One More Try

Elska alveg svona daga í skólanum, mætti kl. 09 þar sem hópurinn minn í öðrum áfanganum sem ég les ætluðum að vinna í hópverkefni, kom í ljós að 2 strákarnir komust ekki í morgun og einn þurfti að fara heim fyrr þannig að við hinir tveir bara "hell no, ætlum ekki að gera þetta bara tveir" og fórum því heim, þannig að núna hefur maður allann föstudaginn fram fyrir sig, taka létta æfingu núna eftir smá, nudd klukkan 14 og svo bara fínt chill í dag finnst mér hljóma alveg glimmrandi vel.

Hljóp annars ágætlega á æfingunni í gær, 1x450m + 4x200m með 3mín hvíld á milli 200m sprettanna. Var ekki alveg nógu sáttur með 450m en fínir 200m hinsvegar eftir það:

1x450m: 59.4s (52.1s)
4x200m: 24.0s - 23.9s - 23.8s - 24.7s, þar sem síðasti var í þessari fínu sýru.

Splittaðir 400m á morgun þar sem takmarkið er að reyna hlaupa alla (samanlögðu 400m) cirka hálfri sekúndu hraðar en síðasta laugardag, og fæ svo rólegri viku í næstu viku.



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 25, 2008

Klukkan
08:36

Flokkur
Frjálsar
Íþróttir
Almennt

Fjöldi athugasemda: 0

local