Verð að sjálfsögðu að biðja Arndísi afsökunar fyrir bloggleysið undanfarið þannig að hún hefur þurft að "vinna vinnuna" sína á vinnutímanum...
En lenti annars á landinu í gærkvöldi og kom á krókinn núna í morgun, ætla að dútla mér hérna svona fram á fimmtudag og vonast til að geta verið með á bikarnum á föstudaginn.
Held að virknin hérna á síðunni endurspegli samt vel skapið á mér síðustu vikurnar útaf þessu kramparugli. Kálfinn var í ruglinu í síðustu viku og gat því hvorki hlaupið né keppt en held ennþá í vonina að þetta sleppi almennilega fyrir helgina þar sem ég gat hlaupið smá í dag áður en þetta stífnaði allt upp aftur.
Nenni samt ekki að röfla of mikið um þetta, þetta lagast þegar það lagast, en fór til læknis á föstudaginn sem tók blóð- og þvagpróf til að reyna að finna út hvort það vanti basicly eitthvað í mig, sem ég vona í rauninni að sé málið þannig að maður viti amk hvað er að og hvað sé hægt að gera...
En reyni að rífa upp virknina aftur á síðunni hérna og fara að tala um eitthvað annað en allt það sem er að mér :)
Gerði miðvikudags morgunin aðeins betri ;-)

