Það er alls ekkert lítill lélegur leikur í sjónvarpinu í kvöld sem maður gjörsamlega verður að horfa á :
VS
Held að þetta verði alveg suddaleikur (já það eða dauður 0-0 leikur) enda undanúrslitin í meistaradeildinni, bara spurning hvort liðið vilji mæta Man Utd drullusokkunum í úrslitunum því að eins og Barcelona hafa verið að spila að þá er ég því miður ekki að sjá fram á annað nema að Man Utd drullusokkarnir komist í úrslitin.
Mín spá í kvöld amk, þægilegur 2-0 sigur með 2 mörkum frá Torres!
En það hefur annars verið alveg frekar hálftómlegt á æfingunum hjá mér í gær og í dag, enginn þjálfari og enginn til að hlaupa eða lyfta með, kvarta svosem ekkert gífurlega mikið þar sem það hefur bara gengið alveg mjög vel hjá mér einum og yfirgefnum, hljóp mjög vel í gær 4x4x80m og svo hin fínasta lyftingaræfing í dag.
Í rauninni ekki annað hægt en að ganga vel með allt sem maður gerir þessa dagana nú þegar veðrið er svona dúndur gott, varð frábært fyrir helgina og hefur bara orðið betra og hlýrra síðann þá. Varla séð ský á himninum í einhverja 4 daga núna og hitinn í 17° í gær og ekki var kaldara í dag, vona að þetta haldist bara svona áfram þannig að maður geti sleppt því alveg að hlaupa inni og tekið allar hlaupaæfingarna úti !
bara rétt rúmur mánuður í fyrsta mót, does not feel like I´m really there yet..!