"Warmer than warm yeah"

Var í alveg merkilega leiðinlegum fyrirlestri í skólanum í morgun, svo leiðinlegum að þrátt fyrir að hafa komið seint í fyrri hlutann að þá fór ég aftur heim áður en seinni hlutinn byrjaði, svona með því meira waste of time sem ég hef tekið þátt í lengi, ákvað að skella mér í staðinn til augnlæknis og láta tékka augun og kaupa mér nýjar linsur, og í fyrsta skiptið dagslinsur þar sem maður notar gleraugun náttúrulega mun meira núna.
Lét tékka augun alveg út og inn og komst að því að ég er víst með 3 ör í augunum, 2 í vinstra og eitt frekar "stórt" í hægra, magnað shitt það og góð leið til að losa sig við 5000kall, en gömlu linsurnar voru náttúrlega orðnar alltof gamlar þannig að...

Annars búið að vera frekar rólegt æfingalega séð síðustu dagana, fengið xtra hvíld og tekið frekar rólegar æfingar þar sem að lappirnar á mér hafa bara verið gjörsamlega búnar á því, hamurinn í fucki, og ekki náð að jafna mig á þessum rólegu dögum á milli erfiðari æfinganna, en full frískur og góður í dag þannig að vonandi að maður geti neglt á þetta aftur frá og með deginum í dag :)

En djöf... í morgun hafði ég heilann helling af einhverju skemmtilegu sem ég ætlaði að blogga um núna..... man bara ekkert hvað það var, crap. !

En mig langar samt alveg geðveikt mikið í svona peysu !!!



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 15, 2008

Klukkan
10:30

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 0

local