Desember

Já góðann daginn, var svona alltíeinu að kveikja á perunni að það væri kominn desember, sem væri kanski ekki frásögufærandi nema að ég sit hérna með morgunkaffið og fattaði að ég er ekki ennþá búinn að kaupa súkkulaðijóladagatal, náttúrlega bara hreinn skandall !

En afrekaði annars það að hlaupa í gaddaskóm í gær, veit ekki, hefði kanski átt að bíða í viku í viðbót, bakið veeeel þreytt eftir það, en fuckt that, totally worth it. Djöfulli sem það er æðislegt að skella þeim á lappirnar og hlaupa, það verður bara eitthvað svo ótrúlega ljúft og létt.

Hljóp samt meirihluta sprettanna fyrst í sléttbotna, 2x30, 2x40, 2x60, 2x80 en svo síðustu þrír, 2x150m og 1x300m í gaddaskóm. Mjög stutt hvíld á milli stuttusprettanna, næstum bara labb til baka og neglt á næsta, enda svo helvíti stutt að maður verður ekkert þreyttur á að hlaupa það. Á svo að vera frjáls hvíld á milli 150m og 300m sprettanna en tók einhverjar 5mín á milli 150m og svo í kringum 10mín fyrir 300m og gekk bara alveg ágætlega, náttúrlega miklu hraðara en ég hef hlaupið allt haustið og bara það helvíti gamann að maður gleymdi kanski svona aðeins að hugsa út í tæknina, en fuck that, 150m á 16.5s og 16.3s og svo 300m á 35.6s. Spurning um að koma amk öðrum 150m undir 16s næstu viku og 300m undir 35s.



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 02, 2008

Klukkan
08:33

Flokkur
Íþróttir
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local