Hætt að vera fyndið

Ef þetta hefur einhverntímann verið fyndið að þá er það náttúrlega löngu hætt að vera það núna. En hljóp sumsé 300m um helgina svona til að testa hvort að hamurinn væri í lagi og jújú hann var fínn en stífnaði eitthvað aðeins í öðrum kálfanum í staðinn og á mánudaginn fór hann í rugl þegar ég ætlaði að hoppa aðeins yfir grindur og niðurstaðan er að ég er með krampa í kálfanum núna !!

Hægri hamur - vinstri hamur - vinstri kálfi... hvað er þá næst ?

Þannig að ég missti af drullugóðu 400m hlaupi í gær á FGP mótinu hérna í Gautaborginni en ætti að vera orðinn góður um helgina eftir meðferð alla vikuna, en held bara að næst á dagskrá hjá mér verði að fara í blóðprufu og láta rannsaka það og tékka hvað það er sem vantar í mig þar sem að þetta er orðið alltof langt frá því að vera eðlilegt... !

En já, fyrir þá sem ekki vita að þá fer ég heim til Íslands núna á mánudaginn og verð þar í viku, kíkja aðeins heim á krók, keppa á bikarnum (vonandi) og einhver meiri stemning.



4 Athugasemdir
S. Arnar
Jun 25, 2008, 21:46
Hvað er næst... er það ekki augljóst, hægri kálfi!!

En ég er einmitt að spóka mig á króknum og verð hér næstu vikrnar... þannig að verðum í bandi.
Maggi Frosta og Edda..
Jun 26, 2008, 01:24
Hæ hæ ákvað að prufa að google þig.. en hann Þorri frændi þinn er þarna úti og er að fara að keppa... þannig að ef þú hittir á hann þá endilega heilsaðu upp á hann .. og mátt senda okkur linu á netfanigið ef þú hittir hann
kv Maggi og Edda
Jun 26, 2008, 20:47
Ertu ekki bara að verða of gamall fyrir þetta :P ... segi bara svona... :P
Arndís María
Jul 01, 2008, 14:27
það er hætt að vera fyndið - hvað er langt síðan þú bloggaðir !!

Þú verður að hugsa um mig, sem er í vinnunni og leiðist að lesa alltaf sömu bloggin ;-)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jun 25, 2008

Klukkan
08:49

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 4

local