Banki
Ég er náttúrlega svo gífurlega ungur að "alla" mína tíð hef ég borgað með korti enda peningar og bankar bara eitthvað sem finnst í gömlum orðabókum. En mundi svo alltíeinu í dag í mínu peningaleysi (færsla gærdagsins) að ég hafði einhverntímann séð foreldramína fara útí banka, fylla út eitthvað pínulítið blaðakvikindi, rétta gjaldkeranum og fengu peninga til baka.
Alveg að spá í að fara aðeins aftur í tímann á morgun, labba niður í banka, bíða þar í nokkurra tíma röð og prufa þessa fornu aðferð til að taka út peninga þannig ég þurfi nú ekki að svelta um helgina.

Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir
local

