Æi þessir miðvikudagar

Miðvikudagar halda hreinlega áfram að vera mínir "uppáhaldsdagar" eins og síðustu annir, en ég gleymdi víst að stilla vekjaraklukkuna í morgun en mín frábæra innbyggða sá nú um að redda mér á ögurstundu og vaknaði ég því 5mín í 8, eða 5mín eftir að minn venjulegi strætó fór, þannig að það var ekkert kaffi þennann morguninn (en að sjálfsögðu morgnmatur) þannig að dagurinn var nú bara eftir því. Reyndar á leiðina í skólann held ég að ég hafi ekki mögulega getað verið óheppnari með strætóa því að ég rétt missti af mínum hérna fyrir utann, labbaði niður á Korsvagen þar sem ég rétt missti af 3 sporvögnum sem allir komu á sama tíma og voru að fara þangað sem ég var að fara, sá í rassgatið á þeim öllum þegar ég var að koma þangað, mætti svo niður á Brunnsparken að þá kom einmitt strætó sem ég gat tekið, var reynar löng strætóröð þannig að hann opnaði hurðirnar þarna aftast eins og þeir gera oft en ég beið bara fremst, því þeir eiga að stoppa þar líka, en nei, ekki þetta fífl, hann keyrði bara áfram þannig að ég þurfti að bíða xtra lengi þarna þangað til næsti kom, gott að koma í góða skapinu alltof seinn í skólann :) Svo í skólanum í dag var ég í hraðbankanum og Groten rölti með mér, var svo að fara að velja upphæðina sem ég ætlaði að taka út þegar Groten ætlaði að vera voðalega fyndinn og þykjast ýta á 2000sek, nema að hann ýtti óvart á takkann þannig að ég þurfti að dúsa með 2000sek (cirka 17000ísl) í vasanum í allann dag, sem er ekki alveg sniðugast í heimi, því að ég og lausafé erum ekki bestu vinir því að ég er alveg duglegastur í heimi að eyða því, held ég læsi þetta inn í skáp hérna heima þannig að maður geri örugglega enga djöfulsins vitleysu........ En Madagaskar er góð mynd, skellti mér á hana í bíó í gærkvöldi í pínulitlum hálftómum sal með Möggu og Krissu og skemmtum við okkur bara alveg helvíti vel, mæli vel með henni :)


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Sep 28, 2005

Klukkan
15:40

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local