Ofboðslega hefur maður haft það gott núna yfir jólin og nýárið, var meira að segja svo latur að ég nennti ekki einu sinni að blogga neitt, fannst mér ég bara gjörsamlega þurfa að slökkva algjörlega á heilanum eftir þessa skólatörn núna í haust, og held ég hafi staðið mig eins og hetja með heilann algjörlega slökktann.
En núna er bara farið að styttast í að maður sé á leiðinni aftur út, fer suður núna í dag og svo út bara aftur á þriðjudagsmorgun.
Hef einnig æft alveg gífurlega lítið núna yfir jólin, ekki bara útaf því að ég hef verið ótrúlega latur heldur einnig er bara gjörsamlega allt lokað í þessum blessaða bæ yfir hátíðarnar þannig að það er bara ekkert verið að gera manni lífið neitt auðvelt í þessu, fór nokkrum sinnum út að hlaupa, bæði á vellinum og svo bara lengri skokkhringi og afrekaði að hlaupa 8km í gamlárshlaupinu sem var síðasta hlaupaæfingin sem ég tók þar sem að sjálfsögðu tókst að misstíga mig þar í hálkunni og hef labbað haltur síðann þá.
En amk búinn að éta alveg nóóg af góðum mat, reyndar búinn að éta alveg nóg af hangikjöti fyrir næsta hálfárið amk.
En þar sem ég hef bara ekkert frá neitt miklu að segja að þá nenni ég ekkert að bulla of mikið hérna, reyni að vera virkari í blogginu núna þegar ég kem út aftur.
En vonum amk að 2009 verði eitthvað mikið mun betra heldur en 2008 !