úff, loksins getur maður slappað aðeins af núna eftir alveg dúndurlærdómsviku.
Sat basicly frá miðvikudegi og til og með meirihluta sunnudagsins með þetta blessaða verkefni í einum áfanganum sem við erum basicly búnir með nægilega mikið til að geta skilað því inn, en bara þessi helvítis fullkomnunarárátta í mér sem fær mig til að sitja aukalega með núna til að fixa smá hér og laga smá þar.
Sat svo á sunnudeginum og mánudeginum með 3 artiklar(greinar ?) sem við áttum að lesa, skrifa ritgerð um og undirbúa fyrirlestur sem við héldum svo núna í morgun, alveg ofboðslega leiðinlegt og óáhugavert og þessvegna fínt að klára það af núna!
Þannig að núna getur maður einbeitt sér að hópverkefninu í hinum áfanganum... bara 3 vikur eftir og svo sumarfrí :)
En æfingarnar já, þær hafa bara gengið mjög vel, amk þessir aðeins styttri sprettir, var róleg síðasta vika en hljóp ágætis æfingu á fimmtudeginum, 1x450m og svo 4x200m með 3mín hvíld
450m: 59.5 (51.9 í gegnum 400m), æi.. já ekkert meira um það
4x200m: (24.4 - 23.8 - 23.4 - 24.7) bara mjög sáttur með þetta, aðeins of hægur fyrsti spretturinn en mjög ánægður með hina, 3ja mínútna hvíld og suddamjólkursýra í og eftir síðasta.
En núna eru æfingarnar komnar á fullt aftur og núna fara þær að nálgast meiri keppnishraða, farið að styttast í mót og því kominn tími til að slípa þetta til aðeins :)
Ættir kanski bara að kíkja í heimsókn til mín núna þar sem þú ert komin í frí, búið að vera í kringum 20°C síðustu daga og á að fara í 25° núna um helgina :)

