Það leið frekar hratt að venju, óvenjulega tilgangslaust að þessu sinni enda get ég ekki státað mig af að hafa gert eitthvað merkilegt af mér í sumar.
En í dag er 1.september sem þýðir að ég sé að fara að byrja síðasta haustið mitt í skóla, 4 áfangar fram að jólum og svo eitthvað skemmtó lokaverkefni eftir áramót fram að vori.
Er sumsé skráður í 2 áfanga núna fram til loka októbermánaðar og les svo 2 aðra áfanga fram að jólum. Ákvað því svona í tilefni af því að skólinn byrjar í dag og kíkja á stundatöfluna mína og komst þá í rauninni að einu hálfskelfilegu, báðir áfangarnir sem ég er í núna eru með 3 fyrirlestra í viku og eru þeir báðir á sama tíma, ALLTAF !!
Veit ekki alveg hvernig ég á að leysa þetta, en sé til eftir fyrstu vikuna hvor þeirra er erfiðari og mun þá sennilega fara á tvo fyrirlestra í honum í viku og einn í hinum og lesa svo eins og motherfucker heima hjá mér restina af deginum til að reyna að halda þessu við, verður stórmerkilegt og skemmtilegt held ég bara.
Held ég hafi ekki bloggað frá því að ég vældi yfir bicepsæfingunni sem ég tók á mánudaginn síðasta, en ég hafði greinilega allann rétt á því að vera áhyggjufullur þar sem að hendurnar á mér voru basicly ónóthæfar fram á laugardag, er ekki að grínast með það en ég hef aldrei nokkurntímann fengið jafn mikla strengi eins og ég var með í höndunum, gat hvorki beygt og alls ekki rétt úr höndunum án mikils sársauka fyrr en í gær.
En alltaf gamann að því að læra hlutinu erfiðu leiðina: Ég mun aldrei taka þessa bicepsæfingu aftur !!