Stærri hluti æfingafélaga minna heldur af stað í æfingabúðir til Grikklands alveg eldsnemma í fyrramálið þar sem þau verða í jda vikna æfingabúðum í Rhodos (?), og eins og fyrirsögnin segir um að þá fer ég sumsé ekki með í ár, mikið að gera í skólanum og get eiginlega ekki misst af honum í 2 vikur og fannst bara hreinlega ekki þess virði að fara bara í 1 viku = ég heima í blíðunni :)
Vorið er sumsé komið hingað til lands, 13°, sól og smá gola í dag og á að vera eitthvað svipað veður næstu daga sem er alveg gífurlega næs.
Fagnaði þessu góða veðri í dag með því að taka æfingu úti á velli svona frekar mikið léttklæddur eins og mér einum er lagið. En þessar 2 síðustu hlaupaæfingar hafa bara gengið mjög vel, fór í gegnum mjög þungar 2 vikur þar sem lítið var að virka, lappirnar þungar osfrv en núna á fimmtudaginn tók ég fína æfingu, reyndar inni þar sem það var frekar hvasst, en hljóp þá 1x450m og 4x200m með 3mín hvíld eins og vikuna áður, mun betri hlaupið nún, allt mun léttara og tímarnir þareftir jú betri:
1x450m: 58.5 (400m: 51.3)
4x200m: 24.3 - 24.4 - 25.0 - 25.9
Alveg skemmtilega mikil sýra í síðasta en náði honum samt amk undir 26s.
Í dag var svo 3xsplittaðir 400m á dagskránni með alveg fínni hvíld, farið að koma aðeins meiri gæði í æfingarnar núna þegar það er farið að styttast í tímabilið. Sumsé 200m+200m, 250m+150m, 200m+200m með 45s hvíld á milli spretta og 20-30mín á milli setta. Hefði alveg þegið örlítið minni mótvind fyrstu 200m en jú hefur oft verið verra en fékk því aðeins hægari fyrstu 200m heldur en ég vildi fá:
200m+200m = 23.8 + 24.7 = 48.5s
250m+150m = 30.1 + 18.3 = 48.4s
200m+200m = 23.3 + 24.9 = 48.2s
Hefði jú eins og alltaf viljað fá þetta eylítið hraðar en hljóp bara svo mun mikið betur heldur en undanfarið þannig að ég er bara alveg ljómandi ánægður :)
Chill helgi !