Kálfinn

Jæja jæja, sagan endalausa já.

Er sumsé mættur út í Svíþjóðina aftur, flaug hingað út aftur á mánudagsmorgninum og fékk á leiðinni loxins út úr þessum blessuðu blóðprufum sem ég hef verið að bíða eftir og niðurstaðan að allt er í toppstandi, ekki skortur á neinum vítamínum eða neitt svoleiðis og allt er í góðum gír, kom mér ekki á óvart en var samt að vonast að það væri eitthvað þarna sem væri að og gæti útskýrt alla þessa krampa síðasta mánuðinn.

En löppin var sumsé orðin vel bólgin, blá, marin og alveg drulluljót þannig að ég kíkti til eins mjög góðs íþróttalæknis rétt fyrir utan Gautaborgina og sagði hann mér þá að ég væri tognaður í kálfanum (kom heldur ekki á óvart þar sem ég var orðinn helaumur í honum) og má því ekki hlaupa núna í 2-3 vikur ef allt gengur vel, og miðað við að ég hef varla hlaupið í 3 vikur núna að þá eru að verða komnar 6 vikur án hlaupa þannig að ég þyrfti þá einhverjar vikur til að komast í eitthvað keppnishæft form aftur = að þá ætti að vera komin september = engin mót eftir = keppnissumarið búið í byrjun júlí ?

Þó að þetta sé náttúrlega drullusvekkjandi að þá er næstum því ennþá meira svekkjandi að læknirinn gat ekkert útskýrt hvað orsakaði þessa krampa, bara fleiri getgátur, borðað nógu vel, fengið í mig nóg af kolvetnum og svo framvegis. Allt þetta er dót sem ég hélt amk að væri allt í toppstandi en er að spá í að heyra kanski í næringafræðing til að tékka svona á þessu öllu, better safe than sorry, right ?

En hjóla, synda, magaæfingar og hendur er basicly það sem er á dagskránni hjá mér á æfingunum þessa dagana....



4 Athugasemdir
Sigga R
Jul 10, 2008, 10:15
Þú skalt endilega ráðfæra þig við næringarfræðing,,Og velkominn í hjóla og sundæfinga hópinn.
Jul 10, 2008, 20:54
mæli með bekkpressu 2svar á dag ef maður getur ekki hlaupið. ef þú verður leiður á bekknum má alltaf bæta inn skábekk.
Tobbinn
Jul 13, 2008, 13:14
Sæll meistari.......... Þú ert klárelega tognaður út af of miklu og massífu nuddi, hefði alveg eins getað valtra yfir löppina á þér :/ en kramparnir er annað og leiðinlegra mál. Mjög leiðinlegt að heyra með hvíldina en þá er bara að taka endalaust af fitnesi og keppa síðan bara í lok ágúst og byrjun sept, ég skal koma með þér í smá tripp þá :)
Jul 14, 2008, 22:48
hehe já Arnór, I´m working on it ;)

Hirru já Tobbi, við sjáum aðeins til með þetta, er amk betri hugmynd en engin amk :)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jul 10, 2008

Klukkan
06:30

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 4

local