Golfarinn

Skellti mér í golf í gær í fyrsta skiptið í djöfulli langann tíma þegar Arnar bróðir reif mig með sér til að reyna niðurlægja mig svona aðeins í blíðunni heima á krók.

Spiluðum með gömlu golfkylfunum sem ég átti þegar ég var 13-14ára þannig að þær voru jú alveg heldur litlar og kenni ég þeim að sjálfsögðu um hvað ég var ógeðslega lélegur, drive-in voru voðalega blönduð, höggin á brautinni slök, skelfilegur að chippa, en púttaði hinsvegar eins og Tiger Woods.

Niðurstaðan var 4.5vinningur hvor eftir að Arnar hafi komist í 4-1 í holukeppninni en með glæsilegum endaspretti þar sem ég vann síðustu 3 náði ég jafntefli.

En í dag, suður á bikarinn og gera mér vonir að geta keppt... amk eitthvað.. ?

 



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jul 04, 2008

Klukkan
08:45

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 0

local