Uppbyggjandi gagnrýni

Tók lyftingaræfingu í fyrradag niðri í frjálsíþróttahöllinni og jú eins og ég var búinn að nefna að þá er æfingahópurinn minn í æfingabúðum í Grikklandi núna og því æfi ég mjög mikið einn núna.
Var sumsé að lyfta og var í einhverjum vandræðum með 95kg í clean-i frá mjöðm eins og síðustu 2 vikurnar og spurði því einn kastþjálfarann í liðinu mínu hvort hann væri ekki til í að horfa á þegar ég cleanaði 95kg og segja mér hvað ég gerði vitlaust þar þar sem 90kg flugu upp létt.

Fékk bara stutt og gott svar frá honum, "Ragnar, þú ert bara of aumur!".

Mæli annars með heimasíðunni www.styrkeprogrammet.se sem er heimasíða með böns af styrktaræfingum + vídjóum af öllum æfingunum (einhver hundruð) sem eru á henni, bæði einföldum sem og erfiðum æfingum fyrir nýbyrjendur byrjendur sem og lengra komna. Einni g er hægt að logga inn á síðuna og búa til sín eigin æfingaprógröm ofl.
Síðan, sem er reyndar á sænsku, er gerð af 3 strákum hér í Gautaborgini, 2 fyrrverandi og einum núverandi frjálsþíþróttastrákum.



3 Athugasemdir
Ari
Apr 24, 2008, 12:24
Nýbyrjendur? Really?
Sigga R
Apr 24, 2008, 12:34
já alltaf gott að fá hreinskilin svör ?
En annars til hamingju með Prófið. OG Gleðilegt sumar. +10 og sól hér heima Sæluvika byrjar á sunnud. :-)
Apr 24, 2008, 20:43
Hvað er þetta Ari, smá svíslenska svona í morgunsárið hefur aldrei skaðað neinn ;)

Já takk fyrir það mamma, virkilega næs að ná þessu prófi, og gleðilegt sumar já, hafði ekki hugmynd um að sá ágætisdagur væri í dag...
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 24, 2008

Klukkan
11:24

Flokkur
Frjálsar
Íþróttir

Fjöldi athugasemda: 3

local