Þegar ég verð stór ætla ég að verða veðurfræðingur!
Eða kanski sækja um það sem sumarvinnu því að ég get sagt ykkur það ágætu lesendur að ég gæti alveg lífs ómögulega staðið mig verra heldur en þessir veðurfræðingar í að giska á veðrið næstu daga. Sennilega eina inntökuskylirðið í veðurfræðinginn er að "þú verður í 9 af 10 skiptum að geta horft framann í myndavélina og logið framann í þjóðina hvernig það á að klæða sig fyrir helgina án þess að fá slæma samvisku eða brosa, þá fatta allir að þú sért að ljúga".
Reyndar myndi þetta gera mig óhæfann í starfið þar sem ég get ómögulega logið án þess að brosa :(
En ekki það að ég sé eitthvað að kvarta þar sem að á fimmtudaginn í síðsutu viku var spáin rigning og 9-12° alla daga næstu vikuna. jú ok, það rigndi smá fyrripartinn í gær en annars hefur bara verið þurrt, alveg sæmilega hlýtt nema á laugardeginum og í dag er 16° úti, sól og hitinn gæti farið upp í 20°, magnað shitt það.
En annars var þetta bara gífurlega róleg helgi svona þegar ég var ekki að lemja hausnum á mér í vegg því að þessir algorithmar sem ég er að nota hérna voru ekki alveg að standa sig jafn vel og ég vildi.