Jæja, þá er það komið á hreint, á fimmtudaginn kem ég til Íslands og verð þar í hvorki meira né minna en 2 vikur takk fyrir takk, mætti halda að það væru jólin núna!
Er svona að spá í að vera í Reykjavíkinni til sunnudags og horfa á meistaramótið og skella mér svo norður eftir það og vera þar restina af ferðinni, held að þetta verði bara virkielga gamann, hitta fjölskylduna og slappa almennilega af heima.
En verð sumsé ekki með á meistaramótinu, þrátt fyrir að kálfinn sé allur að koma til og allt á leiðinni í rétta átt að þá er ég bara nýbyrjaður að skokka aftur en farinn að geta lyft ágætlega á það en samt of langt í að ég geti byrjað að negla á spretti aftur í göddum, en styttist amk með hverjum deginum.
Annars bara nokkuð slök og góð helgi, boðið í mat til Sandin og Bea í gærkvöldi og chillaði úti á landi með þeim og svo á leiðinni til Halmstad í dag að hitta Mattias sem er með eitthvað stórt og gott partý og verð þar yfir nóttina.