Jæja, þetta virðist ekki alveg vera að sleppa almennilega í augnablikinu og þarf greinilega að fá nokkur hlaup til að fá þetta að stemma almennilega.
En hljóp í gær 400m á SAYO í Stokkhólmi, frábært veður og topp andstæðingar, góður fílingur og núna öfugt frá því á þriðjudaginn, fínir fyrstu 200m. En nenni ekki að röfla og væla, þetta kemur bara þegar þetta kemur, hefði samt alveg viljað fá amk sub 49 hlaup fyrir Evrópubikarinn en þetta er nú samt enginn heimsendir. Niðurstaðan í gær amk 49.34 og ef við lítum á björtu hliðarnar að þá var þetta amk 6/100 hraðar en á þriðjudaginn :)
Mæli samt alveg ekki með því að ferðast með lest, keppa og heim með lest aftur strax eftir mót, amk ekki í svona stressi heim því að í gær fór ég basicly beint eftir hlaup, ekkert jogg/teygjur/sturta heldur beint upp að finna strætó svo að ég myndi ná síðustu lest dagsins heim, erum að tala um að strákurinn var hreinn og ferskur í lestinni :)
En jæja amk, fara að coacha krakkana á móti í dag og njóta sólarinnar, en um næstu helgi verður smá 400m pása og ætla að prufa að hlaupa bara 100m og 200m :)