Jæja, á morgun er svona mesta geðveikin held ég búin á þessu lesári, komum einu verkefninu frá okkur ídag og kynnum hitt á morgun, hlakkar bara mjög mikil til þeirrar kynningu þar sem við erum alveg helvíti sáttir með hvernig það hefur gengið og náði ég svo að sjálfsögðu að fixa smá grafískt á þetta allt samann þannig að þetta lúkkar allt samann miklu meira kúl núna + að auðveldar áhorfendunum til muna að skilja hvað við höfum verið að gera (sem ég nenni ekki að útskýra núna hérna)
Svo bara ein ritgerð, eitt munnlegt próf og eitt skriflegt í næstu viku = sumarfrí eftir hádegi á föstudeginum.
En annars mjög svo jákvæð æfing í dag, búinn að vera að vinna með haminn og reyna að koma honum í lag, negla á góðar lyftingar, hopp og svoleiðis á hann og virðist sem það hafi hjálpað því að ég gat hlaupið alveg óvenjuhratt í dag næstum án þess að finna neitt fyrir honum, 8x200m(frá 25s - 23.5) með 3mín hvíld þannig að aldrei að vita nema maður keppi þá í 300m á miðvikudaginn næsta svo framanlega sem ég geti neglt á æfinguna á mánudaginn !

