helgin

7 mörk í 2 leikjum, og það á móti Frökkum og Ítölum, held að Hollendingar eigi eftir að ná helvíti langt á EM í ár, djöfulli sem þeir eru að spila skemmtilegann fótbolta.

En aðalleikurinn verður að sjálfsögðu Svíþjóð - Spánn í dag. Svíjarnir komur mjög svo á óvart á móti Grikklandi og spiluðu allt annann fótbolta heldur en þeir hafa gert síðasta hálfárið og Spánverjar rúlluðu yfir Rússa og hafa sjaldann spilað jafn vel og í undanförnum leikjum. Er bara drullusmeykur yfir hvernig sænsku varnamennirnir eiga að geta stoppað Villa og Torres..... mín spá 2-1 fyrir Spáni.

Fer annars með landsliðinu á Evrópubikarinn í Eistlandi um næstu helgi þar sem ég hleyp 4x400m boðhlaup, smá svekk að hafa ekki náð að hlaupa betur á þessum fyrstu mótum og fá að hlaupa líka 400m, en þetta verður bara fín stemning.

Hleyp annars ekki 100m í Borås í dag, virðist sem þessi blessuðu baklæri á mér séu ekki alveg með á nótunum þegar ég hleyp sem hraðast og best á æfingunum, fékk í hægra baklærið í maí mánuði þegar ég hljóp í fínum meðvindi og núna á fimmtudaginn var ég að æfa spretti frá startblokk, fyrir 100m sem ég ætlaði að hlaupa í dag, og gekk það bara svona líka dúndurvel nema að ég fann bara vinstra lærið stífna aðeins þannig að svona til að taka enga óþarfa áhættu svona í augnablikinu að þá geymi ég 100m í bili en ætla að reyna að hlaupa 200m á morgun.



5 Athugasemdir
Jun 14, 2008, 08:00
Sammála þér með Hollendingana, frábært að horfa á þá. Minnir mig á EM 88 þegar van Basten varð einmitt markakóngur.

Það væri sam týpískt að þeir myndu dett út í 8 liða úrslitum í vítakeppni. Gæti orðið gegn samlöndum þínum, Zlatan og co.
Arnar Már
Jun 14, 2008, 14:15
Helvítis baklærið, hvernig ertu í lærbakinu?
Burkni
Jun 14, 2008, 22:05
Nokkud sannspar med ESP-SWE ... Villa og Torres :)
Jun 15, 2008, 06:20
Rúnar: já núna er það bara að vinna Rússana og falla út með sæmd á móti Hollendingum í 8-liða úrslitunum :)

Arnar: héðanífrá nota ég bara orðið hamur/hamstring yfir aftanvert lærið !

Burkni: Hell yeah, ég er náttúrlega tipp-meistarinn, hafði reyndar sagt að Zlatan myndi setja'nn fyrir Svíja og Torres með 2 fyrir Spánverja... en nálægt var það amk :)
Arndís María
Jun 16, 2008, 11:39
hahahahahahahahahahahahahahahahaha
baklæri
hahahahahahahahahahahahahahahahaha

Það væri ekki jafn gaman í vinnunni ef þu myndir ekki blogga með sænsku íslenskunni þinni ;-)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jun 14, 2008

Klukkan
07:24

Flokkur
Íþróttir
Almennt

Fjöldi athugasemda: 5

local