Styttist í þetta

Djöfulli sem það er sweet að vera laus við skólann í bil, vaknaði um helgina og fann bara þvílíkann létti, munur að geta loxins vaknað án nokkurs stress og pressu frá skólanum.

Átti annars góða lyftingaræfingu á laugardaginn þegar ég bætti mig svona loxins í cleani frá mjöðm, hefur ekki smollið neitt almennilega síðustu mánuðina en núna síðustu 2 vikurnar hefur þetta allt verið að koma til og loxins kom 5kg bæting núna á laugardaginn, úr 100kg í 105kg og var hrikalega nálægt á 107.5kg þannig að alls ekki ómögulegt að negla upp 110/112.5kg áður en sumarið er búið.
(Ef Christian Olsson tekur 145kg með sínar kjúklingalappir að þá geta mínar kjúklingalappir það líka !)

En annars bara gott chill núna, þvo, laga til og koma sér bara í gírinn fyrir MAI Galan í kvöld. Ekki alveg kominn þessi "hey shitt, er að fara að keppa" fílingur ennþá, enda ekkert alltof stórar væntingar í rauninni fyrir mótið, búinn nottla að vera í smá fucki með haminn og ekki náð að hlaupa þessar gæðaæfingar eins og ég hefði viljað fyrir mótin + að maður hefur í staðinn verið að lyfta, hoppa og hlaupið meira af magni í staðinn þannig að maður ætti miðað við það kanski ekki alveg að vera sá ferskasti í kvöld. En sé samt ekkert á móti því afhverju ég ætti ekki að hlaupa undir 49s í kvöld.



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jun 03, 2008

Klukkan
07:31

Flokkur
Almennt
Íþróttir
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local