"Ég er 90% viss um að þú ættir að geta hlaupið á fullu um helgina"
Þannig hljómaði Napropatinn minn eftir meðferðina á þriðjudaginn og kallinn hefði bara ekki getað haft mikið meira rétt fyrir sér þar sem að ég gat neglt almennilega á einn 300m sprett í gær, gífurlega gott það þannig að ég ætla að keppa núna á þriðjudaginn í 400m hérna í Gautaborginni.
En vona að landsliðið sem er statt í Eistlandi á Evrópubikarnum í 2.deild hafi það eitthvað betur heldur en Svíjarnir í Tyrklandi í fyrstu deildinni þar sem allir eru víst brjálaðir út í skipurleggjendurna basicly útaf öllu, allt er víst í rugli og skipulagsleysið er víst alveg í hámarki, gífurleg stemning það sumsé...
Svíjarnir dottnir út úr EM, spiluðu gífurlega leiðinlegann fótbolta og áttu bara því miður ekki skilið að komast áfram, ég spáði Holland sigri í keppninni en þeir voru flengdir all illilega af Rússunum í gær þannig að mér er basicly núna nokkuð sama hverjir vinna þessa blessuðu keppni...