Sommartider hej hej sommartider

  

Djöfulli sem ég er alveg að elska þetta veður sem er búið að vera hérna og á að vera áfram amk næstu dagana, bara eini ókosturinn er hvað það er búið að vera mikið að gera í skólanum þannig að maður hefur setið alltof mikið inni og lítið fengið að njóta blíðunnar.

Fékk reyndar fína 4klst í gær þegar ég var að vinna í Vårruset sem er svona konuhlaup hérna í bænum, 19.000 konur að hlaupa/skokka/labba og ég staddur á bílastæðinu að stjórna umferðinni þar og svo útskýra fyrir síðustu 100 bílstjórunum að það væri fullt þannig að þeir hefðu beðið í röðinni til að komast inn á bílastæðið til einskis... gífurleg stemning það :)

En reyna að negla á almennilega æfingu í dag, 3x350m frá blokk á keppnishraða, dúndurgott veður, sól, 20°C og logn þannig að málið að gera þetta almennilega í dag!



2 Athugasemdir
Sigga R
May 08, 2008, 15:14
Hvað gerðist nú á síðunni hjá þér. Margfaldaðist pistillinn??
May 08, 2008, 20:06
Náði aðeins að leggja síðuna í rúst, en er að lagfæra þetta núna :)




Lokað fyrir fleiri athugasemdir




Dagsetning
May 08, 2008

Klukkan
09:10

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 2

local