last week before the sommer...

Jæja, kominn inn á síðustu vikuna í skólanum núna, bara hitta kennarann í einum áfanganum á fimmtudaginn og útskýra munin á þessum mismunandi útgáfum af verkefninu sem við gerðum í áfanganum og eitthvað svoleiðis blablabla.

Á föstudaginn er það svo demo sýning á verkefninu hjá hópnum mínum í hinum áfanganum og útskýra eitthvað svo hvernig það virkar, sitjum núna í vikunni og erum að leggja lokahönd á það.

Væri svo snilld að geta skilað inn ritgerðinni um það verkefni í næstu viku. Sem er jú prófvikan og í þessum áfanga er "bara" munnlegt próf á þriðjudeginum (minnir mig) og svo venjulegt próf í hinum áfanganum á föstudeginum.

Svo bara SUMARFRÍ, fer svo reyndar svoldið mikið eftir hvernig það fer með sumarvinnu hve almennilegt þetta sumarfrí verður....

En að æfingunum já... hamurinn ekki orðinn nógu góður ennþá, eiginlega nákvæmlega sami fílingur núna og akkúrrat fyrir ári síðann, fékk þá í haminn í byrjun maí og var sumsé í rugli með hann líka þá.
En kemst ekki hraðar en 90% í augnablikinu og endaði á því að hlaupa 3x300m, þá frekar rólega fyrstu 100m og svo keyra á milli 100m og 200m og rúlla þetta á 37-38s.

Get samt hoppað og neglt almennilega á lyftingarnar þannig að það verður sennilega eitthvað meira um það núna þangað til að ég get farið að hlaupa 100% aftur.... gífurleg stemning þetta alveg já...



2 Athugasemdir
May 20, 2008, 18:31
Troligen kommenterar jag något helt annat nu, men jag har hittat ett guldkorn på YouTube som jag tror kan passa dig. Kolla in http://www.christofersandin.com/ ;-)
Sigga R
May 21, 2008, 21:32
Ótrúlegur leikur þetta í Rússlandi M-C 14 vítaspirnur til að fá úrslit.
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
May 19, 2008

Klukkan
19:39

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 2

local