FALLINN!!!
Oct 30, 2005, 17:57
Var víst einhver villa á log in svæðinu mínu þannig að ég gat ekkert skrifað neitt inn og vegna gesta og anna að þá gat ég nú bara ekki fixað það fyrr en áðann, en stutt yfirlit yfir síðustu daga: ÉG FÉLL Í MÍNU FYRSTA PRÓFI!! og ekki bara féll, ég hreinlega skítféll, en það var hinn stórskemmtilegi áfangi Transformers och Linjära system sem er basicly bara stærðfræði, en það sem í rauninni er það merkilega við þetta fall er það að mér fannst mér hafa gengið bara þokkalega vel í prófinu, auk þess að síðustu 2 dagana fyrir prófið að þá var ég að kenna MÖRGUM félögum mínum hrikalega mikið í þessu og 2 af vinum mínum voru rétt fyrir neðann lágmarkið og fengu verkefni sem þeir áttu að leysa og ná x miklu í þeim og þá í rauninni leysti ég 3 af 4 dæmum fyrir þau. Strákarnir líka bara "HA, félst ÞÚ?" en einhverntímann verður allt fyrst þannig að þá er bara að fórna jólafríinu í að læra... JIBBÝ FOCKING JEY!!! Já svo flutti Magga aftur til Íslands á föstudaginn þannig að þá er orðið einum Íslendingnum færra í borginni, held að það hafi meira að segja snjór og fínerí tekið á móti henni :) Bjössi frændi kíkti svo í heimsóknina yfir helgina og var bara alveg ljómandi gamann hjá okkur, ekki mikið gert reyndar en helvíti fínt bara, kíkt í kveðja-Ghetto-íbúðar-partý hjá Bjössa Margeirs og Rakel á föstudagskvöldið þar sem að Bjössi Margeirs og Krissa komust að því að afar þeirra séu víst bræður og þau því "náskyld", Ísland er bara hreinlega skemmtilega lítið. Á laugardagskvöldið var svo kíkt í innflutningspartý hjá Sandro æfingafélaga mínum og var dútlað sér þar til um 3 um nóttina og þá komið sér heim enda orðinn vel þreyttur, reyndar var klukkan þá bara um 2 þar sem að vetrartíminn tók gildi um miðnætið en mundi það að sjálfsögðu ekki fyrr en í dag, sem betur fer því annars hefði ég nú misst af One Tree Hill í dag. Dagurinn í dag fór svo bara mest í gott chill þangað til ég kvaddi Bjössa og tekur því lærdómur við núna það sem eftir er kvölds eða svona þangað til að 24 byrjar.. En vill einhver taka helvítis James Blunt diskinn af mér, þetta er hreinlega bara ekki fyndið hvað hann fær að Repeat:a oft yfir daginn!!!!
Sofmorgunn
Oct 25, 2005, 19:01
Já, tók alveg helvíti góðann sofa út morgunn í morgun, en rotaðist gjörsamlega uppí sófa í gærkvöldi uppúr hálftólf eftir að hafa horft á hina snilldarmynd enn einu sinni Pirates of The Carabean og drattaðist uppí rúm svona um hálf 2 leytið og ætlaði að fara á lappir uppúr átta hálf níu þar sem skólinn átti að byrja klukkan hálf ellefu. En neeeiiii var ekki alveg að ganga eftir þrátt fyrir að vera með 2 nokkuð háværar vekjaraklukkur en ég bara hreinlega rumskaði ekki heldur svaf bara eins og engill til 20mín í 11 þannig að tíminn var basicly byrjaður. En reyndar alveg merkilegt með það að þegar maður nær loxins að sofa lengi að þá er maður alveg ónýtur af þreytu yfir allann daginn, virkilega weird stöff þar sem maður ætti nú í rauninni að vera pigg och frecsh!!! En byrjuðum í Java forrituninni í dag og djöfull held ég að þetta verið skemmtilegur kurs, amk eftir að ég var búinn að jafna mig á verðinu á bókinni, niðurstaðan, 13000sænskar í bækur fyrir þessa periodu.... yeeaahhh En skellti mér svo á æfingu með langhlaupurunum þar sem þessi stórskemmtilega 60x15sekúndur með 15sekúndna hvíld var á dagskrá, eða 40stk fyrir þá "lélegri" og 60stk fyrir naglana sem maður telur sig að sjálfsögðu með, var reyndar orðinn vel þreyttur eftir 25stk og hugsaði, æi tek bara 40 á þetta, eftir 40 voru nottla bara 10 í 50 og voru því teknir 50, en þá virtust lappirnar á mér heldur betur vakna og ekki frá því að þessir síðustu 10 hafi bara verið léttastir, merkilegt nok :)
Fyrsti skóladagurinn
Oct 24, 2005, 11:42
Jæja, nýja skólaperiodan byrjaði í morgun, munaðir reyndar ekki miklu að hún hefði hreinlega ekki byrjað vegna gífulegrar þreytu en rétt náði að rífa mig á lappir 10mín fyrir strætó þannig að það hafðist nú allt samann.. En eins og stundartaflan á síðustu lesperiodu var nú góð að þá er þessi alveg jafn slæm, fyrir utan mánudaga þar sem ég er í skólanum frá 8:30-10:30, en er annars 2x í viku til fucking fimm, þeas á þriðju- og fimmtudögum, og sofa út til hálf 11 á þriðju- , miðviku og föstudögum, væri maður ekki bara meira til í að byrja kl. 8:30 í skólanum og vera búinn fyrr og geta nýtt daginn bara svona smá pínu lítið, en nei, það er víst alveg bannað... En 2 áfangar núna, eða í rauninni 3, einn forritunaráfangi og svo í rauninni 2 stærðfræðiáfangar, amk sitthvort prófið í þeim, þannig að ég fór að kaupa stærðfræðibækurnar í morgun og bara wtf.... 5 helvítis bækur!!!!! heĺt að það væri virkilega verið að gera grín í mér og tæplega 700sek fyrir þetta drasl og á þá enn eftir að kaupa Javabókin, djísús kræst sko, fínt að taka spari skapið hinsvegar út á íbúðinni sem er basicly farin að speglast af sjálfri sér svo helvíti fínt er þetta nú orðið, bara þá að skella sér uppí IKEA við tækifæri og kaupa Gluggatjöld, eldhúsljós, nokkrar myndir og alveg böns af smá drasli sem mig dauðlangar í :) En hirriðið já, gleymdi nottla alveg í gær að segja frá alveg gríðarlega "skemmtilegu" atviki sem gerðist á laugardaginn, en þá vorum við inni á Bryggeriet og vorum ég, Peter og Krissa á dansgólfinu í þessum fína fíling þegar ég er alveg nokkuð viss um að það hafi verið reynt við mig!!! Sem væri kanski ekki alveg frásögufærandi nema að þetta var ekki stelpa, ég er svo alveg djöfulli viss um að þessi gaur hafi verið að reyna við mig, en við vorum sumsé að dansa eitthvað þarna þegar það kemur einhver gaur og kemur þarna og kynnir sig eitthvað og fer að dansa með okkur, síðann þegar maður er í sakleysinu að dansa þarna á fullu að þá tek ég bara eftir því að gaurinn er basicly ekki að horfa á neitt mikið annað en mig.... þannig að maður reynir að leiða það bara hjá sér þegar gaurinn kemur að mér og einhverrahluta vegna strýkur mér um hökuna, kom þá smá fát á mig og fann einhverja helvíti góða afsökun og dreif mig út í horn þar sem Magga, Karin og Groten sátu og faldi mig á einum stóli þarna bakvið þau, en þegar ég ætlaði að benda þeim á strákinn að þá var hann bara horfinn, enda ábyggilega hryggbrotinn og í ástarsorg yfir þessari gífurlegu höfnun, þanni að þá var bara skellt sér aftur á gólfið og dansað áfram :) Amk fyrsta skiptið sem maður lendir í þessu!!!
Og þessi dagur er í boði Gevalia & Coca Cola
Oct 23, 2005, 13:18
Ekki frá því að ef James Blunt hefði verið í heimsókn hjá mér síðustu viku að þá hefði hann ábyggilega kært mig fyrir misþyrmingu á disknum sínum, enda held ég að ég hafi aldrei spilað einhvern disk jafn mikið og þennann ágæta disk með honum síðustu dagana/vikurnar og er bara hreinlega ekki að fá leið á honum, alltaf bara jafn góður og í fyrsta skiptið, ekki lengsti diskur í heimi þannig að hann nær að rúlla alveg ótrúlega oft svona í gegnum daginn og lag 4, Goodbye my lover, fær svona auk þess sína auka 50 snúninga, finnst það lag bara vera svo ógeðslega flott að það er hreinlega barasta ekki fyndið, enda ekki fyndið lag, bara svona eitt af þessum lögum sem fá hausinn alveg til að snúast í hringi og hugsa og pæla...
Did I disappoint you or let you down? Should I be feeling guilty or let the judges frown? 'Cause I saw the end before we'd begun, Yes I saw you were blinded and I knew I had won. So I took what's mine by eternal right. Took your soul out into the night. It may be over but it won't stop there, I am here for you if you'd only care. You touched my heart you touched my soul. You changed my life and all my goals. And love is blind and that I knew when, My heart was blinded by you. I've kissed your lips and held your head. Shared your dreams and shared your bed. I know you well, I know your smell. I've been addicted to you. Goodbye my lover. Goodbye my friend. You have been the one. You have been the one for me. I am a dreamer but when I wake, You can't break my spirit - it's my dreams you take. And as you move on, remember me, Remember us and all we used to be I've seen you cry, I've seen you smile. I've watched you sleeping for a while. I'd be the father of your child. I'd spend a lifetime with you. I know your fears and you know mine. We've had our doubts but now we're fine, And I love you, I swear that's true. I cannot live without you. Goodbye my lover. Goodbye my friend. You have been the one. You have been the one for me. And I still hold your hand in mine. In mine when I'm asleep. And I will bear my soul in time, When I'm kneeling at your feet. Goodbye my lover. Goodbye my friend. You have been the one. You have been the one for me. I'm so hollow, baby, I'm so hollow. I'm so, I'm so, I'm so hollow.
En alveg ótrúlegur þessi morgun í morgun, fór að sofa uppúr hálf þrjú í nótt og var þá alveg að rottna úr þreytu, hvert skref á leiðinni heim varð alltaf veiklulegra og veiklulegra og rúmið nálgaðist og nálgaðist, bara hreinlega alveg búinn eftir þessa próftörn og var ekki alveg í mesta partýstuði í heimi en entist nú samt svona lengi, en aftur að morgninum, ÉG FUCKING VAKNAÐI KLUKKAN 08:00 Í MORGUN!!! og eins og maður segir nú á góðri ensku "WHAT THE FUCK" og ekki bara þú veist ég vaknaði, ég vaknaði alveg ógeðslega þreyttur, þannig að þá ætlaði ég að sjálfsögði að sofa klst í viðbót áður en ég þyrfti að taka mig til á æfingu en neeeiiii, þrátt fyrir að vera ógeðslega þreyttur að þá lá ég bara þarna í rúminu en gat ekki sofnað... hvað er málið með það að vera ógeðslega þreyttur en geta samt ekki sofnað??? þanig að ég var í rauninni eins og liðið lík á æfingunni í dag, sem er ekki alveg hresst í brekkusprettum + 20x1mín-1mín hvíld fartleik í brekku-skógi-dauðans. En núna er algjörlega málið að klára að laga til sem ég byrjaði smá á í gær og svo bara leggjast uppí sófa með tærnar hálfa leið uppíloft og glápa á sjónvarpið, drekka kaffi og éta popp með kóki.....
Yeeeaaahhhh
Oct 22, 2005, 15:13
djöfull er ógeðslega gott að þessi helvítis prófperioda sé búinn, var alveg kominn með langt, langt ofaní kok af þessu enda planið á morgun algjörlega REEELLLAAAAXXXXXX, stripplast bara hérna á brókinni, glápa á sjónvarpið og nákvæmlega ekki þurfa að huxa baun í bala. En í gær var vaknað kl 7:30, lært þar til ég fór á æfingu klukkan 10 og negldi þá á allnokkra 300m spretti sem gengu bara ljómandi, var kominn uppí skóla um 1 leytið þar sem við sátum nokkrir strákar til rúmlega átta um kvöldið, en þá var almenn þreyta og höfuðverkur vegna áður óþekktrar notkunar á heilanum þannig að á var bara skellt sér heim, neglt í sig smá verkja og bólgueyðandi og glápið á Gladiator sem klikkar nottla ekki og farið að sofa eftir það. Ég nottla hata algjörlega að læra sama dag og próf er sem er nottla ekki alveg jákvætt þegar prófið byrjar klukkan 2 þannig að í morgun var bara skellt sé niður í vinnu og tók einhverja 1klst í smá yfirlestur en enga útreikninga áður en ég fór inn í prófið sem ég er alveg 99% viss um að ég hafi náð. Kláraði 4 dæmi held ég alveg sem gildu 27stig af 50 en hin fjögur voru hreinlega ekki að virka og eftir að hafa setið alltof lengi yfir þeim og koma mér í vont skap þannig að þá var bara hypjað sig út og er missionið núna að taka aðeins til hérna á heimilinu sem er ekki alveg íbúðarvænt eftir prófvikuna og koma sér svo í smá efter-tenta-fest heima hjá Peter í kvöld, sjáum til hve lengi maður endist þar, þar sem þreytan er í góðu hlutverki hérna núna auk þess sem það er æfing kl. 11 í fyrramálið... stuð og stemning
Ó nó... mæ æs...
Oct 20, 2005, 21:20
Held að hægri augað á mér hafi gjörsamlega fengið nóg af pirringi í gærkvöldi, en fór út að skokka á æfiningunni og tókst þá að fá flugu í augað, var ekki alveg að ganga að ná henni út og þegar hún hætti lox að sprikla að þá hljóp ég restina af leiðinni með þennann stórskemmtilega aukafarþega og tók hana úr þegar ég kom inn í Friidrottshus, svo seinna um kvöldið að þá tókst mér einvhernveginn að fá 2x augnhár í augað sem er alveg mest pirrandi í heimi + auka pirringur þegar maður er með linsur. En speaking of linsur að þá er ég að spá í að fara að skella mér til augnlæknis, er bara ekki alveg að fíla það hvað ég er að sjá illa þrátt fyrir linsur þannig að ég held að sjónin sé bara búin að versna frá því síðast sem er að sjálfsögðu ekki alveg nógu gott, vill bara að þetta fari að stabílast þannig að ég geti skellt kvikindunum undir Laser og kabúmm.. fixa þetta, alveg löngu hættur að þola linsur og gleraugu! En er annars kominn með algjört lærdómsógeð, var kominn með það fyrir próf og er það hreinlega ekki að batna núna þegar maður situr allann fyrrihluta dagsins að grúska í nokkrum dæmum, verð bara svo ógeðslega þreyttur við þetta að það er ekki fyndið, síðann fer maður á æfingu og ætlast svo til að sér að læra eftir það... neeeiii held ekki, tókst meira að segja í gær að koma heim af æfingunni, éta og fékk mér 2.5 bolla af kaffi + 1 af tei frá 20-23 en þá hreinlega steinsofnaði ég... hvað er næsta skref á örvandi á eftir kaffi???
Jebb, that\'s me:
Oct 19, 2005, 17:49
BODY TYPE: Athletic GENDER: Male AGE: 23 HEIGHT: 184 (er samt 184.5) WEIGHT: 65.5kg BMI (body mass index): 19.3 BMR (Basal Metabolic Rate (cals/day) ): 7259 kj, 1735 kcal IMPEDANCE: 549 ohm FAT %: 4.8 % FAT MASS: 3.1kg FFM (Fat-Free Mass in Athletes): 62.4kg TBW (Total Body Water): 45.7kg Já, var sumsé í nuddi áðann og sá þá þessa græju sem ég hélt að væri bara vikt og spurði nuddarann hvort ég mætti ekki prófa, hann bara jújú endilega og steig því á þetta, sá þá líka á skjánum fituprósentuna og bara nú, greinilega ekki bara vikt og þá prentaði græjann bara út miða með þessum upplýsingum á og bara jahá, helvíti töff, er sumsé einhver græja sem sendir einhver ohm í gegnum kroppinn og mælir þetta sumsé út, maður veit nottla ekkert hvað er að marka svona græju en amk miðað við þetta að þá er ég þokkalega sáttur við þyngdina núna, bæta kanski við kílói en hinsvegar er ég of feitur, þannig að núna verða tekin 1.8% af fitu í burtu og bætt við vöðvum í staðinn og uppí svona... 66-67kg og þá held ég að maður sé bara hrikalegur... er þaggi :D
1búið, 1 eftir
Oct 19, 2005, 09:21
Jæja, var að skríða útúr fyrra prófinu núna, Realtidsystem og svona...... jú ég ætti nú alveg að ná því, reiknaði samann einhver stig og miðað við það verð ég á mörkunum 3:ur 4:i (af 5) en 5:a verður þetta aldrei því miður og ef ég hef verið í ruglinu að þá gæti þetta lent vitlausum meginn en að sjálfsögðu má maður ekkert hugsa svoleiðis. Lagði aðaláhersluna á fyrir þetta próf að læra allar formúlur og svoleiðis drasl + að þetta var forritunaráfangi þannig að maður kunni þann hluta vel, en lét í rauninni að læra hvað öll þessi orð þýddu nú mæta afgangi þar sem að miðað við þessi 2 gömlu próf sem við höfðum í höndunum að þá voru þau ekkert gríðarlega stór hluti, þannig að maður lærði öll þau helstu og geymdi hitt einhverstaðar vel aftarlega í minninu, kom svo í prófið og bara hey... fyrstu 10 stigin bara svona fucking orðaspurningar.... sem er ekkert rosalegt nema að prófið var ekki nema 25stig þannig að næstum 50% bara orðaspurningar OG EKKI FUCKING EITT DÆMI SEM MAÐUR ÞURFTI AÐ KUNNA EITTHVAÐ Í FORRITUN!!!! Þannig að ég byrjaði þá bara á öllum reiknidæmunum og held ég hafi nú gert þau öll að mestum hluta rétt þannig að það ætti að duga mér í að ná áfanganum og eyddi svo restinni þangað til ég nennti ekki meiru í að leita vel aftarlega í þessu tómlega heilabúi að hvað þessi orð þýddu og gekk það svona upp og ofan, en þá er það bara Transformers á laugardaginn og svo.... jaahh, nýir áfangar á mánudaginn... jeeeyyy :)
Próf á morgun
Oct 18, 2005, 20:20
Og er ég hreinlega orðinn verulega áhyggjufullur, ekki útaf stressi, nei heldur vegna þess hvað ég hreinlega virðist vera alltof slakur fyrir próf svona yfir höfuð, já og í rauninni keppnir, eða basicly aldrei stressaður, reyndar búinn að vera fínt duglegur að læra fyrir þetta próf og alveg viss um að ég nái því, gott að vera gáfaður eins og ég (djöfull á ég eftir að fá skell í prófinu bara út af þessari línu) en allavega, próf á morgun og svo næsta á laugardaginn... HVER HEFUR PRÓF Á LAUGARDEGI??? Gekk svo frá því endanlega áðann að ég fer ekki til Kanarí um áramótin, ákvað svona peningastatusinn vegna að eiga frekar smá llíf eftir áramótin þannig að ég cancelaði þessu og gekk frá flugmiðanum heim um jólin, kem 18.des og aftur hingað 3.janúar, jibbý jey... Síðann fær Groten heiðurinn að vera snillingur vikunnar fyrir að kaupa sér nýjann síma og láta mig fá gamla símann sinn þannig að loxins er ég kominn með síma með "0" takka þannig að loxins getur maður farið að senda sms á fullum krafti aftur :) + að hrikalega góður kostur að vekjaraklukkan er hærri í þessum en í mínum sem er bara FRÁBÆRT fyrir prófið á morgun :)
Og þá sveimuðu englar yfir...
Oct 17, 2005, 18:23
...og sungu ættjarðarvísur, slógu á trommur og léku sér í sandkassa, þegar loksins einn þeirra hvíslaði mér í eyra að ég fái íbúðina í amk ár í viðbót, þá fór ég að syngja gleðisöngva, slóg trommusóló á potta og pönnur, hljóp einn hring í kringum húsið og fékk mér kaffibolla... sagði svo Snata gleðitíðindin, en hann þagði bara og gerði ekki neitt, enda bara planta og getur lítið gert við því kúturinn, en er nú samt dúlla þrátt fyrir það, mússí mússí mússí. En helvíti er þetta sweet, nottla minna en ekkert verið að ganga að finna nýja íbúð sem arftaka þessarar og leit í rauninni út að ég þyrfi að finna einhverja skammtímalausn eins og að búa í einhverri holu í skammann tíma og flytja þá enn og aftur, hringdi meira að segja heim í gær og sagði þeim að ég væri á þeim buxunum að kaupa bara íbúð og hætta þessu rugli, en afhverju er maður Á þeim buxunum, eða var það kanski Í þeim buxunum, nei ábyggilega ekki.... voru ekki annars örugglega buxur í þessari tilvitnun, jú ábyggilega, allaveganna var það flík... En haustið er annars gengið í garð í þessari ágætu borg kennda við Gauta, alveg ótrúlega mikill skítakuldi og ætla ég strax eftir próf að kaupa mér 3stk húfu og 6stk vettlinga sem ætti að duga sem mánaðarskammtur þar sem ég er eins og lítið smábarn með að týna þessu og held örugglega að það sé ekki hægt að fá svona stóra vettlinga með bandi eins og krakkarnir á leikskólanum eru með, held að það væri mögulega eini sénsinn minn að týna þessu ekki, en þá ætti ég bara vettlinga en ekki húfu, vjézen smézen, já og svo held ég að IKEA verði tekið í þurrt í næstu viku þar sem ég verð með íbúðina áfram og fjárfest í gardínum og eldhúsljósakrónu en það var alltaf á biðlista enda nenni ég ekki að eiga of mörg sett af gardínum fyrir mismunandi íbúðir... En allaveganna... góður dagur
Nætursnarl
Oct 17, 2005, 07:51
Alveg merkilegt með það að það er í rauninni sama hvað maður étur mikið í kvöldmat að maður verður alltaf orðinn ógeðslega svangur uppúr 23-23:30 og þegar maður er orðinn ógeðslega svangur að þá er ekki fræðilegur að geta sofnað þannig að þá þarf maður alltaf að fá sér eitthvað létt í gogginn fyrir svefninn. Eins er þetta í rauninni með morgnanna, maður fær sér morgunmat fyrir átta og er alveg að drepast úr hungri rétt eftir 10 þannig að maður þarf alltaf að taka með sér slatta af samlokum og ávöxtum svona til að meika í gegnum skólann, og í rauninni alveg sama hve mikið maður étur í morgunmat, alltaf þarf maður að éta klukkan 10. En í gær var annars haldið sig inni að mestu leiti og reynt að læra enda hvorki hæft fyrir menn né dýr að vera úti í gær, svo mikill var djöfulsins kuldinn, ekki frá því að það hafi verið einhverstaðar í kringum frostmark og .. *stend, upp og opna gluggann* .. jú, ennþá skítakuldi í dag, þannig að ef maður ætti einn góðann Kraftgalla, húfu og vettlinga að þá myndi maður gíra sig vel upp í það, en þar sem ég á hreinlega ekkert af þessu að þá verður bara hreinlega úlpan að duga. En jæja, spurning að reyna að sulla þessu kaffi niður með voltarín töflunni og gá hvort að hálsinn og almennur aumingjaskapur verði ekki orðinn betri áður en maður fer í skólann að flengja þetta Realtidssystem
What to do, What to say
Oct 15, 2005, 13:36
Jæja, þá eru prófin bara á næsta leiti, síðasti skóladagurinn á þessari periodu var í gær og próf í næstu viku, á miðvikudaginn og laugardaginn þannig að núna ætlar maður að vera hrikalega duglegur í að sökkva sér ofaní bækurnar og reyna að brilla í þessum prófum. Annars líka miklar pælingar með áramótin - Kanarí eða ekki, Kanarí eða ekki.... hmmmm, spurning að velta þessu aðeins fyrir sér fram og til baka áður en maður ákveður eitthvað endanlega en prógramið um jólin gæti þá sumsé litið cirka svona út: 18.des -> Gautaborg - Köben - Ísland - Kanarí - Gautaborg : 6.jan. En eftir 2 frábærar æfingavikur að þá kom að einni alveg skítaæfingu í gær, en átti að taka slatta af hoppum, mótstöðu og svo 2x4x300m með 4mín hvíld, en var eitthvað drulluslappur um morguninn en skánaði eftir því sem leið á daginn og hélt ég væri orðinn svona helvíti fínn þegar ég kom á æfingu og byrjaði að hoppa, en óneiónei hreinlega lyftist ekki, sama hvað ég reyndi og reyndi að spyrna niður í jörðina að þá bara hreinlega gerðist ekki neitt, var bara hreinlega máttlaus í löppunum, þjálfarinn svo alltaf að kalla í mig og segja mér að spyrna betur og ég bara eins og auli "ÉG ER AÐ REYNA". Þannig að eftir þetta katastrof að þá ákvað þjálfarinn að ég skildi sleppa mótstöðunni enda algjör óþarfi að drepa dauðar lappir fyrir hlaupin og skellti ég mér því í sprettina. Kom í rauninni ekkert á óvart hvað fílingurinn var enginn og eftir að hafa hlaupið 3stk á 44.3-44.3-44.2 að þá sagði þjálfarinn að þetta væri bara orðið fínt og senti mig til 3ja spretthlaupara áttu eftir að taka 2x200m með 4mín hvíld, höfðu verið að taka þetta sæmilega rólega á 30-31sek þannig að ég ákvað nottla alveg að eyðileggja það og fóru þessir tveir á 27.9 og 26.0, allt í sléttbotna að sjálfsögðu... æi fuck it, farinn að læra!!!!
Massage
Oct 12, 2005, 21:36
Ákvað að skella bara lífinu og tilverunni í kæruleysi áðann eftir að hafa verið í nuddi og reddaði mér einum xtra tíma á viku þannig að ég fer þá 2x í viku í nudd en ekki bara einu sinni eins og planið var, held að það sé alveg allgood sko, lappirnar alveg teknar í karphús og núna frameftir bakið líka, held að maður ætti þá að geta klifið hvaða fjöll sem er, nema Tindastól, enda er það besta fjall í heimi... og Glóðafeykir.... En kíktum áðann 7stk íslendingar + Peter svíjakvindi á einn stað niður í bæ þar sem við fengum okkur að éta og nutum þess í smá tíma að vera yfir á móti Svíjunum, eftir það voru fánar og húfur settar ofaní töskur þannig að maður þyrfti ekki að láta svíjana hlægja af sér, en fannst við samt standa okkur eins og hetjur með að tapa bara 1-3 á móti þeirra sterkasta liði. Eftir leikinn var svo eitthvað standup lið á staðnum þannig að það var hlegið, inn á milli, úr sér garnirnar áður en maður hentist heim þar sem ég komst bara alltíeinu að því að ég var drulluþreyttur, þannig að góð spurning ða leggja sig Góða nótt já og Sudoku er algjörlega málið....
Úúú babe
Oct 11, 2005, 21:16
djöfulli er ég alveg ógeðslega þreyttur akkúrat núna en fílingurinn samt ótrúlega góður, veðrið í dag var hreinasta snilld eða tæplega 20°C og því frábært að hlaupa æfinguna í dag, logn og sól, ekki hægt að kvarta í miðjum október.. En á dagskránni var alveg helvíti skemmtileg æfing með langhlaupurunum hérna sem hljómaði uppá 20x70sekúndur með 20sekúndna hvíld, alveg hrikalega erfitt en var mjög sáttur með þetta, var einhver 20manna hópur að hlaupa og náði ég að halda mig í hópi með þeim fljótustu sem inniheldur 2stk 1:50.5-1:51.5 + nokkurra 3000m og 5000m hlaupara. Komst líka að því hvað hausinn er að virka algjörlega miklu betur núna en í fyrra, var farinn að finna fyrir þessu eftir cirka 6 spretti en eina sem komst að var basicly "if they can do it, I can" og var neglt áfram með þeim, upphaflega planið var að hlaupa 15 spretti, en þegar 15 spretturinn var búinn að þá hefði ég hvort eð er þurft að labba til baka þannig að þá var að sjálfsögðu hlaupið með kvikindunum til baka, en þá voru nottla bara 4 eftir fyrir þá hörðustu og 4 af 20 er andskotinn hafi það ekki neitt þannig að það var neglt á þá síðustu og allt samann slúttað með laanngrrii maga og bakæfingu, líka alveg vel þreyttur núna heima, og vel saddur þar sem hamborgararnir frá því í gær voru stútaðir núna, shitt hvað ég er góður að gera hamborgara :)
Æi afhverju
Oct 10, 2005, 20:52
Ég hata þegar þetta gerist, ég hreinlega hata gleymskuna mína... urrrr... áttum okkur á því að ég er reiður.... urrr svona einu sinni í viðbót... urrrr En ég var búinn að plana að éta hamborgara eftir æfinguna í kvöld, þetta stóru sveittu 2stk 250gr risahamborgarana mína með öllu grænmetinu sem ég á heima áður en það skemmist. Þannig að þetta var það eina sem ég hugsaði um á meðann ég var að teygja á, og biða eftir helvítis sporvagninum alltof lengi og varð því alltaf svangari og svangari, kem því heim, skelli frönskunum í ofnin, fer í sturtu og svoleiðis, kveiki á pönnunni, tek kjötið úr ísskápnum þegar ég alltíeinu fatta.... ÉG ÆTLAÐI AÐ KAUPA HAMBORGARABRAUÐ Í DAG, djöfulli langaði mig að grenja, klukkan 3mínútur yfir níju þannig að búðin hérna sem ég hefði getað hlaupið í, sem ég hefði aldrei gert... hefði labbað, var lokuð fyrir 3mín síðan og var bara hreinlega ekki að nenna að fara niður í ICA því að það hefði tekið of langann tíma, franskarnar að verða tilbúnar og var hreinlega orðinn of svangur til að bíða eftir því, þannig að samlokurnar mínar hafa hreinlega aldrei smakkast verri, svo mikið langaði mig í hamborgarana :( Svo þar sem maður er í svona góðu skapi að þá byrjaði dagurinn heldur ekkert altof vel, vaknaði við aðra vekjaraklukkuna mína og slökkti á henni og ákvað að liggja þarna í rúminu þangað til að símafjandinn myndi líka hringja, jú svo hringdi hann og ég reif mig á lappir og bara WTF, klukkan orðin korter yfir átta og korter í að skólinn byrjaði og 20mín frá því að minn venjulegi strætó fór, ákvað að vera ekkert að stressa mig og sleppti því fyrstu 45mínútunum og kom í pásunni... Sennilega bara toppurinn í dag á æfingunni sem var áðann en það gekk bara alveg nokkuð vel, var mikið í því að láta mig fókusera að keyra hnéin vel fram í 60m sem ég var að hlaupa og tók það alveg ógeðslega í lærin, 3x5x60m þannig að ég fékk í fyrsta skiptið sýru á ævinni við að hlaupa 120m, en tók 2stk af þeim eftir 60metrana og bara djííí, súrnaði svona hrikalega, veit núna hvernig Tedda leið á 3ja sprettinum í 4x100m á meistaramótinu fyrir nokkrum árum síðan þegar hann var að fara að hlaupa á Sigurð Arnar, Arnar hljóp á fullu af stað en fékk bara ekkert kefli og heyrði svo í Tedda mjög mjórómum fyrir aftan "SÝÝÝÝÝÝRAAAAAA", eini maðurinn sem ég hef vitað til þess að hefur gjörsamlega dáið í 100m spretti, djöfulli var það lÃÂ