Hljóp fína 120m af 200m í dag í Borås... En ég stífnaði aðeins í hamnum á fimmtudaginn síðasta en testaði hann á æfingu í gær og fannst hann bara vera fínn þannig að ég ákvað að hlaupa 200m í dag.
Var kanski ekki besta hugmynd í heimi, var fínn í upphituninni og fann ekkert fyrir honum síðustu hraðaaukningarnar og þegar ég testaði blokkina þannig að ég keyrði bara á þetta. Var kanski smá varkár í hraðaaukningunni í hlaupinu sjálfu en var fínn útúr beygjunni, fann svo haminn stífna vel eftir cirka 120-150m þannig að ég reyndi bara að rúlla þetta létt en fór þá allt fjandans til og hætti að hlaupa í kringum 180m og hálf labbaði í mark... samt á 22.83 minnir mig.
En amk, enginn evrópubikar fyrir mig og spurning hvenær maður kemst aftur í gang, amk liggja í dag með löppina uppá sófa og kíkja til læknis á morgun. Veit ekki alveg hvað er málið með þetta þar sem að þetta er ekki sami hamur og ég meiddist í maímánuði og þetta er held ég eitthvað mun meira en það
// Ragnar í svekkelsi
Batakveðjur,
Bjöggi