"Og Ragnar, þó að þú standir 10m frá strætónum og hann er að fara að keyra af stað að þá máttu ekki hlaupa til að ná honum"
Hitti Dohsé, Napropatinn minn, núna í dag og fékk bara þær bestu fréttir sem ég gat fengið, engin tognun eða neitt, fékk bara feitann krampa í haminn í gær og þarf bara að vinna í því núna næstu daga að fá hann til að sleppa endanlega og ef allt gengur eins og í fallegri sögu að þá gæti maður byrjað að hlaupa aftur á fullu eftir nokkra daga, annars eitthvað aðeins seinna, bara fara til hans núna á hverjum degi næstu daga, frá straum, ultrasound, nudd og eitthvað meira shitt á þetta og bara vona það besta.
En síðann er jú þá næsta vandamál að finna útúr því afhverju ég er að fá þetta í báðar lappirnar á einum mánuði...
// Ragnar í betra skapi en í gær :)