Bikarinn 2008

Náði að hlaupa eitt 100m hlaup á bikarnum núna um helgina, eða svona hlaupa og hlaupa, gat ekki neglt á það úr blokkinni en rúllaði bara fínt og þægilega í gegn á 11.48s og versnaði ekkert mikið í rauninni í kálfanum, var því að vonast að ég gæti hlaupið 400m seinna um daginn sem tókst því miður ekki.

En, er með mun minni verk í kálfanum núna heldur en síðustu 2 vikurnar EN hann lýtur út eins og versta kjarnorkuslys í augnablikinu, fékk nottla vökva inn á hann núna á fimmtudaginn og í gær byrjaði mar að koma fram basicly útum allt og í dag er kálfinn og allur fóturinn gjörsamlega feitur og fjólublár, ég kominn með smá áhyggjur þar sem ég hef ekki hugmynd hvað þetta er og þetta lýtur  út náttúrlega langt frá því að vera eðlilegt. Á að fá svar úr blóðprófunum á morgun og ætla að reyna að komast til eins góðs íþróttalæknis til að láta hann kíkja á löppina þar sem ég hef ekki hugmynd hvort ég sé gjörsamlega að rústa henni með því að hlaupa eða ekki....

En flýg annars út aftur núna í fyrramálið, en vonast til að vera orðinn heill fyrir meistaramótið því annars kem ég ekki til landsins fyrr en um jólin.... (held ég)

En UMSS féll niður um deild núna um helgina, kom í rauninni ekki á óvart enda frekar vængbrotið lið og með marga unga krakka sem mér fannst standa sig ótrúlega vel og eiga að sjálfsögðu gott hrós skilið fyrir hetjulega baráttu.



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jul 06, 2008

Klukkan
23:55

Flokkur
Almennt
Íþróttir
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local