Djöfulli sem maður er basicly farinn að telja niður allt sem maður er að gera í skólanum, 11 dagar eftir af fyrirlestrunum, 1 vika í fyrsta og síðasta heimaprófið sem ég fer í og í morgun varð næstum síðasta laborationen sem ég gerði, var í skólanum frá kl 08-12 í dag og gjörsamlega að berjast síðustu mínúturnar við að klára það svo að við gætum sýnt kennaranum og fengið "ok" að við værum búnir. Náðum loxins að fá þetta að virka nokkrum mínútum eftir að tíminn var búinn og misstum af kennaranum með einhverjum 30sekúndum þannig að ég þarf að mæta aftur föstudagsmorgun til þess eins að sýna að við séum búnir... gífurleg stemning það.
Hitti svo kennarann í dag sem sér um lokaverkefnið mitt og ræddum nokkur smáatriði og bara svona til að fá öll mál og hreint þannig að núna er allt það komið á hreint og get því bara slappað af með það framyfir jólin og allt tilbúið til að geta byrjað þegar ég kem út aftur eftir áramótin, gífurlega næs það.
Hljóp annars alveg mjög fína æfingu á laugardaginn, 6x250m með 2mín hvíldum, allir sprettirnir hraðari en þeir áttu að vera (og síðasti líka) þannig að ég var bara alveg gífurlega sáttur, finnst greinilega eitthvað þarna í fótunum, fann ekkert fyrir bakinu þannig að bara að vona að þetta verði jafn fínt í dag og þá er aldrei að vita nema maður negli á síðsta 300m sprettinn í gaddaskóm.