Hmmmm
Sep 30, 2005, 16:20
búinn að sitja núna í 2 daga, opna þennann glugga og svona spá í hvað ég á að skrifa en dettur bara ekki neitt sniðugt í hug, engar heimskar pælingar í gangi, bara einhverjar gáfulegar, sem eru þaraf leiðandi ekkert frásögufærandi... En reyndar æfingarnar að byrja aftur á mánudaginn sem er nottla algjört jibbý jey, búinn að fá prógrammið mitt og spjalla við þjálfarana um veturinn og allt í gúddý þar í bæ.... Reyndar rosalega stoltur af mér, því núna í morgun var bara reiknitími klukkan 08:30 og enginn tími á eftir því og því var maður alveg rosalega mikið að pæla í að taka bara einn almennilegann sofaútmorgunn en var eiginlega kominn með samviskubit í gærkvöldi og var því einn af örfáum sem mættum í morgun en sátum svo 3 eftir tímann og reiknuðum til cirka eitt og kláraði ég basicly öll dæmin sem voru í boði þannig að í staðinn fyrir að sofa, skilja ekki neitt og eiga allt eftir að þá lítur út fyrir vel rólega og góða helgi í lærdómsmálunum, þannig að spurning kanski að koma sér í að laga helv**** myndasíðuna...??
Æi þessir miðvikudagar
Sep 28, 2005, 15:40
Miðvikudagar halda hreinlega áfram að vera mínir "uppáhaldsdagar" eins og síðustu annir, en ég gleymdi víst að stilla vekjaraklukkuna í morgun en mín frábæra innbyggða sá nú um að redda mér á ögurstundu og vaknaði ég því 5mín í 8, eða 5mín eftir að minn venjulegi strætó fór, þannig að það var ekkert kaffi þennann morguninn (en að sjálfsögðu morgnmatur) þannig að dagurinn var nú bara eftir því. Reyndar á leiðina í skólann held ég að ég hafi ekki mögulega getað verið óheppnari með strætóa því að ég rétt missti af mínum hérna fyrir utann, labbaði niður á Korsvagen þar sem ég rétt missti af 3 sporvögnum sem allir komu á sama tíma og voru að fara þangað sem ég var að fara, sá í rassgatið á þeim öllum þegar ég var að koma þangað, mætti svo niður á Brunnsparken að þá kom einmitt strætó sem ég gat tekið, var reynar löng strætóröð þannig að hann opnaði hurðirnar þarna aftast eins og þeir gera oft en ég beið bara fremst, því þeir eiga að stoppa þar líka, en nei, ekki þetta fífl, hann keyrði bara áfram þannig að ég þurfti að bíða xtra lengi þarna þangað til næsti kom, gott að koma í góða skapinu alltof seinn í skólann :) Svo í skólanum í dag var ég í hraðbankanum og Groten rölti með mér, var svo að fara að velja upphæðina sem ég ætlaði að taka út þegar Groten ætlaði að vera voðalega fyndinn og þykjast ýta á 2000sek, nema að hann ýtti óvart á takkann þannig að ég þurfti að dúsa með 2000sek (cirka 17000ísl) í vasanum í allann dag, sem er ekki alveg sniðugast í heimi, því að ég og lausafé erum ekki bestu vinir því að ég er alveg duglegastur í heimi að eyða því, held ég læsi þetta inn í skáp hérna heima þannig að maður geri örugglega enga djöfulsins vitleysu........ En Madagaskar er góð mynd, skellti mér á hana í bíó í gærkvöldi í pínulitlum hálftómum sal með Möggu og Krissu og skemmtum við okkur bara alveg helvíti vel, mæli vel með henni :)
Yeah yeah
Sep 27, 2005, 21:33
Sju sjösjuka sjömän på skeppet shanghai, skjölde sina skitige skjortor i sjön. Þegar maðu getur sagt þetta með sænsku stæl að þá er maður útskrifaður úr sænskunni :)
James Blunt - Goodbye My Lover
Sep 26, 2005, 18:57
shii, ekki frá því að þetta lag með honum James Blunt sé bara með þeim flottari/fallegri lögum sem ég hef heyrt, alveg gjörsamlega búinn að hlusta alltof oft á það í dag og held ég sé bara hreinlega ekki að fara að hætta....
Pakki frá himni
Sep 26, 2005, 11:53
Yes, mamma senti mér pakka á föstudaginn og pósturinn greinilega alveg að standa sig eins og hetja, kom í morgun. Innihaldið: Cocoa Puffs og nýji Sigurrósardiskurinn Ég sáttur
Lærdómur
Sep 25, 2005, 18:11
Já, ég og Groten alveg búnir að fara á kostum í eldamennskunni og lærdómnum í dag, en fór til hans fyrir 12 í morgun og vorum við basicly að læra hjá honum þangað til núna, rétt fyrir átta, með einni 2klst pásu :) En hann bauð mér í Pönnukökur í morgun/hádegismat og ég gæti alveg vanið mig á það í staðinn fyrir Kornflakes í öll morgunverðarmál, og svo í kvöldmat ákváðum við að fá okkur kjúkling, alveg helvíti fínt svona í miðjum lærdómnum, en þar stóðum við okkur eins og hetjur og kláruðum allt sem við áttum að gera í Realtidssystem sem voru basicly ekkert fá dæmi... ákváðum að setja smá Chilli á kjúklinginn til að fá smá bragð á kvikindið og þurfti ég að sjálfsögðu að prufa að éta hálfann Chilli með öllu og... æi mæli ekkert með því, ekkert mál fyrstu 10sekúndurnar en næstu mínútur á eftir voru ekkert til að hrópa húrra fyrir. En þar sem Anna Beta var eitthvað að klukka mann að er þá ekki málið að skrifa eitthvað um sig, tók reyndar smá tíma að finna eitthvað sem fólk gæti mögulega ekki vitað, sem er doltið erfitt þar sem ég er ekkert mikið fyrir að halda kjafti um sjálfann mig, en amk 1. Ég vill mitt kaffi svart og sykurlaust Byrjaði á því að læra að drekka kaffi með 50/50 kaffi og sykur, var svo alltaf að minnka sykurmagnið þegar ég drakk einhverntímann kaffi með Vigni Kjartans og sagði hann þá að ég væri kelling að nota sykur og hef ekki gert það síðann, tók smá tíma en vandist svo bara mjög vel. 2. Hef tárast yfir of mörgum bíómyndum Komst bara að þessu um daginn, ég er kelling.. en höfum það í huga að ég hef ekki grátið, bara tárast sem er að sjálfsögðu ekki það sama, sennilega bara fengið eitthvað í augað, ryk eða eitthvað álíka. En þar hefur Green Mile algjörann vinning, séð hana helvíti oft og finnst alltaf voðalega sorglegt þegar góði stóri kallinn deyr. 3. Er utan við mig latur og gleyminn Æi veit ekki, þessi blanda fer bara hreinlega ekkert alltof vel samann, yfirleitt þannig að ég ætla að gera eitthvað að þá nenni ég því sjaldnast (nema að það sé eitthvað heimskulegt) og þegar ég ætla að gera það að þá gleymi ég því. 4. Líður best í brók eða nakinn En þetta vita sennilega flestir, ábyggilega líka allir þeir sem keyra eða labba framhjá íbúðinni minni, verð hreinlega að fá mér íbúð á 9.hæð 5. Sef næstum alltaf á hægri hliðinni Veit ekki afhverju, bara þægilegast að sofna svoleiðis, nema þegar ég horfi á sjónvarpið og sofna fyrir framann það að þá verð ég að liggja á vinstri, fínt að jafna þetta út :)
Nú er frost á fróni
Sep 24, 2005, 12:08
Var eitthvað hálf svekktur yfir því að vera bara hérna á laugardegi út í svíþjóð og heima á krók væri hrika sprell, fjör og gamann í Laufskálarétt, en hef engar áhyggjur lengur:
eina sem ég get sagt.... yeah, en fyrir áhugasama brottflutta skagfirðinga að þá er sumsé linkurinn á webcameruna hérna svo bara að refresha til að sjá nýjasta veðrið þar. En reyndar doltið skondið, var að skoða hitastigið í evrópu og svona öllum "helstu" stöðum í heiminum, þar sat Reykjavík á botninum með 4°C, London þar á eftir með aðeins meiri hita eða 14°C og svo fór þetta bara uppávið..... En fékk annars í gær útúr duggunni minni sem ég skeit á mig í á þriðjudaginn og gekk mér í rauninni betur en ég þorði að vona, 5stig af 10 þannig að þetta var næstum því ásættanlegt. En well, spurning að læra og eyða svo kvöldinu í að... gera ekki shæt :)
Álag
Sep 23, 2005, 11:33
Já ekki frá því að ég sé að gera útum allt heilabúið mitt akkúrat núna, því að ég þarf ekki bara að muna eftir að kaupa peruna í stofuna (2 vikur komnar) að þá mundi ég alltíeinu áðann eftir því að ég henti víst síðasta svörtusokkaparinu mínu í síðustu viku, þannig að ég þarf eiginlega virkilega mikið að muna eftir því að kaupa mér líka svarta sokka, því eins og allir vita er það nottla alveg out að fara í hvítum sokkum á lífið, hvað þá hvítum íþróttasokkum sem eru basicly einu sokkarnir sem ég á í mómentinu, shææææt. En reyndar er ég samt búinn að redda þessu ljósavandamáli í bili, þar sem að lampinn sem ég notaði sem backup eftir að stofuljósið fór að hann þarna *hóst* var víst með jafnstóra peru og ég þurfti í stofuna *hóst* þannig að ég var víst ljósalaus í viku að hálf óþörfu, en hún bara ekki alveg nógu sterk þannig að ég þarf að kaupa nýja, ástand og vjézen. En planið mitt að gera ekkert annað en að tölvunerdast, glápa á imbann og læra er víst alveg að fara til helvítis þar sem Vilmar er víst með fest í kvöld þannig að maður kíkir nú þangað, en stefnan samt ekki að fylgja með í bæinn þar sem ég er að fara að vinna í fyrramálið og er bara ekki að nenna að fara þreyttur þangað, gert það of oft hingað til og eyðileggur bara alveg allann daginn. En annars alveg helvíti ljúft veður í dag, sennilega rúmlega 15°C sól og næstum logn, kíkti í tilefni þess á live webcameruna frá króknum heim og grét það ekkert að vera hérna úti núna:
Skammdegið
Sep 22, 2005, 08:05
Jæja jæja, þar sem að hitastigið er nú bara rétt fyrir ofann á Íslandinu núna, thank god fyrir 15°C hérna ennþá og farið er að dimma og styttist í það að fólk fari í skólann/vinnuna í myrkri og komi heim aftur í myrkri, tekur það þá oft á gamla góða skapið. Mæli þá algjörlega með þessu lagi hérna, gamalt þemalag úr Benny Hill þáttunum, getur vel verið að ég sé hreinlega bara svona hrikalega einfaldur, en þetta lag fær mig bara alltaf til að brosa :) En svo byrjaði í gær seinni helmingurinn í Transformers dótinu sem þýddi önnur jafnþykk bók og annar kennari sem er í rauninni alveg helvíti skondinn, ekkert að spara aulabrandarana og kom með einn alveg helvíti góðann í gær þegar hann skrifaði uppá töflu:
.......... En dator kan inte registrera anal- oga signaler.........
Heyrist svo í kallinum, nei hvur djöfullinn, ég skrifaði ANAL upp á töfluna hjá mér..... kanski meira svona had to be there moment en djöfulli var þetta fyndið (lítill, þybbinn, alskeggjaður kall með gleraugu)
Shitt
Sep 20, 2005, 13:30
Fékk alveg ágætis spark í rassgatið í morgun þegar ég fór í dugguna í Transformers og Linjara system, þar sem ég hef bara hreinlega ekki verið að koma mér í að læra almennilega síðustu daga og vikur, var reyndar heldur óþægilegt spark þar sem þetta var eins og maður gæti mögulega ýmindað sér að setja Roberto Carlos í vel támjóa skó og negla eins fast og maður gæti í afturendann á manni, langaði hreinlega bara mest að rífa dugguna, labba út, fara heim og gráta mig í svefn, en gerði það nú ekki og eftir því sem tíminn leið leystust fleiri dæmi og fór því örlítið jákvæðari út heldur en ég hafði verið þarna inni, en algjört wakeup call fyrir skólann. En reyndar ekki alveg wake-up call fyrir eftir hádegisblundinn því að ég ákvað að leggja mig aðeins og endurnæra eftir skólann og svaf því í tvo tíma og ég er svo að segja ykkur það að allir steiktustu draumarnir, þeir koma á daginn, djísús kræst hvað þetta var fucked up, svona góð blanda af raunveruleika, blandað samann með LSD og smá salti, sett í blandara og útkoman eru þessir draumar, en man því miður ekki alveg allt og því held ég að ég skrifi þennann ekki inn, væri of mikið hopp úr einu í annað (fŕa því að vera páfi í stofufangelsi, yfir í að vera hálfrakaður með froðuna ennþá framann í mér uppí skóla að slá gras yfir í að vera að spjalla við Gísla Þjálfara (þá fótboltalandsliðsþjálfarinn or some) á landsleik í fótbolta yfir í að vera að elda mat með systur minni og alveg örugglega Claudia Schiffer) en eins og ég segi, heildin ekki alveg nógu góð til að fólk haldi að ég sé ekki alveg geðveikur og því fær þetta version að vera bara fyrir mig, en algjörlega spurning að maður fari að leggja sig svona 1-2tíma á dag, skrifa þessa steypu niður og gefa út bók, hvernig væri það nú?!?!?!
Og fyrstu verðlaun til....
Sep 19, 2005, 14:43
hafið þið lent í því að það sé svo mikil táfýla af ykkur að þið vorkennið sjálfum ykkur fyrir að þurfa að vera nálægt ykkur sjálfum? Lenti amk í því í SÍÐUSTU VIKU, en ég er alltaf í æðislegu Ecco inniskónnum mínum í skólanum og eins og gengur og gerist að þá stígur maður óvart í bleytu eða er bara svona helvíti hot að það byrjar að myndast táfíla og hef ég sumsé í rúmlega viku ætlað að henda skónum mínum inn í frysti til að drepa alla gerla og líf sem er farið að stofna sitt eigið samféla þarna en eins og með basicly flest annað í mínu lífi að þá var ég búinn að gleyma því í alltof langann tíma þannig að lyktin fór bara versnandi og versnandi og undir lokin að þá var ég farinn að reyna að forðast sjálfann mig, sem er btw, hrikalega erfitt, skora á ykkur að reyna að forðast ykkur sjálf. En náði þeim stóra áfanga áðann að muna eftir að skella þeim inní frysti þannig að þeir ættu að vera orðnir fínir á morgun (bara að muna þá eftir að taka þá út.... crapp) En bölvaði mér hinsvegar alveg jafnmikið í miðjum fagnaðarlátunum áðann fyrir það að hafa gleymt að kaupa helvítis peruna í stofuljósið, núna búinn að búa í myrkri í viku og sýnist perann bara ekkert vera á leiðinni í hús, en var á leiðinni heim úr skólanum og sagði við sjálfann mig á 5sek fresti, "Ragnar, mundu eftir helvítis perunni" "Ragnar, mundu eftir helvítis perunni" "Ragnar, mundu eftir helvítis perunni" Ragnar... hey fluga.... mússímússímússí, hmmm, hvað átti ég aftur að muna... æi ábyggilega ekkert merkilegt..." Þannig að núna kem ég bara með eina ósk: "Mamma og Pabbi, næst þegar þið sendið mér Honey Nut Cheerios og Coca Puffs, viljið þið þá setja 1stk peru með í leiðinni, bara svona 75W glæra, væri alveg vel þegið"
With Jamaica Style
Sep 18, 2005, 13:22
"Everyday, we be burnin not concernin what nobody wanna say We be earnin dollars turning cau we mind deh pon we pay More than gold and oil and diamonds girls we need em everyday recognise it,we pimpin as we ridin" Djöfulli er ég að fíla þetta lag (we be burnin) með Sean Paul alveg hrikalega mikið, helvíti gamann af þessum Jamaika hreimi þrátt fyrir að maður skilur basicly 5% af því sem hann er að syngja um í lögunum, en þrátt fyrir það, eðaltöffari!!
Kaffibrúsakall
Sep 17, 2005, 12:52
Jæja, fínt að þrusa einhverju smá inn hérna áður en maður fer að reyna að koma sér í að hamast í lærdómnum. Fór í morgun með Elías að kaupa innfluttningsgjöf handa Peter Wigren, komumst eftir nokkur samtöl hingað og þangað að honum vantaði kaffivél þannig að við vorum ekki lengi að skella okkur niður í moll og redda einni græju. En þar sem okkur fannst þetta vera aðeins of lítið að þá fórum við inn í kaffi búð, ómæómæ hvað það er alltaf góð lykt inni í svona búðum og var það sett á mína ábyrgð að velja kaffi handa kútnum þar sem að Elías er ekki ennþá orðinn karlmaður og drekkur eigi kaffi. Held ég hafi fengið að lykta af einhverjum 15-20 tegundum af kaffi þegar ég þurfti hreinlega að segja stopp þar sem ég var gjörsamlega farinn að svitna og engjast af kaffiþörf og gat svo ómögulega valið á milli tveggja tegunda sem ég man alveg ómögulega hvað hétu, jú önnur eitthvað Irish dæmi "OJ IT'S MY ISLAND!!!!" og kom að sjálfsögðu ekkert annað til greina en að ég fengi mér líka eitt stk svoleiðis enda kominn á gjörsamlega versta stig kaffiþarfar eftir að hafa verið þarna inni og því drifið sig heim og skellt beint í vélina og ómæómæ hvað kaffi er nú gott. En ekki nóg með það heldur keypti ég mér líka kaffibrúsa þannig að maður geti tekið smá glögg með sér niður í skóla, enda algjörlega ómögulegt að vera alltaf að kaupa sér kaffi þar allann liðlangann daginn þegar maður getur komið með rammsterkt Gevalia Columbia brygg A'la Ragnar með sér í brúsanum, yeeeaaahhh. En mission helgarinn var nú reyndar í upphafi rólegheit og lærdómur en maður virðist bara hreinlega ekki fá frið því að hið fyrrnefnda Innflutningspartý verður í kvöld og mæting cirka uppúr 7, en næsta helgi krakkar mínir, næsta helgi, verður leeeetiiii....... þangað til annað kemur í ljós
Nú er úti norðanvindur
Sep 15, 2005, 18:35
Djöfulli var kalt í dag og djöfulli var ég ekki að fíla það, held að hitinn hafi dottið niður í einhverjar 12-15°C og var gjörsamlega að krokkna á æfingunni og ekki frá því að ég muni versla mér húfu og vettlinga á morgun, sem er reyndar það tilgangslausasta sem ég geri þar sem ég týni því oftast innan við viku eftir kaup, en góðar tilraunir samt.. En ég og vekjaraklukkurnar áttum annars okkar móment í morgun þegar þær ákváðu að syngja greinlega fyrir mig þessar fallegu vögguvísur þannig að ég var ekkert að vakna fyrr en 10mín áður en strætó fór og því hvorki morgunmatur né kaffi fyrir skóla sem var sem betur fer stuttur (til 10) því að við vorum svo klárir í labinu að við rumpuðum því af á nótæm og hunskuðum okkur út. En er svo búinn að vera alveg afburðarduglegur í náminu þessa vikuna og er búin með öll dæmin sem á að vera búinn með í Transformers fyrir prófið í næstu viku þannig að hægt að nýta helgina algjörlega í það að lesa bara yfir og ekki vera of mikið í að festast í einhverju smádrasli :) En komst reyndar að því að ég á víst alveg nóg eftir af dæmum í Realtidssystem draslinu þannig að hægt að dútla sér vel í því næstu daga og kvöld. Þannig að mission kvöldsins er Realtidsbókin, Pearl Harbour og vasaklúturinn góði, yeah babe yeah :)
Röfl
Sep 14, 2005, 15:55
jæja, er ekki langt síðann að ég hef röflað og allir orðnir komnir með þessa líka miklu löngun í röfl frá mér? jú grunaði það, læt það því vaða. HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ICELANDAIR AÐ BJÓÐA BARA UPPÁ VILDARPUNKTAMIÐASHITT FRÁ ÍSLANDI OG TILBAKA?? Senti á þá fyrirspurn í gærkvöldi og þá bara neisveiattann,
Ágæti Vildarkortshafi, eins og er ekki hægt að panta Vildarmiða frá öðrum áfangastöðum en Íslandi á netinu.
haha, fyrsta skiptið sem ég nota þetta quote dæmi í editorinum mínum, yeah :) En allaveganna að þá finnst mér þetta vera svoldið mikið pínu skítt þar sem ég er nú ekki búsettur heima þannig að þetta nýtist mér nákvæmlega ekki.... eehh.. SHITT?!?!? þannig að fínt að eiga þessa punkta og láta þá fyrnast eins og alltof alltof oft áður, langar einhverjum í 30.000 punkta? Og svo var verið að reyna að fá í gegn hérna í svíþjóð lækkun á sterku áfengi, engin smálækkun eða um 40%, skiptir mig reyndar engu þar sem ég drekk ekki sterkt, en átti að koma í móts við þann kostnað með einhverri hækkun á tóbaki og Ciderum í staðinn, en nei, komst ekki í gegn en hinsvegar var þrátt fyrir það var verðið á tóbaki og cider SAMT hækkað (sem skiptir mig reyndar engu) þannig að tóbak hækkar um cirka krónu og Cider hækkar cirka úr 16kr í 28KR, jahá, aumingja reykjandi stelpur.... Og hvað er málið með mig að vera svona gleyminn, peran í stofunni hjá mér fór um helgina og ég man að sjálfsögðu ALDREI eftir að kaupa nýja þrátt fyrir að ganga fram hjá 10 búðum per dag þar sem ég get keypt nýjar og man alltaf eftir þessu þar sem ég sit í myrkrinu heima á kvöldin og blóta því að það sé ekki bjart á kvöldin. En kaffi er gott :)
Bubbles
Sep 14, 2005, 05:33
Djísús, hver í andskotanum fann upp á þessum helvítis leik og hvað var Silja að hafa link inn á hann af heimasíðunni sinni, sver það að ég gjörsamlega festist algjörlega í þessum leik alltof oft á dag og í rauninni er það alveg tilgangslaust þar sem að það er enginn topscore listi þannig að í rauninni er maður ekki einu sinni að keppa við neinn annann sem gerir þennann leik bara algjörlega tilgangslausann!!
Helgin
Sep 11, 2005, 18:51
vá, held ég hafi mögulega aldrei verið jafn þreyttur í mínu stutta lífi eins og ég er núna... En kíkti aðeins á lífið í gær og sat í smá eftirfesti að spjalla til klukkan 6 í morgun, sem jújú væri svosem ekkert að efa ég hefði ekki þurft að vera mættur niður í Liseberg kl. 12:00 þannig að svefninn var ekki langur þennann morgun og rétt reif ég mig á fætur 10 í 12. Hitti hina krakkana og fórum í hrikalega keppni þarna "Femkampen" þar sem maður fer í svona 5 bása (hægt að velja um einhverja 10-15) og keppir þar í einhverju drasli. Strákurinn byrjaði frekar illa þegar það var byrjað á kraftskífunni, sem ég hef óttast allt mitt líf og var ekki planið að prufa fyrr en ég væri búinn að éta stera í eitt ár þannig að maður myndi ekki gera sig að fífli, og í stuttu máli að þá tapaði ég þar, en má eiga það að ég hitti amk alltaf :) En rosa karakter í stráknum sýndi sig svo í næstu greinum og náði ég að rífa mig upp úr soranum og endaði í þriðja sæti, einu 8 stigum á eftir Peter sem vann, einu eftir Elías sem var í öðru og einu stigi á undan 2 öðrum. En djöfulsins snilldar veður sem var í dag, var í ermalausum bol og gallabuxum og langaði bara mest að henda mér ofaní einhver af vötnunum þarna, djísús sko. Afrekaði svo loxins að éta "humar" fyrsta skiptið á ævinni þegar ég borðaði hjá Smára núna í kvöld, reyndar heitir þetta Kraftar eða eitthvað álíka en er basicly aðeins minni útgáfa af íslenskum humar og bragðast víst eins, vorum reyndar með 2 týpur, sjó og ferskvatnstýpuna og verð að viðurkenna ða mér fannst nú bara ferskvatnstýpan vera aðeins betri en þrátt fyrir allt að þar sem maður hefur heyrt svo hrikalega mikið um hvað Humar sé góður að þá varð ég bara í rauninni fyrir smá vonbrigðum, sennilega aðeins of miklar væntingar en mér fannst þetta bara ágætt. En allavega, klára að lesa nokkrar blaðsíður í bók og drulla sér svo að sofa.... GÓÐA NÓTT
Raunveruleiki
Sep 09, 2005, 19:21
Hef alveg tjáð mig um það að álit mitt á Raunveruleikasjónvarpi er ekki alveg á hæsta mælikvarða eða basicly það ömurlegasta sjónvarpsefni sem fyrirfinnst, og í gærkvöldi var ég á einhverju stöðvarápi í staðinn fyrir að læra og rakst þá á enn einn helv**** raunveruleikaþáttinn, og þessi var sumsé eitthvað á þá veru (kom bara inn í hálfann) að það voru fenginn einhver slatti af nerdum og þá er ég ekki að grínast, voru fengnir einhver slatti af ekkert alveg myndarlegustu piltum í heiminum, en meiga víst eiga það að eiga að vera sæmilega gáfaðir (held ég, fylgdist bara með öðru auganu) og svo á móti hverjum þeirra var fengin einhver alveg heavy mega babe, og svo er eitthvað verið að fá þá til að læra að date-a einhverjar stelpur og svo auðvitað keppni eins og er í öllum raunveruleikaþáttum og þá áttu þeir að fara útá götu og fá eins mörg símanúmer og þeir gætu með hjálp frá stelpunum sem voru í símasambandi, svo einhvert "parið" sent heim... blablabla, svona í alvöru, ER EKKI KOMIÐ NÓG AF RAUNVERULEIKAÞÁTTUM.... En annars nóg á dagskrá um helgina, vinna á morgun, læra eins og vitleysingur enda góð þörf á því, kíkja ímat til gauta og kanski í smá fest, hingað, á morgun, læra og Liseberg með æfingafélögunum á sunnudaginn og læra kanski aðeins meira og svo í mat hjá Smára á sunnudaginn... djííí full dagskrá og er ábyggilega að gleyma einhverju.... hmmmm Já hirriðið, svo fengu Orri og Frú son í nótt, þannig að alveg spurning að maður kíki í búð á morgun og versli 1stk bangsa, eða kanski 2, eitt handa honum og einn handa mér, langar svoldið mikið í bangsa :)
Bad Morning
Sep 08, 2005, 14:00
Ekki í fyrsta skiptið sem ég segi þetta og 100% líkur á því að þetta er ekki það síðasta, en eins og gengur og gerist að þá er ég ekki alveg beint morgunhani og var hann heldur ekki í morgun, meira svona hæna því að mér tókst að rífa mig á lappir 50mínútum eftir að báðar vekjaraklukkurnar mínar höfðu hringt, ég staðið á fætur, slökkt á þeim og steinsofnað aftur, reyndar doltið fyndið því að mig dreymdi að ég hefði öskrað á sjálfann mig "Ragnar, klukkan er hálfátta" sem var alveg helvíti nálægt því en hún var 25mín í átta eða 20mín áður en strætóinn minn fór sem þýddi bara eitt, engin morgunsturta og EKKI MÍNIR 2 MORGUNKAFFIBOLLAR sem var ekki alveg það hressasta fyrir Lab-ið í morgun, en kom ekki að sök þar sem það var skítlétt og eftir að hafa verið fastir í smá pínu pons villu í klukkutíma vaknaði ég loksins almennilega, fann hana og reddaði deginum "HERE I COME TO SAFE THE DAY", djöfulli langar mig núna að horfa á Migty Mouse, alltof langt síðann síðast eða síðann Skaffó voru með krakkavídjó hornið þar sem krakkarnir gátu horft á Vídjó á meðann mamman og pabbin voru inni að versla. Reyndar fyndið að þegar ég vaknaði í morgun að þá var mér helvíti illt vinstri öxlinni og löngutönginni á hægri hendi, orðinn smeykur að ég sé farinn að misþyrma sjálfum mér í svefni, crap. En það er algjörlega mest óþolandi í heimi að vera með eitthvað lag fast í hausnum á sér, eiga það ekki og geta mjög erfilega reddað því, en núna hef ég verið með síðann á sunnudaginn lagið "Austurstræti" með Begga úr Sóldögg algjörlega fast og er raulandi það daginn út og inn. Arndís var nú hinsvegar svo indæl að senda mér það í gær, versta bara að það var í formatinu M4A/MP4 sem er eitthvað fucking Itunes dæmi og hef ekki ennþá fengið plugin-in til að virka með það í Linuxnum hjá mér, sem gerir þetta nottla ennþá meira óþolandi þar sem ég er með lagið og get ekki hlustað á það, alveg að því kominn að kaupa mér bara IPod til að redda þessu. En ef það er einhver þarna úti sem slysast til að lesa síðuna mína, á lagið og er eftilvill að hlusta á það, hlægjandi af mér fyrir að geta það ekki að þá má hinn sami alveg vera svo yndislega indæll að senda það á mig... En Transformers bókin komin í hús, sem betur fer, hef ekki efni á því að tína fleiri bókum þannig að málið að fara að vera duglegur að læra, og eftil vill drekka kaffi með því vegna skortsins í morgun...
Læra smæra
Sep 07, 2005, 16:46
Ætlaði að vera rosalega duglegur að fara að læra núna og bara kabúmm, Groten hefur ábyggilega óvart tekið Transformers bókina mína í tímanum í dag og ég því alveg Transformers geldur í augnablikinu, ekki nógu gott sko, neyðist því að sitja bara í tölvunni og danglast þar eitthvað þangað til OC byrjar klukkan 9 í kvöld, eða landsleikurinn Svíþjóð-Ungverjaland kl 8.. Já OC byrjaði sumsé aftur í síðustu viku, yeah babe yeah, þannig að miðvikudagar orðnir mun mikilvægari en hefur verið í sumar. Reyndar alveg voðalega spes hérna í svíþjóðinni að þættirnir, amk á 5-unni sem eru með flesta góðu þættina, að þá hætta þeir bara oft eftir miðja seríuna í nokkra mánuði og halda svo áfram þá en þannig er sumsé staðan á OC annari seríunni að þá hætti hún eftir einhverja 12 þætti, nema að serían hafi bara verið svona stutt sem ég einfaldlega trúi ekki og sería 3 hafi byrjað í síðustu viku... neeiii, er líka svona með Desperat Houswifes og One Tree Hill, amk voru þau á Íslandi á undan með þá þætti og var ekki komið svona langt í þá hérna og þar þegar þeir hættur bara, ekki alveg að fíla þetta system, nógu andskoti leiðinlegt að hafa þessi auglýsingahlé heldur líka að bæta inn í svona nokkrum mánuðum uppá djókið
Jey
Sep 06, 2005, 06:43
Þá komst serverinn aftur í gang, en hann hefur sumsé verið eitthvað fucked up frá því á fimmtudaginn og nákvæmlega ekkert sem ég gat gert í því, en allt orðið rúllandi aftur þannig að fínt að blogga aðeins í tilefni þess. Helgin var alveg helvíti hress, byrjaði á að kíkja á föstudagskvöldið út með Elías og Groten og var alveg feikimikið stuð og svo á laugardagskvöldið kíktu nokkrir íslendingar hingað, þeas íslensku frjálsíþróttakrakkarnir og svo 2 til sem Alla hafði komist í eitthvað samband við, Krissa og svo Vilmar sem ég kannaðist nú við frá því í gamla daga en hann var einnig í Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, skemmtilega lítill þessi heimur, en já, vorum heima hjá mér og kíktum svo aðeins út eftir það og var bara alveg heljarinnar fjör. Mánudagurinn fór svo í að vera basicly ógeðslega þreyttur enda kanski ekki mest sofið í heiminum um helgina, byrjaði líka alveg ótrúlega illa þegar ég fattaði að kaffið var búið, mætti svo í fyrsta tímann í skólanum þar sem við skrifuðum alveg ótrúlega lítið, heldur sátum bara og hlustuðum og barðist ég gífurlega við að reyna að halda mér vakandi með svona lala árangri. Tók svo létta æfingu seinnipartinn í gær með Jonatan 50-100-150-200-250-300-350 með gönguhvíld hlaupvegalengd á milli í sléttum og átti allt að vera á sama tempó og stóð ég gjörsamlega við það og voru allir 50m á cirka 7-7.5s 7.2 - 14.0 - 20.8 - 28.0 - 36.2 - 43.5 - 50.2 og alls enging átök í gangi neitt, bara fínt rúll, en jæja, spurning að fara að koma sér í að lesa nokkrar blaðsíður áður en maður leggur af stað í skólann...
Gó express
Sep 01, 2005, 12:53
Miðað við Fréttablaðið í dag að þá ætlar Iceland Express að byrja að fljúga til Gautaborgar í Maí á næsta ári, SEM ER BARA SNILLD. þannig að það spara manni þá einhvern 3000-4000kr og 4klst í lest til kaupmannahafnar + biðar á flugvellinum, þannig að maður ætti bara að geta verið kominn á krókinn frá Gautaborg á cirka.. hmm.. 7 tímum í staðinn fyrir 13-15 :) Þokkalega sáttur ef þetta er rétt og gengur eftir, bls 2 í fréttablaðinu í dag. En náði loxins áðann að ganga frá umsókninni minni um sænskt ökuskýrteini, allt er þegar þrennt er, er þaggi? Fór sumsé í gær og vantaði mig þá bréf til að sýna fram á að ég hefði búið hérna lengur en í 6 mánuði, átti þá bréf frá því í fyrra yfir þegar ég fékk kennitöluna mína og fór með það, þurfti það þá að vera elst 2ja mánaða (takk fyrir að segja mér það núna) og fór því og reddaði því og var þá allt í gúddý, þannig að það ætti vonandi að koma fljótlega til mín. Keypti mér svo líka nýja tösku í skólann en sem er líka það þægileg að geta bara notað hana dagsdaglega (svona hliðartaska) þannig að maður getur þá hent símnum, veskinu og öllu smádraslinu í hana í staðinn fyrir að vera með úttroðna vasa á röltinu út um allt og finna ekkert þar, skil stelpurnar núna vel afhverju þær eru alltaf með töskur með sér...

local