Plikk - plikk - plikk - KABÚMM
Nov 30, 2005, 20:09
Ef það er ekki hresst að vakna við þetta að þá veit ég hreinlega ekki hvað en á slaginu þrjú í nótt vaknaði ég sumsé við þetta skemmtielga haglél sem dúndraðist svona á gluggann hjá mér og ekkert smá korn neitt og í samfloti við það voru þessar skemmtilegu þrumur og eldingar, reyndar ekki vanur að vakna við eitthvað svona drasl þannig að ég snéri mér bara á hliðina, lokaði augunum og gerði mig líklegann til að sofna þegar þessi hrikalega skæra birta kom og innan við sekúndu síðar KABÚMMMMMM og bara tautaði eitthvað við sjálfann mig hvað þessi hefði nú verið nálægt og sofnaði síðann. Var ekki alveg að átta mig um morguninn hvort mig hefði verið að dreyma þetta eða hvað þegar ég hitti Groten og hann sagði mér nákvæmlega það sama, hafði þá víst ein eldingin skellt sér í heimsókn í Liseberg og lent í turninum þar og í morgun kviknaði því bara á cirka helmingnum af þessum milljón ljósaperum sem eru þar ÚTUMALLT núna, en sýndist þetta nú vera komið í lag þegar ég rölti heim áðann, þannig að annaðhvort hefur þetta bara slegið eitthvað út eða, það sem ég vona, að einhver hafi verið sendur út með nokkrar milljónir ljósapera og verið að skipta um í dag :)
Gamaldags stöff maður
Nov 29, 2005, 21:24
Ætli það sé til svona tæki sem flysji kartöflurnar fyrir mann? Kartöflustappa nottla bara best sko, en ég hana alveg gríðarlega sjaldann því að það er leiðinlegra að flysja kartöflur heldur en stappan er góð, sem er ekki alveg nógu gott, auk þess sem það er gríðarlega tímafrekt og kartöflurnar orðnar kaldar, þannig að ef einhver veit um svona tæki, please let me know, og má sá sami alveg senda mér eitt stk lifrapylsu sem ég myndi éta með stöppunni til að fagna nýja tækinu, goddamn sem mig langar mikið í slátur. Svo kom nú snjór í gær hingað í gautaborgina, og ótrúlegt en satt að þá er ennþá smá eftir og ekki alveg búið að rigna honum öllum í burtu, en vaninn hérna er að snjór endist í svona 5mín áður en hann er farinn aftur og skilur smá slabb og bleytu eftir sig, en það voru sumsé skilyrðin á æfingunni áðann, skokkuðum í einhverja 3km að einhverjum malarvelli þar sem 60x15sekúndur með 15sekúndna hvíld var á dagskrá og mætti þar manni hálf snjó/hálkulagður malarvöllurinn og eftir miklar pælingar var ákveðið að hlaupa þar sumum (mér) til mikils ama enda orðið mikið innidýr, en gekk annars bara alveg ljómandi vel, hljóp fyrstu 52stk með fremstu mönnum og síðustu 8 voru þeir skyldir eftir enda ekkert á þeim buxunum að láta einhverja langhunda vinna sig enda fílingurinn bara alveg þokkalega fínn, hrikalega afslappaður (enda ekki annað hægt í hálku) og náði að rúlla þetta helvíti fínt, æfingin svo enduð með góðu maga/bak setti. Æfingin í gær gekk líka bara alveg ljómandi, 2x80-2x100-2x120-2x150m á göddum með frjálsri hvíld, reynar fíla ég ekki að hvíla of lengi því þá finnst mér lappirnar verða svo seigar þannig að það var tekin svona þokkaleg hvíld á milli og neglt all-out á alla sprettina og endaði svo hálf ælandi fyrir og eftir síðasta 150m sprettinn og fær hann ekki bestu einkun fyrir hraða og stíl, en náði nú að halda hádegismatnum á sínum stað þannig að það var bara alveg ljómandi gott enda skammarlegt að æla eftir svona stutta spretti. En well well well, kaffi, lærdómur, forritun og 24 kallar, þannig að læt þetta nægja í bili.
Myndaserían:
Nov 29, 2005, 08:58
Jæja börnin góð, sat hérna í gærkvöldi með Krissu að fixa síðustu gardínuna sem tókst bara svona alveg ljómandi vel, lítur amk miklu betur út svona heldur en 12cm of stutt :) En ég var víst búinn að lofa myndum að töffaranum í saumamennsku og ekki hægt að svíkja það: 1) Það fyrsta sem maður þurfti að gera er að sjálfsögðu að brjóta uppá, falda kantana og gera ready fyrir saumavélina
2) Saumavélin fær að kynnast hægum en öruggum handtökum
3) Groten kíkti yfir til að verða vitni af kraftaverki og sýna smá andlegann stuðning með fyrstu gardínuna, var rekinn eftir hana.
4) Gríðarleg fagnaðarlæti þegar fyrsta gardínan var tilbúin enda tók hún alveg gífurlega langann tíma, enda sú fyrsta þar sem allar pælingarnar fóru fram á og jafn langann tíma og síðustu fjórar
5) En þrátt fyrir allar pælingar og mælingar að þá klikkaði víst eitthvað..... vonbrigðin urðu alveg gífurleg enda ótrúlegur tími sem fór í þessa gardínu sem var hreinlega bara alltof stutt!!
7) Ekkert mkið meira frásögufærandi gerðist það sem eftir var dagsins enda gekk allt annað svona gríðarlega vel þannig að í gærkvöldi var þráðurinn tekinn upp við að fixa stuttu gardínuna og sá ég um það í náttfötunum enda alveg að drepast úr þreytu eftir æfingu kvöldsins.
7) Útkoman
8) Útkoman
Hérna er svo einnig hægt að sjá örstutta vídjó klippu af meistaranum við saumavélina, reyndar á fyrstu gardínunni þannig að hraðinn er ekki alveg með mér í liði...
Morgunhani
Nov 28, 2005, 11:48
Ég er bara hreinlega búinn að komast að því að ég er hreinlega ekki alveg þessi morgunhanatýpa, en prufaði í gærmorgunn að fara á æfingu uppúr 10 leytið sem ég hef nú gert áður á sunnudögum en núna er nýtt prógram og því lyftingaræfing um morguninn og það er bara hreinlega ekki alveg að virka fyrir mig. Hafði reynt þetta 1x áður en lappirnar eru bara hreinlega ekki tilbúnar í clean og hnébeygju svona snemma á morgnanna og þyngdirnar fara hreinlega ekki upp og lappirnar eru bara sofandi, þannig að núna á næstunni verða því þessar sunnudagsæfingar teknar seinnipartinn. En dagurinn í gær fór annars bara í lærdóm með Peter og var síðann skellt sér í þennann glimmrandi góða mat til Bjössa og Rakelar þar sem þeim var einnig óskað til hamingju með kossum og knúsi með trúlofunina, snilldin sem það er. En já maturinn bragðaðist hrikalega vel, ísinn í eftirétt var toppurinn og svo síðann skellt sér í sófann og glápt á Gay-Army sem er sænsk raunveruleikasería þar sem mestu kellingahommum svíþjóðar-danmörku og Noregs er safnað samann og reynt að láta þá verða að hermönnum, segi nú bara "gangi ykkur vel" enda oft hrikalega fyndið að sjá þá grenja yfir því að þurfa að skjóta úr byssu og eitthvað álíka heimskulegt. En já, var víst búinn að lofa myndum og einu stuttu vídjói af saumaskapnum en það kemur ábyggilega bara í kvöld, kom það seint heim í gær að það var sleppt saumaskapnum það kvöldið og frestað til kvöldsins í kvöld þannig að ég ætti að geta skellt þessu inn þá. En talandi um æfingaprógram, að þá fékk ég sumsé nýtt fyrir helgina og lýtur bara út fyrir nokkuð hraðar næstu vikur, á mánudögum er 2x80 - 2x100 - 2x120 - 2x150 og held örugglega á göddum með fríum hvíldum þannig að það ætti að vera hægt að negla hrikalega vel á þetta og svo föstudagsæfingarnar 2x200 + 2x300m með 12mín hvíld sem er alveg glimmrandi fínt, 7mín lengri hvíld en var með 6x200m sprettina þannig að maður ætti að geta sett þetta einhverstaðar í kringum 23sekúndurnar og svo koma 300m tímarnir í ljós en ef gaddar verða með í spilinu að þá vill ég fá þá alveg DRULLUhraða, en engar yfirlýsingar strax.
Gardiner: Finido..... eða næstum
Nov 27, 2005, 13:00
Jæja, í gær fór basicly stærsti hluti dagsins í þessa langþráðu gardínuvinnu og fór þetta í rauninni allt saman bara mjög vel fyrir utan smá byrjunarörðuleika enda tekur nú smá tíma að rifja upp saumatímana frá því í 9:unda bekk, reyndar ekki mikið að rifja upp síðann þá.. En Krissa náði að redda saumavél fyrir mig og var alveg gríðarlega dugleg að hjálpa mér að komast af stað með fyrstu 2 eða 3 gardínurnar, var að spá í að eigna mér allann heiðurinn sjálfur á netinu en hreinlega get það ekki, því að ef hún hefði ekki verið hérna væri ég ennþá að reyna að þræða helvítis saumavélina, já hvað er málið með að flækja það svona, ahverju í andskotanum fer þetta ekki bara beint af rúllunni og niður í nálina í staðinn fyrir að láta þetta fara niður, upp, krækja þar eitthvað, og niður svo eitthvað aftur?? Já, og hvernig átti maður að vita að það kemur líka tvinni þarna niðurífrá, en jæja, voru amk alltof mörg smáatriði í startinu sem ég hefði sennilega aldrei komist í gegnum sjálfur. En ég held að ég gefi mér algjörlega falleinkun í mælingum, því að fyrsta gardínan..... ok, var búinn að mæla að hæðina á þessu frá festingu og niður að gluggakistu var 1.60m og svo 12cm í viðbót fyrir brotið, þannig að ég nottla klippti þetta svona helvíti fínt, svo var farið í að brjóta upp á topp og botn og skellt í saumavélina (* ath, að ég saumaði samt allt, krissa hjálpaði mér bara að brjóta samann kantana á nokkrum), leit allt svona helvíti vel út fyrir utan 2 smáatriði: a) brotið á toppnum og botninum var sitthvorum meginn b) Eitthvað hafði Ragnar verið utanvið sig í mælingunum og gleymt að reikna með 12 auka centimetrunum fyrir brotin, þannig að fyrsta gardínan var 12cm of stutt og svekkelsið leyndi sér ekki á stráknum. En þetta hefði í rauninni ekkert verið neitt hrikalegt vesen ef ónefndur aðili að nafni Ragnar hefði ekki haft svona gríðarlega ofurtrú á sjálfum sér og ekki keypt meira en akkúrat í efnið og að sjálfsögðu ekki reiknað með NEINUM mistökum...... En í kvöld verður gerð smá tilraun með að fixa það kvikindi og kemur í ljós hvernig það gekk ásamt myndum. En eftir þessa fyrstu gardínu fóru hjólinn að rúlla svona frekar hratt, gardína 2 var bara 2cm of stutt, jájájá ég og tommustokkur erum ekkert bestu vinir, en því var að sjálfsögðu fixað og stytt aðeins í brotinu uppi (sem mér finnst bara vera miklu fallegra) og eftir það gekk þetta bara alveg ljómandi vel og engin fleiri mistök gerð, takk fyrir takk. Reyndar eftir að Krissa fór að þá kom smá saumavélarstopp hjá mér þar sem mér tókst að gleyma að taka óvart eina nálina í burtu og gjörsamlega flækti kvikindið til helvítis og eftir að sitja, rífa, slíta og bíta í hálftíma og flækja aftur og aftur að þá hafðist það nú á endanum, enda mikið verkfræðingaefni við vélina og lauk ég verkinu uppúr 9 leytið um kvöldið, þá setið í 6klst við þetta drasl, allt samann tekið og straujað (þar sem að Groten var svo gríðarlega almennilegur að lána mér straubretti fyrr um daginn) og skellt upp og vonbrigðin engin, reyndar vantar kappana en þeir koma bara seinna, finnst þetta amk gefa íbúðinni alveg skemmtilegt lúkk þó svo að ég geti lofað því að það elski ekki alveg allir þennann lit minn :) En myndaserían kemur vonandi inn í kvöld
Læra smæra
Nov 24, 2005, 21:10
Vá hvað það er alveg ótrúlega erfitt að koma sér að læra, maður kemur heima og .... nei, gengur ekki...! En mæli alveg ótrúlega með því að fólk sé EKKI að flýta sér að blanda sér kaffi í pressukönnu, en var að því í gærkvöldi því það var eitthvað voðalega skemmtilegt í sjónvarpinu, reif pottinn með sjóðandi vatninu í af hellunni, stoppaði höndina snöggt til að get hellt í glasið þegar þessi helvíti góða sletta skaust úr pottinum og beint á fokking löppina á mér, djöfulli var það ógeðslega óþægilegt, þannig að ég stóð í nokkrar mínútur með löppina ofaní eldhúsvasknum og þakkaði guði fyrir að vera svona liðugur, niðurstaðan, engin blaðra :) En mæli alveg ótrúlega mikið með þessum leik hérna, Achtung die kurve bara algjörlega æðislegur leikur sem maður pikkfestist gjörsamlega í. Hann lítur alveg ótrúlega aulalega og leiðinlega út en svo hengur maður í honum í alveg alltof lengi, enda mesta snilldin að maður verður að spila hann með einhverjum (því miður ekki hægt online) en það geta spilað mest 6 í einu (reyndar þá orðið pínu þröngt á lyklaborðinu) og mæli í rauninni með 4 eða fleirum, nottla því fleiri því skemmtilegra. En leikurinn gengur sumsé út á það að klessa ekki á hina og lifa lengst, ef það eru 2 er hann uppí 10 stig, 3 þá uppí 20stig og svo framveigis, maður fær sumsé 1 stig fyrir hvern þann sem deyr á undan sér, svo koma stundum göt inn í röndina sem maður getur farið í gegnum og svo framveigis, pínulítill en alveg ótrúlega skemmtilegur leikur!!
Ónýtur miðvikudagar
Nov 23, 2005, 23:32
Já, núna var síðasti þátturinn af OC í seríu 2 að klárast og því einhver tími í að maður fái að sjá seríu 3 og þvílíkir síðustu þættir, bara einum of gott sko. En sjónvarpsdagskráin í kvöld reyndar ekki alveg af verri endanum, eða jú, verri fyrir lærdóminn en ekki fyrir ánægjuna, Liverpool-Betis byrjaði 20:45, OC og Lost klukkan 9 þannig að maður var að skipta á milli á fullu í auglýsingahléum og svo 22:35 var núna 24 að byrja, algjörlega spurning að fara að hætta að fylgjast svona með öllum þáttum enda farið að taka alltof langann tíma frá manni, en er hinsvegar bara svo ógeðslega skemmtilegt :) Reyndar einn skondinn raunveruleikaþáttur hérna, heitir FC Z þar sem að mestu nerdar svíþjóðar voru fengnir samann í eitt fótboltalið og svo gamall landsliðsmaður fenginn í að þjálfa þá og reyna að gera bæði fótboltamenn og lið úr þeim. En við erum að tala um að þeir voru upphaflega basicly verri en gamlar kellingar í fótbolta og allt sem mögulega tengt íþróttum var eins fjarstætt og hugsast getur og svo í síðasta þætti (held ég) að þá eiga þeir að spila við Djurgården sem urðu sænskir meistarar í efstu deildinni núna fyrir stuttu síðann. Jú ok, þeir eru basicly ekki alveg jafn lélegir og þeir voru í byrjun enn..... jaahhh, orðnir álíka góðir og gamlar kellingar núna, spiluðu á móti 14ára stelpnaliði Hammarby um daginn og töpuðu bara 1-3 og held örugglega fyrsta markið sem þeir gerðu var í þeim leik, en búnir að spila á móti nokkrum öðrum lélegum liðum þar á meðal lélegasta liði svíþjóðar og skíttapað flestum, missi því miður af þessum þætti þar sem að ein finnska stelpan í liðinu okkar verður með eitthvað litlu jólar partý að hætti Finna á föstudaginn en basicly að ef Djurgarden mætir með sitt besta lið, já, eða C-liðið sitt, þeir spila allir eins vel og þeir geta, leikið verður í 2x45mínútur að þá giska ég á að leikurinn fari.... svona cirka 90-0 eða 1 mark á mínútu :) En annars, Liverpool komið áfram í Meistaradeildinni, annar titillinn þar á leiðinni í höfn :)
*Sniff* *Sniff*
Nov 22, 2005, 21:20
Hvaða lykt er þetta?? *sniff* *sniff* jú, eins og ég hélt, mér sýnist vera einhver vantrú á mér í loftinu... *sniff* jú þetta er defenitly vantrú, en er ekki alveg að skilja þessa vantrú á mér, HALLÓ FÓLK, ÞETTA ER ÉG!!! En miðað við commentin að þá er þetta bara orðin hin fínasta áskorun á mig að gera þetta vel og vandað enda mikið í húfi, stoltið, jahhh, sem fer reyndar við það eitt að setjast við saumavélina óháð hvernig þetta fer, en hinsvegar aðalmálið er efnið, ég MÁ NEFNILEGA EKKI GERA MISTÖK, því að ég reiknaði að sjálfsögðu ekki með neinum mistökum þegar ég keypti efnið, þannig að mistök þýðir löng ferð í IKEA sem er að sjálfsögðu stórhættulegt vegna áður umtalaðra ódýrra smáhluta, en meira um gardínur síðar, eða þegar þær verða tilbúnar... En fagnaði jákvæðum niðurstöðum með haminn í gær með fyrstu gaddaskóaæfingu vetrarins sem gekk bara svona ljómandi og svo síðustu æfinguna með langhlaupurunum í dag og var kveðjugjöfin 10x2mín með 1mín hvíld á milli sem gekk bara svona þokkalega vel, gat haldið í fremstu menn í öllum sprettunum en orkaði alls ekki að taka með þeim 2 í viðbót eins og þeir gerðu, var hreinlega alltof búinn eftir þetta. Á sunnudaginn var svo einnig síðasta brekkusprettaæfingin mín sem ég fagnaði alveg ákaft enda ekkert alveg sú skemmtilegasta og tekur núna við róleg vika, létt återhämtning á morgun og frí á fimmtudag-laugardags, ný æfingaperiod svo á sunnudaginn, jibbýýýý.... Helvíti, svona miðað við það hvað það er fínt að redda sér svona með tilbúnum keyptum, frystum mat, þegar maður kemur svona ógurlega þreyttur heim af æfingu, nema hvað að 13ára anorexíusjúklingur yrði samt ennþá svangur eftir einn svona skammt, var núna frekar mikið svangur þegar ég kom heim, fékk mér svona Svínasnitzel, með frönskum, sósu og grænum baunum, var að klára núna og bara svona, jaaaahhh, kominn með epli í hendina og virkilega mikið að spá í að rista mér brauð enda algjörlega ómöguegt að fara að sofa svangur, maður liggur uppí rúmi og pælir svo mikið í því hve svangur maður sé að maður verður ennþá svangari og fallegi ómur James Blunt fer að hljóma eins og ástaróður til hamborgara, nei, það er frá helvíti að vera svangur... En talandi um ljós, djöfulli er mig farið að langa núna í ljós, áttum okkur á því að ég hef ekki farið í ljós núna í 2 ár, og margir bara, "só, ég hef ekki heldur farið í ljós í 2 ár" en cut the crap og hættum að tala um þig og tölum aðeins um mig, því að í sumar var alveg dúndurgóður endir á mái, júnímánuður og fyrrihluti júlímánaðar hér í Svíþjóð, í lok maí var ég í prófum á meðan æfingafélagar mínir fóru til spánar og komu heim svoldið mikið brún, eftir það fékk ég þá gáfulegu hugmynd að fara til Íslands í 3 vikur í júní, á meðann það voru 25-30°C hér í gbg að þá var ég heima á krók í 3-8°C og fékk sól í einn dag, og hey við erum að tala um mig hérna, gamli góði brúni og sæti Ragnar... er bara sætur núna, hvað er málið með það!!! En sá annars í gær myndbandið við Goodbye My Lover með James Blunt á ZTV, eða seinni partinn af því, og ég er ekki frá því að hún Mischa Burton (Marissa) úr OC hafi bara leikið í því, erum við að tala um að gera mér til geðs eða??? Besta lag í heimi með leikara úr bestu þáttum í heimi (eða svona, jú got the point), en amk.. mí happý :) En nóg af rugli, kaffið tilbúið og forritunin kallar....
Stella í Orlofi, Stella í orlofi
Nov 21, 2005, 14:23
Djöfulsins bras búið að vera á mér í dag eftir skólann, fussum svei, en byrjaði á því að fara og láta líta á hamstringinn á mér, eftir hingað og þangað skoðanir, svefn yfir straumi og smá spjalla að þá var bara niðurstaðan að einn vöðvinn þarna aftaní er of stífur og aðeins of aumur, þannig að á bara að styrkja það kvikindi og þá á það að komast í lag og fékk grænt ljós á að negla á æfingarnar sem var akkúrat það sem mig langaði til að æfa þannig að núna getur maður gert það án þess að pæla í þessum verk og á það ekki að geta skemmt neitt. Svo hélt gardínuvjézenið mitt áfram og er í rauninni farinn að bölva þessum heimsku hugmyndum mínum og afhverju ég hafi ekki bara keypt einhverjar plain tilbúnar gardínur og ekkert þurft að vjézenast í þessu meira, en fór sumsé áðann í svona saumabúð sem er hérna rétt hjá (já, leið eins og 70ára gamalli kellingu þegar ég kom þangað inn) og eftir smá samningaviðræður að þá vildi kellingin fá 150sænskar krónur fyrir hverja gardínu sem myndi þá vera 900kr tilsammans eða næstum 5x meira heldur en allt gardínuefnið kostaði til samans, og eftir smá umhugsun að þá var bara tekinn upp síminn, mjög líklega búinn að redda mér saumavél, keypti tvinna og stefnir allt í það að RAGNAR FROSTI sé að fara að sauma gardínur í vikunni, og má í rauninni mistakast 4x með hverja gardínu til að vera samt ódýrara en að fara með þetta til saumakellingarinnar. Þannig að ef þetta fer vel að þá virðist hæfileikum mínum engin takmörk vera sett!!!
Gúrkutíð í fréttum
Nov 20, 2005, 14:00
Rakst á þetta áðann á B2:
Ekið á kind Ekið var á kind sem hljóp út á þjóðveginn í Álftafirði. Drapst kindin við ákeyrsluna og segir lögreglan á Ísafirði það sæta furðu að sauðfé gangi laust og það svona seint í nóvembermánuði þegar það eigi að vera komið í fjárhús.
Það er hreinlega of mikið að gerast heima á klakanum núna!! En hitastigið hérna virðist hreinlega ekki ætla að fara að hækka og eftir að það var skreytt hérna niðri í miðbæ í síðustu viku að þá er ég hreinlega ekki frá því að það sé farið að styttast í jólafílinginn hjá manni. Skreytum hús með grænum greinum, trallalalala lala lala, gleði ríkja skal í bænum, trallalalala lala lala,
IKEA
Nov 19, 2005, 17:33
Svona í stuttu máli: ÉG HATA IKEA a) Langt að fara b) alltaf svo ógeðslega margir c) Fullt af sniðugu ódýru dóti d) Allt sniðuga ódýra dótið kostar alltaf slatta pening.... Já, Ragnar stóð sig.. já basicly eins og Ragnar í dag í IKEA-inu, en ég og Krissa ákváðum að skella okkur þangað í dag, aðalmissionið mitt var að splæsa í gardínur, gardínukappa (sem ég vissi btw ekki að þetta orð væri til fyrr en í gær) og allt sem því fylgir. Ég hef kanski aldrei verið eðlilegur í litavali og mjög mikið fyrir að hafa liti í kringum mig enda mjög litglöð og marglituð persóna. Þannig að ég vildi fá SKÆRGRÆNAR gardínur í stíl við stofuna mína en þar eru Rauður, skærgrænn og hvítur í aðalhlutverki, ekkert svona beint auðveldasti litur í heimi að finna á gardínur, hafði prufað nokkrar búðir áður án árangurs, en IKEA klikkar að sjálfsögðu ekki á svona smáatriðum, eða..... ?? Því miður voru ekki til svona gardínur en á hinn bóginn fannst svona efni þannig að þá voru að sjálfsögðu keyptir nokkrir kílómetrar af skærgrænu efni (eftir gott samtal við mömmu um lengd og magn) og þá var bara að finna sér hvíta gardínukappa, sem að átti að vera minnsta málið í þessari ferð, nema hvað að IKEA er ekki með neina hvíta gardínukappa, þeir eru með rauða, gula, græna, rósótta og eins og alltaf í IKEA, dökk beige ljóta, en fjandinn hafi það enga hvíta, þannig að eftir nokkra klukkustunda vangaveltur að þá ákvað ég að salta það aðeins og athuga hvort það væri ekki til einhverstaðar annarstaðar enda ekki að nenna að kaupa nokkra kílómetra af hvítu efni líka, en þar sem ég á að sjálfsögðu ekki saumavél og basicly ef ég ætti að þá.... jaaahhh orðið ég kom þarna fyrir og þarf ekki að útskýra það betur, getum orðað það svoleiðis að smíðarnar voru frekar mín grein í grunnskólanum, en get státað mig að því að hafa nú staðið mig betur en Elli í saumunum, toppar ekkert að "missa" óvart heilann eehhh garn..a...bolta??? æi þið vitið, svona upprúllað garn, en amk, "missa" það kvikindi útum gluggann og eyða restinni af tímanum í að tosa það inn..... En eftir þetta mikla sjokk að finna ekki kappann að þá var að sjálfsögðu vaðið í innkauparþunglyndi og keypt fullt af ódýru smástuffi og eins og öll önnur skipti þegar ég hef verið í þessari fjandans búð, verið í sjokki þegar ég var að borga hvað allt þetta ódýra drasl kostaði mikið
Og svo negla á fyrsta...
Nov 18, 2005, 20:08
Úff, ótrúlega er ég ótrúlega þreyttur akkúrat núna, enda ekki oft að maður sé að hella uppá kaffi klukkan 08:00 á kvöldin til að reyna að halda sér vakandi eitthvað aðeins áfram. En var að koma heim núna frá æfingu og nuddi þar sem gekk bara svona.... jú, nokkuð vel, þar sem æfingin frá síðustu viku var endurtekin, 6x200m með 5mín hvíld í sléttbotna racerum með Sandro og Sandin og var eina missionið fyrir þetta að hlaupa alla undir 26sekúndum en ekki deyja svona eins og í síðustu viku og hafa þennann fyrsta aðeins hægari eða um 25.7 en ekki 25.3 eins og síðast, og með þetta í huganum var NEGLT á þetta. Og basicly að þó fór planið í rúst í fyrsta spretti þar sem ég var að fíla mig svona helvíti vel, hljóp hrikalega létt og afslappað og kom vel á undan hinum tveim og það fyrsta sem fór í gang í hausnum á mér þegar ég sá svipinn á þjálfaranum var...."SHITT", niðustaðan á fyrsta spretti 24.3 (eða basicly 7/10 hægar en ég hef hlaupið hraðast í 200m innanhús, nema að þetta var á sléttbotna racerum) þannig að fyrsti svona fínn, og BARA 5 eftir.... Ætlaði að dempa hraðann aðeins niður í cirka 25.5 sem tókst svona gífurlega vel og var næsti á 25.6, nema hvað að mér fannst ég vera að hugsa of mikið um að hægja á þessu þannig að þessi varð í rauninni lélegasti, stíllega séð, spretturinn minn. Eftir þennann komu svo 25.0 - 25.4 - 25.9 og svo síðasta helvítið þar sem ég kom aðeins vitlaust inn í síðustu beygjuna og missti hraðann niður og endaði á helvítis 26.0 og þar með missionið fallið... var ekkert smá hrikalega svekktur með þetta og í staðinn fyrir að leggjast niður í sýrudauðans að þá var bara farið að skokka og leið því bæði ógleðin og sýran yfir þannig að ruslatunnan fékk að vera í friði í dag... En annars bara helvíti lítið að frétta, kaffi og forritun í kvöld, vinna og IKEA á morgun + lærdómur restina af helginni, ekki allir í stuði :)
Jaíts
Nov 17, 2005, 09:50
Rölti rólega inn í eldhús til að ná mér í kaffibolla og ristað brauð, klukkan korter í níu á þessum fallega fimmtudagsmorgni, kíkti á minnismiðann minn ,þar sem á stóð hvenær mætingin var aftur til augnlæknisins, til að tékka hvort að tíminn myndi ekki örugglega byrja 9:50, og jújú, að sjálfsögðu hafði ég ekki klikkað, á miðanum stóð 8:50 eins og mig minnti, rölti því áfram og...... bíddu við....8:50, fuck það er eftir 5mín, þannig að þá var skellt sér í fötin í flýti og rokið út um hurðina og GODDAMN, fyrsta frost vetrarins komið og DJÖFULLI VAR KALT!!!! EN jæja, amk kominn heim og enn á lífi og áður en ég fer í skólann VERÐUR KEYPT HÚFA, enda legg ég ekki aftur á eyrun á mér það sem þau þurftu að þola áðann og já Óli minn, trefillinn verður sko þokkalega notaður á eftir. En þegar ég kom heim áðann ákvað ég að skella brauðinu sem ég hafði verið að rista aftur ofaní ristavélina til að fá smá il á það, settist svo niður fyrir framan tölvuna og ég er bara hreinlega ekki að mæla með því að tvírista 2 brauð á hæsta hita, þvílíki reykmökkurinn hérna inni, lyktin ekki alveg uppá marga fiska og svo er bara að velja, deyja úr reykeytrun eða opna gluggann og deyja úr kulda???? En um helgina verður svo kíkt í IKEA djöfulinn, en eins og þeir sem muna að þá hef ég lent í þessum djöfli áður því að þeir eru með svo ótrúlega mikið af vörum og allt lítur svo rosalega ódýrt og fínt út, þannig að maður kaupir ótrúlega mikið af ótrúlega ódýrum vörum Ã