. En þessi 2x200 & 2x300m æfing virðist hreinlega ekki alveg ætla að ná að ganga nógu vel upp hjá mér en fann bara í fyrsta 200m sprettinum að lappirnar voru hreinlega ekki að virka, hrikalega slappar og engin snerpa í þeim :( Er svona farinn að gruna í Gvend fimmtudagslyftingaræfingarnar þar sem þær hafa verið að ganga alveg dúndrandi vel og held að það bitni aðeins á löppunum í föstudagshlaupunum. En byrjaði alveg skíthægt á 24.00 takk fyrir takk en næsti 200m var aðeins skárri eða 23.4 en ef við eigum að leita að björtu hliðunum að þá leit ég amk vel út á brautinni :) fyrri 300m fór svo á 37.6 sem er svona þokkanlega ásættanlegt og leit bara ágætlega út fyrir utan síðustu 50 þar sem það var nákvæmlega ekkert eftir í löppunum og sagði við þjálfarann að það væri ekki séns að ég gæti hlaupið einn almennilegann 300m sprett í viðbót þannig að þá var ákveðið að negla einn 200m og rólega 100m í viðbót, þannig að ég stóð við ruslatunnuna með æluna alveg í kokinu síðustu 2mínúturnar fyrir og svo bara "neglt" af stað, splittaði skíthægt 25.2 200m og hálf hrundi niður eftir 220m en þá var EKKERT eftir í löppunum. Eftir að hafa legið í 20mínútur á brautinni var svo ákveðið að standa aðeins upp sem endaði með góðum spretti inn á klósett þar sem hádegis og morgunmatnum var skilað. Elías líka um kvöldið "ég hreinlega skil ekki hvað það er sem fær fólk til að vilja gera sér þetta!!" En alveg merkilegt í skólanum, erum með einn stærðfræðikennara, Nisse kallast hann, og þrátt fyrir að vera í tveimur alveg hundleiðinlegum stærðfræðikúrsum hjá honum að þá er kallinn nottla bara algjör snillingur. Reyndar alveg ótrúlega margir sem eru ekki að fíla hann og karakterinn hans, finnst hann vera eitthvað fúll og svoleiðis þegar hann er að hjálpa þeim en það er einmitt algjörlega andstæðan við það sem hann er hjá okkur Groten, nottla í fyrsta tímanum byrjaði Groten að fucka aðeins í honum og svo er hann bara búinn að vera að spjalla alveg helvíti mikið við okkur og grínast og verður þetta alltaf grófara og grófara og í síðasta reiknitímanum í gær að þá kastaði Groten strokleðri í hann (reyndar ekki fast), síðann kom hann og hjálpaði mér og ég útskýrði eitthvað fyrir honum sem ég var að gera og sagði hann þá "Jahh, þú ert nú ekki alveg jafn vitlaus og þú lýtur út fyrir að vera" en síðann fundum við einhverja villu í þessu og þá sagði hann "jú annars, þú ert jafn vitlaus" og svo var hann eitthvað að röfla við Groten og endaði á það að segja við hann "þú ert nú svo ljótur að það er engin furða að þú eigir ekki kærustu, en það er alltílagi, þú átt nú mömmu sem elskar þig" vissi ekki hvert ég átti að snúa mér ég grenjaði svo mikið úr hlátri.... Ef bara allir kennarar hefðu nú sama húmor! Eins gott að þetta nýtist nú allt í að hækka mann í einkunn!!! En núna er ég búinn að vera 4klst að skrifa þetta blogg með góðum lærdómspásum, klukkan orðið rúmlega 6 og ég hef bara eitt að segja: "ÉG HATA LÆRDÓM OG ÞÁ MEST AF ÖLLU FUCKING STÆRÐFRÆÐI!!!!"
24-24-over and out
Dec 09, 2005, 09:34
Þessi sería af 24 sem er í gangi hérna 3þættir í viku er bara alveg að gera sig, 4 þættir eftir sem er ekki alveg það jákvæðasta í heimi þar sem það verða þá 3 í næstu viku og svo síðasti vikuna á eftir, þegar ég verð kominn heim á Ísland. En þar sem að ég er alveg þessi sniðuga týpa að þá á ég þessa seríu og 2 eldri á diskum þannig að ég og Groten (sem er líka svona hrikalega hooked á þessu) ætlum að hittast heima hjá honum í kvöld eftir æfingu hjá mér og læra...... nei bíddu við, hverng er ég að ljúga.... ætlum sumsé að hittast heima hjá honum yfir smá kvöldmat og glápa á þessa síðustu 4 þætti af 24, þannig að það stefnir alveg í hrikakvöld og því ekki neitt sem maður þarf að glápa á í sjónvarpinu í prófvikunni, tatjing! En speaking of helvítis prófvikuna, maður er alltaf að heyra um fólk sem gjörsamlega lifir bara á gingseng, kaffi, magic og einhverju meira örvandi shitti yfir próf perioduna, sofa kanski 2-3 tíma á nóttu og læra og læra eins og fávitar allann daginn. Það er bara því miður hreinlega ekki alveg ég, því að eftir alltof mörg ár í skóla að þá er maður farinn að þekkja sjálfann sig svona aðeins og veit alveg að ég + Lærdómur != "að ganga upp" þannig að ég er kominn með þetta hrikalega mikla skynsemisplan. A) Svefn Það sem skiptir mig meira máli en allt þegar ég á að vera að læra er að vera algjörlega óþreyttur og glaður og brosa framann í morgunsólina, því að ef ég verð þreyttur að þá verð ég rosalega pirraður, + að maður verður nottla að æfa á fullu og þá gengur ekki alveg að vera hrikalega þreyttur á æfingum. Þannig að á milli 9-10 tíma svefn alla næstu viku, sofna á milli 23-00, og fara á fætur klukkann 09:00 hljómar hrikalega vel. B) Pásur Ég er því miður ekki gerð lærdómsmaskin þannig að ég get ekki setið of lengi yfir bókunum í einu, þannig að planið er að fyrir hverja 2 tíma sem ég sit tek ég hálftíma pásur + matarpásur þar sem huganum verður dreyft við eitthvað allt annað, leysa Sudoku betrumbæta síðuna mína eða eitthvða álíka skemmtilegt. C) Æfa Að sjálfsögðu verður æft allar æfingar frá A-Ö sem eru á dagskrá, enda algjörlega nauðsynlegt að komast frá skólabókunum og gera eitthvað ALLT ANNAÐ og hvað er þá betra en að drepa sig á æfingu, planið var að reyna að æfa uppúr 2 alla daga og skipta því deginum alveg í tvennt en það fór alveg útum þúfur því að ég er í seinniparts prófi á mánudeginum, hleyp með langhundunum á þriðjudeginum og þeir byrja alltaf 17:30, jú gæti það á miðvikudeginum en það er bara rólegur dagur + efri kroppur og á nudd klukkan 18 þannig að það er ekki alveg að ganga, jú á fimmtudeginum get ég æft snemma, þá er morgunpróf, sama með föstudaginn, nudd klukkan 19:00 þannig að fínt að miða æfinguna bara við það. C) Ljós Áttum okkur á því að ég hef aldrei verið jafn hvítur og í ár, var í prófum þegar grúppan mín fór í æfingabúðir, var á íslandi í 3-7° hita í júní þegar hitinn hérna var á milli 25-30° þannig að liturinn varð ekki mikill í sumar, hvað er svo betra en að skella sér í ljós á eftir æfingu og nota prófvikuna í það að verða brúnni og fallegri ;) Þekki alveg helvíti marga sem sofa varla neitt, læra, læra og læra allann helvítis próftímann, sleppa æfingum, líta út eins og 2mánaða lík eftir prófin og veit ekki hvað og hvað, en ég get alveg sagt ykkur það, að ef ég myndi gera þetta að þá myndi ég hreinlega ekki sætta mig við neitt minna en 10 á hverju einasta helvítis prófi. En það er bara hreinlega ekki alveg mín taktík
knä + 85
Dec 08, 2005, 22:07
Hrikalega spes eitthvað á æfingunni í dag, var búinn að taka clean frá mjöðmum og átti bara 1 sett eftir af step-up þegar ég fékk þennann dúndrandi verk í hnéið og var helvíti vont að beygja það, kældi í um 15mínútur og bara búmmsakalaka og verkurinn horfinn og kláraði því lyftingaræfinguna án þess að finna neitt.... Held að ég skrái mig í heimsmetabók guinnes yfir flesta tilgangslausa verki. En annars gekk cleanið alveg helvíti vel þangað til í lokin á fyrstu lyftunni á 85kg, var kominn með þetta eiginlega alveg upp, hrikafílingur þegar annað búmmsakalaka skeði og þetta hrundi aftur niður, þannig að þessi helvítis 85kg ætla að láta að bíða eftir sér og fækka dagarnir hratt og örugglega sem ég hef í að skella 90kg upp fyrir áramótin... En krapp í hell, var að búa til matinn á meðann ég var að blogga þetta og fattaði að ég gleymdi að setja helvítis hitann á kartöflurnar þannig að allt annað tilbúið nema þær og maturinn tafðist um hálftíma, en varð að prófa nýja flysjarann minn, reyndar ekki rafmagns heldur bara svona plain shitt, þannig að stappa varð fyrir valinu og þetta drasl bara hreinlega svínvirkar, brenndi mig ekkert á puttunum og var mun sneggri að flysja kartöflurnar auk þess sem ég braut enga, þakkir til Bergs fyrir að benda mér á þetta kvikindi, en að sjálfsögðu rafmagnsgræjan næst á dagskrá :)
"Ragnar, du ser så gullig ut"
Dec 07, 2005, 19:51
"ser jag så GULLIG ???!?!?*&%$%&" Já, ekki hægt að bæta skapið á manni nema með einhverri svona vitleysu í hug, held að best þýdda orðið yfir Gullig í þessari merkingu sé sumsé "dúllulegur", en ok, ég vill vera (og var að sjálfsögðu) mikil dúlla þegar ég er 5 ára og yngri og... já ekkert meira en það, eftir það vill ég bara vera sætur og fallegur!! En svona til að byrja söguna á byrjun að þá fæ ég stundum heimskulegar flugur í hausinn og kom ein í gærkvöldi þegar ég var nýbúinn að borða kjúkling með þessum villimannslega hætti, það er ekki hægt að borða fucking kjúklingalæri/vinga með hnífapörum, face-it, og fór inn á bað til að þvo á mér um hendurnar að ég sá basicly helminginn af kjúklingnum fastann í skegginu á mér, jú mest nokkuð snyrtilegt nema hökutoppurinn sem hafði fengið að vaxa ónsert í cirka 1.5-2 mánuði og því orðinn gífurlega fallegur og gaf þennann fullorðnislega blæ yfir annars ákveðið andlitið, kom þá þessi heimska fluga og datt í hug að raka mig bara alveg og því í morgun náði ég mér því í Mach 3 sköfuna sem reddaði þessu á nó tæm. Jú ok, svoldið mikil breyting og ok, lagt af stað í skólann, en strax þá á leiðinni fékk ég þessa gífurlegu bakþanka yfir þessu því að missionið hafði að sjálfsögðu verið að geta sett hökutoppinn í teygju, og var þetta lengsta hárið á líkamanum fyrir utan að sjálfsögðu vel síðu og fléttuðu rasshárin auk þess sem að ég hef núna ekkert til þess að tosa í þegar ég er að spöggulegara, sem gerist alveg helvíti oft, nema þá í typpið á mér sem ég hef nú bara komist að, að er ekkert gífurlega vinsælt svona á almannafæri :( En toppurinn eða botnin var nú samt á æfingunni áðann þegar ég mætti þangað gallvaskur, fyrsta skiptið alveg rakaðu í mera en 2 mánuði að ein stelpan sem ég er að æfa með sagði sumsé að ég lyti svo "gullig" ut og var það nú bara hreinlega toppurinn á þessu og hef því ákveðið að raka mig bara ekkert meira og ætla að taka mér til fyrirmyndar skeggið á Bin Laden!! En yfir í jákvæðu fréttirnar og það er það að ég kom loksins Linux útgáfunni af DC++ í gang í gær en hafði ekki verið með það æðislega forrit alltof alltof lengi hjá mér þannig að music o mæ babý hír æ kom :):)
Relaxi taxi dagur
Dec 06, 2005, 19:57
Bað Palmas þjálfara mjög kurteisilslega í gær um frí frá æfingu í dag eftir hálfa æfinguna í gær, bara hreinlega ekki að fíla mig ferskann fyrr um daginn og batnaði ekki með hlaupunum þannig að áttaði mig hreinlega á því að ég ég ætti að ná að meika þessa æfingaviku að þá yrði ég hreinlega að taka einn auka frídag og fínt bara að gera það í dag í staðinn fyrir langhlauparaæfinguna, svo rólegt á morgun og geta tekið almennilega lyftingaræfingu á fimmtudaginn og svo sprettina á föstudaginn. En æfingin í gær var bara alls ekki uppá marga fiska, helmingurinn illa hlaupinn og restin bara ágætlega, fyrri 150m eini á tíma og það 17.3 þannig að hraðinn ekki mikill þann daginn. En núna er svo síðasta vikan í skólanum og því lítið annað gert en lært núna, eina sem sjónvarpsefnið sem er með grænt ljós í augnablikinu er 24 auk Simpson/Family Guy á með ann maður er að éta, verst bara hvað það er nú helvíti leiðinlegt að sitja einn heima og læra í eigi skemmtilegri stærðfræði... Sumsé próf á mánudaginn eftir viku + fimmtudaginn og svo uppáhaldið mitt, Laugardagseftirmiddags próf, jííííí En þetta þýðir þá nottla bara það að það eru einungis 1.5 vika í að maður stígur fæti á klakann, shitt hvað tíminn líður hratt!!
Ekki fyrir amatöra
Dec 05, 2005, 13:56
Held að margir hafi mig sem fyrirmynd í eldhúsinu!! En bara svona til að vara fólk að þá er þetta eingöngu framkvæmanlegt af atvinnumönnum því annars getur félaginn fengið að finna fyrir þessu!
Klakinn
Dec 04, 2005, 19:10
Erum við að átta okkur á því að eftir nákvæmlega 2 vikur gæti ég verið að skríða akkúrat inn á Sauðákrókinn núna.... amk lentur á Íslandinu og að koma í heimahagana eða fastur í Reykjavík í slappi og vitleysu að leita mér að fari á krókinn. Ekki einhver sem veit um far inn í fjörðinn fallega sunnudaginn 18.desember svona uppúr 16:00 ?? Reyndar smá áhyggjur með morgunrútuna, þar sem hún fer á slaginu 06:00 um morguninn sem er náttúrlega yfirburðar óheilbrigð tímasetning þannig að ég þarf að taka strætó sem fer 05:20 þannig að vera kominn á fætur 04:30 í síðasta lagi þannig að miklar pælingar að sleppa bara svefninum þessa nóttina og geta í staðinn sofnað í rútunni og fluginu sem er bara hreinlega ekki það auðveldast í heimi, því miður fer ég með rútu á milli GBG-Kastrup þar sem að engin lest fer á réttum tíma fyrir mig á sunnudagsmorgni þannig að ekki hægt að plögga tölvunni í samband þar og þarf víst að spara batteríið fyrir Kastrup elskuna mína, hef í gegnum lífið eytt alltof mörgum helvítis klukkutímum á þeim leiðinlega flugvelli þannig að núna verður bara þráðlausa netkorið og tölvan misnotuð allann tímann, eða reyna að hnuppla 1stk krakka þar til að koma sér inn í boltalandið, gæti alveg eytt mörgum klst þar eins og síðast :) En annars hrikalega góð lyftingaræfing í dag, loxins small Cleanið aðeins betur og fuku hin langþráðu 80kg 2x frá mjöðm ásamt 2x82.5kg en var orðinn aðeins of þreyttur fyrir 85kg þannig að geymi þau fyrir fimmtudaginn, missionið er því 90kg fyrir jól sem ætti að vera vel raunhæft. En annars algjör aumingjaskapur eitthvað í manni núna, drattaðist heim af æfingunni og náttfötin, James Blunt og kaffibollinn búnir að vera bestu vinir mínir í að berjast við helsta óvininn, námsbækurnar og gegnur það bara alveg ágætlega. Svo eru nottla jólin alveg að fara að skella á þannig að þá er það hið árlega jólapakkastúss, hef tíma á morgun eftir skóla og á fimmtudaginn fyrir skóla að versla alla jólapakkana ef ég ætla að ná að fixa það allt hér í Svíþjóðinni en ef það klikkar að þá virkar þorláksmessan rétt fyrir 22:00 líka alltaf vel eins og venjulega, veit ekki hvað maður myndi gera ef búðirnar væru ekki opnar svona lengi á Þollák. Jú svo speaking of heimferð, getur einhver frætt mig með opnunartímana í nýju frjálsíþróttahöllinni á sunnudögum, og kanski bara svona yfir höfuð, því alveg inn í myndinni að skella sér bara á eina létta sunnudagsæfingu eftir allt ferðalagið og fresta ferðinni á krókinn um nokkra klst ef það er mölli, einnig miklar pælingar með að kíkja í cirka 2 daga suður á milli jóla og nýjars og ná að sprinta smá þarna :)
Skínandi
Dec 04, 2005, 11:26
Held að í gærmorgunn hafi verið fyrsta skiptið sem að mér leið eins og ég væri þunnur þegar ég vaknaði, þrátt fyrir að hafa verið kominn uppí rúm kl 23:00 og ekki smakkað dropa af áfengi og var bara með höfuðverk og anti hressleika fram eftir degi, já hreinlega orðinn spenntur fyrir næstu föstudagsæfingu. Mundi svo loksins eftir því þegar ég var að versla inn í gær að kaupa mér blettahreinsi, reyndar bara topp-eðal-merkið El Dorado þannig að ég geri mér ekkert gríðarlega vonir, en svona þar sem ég stóð nú þarna á hreinsideildinni að þá fór ég að skoða svona úrvalið og endaði ég því að kaupa mér alveg góðann slatta af þessum hreinsiefnum, Ajax fyrir baðherbergið, eldhúsið, spegla & glugga og ég veit ekki hvað og testaði þetta að sjálfsögðu allt þegar ég kom heim og mæ ó mæ hvað íbúðin lítur alveg strålande út, allt tekið gjörsamlega frá toppi til tá og ekki verið svona hrein frá því að ég flutti inn. En seinnipartinn í gær var svo jólafest hjá vinnunni og var mættur þar í förfest klukkann 5 og fékk maður þetta hrikalega góð jólahlaðborð með alltof alltof alltof mörgum kjöttegundum þannig að ég tók bara smá Ragnar á þetta og troðfyllti diskinn nokkrum sinnum og endaði á að rétt torga helmingnum af þessum síðasta og leifa svona góðum haug af góðum mat. En annars alveg ljómandi fínt kvöld og var ekkert kominn neitt rosalega seint heim og var svo glaðvaknaður klukkan 08:00 í morgun, mér til lítillar gleði og ánægju...
Bjakk
Dec 02, 2005, 20:02
Já, þarf nú ekki mikið meira en eina æfingu til að stoppa þessa góður æfingarunu sem hefur verið hjá mér undanfarið, og meira að segja til að fá mann til að hugsa hvort maður sé gjörsamlega formlaus....!!! En alveg synd að þetta hafi nú gerst á þessari æfingu þar sem mig hafði hlakkað GÍFURLEGA mikið til að hlaupa hana og ná almennilegum hraða í þetta, sumsé á dagskránni eins og ég var margbúinn að gefa út, 2x200m og 2x300m allt með 12mín hvíld, fékk reyndar þau fyrirmæli fyrir að negla ekki 100% á þetta heldur einbeita mér meira að hlaupa þetta mjög hratt en afslappað og góðum stíl. 2x200m fór á 23.6 - 23.7 sem ég var svona.... jújú þokkalega sáttur með, stíllinn mjög góður þannig að það er alltaf + en ferskleikinn nákvæmlega enginn og greinilegt að æfingar vikunnar sátu vel í löppunum, en eftir þessa 200m kom hörmungin, fyrri 300m var hrikalega illa hlaupin og alltof hægur, opnaði 200m á 25s sem var rúmlega 1sek of hægt og lokatíminn 38.2 sem ég var alveg hundfúll með og auk þess þar sem ég hljóp hann svona illa fór þetta ekkert alltof vel í lappirnar og basicly skeit á mig í seinni 300m, bað þjálfarann minn kurteisislega að halda þessum tíma bara fyrir sjálfann sig þannig að ég hef ekki hugmynd um hve hægur hann var og langar ekki að vita, en eyddi hinsvegar góðum 20mínútum liggjandi í vanlíðan í hástökksdýnunni á meðann þetta versta gekk yfir. Skapið svo gott núna að ég er hættur við að fara að spila póker í kvöld heldur ætla bara að fá mér smá að éta og fara svo að sofa! En reyndar ein pæling í gangi, djöfulli þoli ég ekki á mér hægra eyrað!! og Afhverju? jú því að það er gjörsamlega ómögulegt að fá svona eyrnatappaheadphone eða hvað sem þetta heitir til að tolla í því, prufað alveg ótrúlega marga og svo þegar maður fer útað labba að þá dettur hann alveg stanslaust út úr eyranu sem er svona alveg vel þokkalega pirrandi. En nóg af pirringi í kvöld, kemst í betra skap þegar ég opna jóladagatalið á morgun!!!
Svona í morgunsárið
Dec 02, 2005, 09:21
Ég er alveg búinn að sjá hvað það er sem fær mann til að vakna á morgnanna núna í desembermánuði! En það er að sjálfsögðu að eiga súkkulaði-jóladagatal, maður er ennþá bara eins og 5ára gamall krakki með þetta, liggur uppí rúmi, alveg að drepast úr þreytu, virkilega að spá í að fara bara aftur að sofa þegar maður fattar það...."úje, ég á súkkulaði núna" spretti að dagatalinu, tek mínar 5mínútur í að leyta að réttri dagsetningu og nýt svo súkkulaðibitans með rjúkandi kaffi mmmmmmm. En það sem er líka það besta við þetta dagatal er að 24.des dagurinn er með 2x stærri. En í gær var það kertaljós og í dag......*hleyp fram og opna* Vörubíll :)
Hundur sitja hvað??
Dec 01, 2005, 21:14
Maður hefur gríðarlega oft heyrt þessa setningu "það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja" en hvorki er ég nú hundur né gamall en virðist hinsvegar ekki læra neitt þrátt fyrir ítrekaða heimsku. Fór sumsé út í búð áðann til að versla mér grænmeti og aðrar nauðsynjar í hamborgarann sem ég ætlaði að gera mér í kvöld, keypti því allt sem ég mundi eftir, skellti frönskunum í ofninn, byrjaði að móta kjötið og saxa grænmetið þegar ég fattaði alltíeinu.... ÉG GLEYMDI ENN FUCKING EINU SINNI AÐ KAUPA HAMBORGARABRAUÐIÐ, lítið við því að gera á þessu stigi heldur en að fara aftur út í búð og náði þar í síðasta pakkann af hamborgarabrauði sem var til, reyndar hamborgarabrauð í McDondalds stærðleik þannig að hamborgararnir urðu 3stk í staðinn fyrir eitt. En sá dagur hlýtur bara hreinlega að fara að nálgast að maður muni eftir að kaupa þetta brauðakvikindi með öllu hinu, það hlýtur bara að fara að gerast!! En allt að gerast bara í æfingunum og búinn að taka 3stk sem ég er mjög sáttur með þessa vikuna + rólega daginn í gær og eftir þessar 3 hefur maður verið alveg gjörsamlega búinn á því og varla verið orka eftir í fótunum eftir þetta og því erfitt að koma sér í lærdóm um kvöldin, þakka bara fyrir nudd 2x í viku því annars veit ég ekki hvar ég væri, og ef það væru meiri peningar í kotinu að þá færi ég 5x í viku. En góð lyftingaræfing áðann, þyngt í öllum tækjum sem gengur bara svona ljómandi vel nema hvað þessi 80kg í cleani frá mjöðmum virðast eitthvað ætla að láta bíða eftir sér, alltaf kominn með þetta næstum alla leið upp en bara hreinelga ekki nógu snöggur með að koma mér undir og taka á móti ÃÂÂ