Sá Porsche niðri í bæ um daginn með skíðaboga á þakinu.... þetta var eins siðferðislega rangt eins og það getur orðið.
Ég er búinn að búa í Gautaborg núna í næstum því 4 ár og hafði aldrei farið út í eyjarnar hérna fyrir utann sem eiga að vera voðalega fínar svona á sumrin, fullt þá af fólki sem búa þar og svoleiðis. En í dag varð breyting á þegar ég fór þangað með þjálfaranum mínum og aðstoðaði á frjálsíþróttanámskeiði þar.
Djöfulli sem ég væri til í að eiga svona 20-30milljónir til að kaupa eitt sumarhús þar. Hrikalega næs einhvernveginn og á örugglega eftir að kíkja þangað oftar í sumar og baða þar kanski við tækifæri.
WOW er djöfullinn, meira ávanabindandi en ég veit ekki hvað, tekur gjörsamlega allann frítíma sem maður á (sem ég á jú nóg af) og meira til, mæli ekki með því að fólk byrji að spila þetta...
Verður önnur heimsókn til Íslands í sumar ?
Óli: nei keppi ekki á MÃ, en hvernig er statusinn á þér, byrjaður að hlaupa eða ?
En varðandi Bjögga að "Segist alveg geta haldið þessu à skefjum".... YEAH RIGHT, ég sagði nákvæmlega það sama fyrir mánuði sÃðann, ekki séns sko, mæli með þvà að þú farir heim til hans og hendir tölvunni út um gluggann og eyðir út gaurnum hans áður en það er of seint !